Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1423 episodes

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: brotkast.is

Author

Brotkast ehf.

Category

Arts

Podcast website

brotkast.is

Latest episode

Oct 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Harmageddon | S01E90 | Mikill stuðningur við marg dæmda ofbeldiskonu 01.12.2023

Hópur Íslendinga virðist sem dáleiddur þegar kemur að stuðningi við konu sem marg ítrekað hefur brotið lög og virt alla dómsúrskurði að vettugi. Eitthvað yrði sagt ef kynjunum yrði snúið við í þessu dæmi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Lífsleikni 2.0 | S01E04 | Föstur og sníkjudýr 01.12.2023

Í þessum þætti fá þeir Lífsleiknibræður seiðkarlinn, Ívar Orra Ómarsson, til að ræða við sig um ýmiskonar heilsutengd snjallráð sem gott er að vita vilji maður bæta líf sitt og vellíðan. Fóru þeir meðal annars yfir hvað föstur gera fyrir fólk auk þess að tala um hvernig sníkjudýr herja á líkama okkar og hvað sé hægt að gera til að bregðast við þeim. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast...

Norræn karlmennska | S01E41 | „Maður er að nauðga sjálfum sér“ 30.11.2023

Edda Lovísa Björgvinsdóttir mætti í þáttinn og ræddi reynslu sína af Onlyfans, en hún starfar ekki lengur við það. Hún fer út í hvernig hún fór út í það, hvaða áhrif það hafði á hana og hvað hún myndi segja við stelpur sem eru að íhuga að byrja í þessu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Mín skoðun með Valtý Birni | #857 | Hláturinn lengir lífið og Kiddi heldur að hann sé Múhameð 29.11.2023

Heil og sæl. Það er mikið bull og bull í þætti dagsins. Hláturinn lengir lífið er einhversstaðar sagt og það eru orð að sönnu. Nýr jólasveinn er kynntur til leiks. Meistaradeildin, Blikar í Evrópu. Kvennalandsliðið í handbolta, Körfuboltinn hér heima, örlítið um HSÍ og svo fréttir af karlaliðum okkar í evrópukeppni. Fréttir og slúður hér innanlands, m.a. af formannskjöri KSÍ. Dagatalið okkar er á...

Spjallið með Frosta Logasyni | S01E71 | Rannsóknarskýrsla Alþingis eldist ekki vel 29.11.2023

Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, gekk í gegnum lífsreynslu sem fáir munu nokkurn tíman reyna þegar bankinn sem hann hafði stýrt í sautján mánuði hrundi með öllu fjármálakerfi Íslands á haustmánuðum 2008. Á einni nóttu snerist heilt þjóðfélag gegn bankamönnunum sem höfðu árin á undan verið álitnir óskabörn þjóðarinnar. Í kjölfarið tóku við mörg ár af dómsmálum hjá Lárusi en hann hefu...

Götustrákar | S01E92 | „Þú verður bara að hringja í lögregluna“ 28.11.2023

Ronni mættur með skýrslu frá Danmörku, nákvæm matarskýrsla. Læstur inni á klósetti á Kíkí, wyd? Fylgdu leiðbeiningum hjá jeppa til að breytast í ALPHA WOLF. Ronni hringir í Fellin og lætur vita af neyslubæli í geymslunni. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Axel Pétur | S01E23 | Þú skalt deyða bæði karla og konur, börn og brjóstmylkinga, naut og sauðfé, úlfalda og asna 27.11.2023

Þjóðarmorðin á Gaza eru veikasti hlekkur mannkyns núna og ef þú passar þig ekki gætir þú og þínir endað sem Amalek. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S01E40 | Einmanaleiki: Hljóðláti morðinginn 27.11.2023

Einmanaleiki drepur fleiri ungan karlmenn á Vesturlöndum en næstum allt annað og það er í formi sjálfsvíga. Það verður farið í hvað veldur og hvernig kynnt er undir því. En einnig er karlmaður vikunnar á sínum stað, ákæra á hendur konu fyrir að hafa logið til um nauðgun sem varð til þess að ungur maður fyrirfór sér, sjáum brot af Chester Bennington opna sig um sjálfsvígshugsanir og fleira. Fáðu þé...

Mín skoðun með Valtý Birni | #856 | Besta hjólhestaspyrnumark sögunnar 27.11.2023

Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera og það er fjör hjá okkur í þætti dagsins. Enski boltinn og markið hans Garnacho. Við veljum besta hjólhesta-spyrnumark hin síðari ár og minnum á kosninguna á Facebook síðu þáttarins. Við förum ítarlega í leiki helgarinnar. Handboltinn er til umræðu sem og körfuboltinn. Við spáum í leikina í Meistaradeildinni. Dagatalið er á sínum stað. Þetta og margt fleira. Ta...

Harmageddon | S01E89 | Ekkert tiltökumál að þingmaður sé handtekinn af lögreglu 27.11.2023

Píratar eru að gera gott mót í skemmtanalífi Reykjavíkur. Það þykir ekki tiltökumál fyrir þá að vera ofurölvi niður í bæ þó annað gildi um aðra. Þá eru kannabisreykingar í ráðhúsinu orðnar vinsælar og maður veltir fyrir sér hvert stefnir. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S01E70 | „Vantar í þig alla mannúð Brynjar?“ 25.11.2023

Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir mikilvægt að stjórnvöld nái betri tökum á útlendingamálum. Hann telur kerfið þurfa virka þannig að þeir sem vilji sækja um hæli geri það áður en þeir komi til landsins. Þannig að íslenskir skattgreiðendur þurfi ekki að bera kostnað af þeim sem sannarlega eigi ekki rétt á alþjóðlegri vernd. Í þessu viðtali ræðir hann um f...

Mín skoðun með Valtý Birni | #855 | Meðan laufin (HSÍ) sofa liggja spaðarnir andvaka 24.11.2023

Heil og sæl. Stóra HSÍ málið er til umræðu í dag. FH og Hafnarfjarðarbær eru í átökum og Arnar Grétars við KA. Við spáum í enska boltann, ítalski boltinn og körfuboltinn hér heima og dagatalið að sjálfsögðu ásamt einhverju fleiru. Takk fyrir að hlusta á okkur á Brotkast.is. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S01E88 | Heilbrigðisstétt rúin trausti 24.11.2023

Það er ótrúlegt en satt ekki góð hugmynd að fylgja í blindni öllu því sem vísindin segja okkur. Vinstri lúserar væla um um heim allan vegna skipbrots stefnu sinnar. Til þess að fá í gegn umbætur í fangelsismálum þarf að setja fókus á kvenfanga. Og við viljum Guðna aftur í formannsstól KSÍ. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri...

Götustrákar | S01E91 | HJ-Elite 24.11.2023

Hann er alkahólisti eins og við, fórum yfir meðferðina hjá honum og leiðina til baka. Fasteignasöluna, hótelbransann og grilluðum vel í kallinum. Endilega tjekkið á þessum meistara. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S01E39 | Stríðni á Reddit og Fyndnir Frændur 23.11.2023

Karlmaður vikunnar, nokkrar hetjudáðir í tilefni feðradagsins og International Men’s Day og síðast en ekki síst verður farið yfir skilaboð frá “haters” á Fyndnir Frændur og Reddit/Iceland. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Mín skoðun með Valtý Birni | #854 | Haukur Guðberg ræðir framtíð Grindavíkur og Halli Björns að hætta | Þátturinn í heild sinni 22.11.2023

Heil og sæl. Í dag er Haukur Guðberg Einarsson í viðtali og fer yfir málin hjá fótboltanum í Grindavík. Hvernig er staðan þar á bæ? Svanhvít og Kiddi eru í spjalli þar sem við förum yfir landsliðið í fótbolta, Heimi Hallgríms, Brasilía-Argentína og undankeppni EM. Staðan hjá Man. Utd. er tekin fyrir og við förum yfir gang mála í Olís deildinni og Subway deildinni. Fréttir og slúður og dagatalið ok...

Götustrákar | S01E90 | "Ertu í alvörunni á leiðinni til Danmerkur að horfa á tölvuleik?" 21.11.2023

Hverju myndir þú útrýma ef þú gætir? Hvað myndirðu gera ef þú myndir deyja á morgun Jeppi gerir Ronna tilbúinn fyrir föðurhlutverkið. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Mín skoðun með Valtý Birni | #853 | Þórðargleði Íslendinga 20.11.2023

Heil og sæl. Í dag er geggjað spjall um strákana okkar í landsliðinu í fótbolta. Það eru ekki allir sammála og þannig er það nú oft. Var þetta góður leikur þrátt fyrir enn eitt tapið? Nánari umræða um EM og hugsanlega mótherja okkar í umspilinu ef við förum þangað? Við tölum um körfuboltann hér heima, fréttir og slúður og Kiddi fer í pílu umræðu. Þetta og margt fleira. Takk fyrir að hlusta. Fáðu þ...

Harmageddon | S01E87 | Fíknivandann í fókus 20.11.2023

Aðstandendur vímuefnafíkla þurfa að leita á náðir undirheima þegar lögleg úrræði eru ekki til staðar. Íslensku þjóðinni bráðvantar stjórnmálamenn sem tala fyrir ráðdeild og sparnaði eins og hægri geitin sem rétt í þessu var að vinna forsetakosningar í Argentínu. Og stjórnvöld á Íslandi skilja ekki mikilvægi ómengaðrar blaðamennsku. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskr...

Spjallið með Frosta Logasyni | S01E69 | Grindvíkingar fái aðstoð við kaup á húsnæði 19.11.2023

Vilhjálmur Árnason, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, segist sannfærður um að Grindavík mun byggjast upp að nýju og að fólk muni vilja snúa aftur til síns heima. En þangað til það gerist vill hann að óvissu Grindvíkinga sé eytt með aðkomu fjármálastofnanna, seðlabanka og stjórnvalda. Vilhjálmur vill þannig að Grindvíkingum sé gert kleyft að kaupa fasteignir á höfuborgarsvæðinu með hlutdeil...

Mín skoðun með Valtý Birni | #852 | Dagskránni lokið hjá þjálfarateymi landsliðsins - Hringja í Arnar 17.11.2023

Heil og sæl. Það var fjör hjá okkur í dag. Landsliðið var tekið fyrir og staða landsliðsþjálfara rædd. Á KSÍ ekki að hringja í Arnar Gunnlaugsson núna? Einnig spáðum við í spilin í öðrum EM leikjum og spáum sérstaklega í Portúgalsleikinn. Þetta og miklu, miklu meira í þætti dagsins. Góða helgi og takk fyrir að hlusta og horfa. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á h...

Götustrákar | S01E89 | Þráinn Farestveit 17.11.2023

Þráinn er varaformaður SÁÁ. Edrú í 36 ár, bjó á Vernd, vinnur nú á Vernd. Hefur misst tugi manns úr alkahólisma, hvernig er hægt að bæta meðferðaheimili og fangelsi? Er skólakerfið að bregðast þessum jaðarsetta hópi? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S01E86 | Dómsmálaráðherra sem fylgir ekki lögum 17.11.2023

Íslensk stjórnvöld sinna ekki skyldu sinni í máli þar sem börnum hefur verið rænt frá forsjáraðila. Dómsmálaráðherra er á villigötum. Við ræðum líka gerendameðvirkni Ríkisútvarpsins sem birti í vikunni drottningarviðtal við dæmdan geranda. Einnig, Grindvíkingar eru ekki að fá þá aðstoð sem þeir ættu að vera fá. Allt þetta og Meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þæt...

Spjallið með Frosta Logasyni | S01E68 | Veðsettu foreldra sína og vonuðu það besta 16.11.2023

Guðvarður Gíslason, betur þekktur sem Guffi í Gamla Bíó, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Guffi hefur upplifað tímana tvenna en hann er einn af reyndustu mönnum veitingageirans á Íslandi. Hann hefur opnað og rekið ótal marga sögufræga staði og hefur verið meira og minna á sömu kennitölunni í um það bil hálfa öld. Staðir eins og Gaukur á Stöng, Jónatan Livingstone Mávur, Apótekið o...

Mín skoðun með Valtý Birni | #851 | Gísli Þorgeir ætlar að vera klár í slaginn 15.11.2023

Heil og sæl. Í dag erum við þríeykið saman á ný. Gísli Þorgeir Kristjánsson handbolta snillingur er í frábæru spjalli? Er hann að verða klár í slaginn eftir meiðslin og aðgerðina? Við fáum svar. Ísland mætir Slóvakíu á morgun í undankeppni EM. U21 er líka að spila. Það er allt í rugli hjá Man. Utd. Fer Arnar Gunnlaugs til Svíþjóðar? Fréttir og slúður og margt fleira. Takk fyrir að horfa og hlusta....

Listen to the Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.