Brotkast ehf.
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Bjórkast #34 - Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson 19.04.2026 2:31:47
Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson ræða málin.
Óstjórn efnahagslífsins og eikur fasteignamarkaðarins | Hluthafaspjallið | S03E13 17.04.2026 2:43
Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í efnahags- og viðskiptalífið en því miður eru fá merki að sjá um að stjórnvöld séu að ná tökum á verðbólgu. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 4,8 prósent í ár og að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á þessu ári. Um leið hefur viðræðum um sameiningu Kviku og A...
Nauðsynlegt að búa til hvata til barneigna | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E22 17.04.2026 3:43
Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er nú kominn í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni og segir tíma til kominn að vinda þar ofan af rugli síðustu 30 ára. Brynjar segir nauðsynlegt að taka upp alla samninga er varða Borgarlínuna og endurskoða alla samgönguáætlun höfuðborgarsvæðisins. Hann vill til dæmis að ráðist verði í gerð mislægra gatnamóta á horni...
Ann Marie Smith, Irish freedom advocate | Arnar Þór | S03E08 | Full episode 16.04.2026 1:02:19
What is really going on in Ireland now? Ann Marie Smith traces the roots of the unrest brewing in her native country to explain where things are headed. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hvar er stóra planið? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E21 15.04.2026 11:11
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Við spyrjum hana út í stóra planið sem allir eru að bíða eftir, hvers vegna við erum að tala um Evrópusambandsaðild núna þegar hún sagði það mál ekki vera á dagskrá fyrir síðustu kosningar og afhverju við erum ekki að styrkja samband okkar við Bandaríkin á þessum víðsjárverðu tímum? Þá spyrjum við að sjálfsög...
ESB spurningin leiðandi og byggð á umdeildum forsendum | Harmageddon | S04E14 14.04.2026 4:34
Þjóðaratkvæðagreiðslan vegna ESB umsóknarinnar virðist komin í uppnám þar sem landskjörstjórn gerir nokkuð alvarlegar athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem þar verður lögð fyrir kjósendur. Hún er sögð fela í sér umdeildar forsendur og sé því í eðli sínu leiðandi. Þetta hafa gagnrýnendur sagt frá fyrsta degi en ríkisstjórnin hefur ekki viljað taka neitt mark á þeim röddum. Þá á ríkisstjórnin...
Bjórkast #33 - Kolbeinn Icebear Kristinsson 12.04.2026 2:05:41
Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Kolbeinn Icebear Kristinsson ræða málin.
Hilmir Snær 22 árum eldri | Fullorðins | S03E11 10.04.2026 2:49
Vala Kristín Eiríksdóttir er íslenskur rithöfundur, framleiðandi og leikari. Hún var í þáttunum Venjulegt fólk og hefur komið að mörgum skemmtilegum verkefnum seinustu ár og er ein af ástsælustu leikkonum okkar tíma. Hún er gestur dagins í Fullorðins þar sem hún segir okkur frá lífi sínu hingað til, leiklistinni og ástinni í lífi sínu en hún býr með Hilmi Snæ og eignuðust þau sitt fyrsta barn í fy...
Borgin hætti að þjónusta hælisleitendur og segi upp samningum við Samtökin 78 | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E20 10.04.2026 4:53
Sigfús Aðalsteinsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er fasteignasali sem skipar efsta sætið á lista Okkar borgar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Framboðið vill segja upp öllum samningum við ríkið sem snúa að aðstoð við hælisleitendu en Sigfús telur kostnað borgarinnar við þann málaflokk vera kominn úr böndunum. Hann segir líka nauðsynlegt að grunnskólar í Reykjavík hæt...
Umburðarlynda fólkið hatar mest | Harmageddon | S04E13 09.04.2026 7:59
Aftur og aftur sýna rannsóknir okkur að það er góða fólkið sem býr yfir mestu dómhörkunni, mestu mannfyrirlitningunni og mesta hatrinu gagnvart tilteknum hópum samfélagsins. Við skoðum þetta auk þess að fjalla um ofbeldi þeirra sem segjast berjast gegn ofbeldi. Við fjöllum um sláandi niðurstöður finnskrar rannsóknar sem segir að svokallaðar kynstaðfestandi meðferðir fólks með kynáttunarvanda séu l...
Algjört hatur verið í gangi gegn einkabílnum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E19 07.04.2026 3:12
Ari Edwald er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir Miðflokkinn hafna þeirri ofurþéttingar- og þrengingastefnu sem rekin hafi verið í Reykjavík á undanförnum árum og hann vill bæði liðka fyrir umferð og víkka út borgina. Hann telur borgina geta haft jákvæð áhrif á verðbólguþróun með því hreinlega að hætta að framkalla lóðaskort í Reykjavík og með því að borgaryfirvöld liðki fyr...
Magnús Andri var 19 ára þegar hann lést úr fíknisjúkdómi | Fullorðins | S03E10 | Þátturinn í heild sinni 01.04.2026 50:43
Guðrún Katrín og María Margrét eru mæðgur og komu til mín til að ræða um son Guðrúnar og bróður Maríu, hann Magnús Andra, sem lést aðeins 19 ára gamall úr fíknisjúkdómi. Við fórum yfir líf Magnúsar og þróun sjúkdómsins sem svo dró hann til dauða. Hann var að bíða eftir að komast í meðferð. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Þú tryggir ekki eftir á | Hluthafaspjallið | S03E13 | Þátturinn í heild sinni 31.03.2026 56:45
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er gestur í Hluthafaspjalli ritstjóranna að þessu sinni. „Þú tryggir ekki eftir á“ er þekkt slagorð Sjóvá í tryggingum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Ætlar að verða heimsmeistari í hnefaleikum | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E18 30.03.2026 4:58
Emin Kadri er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er einn af örfáum atvinnuhnefaleikurum á Íslandi og hefur sett stefnuna á að verða heimsmeistari í sínum þyngdarflokki. Hann ætlar sér þannig að koma Íslandi rækilega á kortið í box íþróttinni. Emin er sonur innflytjenda á Íslandi en foreldrar hans komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu á tíunda áratugnum. Hann segir foreldra sína al...
Bjórkast #32 - Skafti Harðarson 29.03.2026 2:29:41
Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Skafti Harðarson ræða málin.
Þú tryggir ekki eftir á | Hluthafaspjallið | S03E13 28.03.2026 3:13
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er gestur í Hluthafaspjalli ritstjóranna að þessu sinni. „Þú tryggir ekki eftir á“ er þekkt slagorð Sjóvá í tryggingum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Heiðar Guðjónsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E17 | Þátturinn í heild sinni 28.03.2026 1:06:05
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir alveg skýrt að það sem fyrst og fremst valdi verðbólgu á Íslandi í dag sé útgjalda gleði ríkisstjórnarinnar og hækkun skatta. Þá segist hann ekki vongóður um að stjórnvöldum takist að snúa þeirri óheillaþróun við neitt í bráð enda sé á stefnuskrá þeirra að leggja einnig skat...
Á Ísland erindi inn í ESB? | Arnar Þór | S03E07 | Þátturinn í heild sinni 27.03.2026 52:09
Ísland og umheimurinn. Framtíð landsins er í okkar höndum. Treystum við okkur til að axla ábyrgð? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Skattlagning til hagsældar dæmd til að mistakast | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E17 26.03.2026 4:32
Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Íslandsbanka, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir alveg skýrt að það sem fyrst og fremst valdi verðbólgu á Íslandi í dag sé útgjalda gleði ríkisstjórnarinnar og hækkun skatta. Þá segist hann ekki vongóður um að stjórnvöldum takist að snúa þeirri óheillaþróun við neitt í bráð enda sé á stefnuskrá þeirra að leggja einnig skat...
Á Ísland erindi inn í ESB? | Arnar Þór | S03E07 25.03.2026 2:28
Ísland og umheimurinn. Framtíð landsins er í okkar höndum. Treystum við okkur til að axla ábyrgð? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Grímulaus áróður Ríkisstjórnarútvarpsins | Harmageddon | S04E12 25.03.2026 6:38
Þó allir séu sammála um að Tvíhöfði sé fyndinn og dúettinn Plató hafi verið gott grín þá ætti öllum að vera ljóst að innslag þeirra í Gísla Marteini á föstudagskvöld var fullkomlega óviðeigandi. Í þessum þætti ræðum við líka um stöðu Íslands gagnvart barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, um skoðanapistla dulbúna sem fréttir á Vísi.is, vælandi starfsmenn hins opinbera og hvort aðildaviðræður við Evrópu...
Losnaði við kæfisvefn og sykursýki eftir hjáveituaðgerð | Fullorðins | S03E09 25.03.2026 4:18
Nanna Rögnvaldardóttir fæddist árið 1957 og ólst upp í Skagafirði. Hún hefur skrifað fjölda uppskriftabóka í gegnum tíðina og myndaði meira að segja flestar myndirnar í bækurnar sjálf. Hún segist alltaf hafa verið aðeins öðruvísi en aðrir en unir því vel. Hún fór í magaermi fyrir nokkrum árum og nýtur nú lífsins sem aldrei fyrr og skrifa skáldsögur sem hafa orðið mjög vinsælar. Fáðu þér áskrift og...
Getum ekki rekið opið velferðarkerfi fyrir allan heiminn | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E16 24.03.2026 4:35
Þórarinn Hjartarson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann stýrir hlaðvarpinu Einni pælingu þar sem hann fær til sín fjölbreytta gesti til að ræða þjóðfélagsmál á breiðum grunni. Í þessu viðtali ræðir hann um aðildarumsókn Íslands í ESB og þann mikla hræðsluáróður sem við sjáum í kringum það mál. Hann ræðir um stjórn efnahagsmála og stefnu núverandi ríkisstjórnar í þeim málum. Þá e...
Rautt í Kauphöllinni en fiskurinn í hæstu hæðum | Hluthafaspjallið | S03E11 | Þátturinn í heild sinni 23.03.2026 1:02:08
Það hefur verið bakslag á hlutabréfamarkaðnum að undanförnu og þessari viku verður ekki lýst öðru vísi en rauðri í Kauphöllinni en verð á fiski hefur hins vegar sjaldan verið hærra á erlendum mörkuðum, líkt og fram kemur í þrælskemmtilegu viðtali við gest þáttarins, Ægi Pál Friðbertsson, forstjóra Ice Seafood. Þetta er spennandi þáttur þar sem rætt er um lækkunin á Kauphöllinni og hvort ekki hafi...
Bjórkast #31 - Jón Pétur Zimsen 21.03.2026 2:50:37
Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Jón Pétur Zimsen ræða málin.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.