DV
Fókus
Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sara Lind: Ástar- og kynlífsfíkn 08.11.2024 29:12
Kynlífsfræðingurinn Sara Lind er gestur vikunnar í Fókus. Hún sérhæfir sig í ástar- og kynlífsfíkn en hún er sjálf ástar- og kynlífsfíkill og hefur þurft að leggja mikla vinnu í að koma sér úr hegðunarmynstrinu sem hafði mikil áhrif á líf hennar. Hún ræðir einnig um skömm tengda kynlífi og lífið í Danmörku.
Bjarki Steinn – „Upplifunin var að ég rétt náði að lifa þetta af“ 01.11.2024 1:01:57
Bjarki Steinn Pétursson var um átta ára gamall þegar ókunnugur karlmaður braut á honum á fótboltavellinum á skólalóðinni. Hann segir frá brotinu og afleiðingum þess en hann fékk enga áfallahjálp og hélt áfram að ganga í skólann, gekk framhjá staðnum, þar sem honum fannst lífi sínu ógnað, á hverjum degi. Eftir þetta fór að halla undan fæti, hann byrjaði snemma að drekka og neyta fíkniefna, sem hann...
Selma Soffía - Sjálfsvinna eftir ofbeldissamband 24.10.2024 45:53
Hlaðvarpsstjórnandinn og athafnakonan Selma Soffía Guðbrandsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum segir hún frá sambandi sem hún var í frá 16 til 23 ára. Þetta var á erfiðum tíma, mikilvægum mótunarárum, og hafði mikil áhrif á Selmu. Hún var ung og hélt að svona ætti ást að vera, að það væri enginn annar þarna úti fyrir hana og þetta ætti hún skilið. Hún leyndi ofbeldinu, sem hún segir haf...
Fegurðardrottningin Elísa Gróa – Kom sér upp úr dimmum dal 17.10.2024 34:20
Fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er einnig aðstoðarframkvæmdarstjóri Ungfrú Ísland, yfirflugfreyja hjá Play og förðunarfræðingur. Elísa tók þátt í sinni fyrstu fegurðarsamkeppni árið 2015 og vann loksins árið 2021. Í dag lifir hún og hrærist í bransanum. Hún er sviðshöfundur Ungfrú Ísland og tók við sem aðstoðarframkvæmdastjóri keppninnar í nóvember í...
Götustrákurinn Bjarki Viðarsson: Reis upp úr öskunni eftir kókaín- og klámfíkn, smálánaskuldasúpu og sjálfshatur 10.10.2024 48:44
„Það er ótrúlegt að fá að upplifa venjulegt líf,“ segir Bjarki Viðarsson, gestur vikunnar í Fókus. Hann skaust fram á sjónarsviðið fyrir einu og hálfu ári síðan þegar fyrsti þáttur af Götustrákum kom út. Síðan þá hefur hann nýtt vettvanginn til að tala um erfiða hluti, hluti sem margir þora ekki að tala um, jafnvel ekki við sína nánustu. Eins og baráttu hans við kókaín- og klámfíkn. Djúpa sjálfsha...
Móeiður Sif – Bati eftir átröskun, fitness og flugfreyjulífið 03.10.2024 30:31
Flugfreyjan og fitnesskeppandinn Móeiður Sif Skúladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um flugfreyjulífið, hvað hún myndi aldrei gera um borð í flugvél, hvað hún gerir við flugdólga og svo framvegis. Hún ræðir einnig um fitness og átröskun sem hún glímdi við í næstum einn og hálfan áratug.
Pálína Ósk Ómars - Símtal frá lögreglunni strax eftir fæðingu vakti upp erfiðar minningar 26.09.2024 1:01:10
Snyrtifræðingurinn og athafnakonan Pálína Ósk Ómarsdóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum opnar hún sig um fæðingarþunglyndi, nauðgun sem hún varð fyrir og hvernig sú reynsla breytti henni til frambúðar. Hún ræðir um dómsmálið og árin þrjú sem fóru í að leita réttar síns sem enduðu með gerandann í fangelsi. Pálína ræðir einnig um líkamsímynd, samfélagsmiðla, fegrunaraðgerðir og margt annað...
Lína Birgitta 19.09.2024 35:29
Athafna- og ofurkonan Lína Birgitta Sigurðardóttir er gestur þáttarins. Hún ræðir um upphaf Define the Line, fyrsta fyrirtækið hennar sem fór í gjaldþrot og hvernig hún fann sig loksins í námi eftir að hafa átt mjög erfiða skólagöngu. Lína opnar sig einnig um veikindi og hvernig hún er að tækla þau í dag. Ásamt því hvernig er að vera þekkt manneskja í sambandi með þekktri manneskju á þessu litla l...
Steinunn Ósk – Vildi sleppa feluleiknum þegar hún fór í meðferð 12.09.2024 26:45
Steinunn Ósk Valsdóttir er áhrifavaldur, förðunarfræðingur, hlaðvarpsstjórnandi, markaðsstjóri og stílisti. Hún er einnig þriggja barna móðir en hún varð ólétt af tvíburum þegar hún var nítján ára gömul. Hún opnar sig um lífið sem ung móðir, lærdóminn sem hún hefur dregið af því, hvernig samstarfið gengur með barnsfeðrunum og svo margt annað. Hún ræðir einnig einlæg um áfengisvanda en Steinunn fór...
Guðrún Ósk Maríasdóttir - Lífið með bæði langveikt barn og heilbrigð börn og höfuðhöggið sem breytti öllu 05.09.2024 35:18
Guðrún Ósk Maríasdóttir er matvælafræðingur, næringarþjálfari, nuddari og saunadrottning. Hún er þriggja barna móðir. Halldóra María er elst, ellefu ára gömul og er með mjög sjaldgæfan genasjúkdóm og þekkir Guðrún Ósk það vel hvernig það er að þurfa að berjast fyrir réttindum barnsins síns. Þegar hún varð ólétt af sínu öðru barni var tíminn þar til þau hjónin gátu fengið staðfest hvort barnið væri...
Fanney Dóra – Maður heldur aldrei að barnið manns fái heilaæxli 29.08.2024 1:21:29
Litla hetjan Thalia Guðrún Aronsdóttir varð þriggja ára í byrjun mars. Rúmlega níu vikum áður hafði hún gengist undir aðgerð þar sem sjö til átta sentímetra góðkynja heilaæxli var fjarlægt. Í dag er hún heilbrigð og líður vel, eða eins og hún sagði sjálf við foreldra sína eftir aðgerðina: „Læknirinn lagaði mig.“ Í marga mánuði höfðu foreldrar Thaliu Guðrúnar reynt að fá aðstoð. Þau horfðu á litla...
Vala Grand 22.08.2024 48:16
Hin frábæra Vala Grand er gestur vikunnar í Fókus og er gestur fyrsta þáttarins eftir sumarfrí. Hún er mætt í Fókus til að ræða um lífið, föðurmissinn og ólýsanlega sársaukann sem honum hefur fylgt. Hún er samt alltaf sama lífsglaða Vala sem lítur björtum augum til framtíðar. Hún er nýbúin að taka U-beygju í lífinu og segir okkur frá öllu þessu og mörgu öðru í Fókus. (Þátturinn var tekinn upp í jú...
Ísak Morris – Endaði á götunni 18 ára og kynntist morfínefnum 23.05.2024 41:14
Tónlistarmaðurinn Ísak Morris hefur þrisvar sinnum legið við dauðans dyr eftir að hafa tekið of stóran skammt. Hann varð ungur háður fíkniefnum og endaði á götunni þegar hann var átján ára þegar mamma hans flutti úr landi og skildi hann einan eftir. Þar kynntist hann morfínefnum og við tók margra ára barátta við fíknisjúkdóm. Hann náði um tíma sjö ára edrúmennsku, eignaðist fjölskyldu og börn og l...
Guðbjörg Ýr – Afmælisferðin breyttist í martröð 16.05.2024 34:40
Guðbjörg Ýr Valkyrja Guðbjargardóttir á langa áfallasögu að baki. Hún varð fyrir tengslarofi sem barn og litaði það sambönd hennar á fullorðinsárum. Eftir margra ára edrúmennsku byrjaði Guðbjörg með karlmanni sem hún taldi vera besta vin sinn og ástina í lífi sínu. Hún byrjaði að nota aftur og bauð honum til Dalvíkur þegar hún varð fertug. Ferðin breyttist fljótt í martröð þegar hún kom að honum m...
Kidda Svarfdal – Heppin að vera á lífi eftir heilablæðingu sem læknar héldu að væri vöðvabólga 10.05.2024 1:01:45
Kidda Svarfdal fékk allt í einu svakalegan hausverk árið 2021 og var send þrisvar sinnum heim af læknavaktinni og bráðamóttöku með sterkjar verkjatöflur. Henni var sagt að þetta væri bara slæm vöðvabólga en þegar hún rankaði við sér meðvitundarlaus í blóðpolli heima hjá sér var hún loksins send í myndatöku. Það kom í ljós að hún væri með heilablæðingu og sama dag fór hún í fyrstu aðgerðina af þrem...
Ólafur Laufdal og Dagur Gunnars – Húðflúrsheimurinn 02.05.2024 39:41
Ólafur Laufdal og Dagur Gunnarsson eru báðir húðflúrarar en upphaf þeirra í bransanum er gjörólíkt. Á meðan Dagur byrjaði sem lærlingur á stofu, byrjaði Ólafur í bílskúr hjá foreldrum sínum með vél sem hann keypti erlendis. Þessi þættur er fyrir alla en sérstaklega fyrir fólk sem hefur áhuga á tattúum. Við förum yfir rauð flögg í fari viðskiptavina og húðflúrara. Hvað skal varast, hvaða tattú er v...
Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu 26.04.2024 1:20:53
Aníta Ósk Georgsdóttir er móðir, dóttir, vinkona, eiginkona og svo margt annað. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og starfaði sem leiðbeinandi í grunnskóla áður en hún fór í veikindaleyfi. Í haust fer hún í starfsendurhæfingu hjá Virk og lítur hún björtum augum fram á veginn. Aníta er hægt og rólega að læra að lifa upp á nýtt eftir að hafa verið greind með geðhvörf. Hún fékk greininguna eftir að...
Katrín Myrra 18.04.2024 29:11
Söngkonan, laga- og textahöfundurinn Katrín Myrra Þrastardóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún fékk fyrsta ofsakvíðakastið sitt árið 2021, en fyrir það hafði hún aldrei glímt við kvíða eða einhvers konar andleg veikindi. Hún var á þeim tíma búin með jógakennaranámið, stundaði núvitund og hafði ferðast ein til fjölda landa. Það var því mikið áfall að vera greind með ofsakvíðaröskun (felmtursröskun...
Samfélagsmiðlastjarnan Embla Wigum 11.04.2024 33:38
Embla Wigum er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna Íslands með rúmlega 2,7 milljónir fylgjenda á TikTok og Instagram. Hún er algjör snillingur með förðunarburstann og hafa myndbönd hennar slegið í gegn, mörg hafa fengið milljónir áhorfa, sum hver tugi milljóna. Embla ræðir um áhrifavaldabransann í London, þar sem hún er búsett, upphafið á ferlinum, hvernig venjulegur vinnudagur lýsir sér, ráð fyrir...
Alrún Ösp - BDSM 05.04.2024 42:56
Alrún Ösp Herudóttir hefur verið mjög virk í BDSM senunni hér á landi um árabil. Hún ræðir um samfélagið, BDSM-hneigð, bindingar, samþykki, og traust. Þá ræðum við BDSM-partý hér á landi og hvað á sér stað á slíkum viðburðum og margt fleira í þættinum.
Draugasögur - Katrín og Stefán John 28.03.2024 36:59
Það mætti segja að hjónin Katrín Bjarkardóttir og Stefán John Stefánsson séu sértækir fagmenn í draugagangi. Þau halda úti vinsæla hlaðvarpinu Draugasögur og ferðast með hlustendur um myrkustu horn heimsins. Þau eru gestir vikunnar í Fókus og ræða um það sem er fyrir handan, hvernig draugagangur lýsir sér, hvernig er hægt að losna við drauga, þeirra fyrsta reynsla að sjá eitthvað að handan og marg...
Arna Vilhjálms - Stóð með sjálfri sér og fór í efnaskiptaaðgerð 21.03.2024 55:00
Arna Vilhjálms sigraði Biggest Loser árið 2017. Hún fer yfir vegferð sína bæði fyrir og eftir keppnina, leitina að sjálfsást og hvernig tilfinningin var að komast loks á leiðarenda. Arna fer einnig yfir ákvörðun hennar að gangast undir efnaskiptaaðgerð, magaermi, allt ferlið og hvernig henni líður í dag. Arna ætlaði aldrei að verða þrítug, hún bjóst við að lífið yrði búið fyrir þann áfanga. Í dag...
Jóna Margrét - Afleiðingar taugaáfalls sem hún fékk sem barn 14.03.2024 32:02
Jóna Margrét skaust fram á stjörnusviðið í vetur þegar hún lenti í öðru sæti í Idolinu. Hressi persónuleiki hennar var smitandi í gegnum skjáinn en á bak við brosið hefur Jóna gengið í gegnum margt. Þegar hún var í kringum átta ára gömul fékk hún taugaáfall sem sneri veröld hennar á hvolf. Hún varð hrædd við allt og alla, fór ekki í bíl í sjö mánuði og þorði varla út fyrir hússins dyr. Það tók han...
Móna Lind - Lífið með endómetríósu og heimafæðingarsaga 07.03.2024 58:36
Daginn sem Móna Lind byrjaði á blæðingum vissi hún að eitthvað væri að. Nú tæpum tveimur áratugum síðar hefur hún gengist undir þrjár aðgerðir vegna endómetríósu og er öryrki vegna sjúkdómsins. Hún á tvær dætur og mætti segja að fæðing þeirra yngri sé lyginni líkast. Móna Lind segir frá mögnuðu heimafæðingunni og mörgu öðru í Fókus.
Hafdís og Kleini – Síðustu sex mánuðir 29.02.2024 33:59
Athafna- og áhrifavaldaparið Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson, kallaður Kleini, eru gestir vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Parið hefur haldið sig til hlés frá sviðsljósinu undanfarna mánuði, sérstaklega Kleini sem hefur verið í pásu frá samfélagsmiðlum síðan í lok júlí í fyrra. Þau opna sig um síðastliðið hálft ár, hvað þau hafa verið að braska og bralla, hvað sé fra...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.