Fréttir dagsins
Fréttir dagsins
Fréttir dagsins er hlaðvarp sem gefur út helstu fréttir dagsins alla morgna.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
16.03.2026 - Fréttir dagsins 16.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðurlandi vestra í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju. Laufey hélt sína aðra og síðustu tónleika helgarinnar í kvöld í Kórnum í Kópavogi og lýkur hún þar með tónleikaferðalagi sínu þar sem hún hefur meðal annars komið v...
15.03.2026 - Fréttir dagsins 15.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla. Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Same...
14.03.2026 - Fréttir dagsins 14.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál. Karlmaður hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga sex ára stúlku tvívegis og eiginkonu sinni ítrek...
13.03.2026 - Fréttir dagsins 13.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. Íslensk stjórnvöld taka nú þátt í máli gegn Ísrael fyrir Aþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs þess á Gasaströndinni. Þetta er í fyrsta skipti...
12.03.2026 - Fréttir dagsins 12.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar. Verðbólguhorfur hafa versnað og því er viðbúið að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á miðvikudag eftir viku, að mati Greiningardeildar Íslandsbanka. Stýrivextir voru lækkaðir úr 7,50 í 7,25 prósent í...
11.03.2026 - Fréttir dagsins 11.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum. Evrópumálin eru komin kyrfilega á dagskrá eftir að ríkisstjórnin kynnti á föstudag þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Spurt verður: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Stúlkan sem lögreglan á Vesturla...
10.03.2026 - Fréttir dagsins 10.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka ætti upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist...
09.03.2026 - Fréttir dagsins 09.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún fékk 95 atkvæði af 101. Hlynur Már Ragnheiðarson sóttist einnig eftir formannskjöri...
08.03.2026 - Fréttir dagsins 08.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu er komin á dagskrá þingfundar Alþingis á mánudag. Tillagan var kynnt á blaðamannafundi í gær, þar sem stefnt er að þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani bera ábyrgð á loftárás á stúlknaskóla í borginni Minab um síð...
07.03.2026 - Fréttir dagsins 07.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ekkert samkomulag v...
06.03.2026 - Fréttir dagsins 06.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu (ESB) á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt og dagsetning atkvæðagreiðslunnar. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og...
05.03.2026 - Fréttir dagsins 05.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag er sagt sýna það þegar bandarískur kafbátur grandar írönsku herskipi. Minnst 140 úr áhöfn er saknað en það tókst að bjarga nokkrum tugum manna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrif...
04.03.2026 - Fréttir dagsins 04.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson ritstjóri, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sem lést að heimili sínu á sunnudaginn, 78 ára að aldri, mun hljóta opinbera útför. Banamein Davíðs var hjartaáfall. Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík er sakaður um fjárdrátt og að hafa millifært fjórar til fimm milljónir króna úr sjóðum félagsins. Málið hefur verið k...
03.03.2026 - Fréttir dagsins 03.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri. Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé...
02.03.2026 - Fréttir dagsins 02.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri. Með honum er genginn einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum landsins um áratugaskeið. Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið...
01.03.2026 - Fréttir dagsins 01.03.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. Haukar urðu í kvöld bikarmeistarar í handbolta karla eftir sannfærandi 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik keppninnar í Kuehne+Nagel höl...
28.02.2026 - Fréttir dagsins 28.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann í kvöld sinn fyrsta sigur á Litháen síðan í janúar 1992. Íslenska liðið lenti mest 21 stigi undir í leiknum en tryggði sér 86-85 sigur með því að vinna lokaleikhlutann 32-17. Heildarkröfur í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í september nema um 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur í bú...
27.02.2026 - Fréttir dagsins 27.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík. Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar. Landsréttur hefur...
26.02.2026 - Fréttir dagsins 26.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. Veðurstofan hefur gefið út gula ve...
25.02.2026 - Fréttir dagsins 25.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Kerecis mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands. Um er að ræða skatt vegna kaupa Coloplast, móðurfélags Kerecis,...
24.02.2026 - Fréttir dagsins 24.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Hópur þjóðarleiðtoga, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, eru komin til Kyiv, höfuðborgar Úkraínu, þar sem þess verður minnst í dag að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Þetta er í annað skiptið sem Kristrún kemur til Kyiv, en hún var fyrir réttu ári síðan. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins áætlar að rúmlega 32 hektarar haf...
23.02.2026 - Fréttir dagsins 23.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Maðurinn sem var skotinn til bana við Mar-a-Lago, glæsihýsi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í dag var 21 árs gamall og hafði nýlega stofnað fyrirtæki sem sérhæfði sig í handteiknuðum listrænum myndum af golfvöllum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið að slökkva sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis. Í fyrstu var talið að ekki væri mikill eldur...
22.02.2026 - Fréttir dagsins 22.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Haraldur Sigurðsson, betur þekktur sem Halli, er látinn, á 84. ári. Hann lést 18. febrúar eftir nokkur veikindi. Greint er frá andláti Haraldar í Morgunblaðinu í dag. Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í he...
21.02.2026 - Fréttir dagsins 21.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðski...
20.02.2026 - Fréttir dagsins 20.02.2026 3:00
Í fréttum er þetta helst Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi. Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segir þak...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.