Fjármálakastið
Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Author
Fjármálakastið
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur 34 - Viðtal við Lárus Welding um bókina hans og efnahagsmál 06.01.2023 35:55
Í þessum þætti er rætt við Lárus Welding en hann gaf nýverið út bókina Uppgjör bankamanns. Rætt er um nýútkomna bók hans, tímann sem bankastjóri Glitnis en einnig efnahagsmálin innanlands og erlendis.
Þáttur 33 - Áramótaþáttur - Viðskiptafréttir ársins með blaðamönnum Viðskiptablaðsins 27.12.2022 27:06
Í þessum áramótaþætti Fjármálakastsins er viðskiptafréttaárið gert upp með blaðamönnunum Guðnýju Halldórsdóttur og Sigurði Gunnarssyni frá Viðskiptablaðinu. Rætt er um helstu viðskiptamenn ársins, viðskipti ársins, verstu viðskipti ársins, stöðuna í efnahagslífinu, horfur á næsta ári og fleira.
Þáttur 32 - Safa Jemai: „Mikilvægt að vera stöðugt að læra eitthvað nýtt“ 06.12.2022 22:01
Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Víkonnekt. Safa er menntaður hugbúnaðarverkfræðingur sem fluttist hingað til lands frá Túnis fyrir um fjórum árum síðan og hefur hún stofnað nokkur fyrirtæki síðan. Í þættinum er rætt um þau fjölmörgu fyrirtæki sem hún hefur stofnað, nýsköpun á Íslandi, frumkvöðlalífið og sitthvað fleira.
Þáttur 31 - Júlíus Þór: „Umfjöllun fjölmiðla hefur því miður borið vott um vanþekkingu“ 19.11.2022 34:59
Í þessum þætti er rætt við Júlíus Þór Halldórsson, blaðamann á Viðskiptablaðinu. Rætt er um stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankasölunni og þau viðbrögð sem hún hefur fengið. Einnig er rætt um stöðu ÍL-sjóðs, fall rafmyntakauphallarinnar FTX, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans næstkomandi miðvikudag og fleira.
Þáttur 30 - Konráð: „Verðbólgan er sameiginlegur óvinur okkar allra“ 02.11.2022 32:50
Í þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, hagfræðing og efnahagslegan ráðgjafa Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um kjarasamningana sem nú eru fram undan, verðbólguna, stýrivexti, fasteignamarkaðinn og ýmislegt fleira.
Þáttur 29 - Helga Valfells: „Það er hægt að gera allt en ekki allt í einu.“ 22.10.2022 36:02
Í þessum þætti er rætt við Helgu Valfells, stofnanda og framkvæmdastjóra vísissjóðsins Crowberry Capital. Helga er með grunngráðu í hagfræði og enskum bókmenntum frá Harvard og MBA gráðu frá London Business school. Í þættinum er rætt um fyrirtækið hennar, nýsköpun, konur og fjárfestingar og ýmislegt fleira.
Þáttur 28 - Valdimar Ármann: „Við lifum á sögulegum tímum á mörkuðum.“ 06.10.2022 30:02
Í þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar Arctica Finance. Rætt er um efnhagsástandið í Bretlandi, fjárhagsvanda Credit Suisse, stýrivexti, skuldabréfamarkaðinn og horfur á mörkuðum bæði hér heima og erlendis og ýmislegt fleira.
Þáttur 27 - Stefán Baxter, stofnandi Snjallgagna 26.09.2022 38:35
Í þessum þætti er rætt um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, hvernig það hefur breyst í áranna rás og hvernig það er í samanburði við önnur lönd. Einnig er rætt um hvað ungir frumkvöðlar ættu að tileinka sér til að ná árangri og ýmislegt fleira. Rætt er við Stefán Baxter en hann er stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Snjallgagna og hefur starfað í nýsköpun í áratugi.
Þáttur 26 - Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda 19.09.2022 26:32
Í þessum þætti er rætt við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rætt er um áfengisgjöld, fjárlagafrumvarpið, hvað stjórnvöld geti gert til að bæta rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja, kjaramál, fasteignaskatta og ýmislegt fleira.
Þáttur 25 - Daði Kristjánsson, stofnandi Visku Digital Assets 08.09.2022 43:59
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda Visku Digital Assets sem er fyrsti íslenski rafmyntasjóðurinn. Daði starfaði í um 15 ár á fjármálamarkaði áður en hann tók þá ákvörðun að stofna Visku ásamt félögum sínum. Í þættinum er rætt um rafmyntir, bálkakeðjutækni, hvort sú gagnrýni sem rafmyntir fá á sig sé réttmæt, gerjunina í rafmyntaheiminum, stöðuna á fjármálamörkuðum og sitthvað...
Þáttur 24 - Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar 20.07.2022 30:13
Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Rætt er um stöðuna í greininni, horfur, kjarasamningana sem eru fram undan, hvort hvalveiðar séu skaðlegar fyrir ferðaþjónustuna og fleira.
Þáttur 23 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði 12.07.2022 19:07
Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um skýrsluna The Icelandic Economy. Einnig er rætt um hvort bóla sé til staðar á fasteignamarkaði, hvort verðbólgan muni fara í tveggja stafa tölu, samkeppnishæfni og fleira.
Þáttur 22 - Viðtal við Þórð Gunnarsson, hagfræðing 27.06.2022 18:53
Í þessum þætti er rætt við Þórð Gunnarsson, hagfræðing, um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku, fasteignamarkaðinn, verðbólgu, skráningu Nova og Alvotech og fleira.
Þáttur 21 - Viðtal við Ragnar Árnason, prófessor emeritus við HÍ 29.05.2022 20:21
Í þessum þætti ræðum við um kostnað vegna umferðartafa en samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Samtökin samgöngur fyrir alla með stuðningi frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál kemur fram að við töpum um 60 milljörðum á umferðartöfum. Til að ræða um þessi mál fékk ég til mín hann Ragnar Árnason, prósessor emeritus, við Háskóla Íslands og formann Rannsóknarráðs RSE.
Þáttur 20 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans 09.05.2022 14:54
Í þættinum er rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku en síðastliðinn miðvikudag tilkynnti Peningastefnunefnd Seðlabankans að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1 prósentustig. Sú spá var í takt við spá Hagfræðideildar Landsbankans. Í þættinum er rætt við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans.
Þáttur 19 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu 02.05.2022 25:55
Í þessum þætti er rætt um Íslandsbankaútboðið. Þann 22. mars seldi ríkið 22,5 prósent hlut í Íslansbanka til 207 fjárfesta á tæpa 53 milljarða króna. Þar með er ríkið ekki lengur meirihluta eigandi að bankanum en eftir söluna þá á ríkið 42,5 prósent í bankanum en einkaaðilar 57,5 prósent. Til að ræða um útboðið fékk ég til mín hana Andreu Sigurðarsdóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu.
Þáttur 18 - Viðtal við Vigni S. Halldórsson, stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins. 07.03.2022 17:48
Í þessum þætti er rætt um fasteignamarkaðinn, byggingageirann og áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á markaði svo fátt eitt sé nefnt. Rætt er við Vigni S. Halldórsson, byggingaverktaka og stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins.
Þáttur 17 - Viðtal við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing og greinanda hjá Íslandsbanka 10.02.2022 28:16
Í þessum þætti er rætt við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing sem starfar í greiningardeild Íslandsbanka. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, verðbólguna, fasteignamarkaðinn, kjaramálin, ferðaþjónustuna og fleira.
Þáttur 16 - Viðtal við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs 27.01.2022 26:15
Í þessum þætti er rætt við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs. Elísa er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og var nýverið ráðin sem annar tveggja aðalhagfræðinga Viðskiptaráðs en hún starfaði áður hjá Seðlabankanum. Í þættinum er rætt um helstu áskoranirnar í íslensku efnahagslífi á þessu ári, kjaramálin, sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda, stýrivexti, fasteignamarkaðinn, samfélagsba...
Þáttur 15 - Áramótaþáttur - Viðtal við Má Mixa, lektor í fjármálum 05.01.2022 35:51
Hverju á að fjárfesta í árið 2022? Í þessum sérstaka áramótaþætti Fjármálakastsins er rætt við Má Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík. Rætt er um árið 2021 á mörkuðum, horfur á árinu 2022 á hlutabréfa, skuldabréfa og fasteignamörkuðum. Einnig er rætt um rafmyntir og ýmislegt fleira.
Þáttur 14 - Viðtal við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra Össurar 20.12.2021 27:13
Í þessum þætti er rætt við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Jón tók við forstjórastól Össurar fyrir rétt tæpum 26 árum en mun láta af störfum í apríl á næsta ári. Í þættinum er rætt um feril Jóns og tíð hans í forstjórastól Össurar. Þá er jafnframt rætt um vöxt Össurar í gegnum árin, hvað stuðlaði að velgengni fyrirtækisins og ýmislegt fleira.
Þáttur 13 - Viðtal við Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting 17.12.2021 29:26
Í þessum þætti er rætt við hana Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting. Sólveig er með BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Hult International Business School. Þá er hún einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Sólveig hefur starfað í 12 ár á fjármálamarkaði og hefur starfað sem stjórnarmaður en rekur nú sitt eigið fyrirtæki Sólveig Consulting en þar ráðlegg...
Þáttur 12 - Viðtal við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins 10.12.2021 23:09
Í þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Anna Hrefna er hagfræðingur og hefur lengi starfað við efnahagsgreiningar. Í þættinum er meðal annars rætt um fjárlögin, brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar, fjölgun opinberra starfsmanna og ýmislegt fleira en einnig er rætt um þær efnahagslegu áskoranir sem við stóðum frammi fyrir á árin...
Þáttur 11 - Viðtal við Bjarna Herrera, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG, um sjálfbær fjármál 02.12.2021 33:43
Í þessum þætti er rætt við Bjarna Herrera Þórisson, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG. Bjarni er með gráðu í lögfræði og viðskiptafræði og einnig MBA gráðu frá Yonsei háskóla. Hann hefur komið að fjölmörgum verkefnum í gegnum tíðina sem snúa að sjálfbærni í gegnum félagið sitt Circular sem síðar var selt til KPMG. Í þættinum er rætt um sjálfbærni og sjálfbær fjármál sem hafa notið sívaxandi vinsæld...
Þáttur 10 - Viðtal við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs 27.11.2021 27:59
Í þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Konráð er með bachelor gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University og Warwick. Meðal annars er rætt um stýrivaxtahækkunina í þar síðustu viku, húsnæðismarkaðinn, nýja greiningu Viðskiptaráðs um atvinnurekstur hins opinbera, sóttvarnaraðgerðir, ríkisfjármálin og fleira.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.