DV

Fókus

News IS ↓ 127 episodes

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.

Author

DV

Category

News

Podcast website

dv.is

Latest episode

Jan 23, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Unnur Óla 23.02.2024

Gullsmiðurinn, einkaþjálfarinn og fitnesskeppandinn Unnur Kristín Óladóttir er gestur vikunnar. Hún snýr til baka á keppnissviðið í maí eftir fimm ára pásu. Undanfarna mánuði hefur hún unnir hörðum höndum að byggja sig upp, bæði líkamlega og andlega, eftir mjög erfitt tímabil. Hún missti matarlyst, átti erfitt með að finna gleðina og brosa, hún hafði fjarlægst fólkið sitt og fann að hún var búin a...

Nína Richter 16.02.2024

Fjölmiðlakonan og laganeminn Nína Richter var afburðanemandi í grunnskóla og ætlaði sér að verða lögfræðingur. En að vera í námi og borga leigu á sama tíma reyndist of erfitt og hún hætti í framhaldsskóla. Eftir að systir hennar lést úr krabbameini var hún týnd og fann enga fótfestu í lífinu í nokkur ár. Hún flutti um tíma til Spánar, kom síðan heim og byrjaði í kokkanámi, kláraði handritagerð og...

Rakel Hlyns - Viljinn til að lifa sterkari en uppgjöfin 08.02.2024

Styrktarþjálfarinn Rakel Hlynsdóttir lenti á vegg árið 2018. Hún var með mikið þunglyndi og kvíða en engum hefði dottið það í hug. Hún faldi sjúkdóminn vel og barðist við hann í hljóði. Það kom síðan tímapunktur þar sem hún varð að leita sér hjálpar því lífsviljinn var að hverfa en innst inni vissi hún að hana langaði að lifa. Rakel hefur alla tíð verið með mikið keppnisskap sem hefur meðal annars...

Alda Coco 02.02.2024

Glamúrfyrirsætan Alda Coco er gestur vikunnar í Fókus. Hún fer um víðan völl í þættinum og ræðir meðal annars um fyrirsætubransann, Einkamál.is málið svo kallaða, fegrunaraðgerðir og kjaftasögur. 

Helgi Ómars - Að rísa upp úr öskunni eftir ofbeldissamband 25.01.2024

Ljósmyndarinn, hlaðvarpsstjórnandinn og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson var í ofbeldissambandi í átta ár. Það tók hann langan tíma að átta sig á því sem væri að gerast fyrir hann, en ofbeldið var andlegt og vissi hann ekki hvað gaslýsing og narsisissti var á þeim tíma. Með mikilli sjálfsvinnu er hann kominn á þann stað sem hann er í dag og berst fyrir vitundavakningu um andlegt ofbeldi. 

Ragga Holm 18.01.2024

Ragga Holm ólst upp á ástríku heimili en þekkti aldrei blóðmóður sína. Þegar Ragga var 23-24 ára fékk hún vinabeiðni frá henni, en ákvað að samþykkja hana ekki. Nokkrum vikum síðar dó blóðmóðir hennar og var í fyrstu talið að hún hafi verið myrt. Það kom síðar í ljós að þetta hafi verið slys. Málið vakti mikla athygli og segir Ragga það hafa verið áfall að vera í búð og sjá mynd af móður sinni á f...

Hera Gísladóttir - Hvernig stjörnuspeki getur haft áhrif á líf þitt  11.01.2024

Heilsumarkþjálfinn og stjörnuspekingurinn Hera Gísladóttir fer um víðan völl. Hún skaust fram á sjónarsviðið fyrir áratug þegar hún og athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins byrjuðu saman. Hera er sterkur karakter með bein í nefinu og lét ekki slúðursögurnar hafa áhrif á sig, sérstaklega ekki orðróminn um að hún hafi látið fjarlægja rifbein til að grennast.  Nú eru tíu ár liðin, þau eiga saman son og haf...

Áramótaþáttur - Ellý Ármanns spáir í spilin 29.12.2023

Spákonan Ellý Ármannsdóttir gerir upp árið, hvaða lexíur hún lærði og hvað hún ætlar að taka með í næsta ár. Hún mætti með tarot-spilin og spáði fyrir nokkrum þekktum einstaklingum og stórum atburðum. Hún sagði meðal annars að það myndi gjósa, sem það gerði örfáum dögum síðar. Þátturinn var tekinn upp um miðjan desember. Ellý spáði einnig fyrir ríkisstjórninni og örlögum hennar... 

Vigdís Howser 21.12.2023

Rapparinn og áhrifavaldurinn Vigdís Ósk Howser Harðardóttir fer um víðan völl í þættinum. Við ræðum um Reykjarvíkurdætur-ævintýrið, sóló ferilinn sem tók við, deitmenninguna og hvenær best sé að sofa hjá, sjálfsástarferlið og margt annað.  

Bolli Már Bjarnason - Lét gamlan draum rætast 14.12.2023

Bolli Már Bjarnason hafði lengi dreymt um að reyna fyrir sér í uppistandinu. Stuttu áður en hann varð 31 árs hugsaði hann: Ef ekki núna, hvenær? Hann auglýsti fyrsta uppistandið í vor og það hefur gengið vonum framar. Hann opnar sig um ferðalagið, föðurhlutverkið, hvernig það hafi verið að alast upp sem sonur tveggja presta og ýmislegt annað.

Dagbjört Rúriks - Edrúmennska og andleg vakning 07.12.2023

Söngkonan og lagahöfundurinn Dagbjört Rúriksdóttir drakk fyrst Breezer fyrir busaball í framhaldsskóla, með árunum ágerðist neyslan og endaði hún í harðri kókaínneyslu áður en hún varð edrú í desember 2019. Hún öðlaðist andlega vakningu stuttu síðar og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að gera upp fortíðina og gangast við mistökum sínum.

Stefanía Svavars - Lífið, tónlistin og bataferlið frá meðvirkni 01.12.2023

Söngkonan Stefanía Svavarsdóttir ræðir um tónlistarferilinn, lífið, hvernig það var að vera einstæð móðir, ólétt og atvinnulaus í heimsfaraldri, hvernig hún leitaði sér hjálpar við meðvirkni og hversu hamingjusöm hún er í dag. 

Gunnar Ingi - Lífið á biðlista 24.11.2023

Gunnar Ingi Valgeirsson er tónlistarmaður og hlaðvarpsstjórnandi sem vakið hefur athygli fyrir þætti sína, sem fjalla á óheflaðan hátt um vanda fíkniefnaneytenda á Íslandi.

Margrét Edda Gnarr 17.11.2023

Íþróttakonan og einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr opnar sig um eineltið í æsku, baráttuna við átröskun og áfengisvanda, bataferlið og hvernig lífið hefur breyst eftir að hafa fengið einhverfugreiningu fyrir nokkrum árum.

Dr. Erla Björnsdóttir - Allt um svefn 10.11.2023

Dr. Erla Björnsdóttir ræðir allt það helsta sem þú þarft að vita um svefn, hvað er að hafa neikvæð áhrif á svefninn, hvernig við getum bætt hann og útskýrir af hverju konur þurfa meiri svefn.  

Hanna Rún Bazev 03.11.2023

Gestur þáttarins er dansarinn Hanna Rún Bazev.

Júlí Heiðar 27.10.2023

Gestur þáttarins er tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar.

Tobba Marinós 20.10.2023

Gestur þáttarins er Tobba Marinós athafnakona. Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

Heiðrún Finnsdóttir 12.10.2023

Heiðrún Finnsdóttir ákvað að snúa blaðinu eftir að hafa verið send á sundæfingu með eldri borgurum á Grensás. Hún er þjálfari í dag með jákvæðnina að vopni, þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum mörg áföll. Hún missti föður sinn og stjúpmóður í bifhjólaslysi á Kjalarnesi og segir erfitt að vita til þess að enginn vilji axla ábyrgð.

Betri helmingurinn Ási 05.10.2023

Gestur þáttarins er Ásgrímur Geir Logason sem heldur úti hlaðvarpinu Betri helmingurinn. Umsjón hefur Guðrún Ósk.

Þórhildur Magnúsdóttir - opin sambönd 29.09.2023

Þórhildur heldur úti vinsælu síðunni Sundur og saman á Instagram og býður upp á námskeið fyrir einstaklinga og pör. Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

Gummi Kíró 23.09.2023

Gestur þáttarins er Gummi Kíró, umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

Saga B - 22.06.2023 23.06.2023

Gestur þáttarins er Berglind Saga Bjarnadóttir sem er betur þekkt sem Saga B. Hún opnar sig um tónlistina, kjaftasögurnar og ferðalögin í nýjasta þætti af Fókus Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

Melkorka Torfadóttir - 15.06.23 16.06.2023

Melkorka Torfadóttir er hársnyrtir, móðir og afrekskona í fitness sem hefur lagt mikla vinnu í að komast á þann stað þar sem hún er í dag. Hún náði að losa sig úr ofbeldissambandi og vann úr þeirri erfiðu reynslu með hjálp Bjarkarhlíðar, Stígamóta og Kvennaathvarfsins og segir sögu sína til að vekja athygli á mikilvægi þess að þolendur fái hjálp eftir að hafa komist undan ofbeldismanni sínum.

Kristín Sif Björgvinsdóttir 08.09.2023 09.06.2023

Gestur þáttarins er Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpskona. Umsjón hefur Guðrún Ósk Guðjónsdóttir.

Listen to the Fókus podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.