Fréttir dagsins
Fréttir dagsins
Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
19.02.2026 - Fréttir dagsins 19.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Staða bráðamóttöku Landspítala er óbreytt, viku eftir krísufund starfsfólks þar sem ástandið var sagt ógna lífi og öryggi fólks. Dæmi eru um að sjúklingar hafi legið í gluggalausu geymslurými þar í tíu daga, heilbrigðisráðherra boðar aðgerðapakka og vonast til að þannig leysist vandinn. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs að víkja Unni Lilju H...
18.02.2026 - Fréttir dagsins 18.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Þriggja daga opinber heimsókn Friðriks Danakonu...
17.02.2026 - Fréttir dagsins 17.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Ríkisstjórnin hyggist tengja almannatryggingar við launavísitölu. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt lagabreytinguna. Áhyggjurnar snúast meðal annars um það hvort verið sé að búa til tvöfaldan lás þar sem bætur, eða lífeyrir, geti vaxið og vaxið óháð því hvernig árar og jafnvel farið fram úr launum í einhverjum tilfellum – sem...
16.02.2026 - Fréttir dagsins 16.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Norski skíðagöngukappinn Jo...
15.02.2026 - Fréttir dagsins 15.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu. Sigurður Ingi Jóhannsson gerði uppgang popúlista og öfga að umfjöllunarefni sínu í sinni hinstu ræðu sem formaður Framsó...
14.02.2026 - Fréttir dagsins 14.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni. 23 einstaklingar frá Bakkak...
13.02.2026 - Fréttir dagsins 13.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið. Samanlagðu...
12.02.2026 - Fréttir dagsins 12.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans kom saman í dag og fundaði um starfsaðstæður þeirra. Það krefst þess að framkvæmdar verði úttektir á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga. Tíu eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotárás sem beindist gegn skóla í norðurhluta Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Árásarmaðurinn er meðal látnu. Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleyp...
11.02.2026 - Fréttir dagsins 11.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Alþjóðleg glæpasamtök sem stóðu að flutningi kókaíns frá Suður-Ameríku til Íslands hafa verið leyst upp. Samtökin notuðu burðardýr til að flytja efnin. Lögregla í Litháen, Spáni og Íslandi unnu með Evrópulögreglunni við rannsókn málsins óslitið í eitt ár og réðst í handtökur og húsleitir þann 4. febrúar síðastliðinn í samræmdum aðgerðum. Alls voru 24 handteknir, þar af 11...
10.02.2026 - Fréttir dagsins 10.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. Karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK sem fram fór í Kórnum í Kópavogi þann 30. janúar. Annar maður sat í gæsluvarðhaldi í um tvo sólarhringa gruna...
09.02.2026 - Fréttir dagsins 09.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Á fjórða hundrað jarðskálftar umhverfis Eldey frá háde...
08.02.2026 - Fréttir dagsins 08.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Lögmaður manna sem dvöldu í Bakkakoti á Rangárvöllum sem börn segist ekki hafa átt von á svo skjótum viðbrögðum stjórnvalda. Tugir manna og kvenna hafa leitað til hans eftir að Kveikur greindi frá aðstæðum drengja í Bakkakoti sem segjast hafa verið beittir ofbeldi þar. Hugmyndir um að tvímenna í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila til að bregðast við skorti á legurýmum á Land...
07.02.2026 - Fréttir dagsins 07.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Málefni Bakkakots, sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni, var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í þættinum sögðu fimm menn að húsfreyjan á Bakkakoti á Rangárvöllum hefði beitt þá margvíslegu ofbeldi. Börn voru í fóstri á bænum á árunum 1975-2002. Tíu menn segjast hafa verið beittir ofbeldi á bænum. Sautján ára piltur lést í umferðarslysi á Mik...
06.02.2026 - Fréttir dagsins 06.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. Yfirfull bráðamóttaka, aldrað fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og skurðaðgerðir sem þarf að fresta eru þau verkefni sem s...
05.02.2026 - Fréttir dagsins 05.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Forsætisráðherra segir kerfið hafa brugðist börnunum í Bakkakoti. Leikskólastjórnendur í Reykjavík krefjast aðgerða: „Við getum ekki haldið svona áfram“. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag til siðanefndar flokksins að hópurinn Konur í F...
04.02.2026 - Fréttir dagsins 04.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kj...
03.02.2026 - Fréttir dagsins 03.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Tveir eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum. Reykjavíkurborg hefur lokað framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi eftir að bakterían Listeria monocytogene...
02.02.2026 - Fréttir dagsins 02.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Lafuey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024. Gagnagrunnur heimilisfanga og annarra persónuupplýsinga fjölda ICE-liða er hýstur á íslenskum netþjóni. Upplýsingunum hefur verið safnað og er haldið úti á síðunni sem lýst er af aðsta...
29.01.2026 - Fréttir dagsins 29.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Ísland er komið áfram í undanúrslitin á EM í handbolta eftir öruggan 39-31 sigur gegn Slóveníu í síðasta leik milliriðilsins. Fjörutíu og fimm manns var sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag. Atvinnuvegaráðherra segir bandarískt stórfyrirtæki reyna að hafa áhrif á íslenska lagasetningu í eldismálum. Þrír Íslendingar þjálfa lið í undanúrslitum Evrópumóts karla í handb...
23.01.2026 - Fréttir dagsins 23.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til að verða næsti formaður Framsóknarflokksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirstrikar að Ísland standi áfram með Dönum og Grænlendingum í deilu þeirra við Bandaríkin. Mörgum létti þegar Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagðist í gær ekki ætla að beita hervaldi geg...
22.01.2026 - Fréttir dagsins 22.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fallið frá áformum sínum um að setja tolla á Danmörku og sjö önnur Evrópuríki vegna Grænlands. Trump fundaði með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, eftir ræðu sína á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í dag og hafa þeir lagt grunninn að framtíðarsamkomulagi á norðurslóðum. Fimm hafa verið handteknir í tengslum við ra...
21.01.2026 - Fréttir dagsins 21.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu. Ísland vann frækinn eins marks sigur gegn Ungverjum í hreinum úrslitaleik um efsta...
20.01.2026 - Fréttir dagsins 20.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Framgöngu Trumps gagnvart Grænlandi verður að linna „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Fimmta hver koma á bráðamóttöku tengd áfengi Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin ráðist í viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi á hringveginum við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Vegarkaflinn er þekktur grjóthrunsstaður og varð hrun úr fjallinu konu að bana...
19.01.2026 - Fréttir dagsins 19.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins. Átta löndin sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað nýjum tollum sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu fyrr í dag. Kristrún Frostadóttir fo...
18.01.2026 - Fréttir dagsins 18.01.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Donald Trump hyggst leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Verslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins frá því í fyrra er í uppnámi þar sem meirihluti á Evrópuþingi vill ekki lengur staðfesta sa...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.