DV

Fókus

News IS ↓ 127 Folgen

Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.

Autor

DV

Kategorie

News

Podcast-Website

dv.is

Neueste Folge

23. Jan 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“ 23.01.2026

Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við lý...

Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur 15.01.2026

Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og sjál...

Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“ 09.01.2026

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þ...

Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked 31.12.2025

Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með laginu Um allan alheiminn. Hún hefur einnig getið sér gott orð sem leikkona og talsetti hlutverk Glindu í kvikmyndunum Wicked og Wicked: For...

Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026 25.12.2025

Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða miklar breytingar í stjórnmálum, meðal annars mun ný ríkisstjórn taka við í haust og nefnir hún einn flokk...

Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn 19.12.2025

Margrét Sól Ragnarsdóttir dúxaði þegar hún útskrifaðist með mastersgráðu í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík og tryggði sér draumastarf hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Össuri. Hún virtist vera á „réttu leiðinni“ en innra með henni var eitthvað sem togaði hana í aðra átt. Í haust tók hún þá stóra ákvörðun um að segja upp starfi sínu og stökkva út í óvissuna til að verða listakona. Marg...

Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á 12.12.2025

Markþjálfinn, einkaþjálfarinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar fer hún opinskátt yfir kulnunina sem hún lenti í árið 2018, hvernig líkaminn reyndi að stoppa hana en hún hlustaði ekki – og hvers vegna margir hunsa þessi skilaboð. Hún talar einnig um fordóma, sérstaklega eldri kynslóðarinnar, fyrir kulnun, álagið sem fylgir nútímalífi og hvers vegna...

Kristinn Aron: Veðmálafíkn tók yfir líf mitt 04.12.2025

Þjálfarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Kristinn Aron Hjartarson, sem verður 39 ára í desember, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar ræðir hann opinskátt um veðmálafíkn sem tók yfir líf hans um árabil, meðferðina sem varð vendipunktur árið 2020 og hvernig hann hefur síðan lifað edrú lífi — bæði frá veðmálum og áfengi. Kristinn lýsir spilafíkn sem manískri þráhyggju sem fylgir mik...

Hildur: „Í febrúar klessti ég á vegg og fór í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum“ 27.11.2025

Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir um kulnun, ADHD, hvernig hugleiðsla breytti...

Linda Sæberg - Fann sig í spiritúalisma eftir krabbameinsbaráttuna 20.11.2025

Linda Sæberg hefur undanfarin ár gengið í gegnum dimma dali en með aðdáunarverðum hætti tekist á við öll vandamál með bjartsýni og von að leiðarljósi. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún opnar sig um baráttuna við brjóstakrabbamein, áfallasögu sem mótaði líf hennar í tvo áratugi og þá djúpu umbreytingu sem hún gekk í gegnum þegar hún fann styrk í andlegum málum og spiritúa...

Sylvía Rún: Lífið með OCD 13.11.2025

Körfuboltakonan Sylvía Rún Hálfdanardóttir greindist með áráttu- og þráhyggjuröskun (OCD) þegar hún var sautján ára gömul. Greiningin opnaði augu hennar fyrir ýmsu úr æsku hennar sem var vísbending um hvað var að hrjá hana. Um tíma var hún orðin fárveik en blessunarlega leitaði hún sér hjálpar og tókst með baráttuandann að vopni að komast í gegnum þetta skeið. Í dag er hún á góðum stað og er með ý...

Gunnar Dan: Við erum ekki ein 06.11.2025

Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, trúir því staðfastlega að mannkynið sé ekki eitt í alheiminum. Gunnar var að gefa út bókina UFO101 og er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um reglulegar heimsóknir geimvera til jarðar – líka til Íslands. Hann segir frá mismunandi tegundum geimvera, meintum samningum þeirra við stórveldi og íslensku brottnámstilfelli. G...

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum 31.10.2025

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón Rúnar Sveinsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræddi um ýmsar tegundir netsvindls í þættinum, hvað skal varast og hvað sé gott að vita. Hann hvetur fólk til að vera gagnrýnið en svindlin eru sífellt að verða þróaðri og fágaðri. Það eru heilu hóparnir sem vinna við að hafa af öðrum fé og þó sumir hópar séu viðkvæmari en aðrir þá geta allir lent í...

Paradísa: Lífið tók stakkaskiptum þegar hún hryggbrotnað 23.10.2025

Tónlistarkonan Paradísa er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún heitir fullu nafni Dísa Dungal og er fyrrverandi fegurðardrottning og íþróttafræðingur. Líf Paradísu snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði árið 2022. Það hafði gríðarleg áhrif á hana, ekki bara líkamleg heldur einnig andleg en Paradísu fannst fótunum kippt undan henni. Hún gat ekki lengur sinnt starfi sínu né stundað áhugam...

Hanna Birna: Var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS 16.10.2025

Hanna Birna Valdimarsdóttir, 33 ára, var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS-heilkenni. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hanna Birna fékk fyrstu einkennin fyrir rúmlega áratug síðan þegar hún gekk með dóttur sína. Einkennin gerðu aftur vart við sig á meðgöngu sonar hennar en mætti Hanna Birna dómhörku í heilbrigðiskerfinu og var spurð hvort hún væri „al...

Viktoría Rós - Þurfti að horfast í augu við áföllin til að byggja sig upp á ný 09.10.2025

Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Viktoría Rós Jóhannsdóttir opnar sig í viðtalsþættinum Fókus og segir frá átakanlegri lífsreynslu sem mótaði hana. Þrátt fyrir venjulega æsku varð hún fyrir kynferðisofbeldi sem barn af hendi barnapíu, áfalli sem hún vann ekki úr fyrr en mörgum árum síðar. Í kjölfarið fylgdu erfið sambönd, áfengisvandamál og flókin fjölskyldumál varðandi faðerni sonar hennar, en...

Íþróttakonan Hekla Sif: Baráttan og bataferlið við átröskun 02.10.2025

Hekla, 25 ára, var um árabil afreksíþróttakona í frjálsum íþróttum og bjó um tíma í Texas þar sem hún lagði nám við West Texas A&M háskólann og keppti fyrir hönd skólaliðsins. Þegar hún var átján ára gömul vildi hún ná lengra í greininni og ákvað að kaupa matarplan frá fitness þjálfara. Hún myndaði fljótlega óheilbrigt samband við mat og þróaði með sér átröskun sem tók yfir líf hennar. Hún hef...

Katla Hreiðars: Reksturinn, barnalánið og ástin 26.09.2025

Athafnakonan Katla Hreiðarsdóttir, betur þekkt sem Katla í Systur og makar, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fyrir rúmlega ári síðan var Katla alvarlega að íhuga að hætta eftir sautján ára rekstur. Það voru erfiðir tímar, bróðir hennar var að berjast við illvígt krabbamein og hún var ólétt af þriðja barninu á stuttum tíma. Reksturinn var líka í lægð en það hefur verið krefjandi undanfa...

Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“ 18.09.2025

Guðrún Helga Sørtveit, áhrifavaldur og eigandi fyrirtækisins Fyrsta árið, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Í þættinum opnar Guðrún sig um móðurhlutverkið, þegar hún fékk utanlegsfóstur sem varð til þess að fjarlægja þurfti annan eggjastokkinn og gleðina og kvíðann sem hún upplifði þegar hún varð fljótlega aftur ólétt. Hún segir frá báðum meðgöngunum og fæðingunum og ræðir einnig einlæg...

Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“ 11.09.2025

Við vörum við efnisinnihaldi þáttarins, fjallað er um ofbeldi, kynferðisofbeldi, fíkniefnaneyslu og sjálfsvíg. Kokkurinn og hnefaleikastjarnan Kara Guðmundsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Saga Köru er lituð af áföllum og erfiðleikum, en þetta er líka sigursaga og vonarsaga fyrir fólk í svipuðum aðstæðum og ástvini þeirra.

Steffý Þórólfs: Hafði áhyggjur að áreitið myndi hafa áhrif á ófæddan soninn 04.09.2025

Áhrifavaldurinn Steffý Þórólfsdóttir upplifði erfiða tíma á sinni fyrstu meðgöngu. Hún var illa stödd andlega, meðal annars vegna áreitis og eineltis, og hafði miklar áhyggjur af því hvort að það myndi hafa áhrif á frumburðinn í móðurkviðnum. Hún hefur fjallað um þessa reynslu sína á samfélagsmiðlum, svo athygli hefur vakið, og segir að tilgangurinn hafi verið sá að vekja fólk til umhugsunar um mi...

Hafdís Björg: „Ég týndi mér alveg“ 28.08.2025

Einkaþjálfarinn, athafnakonan og áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fókus snýr aftur eftir sumarfrí og í fyrsta þætti ræðir Hafdís einlæg um að finna sig eftir erfiðleika, vinkonumissi og hvernig er að verða fyrir netníði þegar hún var á dimmum stað. Hún opnar sig einnig um æskuna, að verða móðir ung og fæðingarþunglyndi.

Þórdís Björk: Móðurhlutverkið, ferillinn og ADHD 30.05.2025

Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir ræðir um mörgu hliðar móðurhlutverksins, tónlistar- og leiklistaferilinn, harkið og gamanið, ástina og lífið með ADHD í Fókus, viðtalsþætti DV.

Helena Reynis: „Mér datt ekki í hug að ég gæti lent í ofbeldissambandi.“ 22.05.2025

Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Andlegt ofbeldi er gjarnan falið, tabú að tala um og mikil skömm sem getur fylgt þv...

Hermann um skilnaðinn og svikin: „Hann laug að ég væri dáinn“ 16.05.2025

Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli Bachmann Ólafsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um hvernig það var að alast upp sem samkynhneigður strákur þegar hommi var álitið niðrandi og ljótt orð. Hann ræðir einnig um hárgreiðsluferilinn og fyrirtækjareksturinn, sem hefur verið eins og rússíbani á köflum. Hermann opnar sig í einlægur um persónuleg mál, eins og barneignaferlið sem b...

Höre den Podcast Fókus in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet