Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1388 episodes

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Author

Brotkast ehf.

Category

Arts

Podcast website

brotkast.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Harmageddon | S03E03 | Ísland alltaf fjórum árum á eftir 14.01.2025

Nú þegar íslensk fyrirtæki eru farin að keppast við að skarta hinum ýmsu rétttrúnaðar vottunum eru erlend stórfyritæki hvert á eftir öðru að hverfa frá stefnum dyggðarskreytinga. Við ræðum líka um óeðlilega hátt veikindahlutfall opinberra starfsmanna og hvernig ritskoðunarstefnur samfélagsmiðla hafa ýtt undir aukna skautun á undanförnum árum. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fá...

Fullorðins | S02E02 | Fjölskyldan búin að loka á hann 13.01.2025

Jakob Reynir Jakobsson er 43 ára og á sér langa sögu af baráttu við fíknisjúkdóm. Í þessum þætti segir hann okkur frá æskunni, unglingsárunum, fíkninni og leiðinni til bata. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S03E03 | Unglingsstrákar komu 6 ára strák til bjargar! 11.01.2025

Þeir voru vel að hrósinu komnir, þeir Sigurður, Fannar, Emanúel og Róbert. Þeir komu 6 ára dreng til bjargar en sá var orðinn týndir og vissi ekki hvernig hann kæmist heim. Fjöldi fullorðinna gekk framhjá án þess að skipta sér en þeir félagar komu honum heim á endanum! Þetta ásamt fullt af öðru efni í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brot...

Harmageddon | S03E02 | Óttinn við málfrelsið 10.01.2025

Mikill geðshræring hefur gripið um sig hjá fjölmiðlum og öðrum ríkjandi valdhöfum þegar menn eins og Elon Musk beita áhrifum sínum til stuðnings málfrelsi og öðrum klassískum vestrænum gildum. Talsmenn rétttrúnaðarins eru líka að fara á límingunum yfir því að Donald Trump sendi út skýr skilaboð, til Rússlands og Kína, um að Grænland sé ekki þeirra leikvöllur. Þá ræðum við einnig um hörmuleg viðbrö...

Norræn karlmennska | S03E02 | Það hlýtur að vera erfitt að vera svona mikið fórnarlamb 09.01.2025

Litið verður yfir myndband þeirra ágætu hjóna, Huldu Tolgyes og Steina á Karlmennskunni þar sem þau kvarta yfir því að þeim sé sýnd kurteisi. Skoðum dulið ofbeldi gegn karlmönnum, hvernig drengir fá ekki nógu mikið hrós, karlmann vikunnar og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hluthafaspjallið | S02E01 | Amaroq skráð í þremur kauphöllum 09.01.2025

Að þessu sinni var Hluthafaspjallinu tvískipt. Í fyrri hluta þáttarins létu ritstjórarnir gamminn geisa en í seinni hluta þáttarins mætti Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland, og fór yfir tíðindi síðasta árs í Kauphöllinni og hvers væri að vænta á nýju ári. Ritstjórarnir byrjuðu á því að fara yfir fjármálatíð Bjarna Benediktssonar, fráfarandi formanns Sjálfstæðisflokksi...

Fullorðins | S02E01 | Ofboðslega gefandi að syngja í jarðarförum 08.01.2025

Söngkonan Stefanía Svavarsdóttir hefur sungið frá því hún man eftir sér. Hún er tvíburi og segir að hún og systir hennar séu eins og svart og hvítt og hafi ekki getað verið saman í bekk í grunnskóla, en séu mjög nánar í dag. Stefanía kom í viðtal og ræddi um lífið og tilveruna, sönginn, sjálfsvinnuna og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://bro...

Blekaðir | S02E01 | „Það er glimmer út um allt“ 08.01.2025

Í þættinum fara þeir Dagur og Óli yfir kvikmyndir, glimmer og útlendinga sem vilja víkingahúðflúr. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E01 | Embættismenn sem þora 07.01.2025

Asíski nauðgunargengja-skandallinn í Bretlandi varpar ljósi á alvarleika þess að mál séu þögguð niður í nafni fjölbreyttni og umburðarlyndis. Koma hefði mátt í veg fyrir hrottalega glæpi og miklar þjáningar ef opinberir starfsmenn, lögreglumenn og aðrir embættismenn hefðu þorað að segja upphátt það sem þeir allir vissu. Hér á Íslandi mætti hafa þetta í huga í umræðunni um vararíkissaksóknara Helga...

Norræn karlmennska | S03E01 | Frambjóðanda Viðreisnar líkar ekki við athyglina sem nauðgunargengi fá 04.01.2025

Í þessum fyrsta þætti ársins verður rennt yfir hápunkta ársins 2024 og svo verður farið yfir algerlega ótrúlega fléttu sem leiddi til þess að nauðgunargengi frá Pakistan gátu misnotað stóran hluta af öllum stúlkubörnum í Englandi! Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E103 | Stefán Einar næsti formaður Sjálfstæðisflokksins 31.12.2024

Það er ljóst að sjálfstæðismenn þurfa að leita út fyrir raðir þingflokks flokksins ef þeir ætla finna aðila sem fyllt getur í fótspor Bjarna Benediktssonar. Helsti kandídatinn er auðvitað Stefán Einar Stefánsson. Hann hefur fyrir löngu sannað sig sem verðugan leiðtoga sem hefur munninn fyrir neðan nefið og skilur kjarna sjálfstæðisstefnunnar betur en margir kjörnir fulltrúar flokksins. Við förum y...

Hluthafaspjallið | S01E05 | Áramótaþáttur Hluthafaspjallsins | Þátturinn í heild sinni 27.12.2024

Farið yfir árið í Kauphöllinni og atvinnulífinu almennt og horfur næsta árs metnar. Við fáum til okkar góða gesti að þessu sinni: Hermann Guðmundsson, forstjóra Kemi, Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar og Eggert Þór Aðalsteinsson, fjárfestingarstjóra hjá Kviku Eignastýringu. Hressilegur þáttur að venju.

Hluthafaspjallið | S01E05 | Áramótaþáttur Hluthafaspjallsins 27.12.2024

Farið yfir árið í Kauphöllinni og atvinnulífinu almennt og horfur næsta árs metnar. Við fáum til okkar góða gesti að þessu sinni: Hermann Guðmundsson, forstjóra Kemi, Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar og Eggert Þór Aðalsteinsson, fjárfestingarstjóra hjá Kviku Eignastýringu. Hressilegur þáttur að venju. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast...

Harmageddon | S02E102 | Þegar hugsjónir verða aukaatriði 24.12.2024

Það er greinilega talsvert flóknara að sitja í ríkisstjórn heldur en að gagnrýna úr stjórnarandstöðu. Strax á fyrsta degi hefur Valkyrjustjórnin lýst því yfir að nokkur af helstu baráttumálum flokkanna muni ekki verða að veruleika. En það er ekkert víst að þetta klikki og megi þeim ganga sem allra best að ná niður verðbólgu og vöxtum allri þjóðinni til heilla. Gleðileg Jól frá Harmageddon. Fáðu þé...

Harmageddon | S02E101 | Ríkissaksóknari rétttrúnaðarins 20.12.2024

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari Íslands, hefur ítrekað vakið athygli fyrir ákvarðanir sínar í málum sem sumir telja einkennast af pólitískum eða samfélagslegum þrýstingi. Við förum yfir nokkur mál sem varpa ljósi á það. Ljóst er að þjóðin fær Valkyrjuríkisstjórn í jólagjöf en óljóst er hvað sá jólapakki á nákvæmlega eftir að kosta. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu...

Hluthafaspjallið | S01E04 | Fjöldi Prísverslana á næsta ári? 19.12.2024

Með yfirtöku Samkaupa á Heimkaupum, sem reka m.a. Prís og 10-11 verslanir, er mikil gerjun að eiga sér stað á matvörumarkaðnum. Þetta virðist vera leið Prís inn á markaðinn og má gera ráð fyrir fjölda Prís-verslana á næsta ári. Þetta er mat þeirra Jóns G. Haukssonar og Sigurðar M. Jónssonar í nýjum og eldfjörugum þætti Hluthafaspjallsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri le...

Fullorðins | S01E20 | Fengu fyrirlestur frá manni með barnagirnd 18.12.2024

Efni þáttarins inniheldur samtöl um barnaníð, barnagirnd og nauðganir. Indíana Rós er sjálfstætt starfandi kynfræðingur og veitir faglega og skemmtilega fræðslu fyrir ýmiskonar hópa. Hún kom til okkar í spjall til að ræða um kynlíf, að sjálfsögðu, kynfræðslu í skólum og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Blekaðir | S01E42 | Daníel Ingi Egilsson 18.12.2024

Langstökkvarinn Daníel Ingi Egilsson er gestur Blekaða að þessu sinni. Þeir Dagur og Óli ræða við hann um langstökkið, fordóma gagnvart húðflúrum í andliti, aðferðir sem sumir íþróttamenn nota til að ná lengra og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E100 | Elon Musk og hatrið gegn heimilislausum 17.12.2024

Í þætti dagsins sjáum við ótrúlega gott og afhjúpandi dæmi um hvernig meginstraumsfjölmiðlar afskræma sannleikann og móta frásagnir til að þjóna ríkjandi rétttrúnaði hverju sinni. Hugmyndin um fjórða valdið sem aðhald að stjórnvöldum er þannig löngu úr sér gengið. Við ræðum líka um aðkomu hins frjálsa markaðar að úrræðum sem við viljum að hið opinbera þjónusti, mannfjöldaþróun á Íslandi og margt m...

Harmageddon | S02E99 | Réttindi opinberra starfsmanna stærsta óréttlætið 13.12.2024

Opinberir starfsmenn, sem fá laun sín greidd frá skattgreiðendum, njóta ríkulegra forréttinda sem stjórnmálamenn þurfa að hafa þor til að afnema. Íslenskt réttarfar sínir heimilisofbeldi alltof mikla linkind og Reykjavíkurborg er með gjörsamlega allt niður um sig í skipulagsmálum. Þá sýna meginstraumsfjölmiðlar uppreisninni í Sýrlandi grunsamlega mikla samúð sem gefur til kynna að eitthvað sé roti...

Hluthafaspjallið | S01E03 | Markaðsvirði JBT-Marel um 770 milljarðar 12.12.2024

Verði af samruna JBT og Marels eftir rúma viku verður félagið það verðmætasta í Kauphöll Íslands með markaðsverðmæti í kringum 770 milljarða króna. Þetta kemur fram í mjög líflegum umræðum þeirra Jóns G. Haukssonar og Sigurðar M. Jónssonar í Hluthafaspjallinu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Fullorðins | S01E19 | Dóttir Björgvins þénaði á OnlyFans 12.12.2024

Björgvin Franz Gíslason er leikari og er sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar. Hann er um þessar mundir að leika í Ellý en hefur komið víða við í leiklistinni. Í þætti dagsins segir hann okkur frá edrúmennskunni, föðurmissinum og fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Blekaðir | S01E41 | Amsterdam 11.12.2024

Dagur og Óli fara sem fyrr vítt og breytt yfir sviðið, allt frá jólaundirbúningi, afgreiðslu á veitingastöðum yfir í ferðir Dags til Amsterdam. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E98 | Heimavinnandi kærustur nýja trendið 10.12.2024

Jafnréttið í Svíþjóð er komið í heilan hring og nú vilja ungar stúlkur helst fá að vera heimavinnandi húsmæður. Öfgavinstrið túlkar þetta auðvitað sem hræðilegt bakslag en við veltum fyrir okkur hvort þetta sé virkilega svo neikvætt. Við ræðum líka fall Sýrlands og skoðum hvað muni hugsanlega taka við en leiðtogi uppreisnarinnar þar er vægast sagt áhugaverður karakter sem vert er að fylgjast með....

Spjallið með Frosta Logasyni | S02E82 | Áfall þegar vaktfélagi tók sitt eigið líf 10.12.2024

Ragnar Jónsson, blóðferlasérfræðingur í tæknideild lögreglunnar, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann fer hér yfir feril sinn í lögreglunni sem spannar 33 ár og ræðir um verkefni tæknideildarinnar sem eru ansi fjölbreytt. Ragnar ræðir líka um andlega líðan lögreglumanna og háa tíðni sjálfsvíga í stéttinni sem lítið er rætt um í samfélaginu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á...

Listen to the Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.