Fjármálakastið
Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Author
Fjármálakastið
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 9 - Viðtal við Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfesta 22.11.2021 18:02
Í þessum þætti er rætt við hann Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfesta, um fjárfestingar, markaði og starf Ungra fjárfesta. Félagið Ungir fjárfestar var stofnað af sex ungum fjárfestum í upphafi árs 2014 og er tilgangur félagsins að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna. Félagið hefur einnig það markmið að vekja áhuga félagsmanna og ungs fólks á fjármálum, fjárfe...
Þáttur 8 - Viðtal við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna Invest 15.11.2021 22:30
Í þessum þætti er rætt við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna Invest. Rósa er lögfræðingur og starfar sem yfirlögfræðingur og regluvörður hjá Akta. Fortuna Invest er fræðsluvettvangur sem veitir aðgengilega fræðslu um fjárfestingar með það að markmiði að auka fjölbreytileikann í þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum er rætt meðal annars rætt um hlutverk og markmið Fortuna Invest og nýútkom...
Þáttur 7 - Viðtal við Gunnlaug Jónsson, framkvæmdastjóra Fjártækniklasans 08.11.2021 35:21
Í þessum þætti er rætt við hann Gunnlaug Jónsson, verkfræðing og framkvæmdastjóra Fjártækniklasans, um fjártækni. Mikil gróska hefur verið í fjártækni að undanförnu og hafa mörg ný og spennandi fyrirtæki sprottið upp. Fjártækniklasinn er samfélag um framfarir í fjártækni og tilgangur hans er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti auðveldari og betri.
Þáttur 6 - Viðtal við Björn Berg um nýju bókina hans Peninga 01.11.2021 30:53
Í þessum þætti er rætt við hann Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, um nýútkomna bók hans Peninga. Bókin Peningar varpar ljósi á áhugaverðar og spaugilegar hliðar fjármála og er bókinni skipt upp í kafla þar sem ýmis atriði eru tekin fyrir í fjármálalegu samhengi. Bókinni er skipt í nokkra kafla og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þáttur 5 - Viðtal við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar 25.10.2021 22:28
Í þessum þætti er rætt við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar, um málefni Norðurslóða. Heiðar er hagfræðingur, fjárfestir og sérfræðingur í málefnum Norðurslóða en hann ritaði bókina Norðurslóðasókn sem kom út árið 2013. Í þættinum er rætt um tækifærin sem felast á Norðurslóðum, gjaldmiðlamál, hlutverk Seðlabanka og ýmislegt fleira.
Þáttur 4 - Viðtal við Þórunni Björk Steingrímsdóttur, verðbréfamiðlara hjá Landsbankanum 18.10.2021 18:23
Í þessum þætti er rætt við Þórunni Björk Steingrímsdóttur en hún starfar í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum. Þórunn er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Í þættinum er rætt um horfur á mörkuðum á komandi misserum, hvaða hluti þarf að hafa í huga áður en maður byrjar að fjárfesta, s...
Þáttur 3 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka 11.10.2021 39:02
Í þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Jón Bjarki er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University of Warwick. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í síðustu viku, hvort það sé góð hugmynd að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólguviðmiði Seðlabankans, nýja Þjóðhagsspá Íslandsbanka og fleira.
Þáttur 2 - Viðtal við Svanhildi Hólm, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs 23.09.2021 46:11
Í þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra og þar áður í fjölmiðlum. Í þættinum er meðal annars rætt um áherslur Viðskiptaráðs sem kynntar voru í aðdraganda kosninga. Umsjónarmaður þáttarins er...
Þáttur 1 - Viðtal við Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar 14.09.2021 26:15
Í fyrsta þætti Fjármálakastsins er rætt við Magnús Harðarson forstjóra Kauphallarinnar. Magnús tók við forstjórastól Kauphallarinnar af bróður sínum Páli Harðarsyni í október 2019. Hann hefur starfað hjá Kauphöllinni síðan 2002 en áður starfaði hann sem hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og sem efnahagslegur ráðgjafi. Magnús hefur doktorspróf í hagfræði frá Yale-University. Í þættinum er rætt um fjá...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.