Brotkast ehf.
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fullorðins | S02E10 | Togstreita fyrir slit á meirihlutasamstarfi í borginni 13.03.2025 7:17
Einar Þorsteinsson vann í mörg ár hjá Ríkissjónvarpinu, lærði stjórnmálafræði og hefur gengt embætti borgarstjóra síðustu misseri. Hann sleit nýverið samstarfi við meirihlutann og hætti í kjölfarið sem borgarstjóri. Hann kom til okkar og sagði okkur frá lífinu og tilverunni. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E12 | Sögulegar staðreyndir um Úkraínu stríðið hundsaðar af fjölmiðlum 12.03.2025 5:22
Tjörvi Schiöth, sagnfræðingur, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er mjög gagnrýnin á umfjöllun fjölmiðla af stríðinu í Úkraínu og segir almenningi vera seldar augljósar blekkingar og lygar sem gangi í berhögg við raunveruleikann og almenna skynsemi. Hann rekur í þessu viðtali þær sögulegu staðreyndir sem hann telur skipta máli til að skilja ástæður stríðsins og ræðir hvernig þ...
Harmageddon | S03E17 | Bakslag í réttindabaráttu á RÚV 11.03.2025 8:16
Ekki fer mikið fyrir ólíkum sjónarmiðum á Ríkismiðlinum RÚV sem er sannfærður um að mikið bakslag hafi orðið í réttindum kvenna á undanförnum árum. En er almenningur sammála þessari rétttrúnaðarhugmynd? Við fjöllum um þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Harmageddon | S03E16 | Íslenska Baby Reindeer málið 07.03.2025 15:41
Við fjöllum um ótrúlegt íslenskt eltihrellismál og vangetu lögreglunnar til að koma fórnarlömbum slíkra mála til aðstoðar. Við ræðum einnig um svimandi há laun borgarstjóra og ákvörðun borgarstjórnar um að hafna framtaki einkaaðila í leikskólamálum í Reykjavík. Þá förum við yfir hatrið á Elon Musk og veltum fyrir okkur hvaðan nákvæmlega það er komið. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dag...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E11 | Varnarsamningur við Bandaríkin í uppnámi 05.03.2025 4:20
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir hér um þær stjórnmálahræringar sem eiga sér stað á vesturlöndum um þessar mundir og stöðu alþjóðamála. Hann telur stefnu Evrópuríkja gagnvart Bandaríkjunum sem hafa viljað enda stríðið í Úkraínu varasama og hefur áhyggjur af þáttöku íslenskra ráðamanna í því. Arnar segir var...
Blekaðir | S02E03 | Soffía Lena 05.03.2025 2:35
Í þættinum ræða þeir Dagur og Óli við Soffíu Lenu sem hefur verið að flúra bæði hér á Íslandi og á Spáni. Að vanda fara þeir vítt og breitt í þættinum, hvenær hún byrjaði að gera flúr og opnaði stofu á Íslandi, tribal flúr og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Harmageddon | S03E15 | Áróðursmaskínan afhjúpar sig 04.03.2025 4:28
Í þætti dagsins förum við yfir hvernig fjölmiðlar eru notaðir til að matreiða ofan í almenning skilaboð sem eru afar hentug fyrir hergagnaiðnað hins vestræna heims. Stjórnmálamenn taka þannig gagnrýnilaust við fyrirmælum um hvaða skoðun þeir eiga að hafa á málefnum líðandi stundar og almenningur er teymdur í humátt á eftir. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á http...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E10 | Vill tala fyrir alla félagsmenn | Þátturinn í heild sinni 03.03.2025 28:52
Flosi Eiríksson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er í framboði til formanns VR sem er stærsta verkalýðsfélag landsins. Hann telur sig hafa rétta bakgrunninn og þekkinguna til að leiða félagið og hefur sterkar skoðanir á því hvernig standa skuli að kjaramálum á Íslandi. Flosi fer í þessu viðtali yfir áherslur sínar og kynnir sig fyrir kjósendum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E10 | Vill tala fyrir alla félagsmenn 03.03.2025 5:06
Flosi Eiríksson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er í framboði til formanns VR sem er stærsta verkalýðsfélag landsins. Hann telur sig hafa rétta bakgrunninn og þekkinguna til að leiða félagið og hefur sterkar skoðanir á því hvernig standa skuli að kjaramálum á Íslandi. Flosi fer í þessu viðtali yfir áherslur sínar og kynnir sig fyrir kjósendum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla...
Fullorðins | S02E09 | Starfaði sem útfararstjóri samhliða háskólanámi 03.03.2025 3:35
Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi verkalýðsforingi er gestur Fullorðins að þessu sinni. Hann er þekktur fyrir beitt viðtöl og að tala tæpitungulaust. Hann segir okkur frá uppvexti sínum úti á landi og hvað hefur gert hann að þeim manni sem hann er í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E09 | Of mikil kvenhyggja í pólitíkinni 28.02.2025 4:05
Gústaf Níelsson sagnfræðingur er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir í þessu viðtali stjórnmálin vítt og breytt, tjáningarfrelsi í Evrópu, aðhaldsaðgerðir Donald Trump og stríðið í Úkraínu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hluthafaspjallið | S02E07 | Síminn sjö sinnum meira virði en Sýn 28.02.2025 2:09
Það er svakalegur munur á markaðsverði símafyrirtækjanna. Þannig er markaðsvirði Símans sjö sinnum meira en Sýnar – og makaðsvirði Nova er þrisvar sinnum meira en Sýnar. Þetta er mjög sláandi. Sætta hluthafar Sýnar sig við þetta? Markaðsvirði Símans er 35 milljarðar kr., Nova 16 milljarðar og Sýnar 5 milljarðar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast...
Fullorðins | S02E08 | Hætti að drekka árið 2012 26.02.2025 2:57
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ein af okkar ástsælustu leikkonum og hefur verið í leikhúsum og sjónvarpi landsmanna í gegnum árin. Í þætti dagsins segir hún okkur frá æskuárunum, ástinni og lífinu almennt. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Harmageddon | S03E14 | Stjórnarkonan sem studdi dómstól götunnar 25.02.2025 9:09
Við rifjum upp þann trylling sem átti sér stað þegar lögfræðingur og stjórnarkona í fjölmörgum íslenskum stórfyrirtækjum hvatti fyrirtæki til að reka starfsmenn umsvifalaust ef á þá voru bornar einhverjar ásakanir í MeToo byltingunni. Einnig tölum við um taktleysi evrópskra stjórnmálamanna sem vilja hvetja Úkraínu til að berjast til síðasta blóðdropa og vilja helst ekki heyra minnst á samningaviðr...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E08 | Trump ræður og Evrópusambandið skiptir ekki máli 22.02.2025 3:32
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann segir Evrópusambandið ekkert hafa um stríðið í Úkraínu að segja lengur. Donald Trump er að hans mati eini leiðtoginn sem hafi um eitthvað að semja við Pútín Rússlandsforseta og segir hann ríkisstjórn Bandaríkjanna vera búna að átta sig á því að nú er ekkert annað hægt að gera en að ljúka stríðinu til að lágmarka...
Hluthafaspjallið | S02E06 | Stóru karlarnir komnir inn á markaðinn 21.02.2025 3:36
Kaup fasteignafélagsins Heima á vísindahúsinu Grósku á háskólasvæðinu – félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar eru á vissan hátt söguleg. Þeir verða stærstu hluthafar í Heimum og frkvstj. Heima segir að með kaupunum sé félagið komið með meiri aþjóðleg tengsl. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.i...
Harmageddon | S03E13 | Forréttindafirrtar ómenntaðar risaeðlur 21.02.2025 6:20
Sérfræðimenntaðir kynjafræðingar eru ekki sáttir við að karlar sem unnið hafa með ungmennum í áratugi skuli voga sér að tjá sig um vandamál þeirra. Við ræðum einnig um innlegg íslenskra stjórnvalda í friðarviðræður Rússlands og Úkraínu, ærandi þögn skólastjóra Breiðholtssskóla og baráttu vinstrisins gegn löngu tímabærum aðhaldsaðgerðum í fjármálum Bandaríkjanna. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætt...
Fullorðins | S02E07 | Ezzi segir frá líkamsárás sem hann varð fyrir 21.02.2025 5:22
Estefan Leó Haraldsson, betur þekktur sem Ezzi á Tiktok er 21 árs og einstaklega skapandi og heilsteyptur ungur maður. Hann hefur persónulega reynslu af því að verða fyrir líkamsárás og segir okkur frá því í þætti dagsins, en einnig ákvörðuninni að hætta að drekka og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Blekaðir | S02E02 | Borgaði fyrir bensín og fór 19.02.2025 3:57
Í þætti dagsins fara þeir Dagur og Óli yfir víðan völl, tala um hvers vegna prentarar virka ekki, um mann sem lést í svæfingu fyrir flúr, uppákomur í líkamsrækt og þegar Dagur borgaði fyrir bensín en gleymdi að dæla á bílinn og fór. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Harmageddon | S03E12 | Sannleikurinn um ræðu J.D. Vance 18.02.2025 6:33
Ræðan sem varaforseti Bandaríkjanna þrumaði yfir ráðalausum evrópskum stjórnmálamönnum var löngu tímabær og nauðsynleg. Ráðamenn í Evrópu hafa misst alla jarðtengingu og gleymt því að málfrelsið er undirstaða allra mannréttinda. Segja má að JD Vance hafi í raun að talaði beint til íbúa Evrópu en ekki valdaelítunnar sem sat á fínu öryggisráðtefnunni í Munchen. Við ræðum þetta og miklu fleira í Harm...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E07 | Heilaþvottur rétttrúnaðarins 17.02.2025 6:29
Guðjón Heiðar Valgarðsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Í þessu viðtali ræðir hann um rétttrúnaðarhugmyndafræðina sem hefur verið ráðandi á Vesturlöndum á undaförnum árum. Guðjón segir þá hugmyndafræði hafa verið vel skipulagða af öflum sem lengi hafa haft meira um skipan heimsmála að segja heldur en almenningur gerir sér grein fyrir. Hann segir hugmyndafræðinga rétttrúnaðarins...
Harmageddon | S03E11 | Að rökræða við kynjafræðing 14.02.2025 11:03
Frosti og Ingimar spjalla um nýlegt og umtalað viðtal Samstöðvarinnar við Þorstein V Einarsson og Frosta um karlmennsku á krossgötum. Einnig er rætt um nýjan borgarstjórnarmeirihluta í þessum þætti, ófremdarástand í Breiðholtsskóla sem foreldrar lýsa sem menningarlegu vandamáli, þögn forsvarsmanna RÚV um byrlunar- og símastuldsmálið og aðgerðir Donald Trump á fyrstu vikum hans í embætti. Horfðu á...
Fullorðins | S02E06 | Brynjar Karl | Þátturinn í heild sinni 14.02.2025 2:01:50
Brynjar Karl hefur verið áberandi í íslenskri íþróttaumræðu í gegnum tíðina og ekki síst undanfarið. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir hörkulega þjálfunarhætti á stúlkum í körfuknattleik og kallaður m.a. „költ“leiðtogi og ofbeldismaður. Þetta er fyrsta viðtalið sem kona tekur við hann og má segja að við höfum tekið aðeins öðruvísi vinkil á samtalinu en áður hefur verið gert. Fáðu þér áskrift og sj...
Fullorðins | S02E06 | Er hann bara að búa til einhverjar trukkalessur? 12.02.2025 7:06
Brynjar Karl hefur verið áberandi í íslenskri íþróttaumræðu í gegnum tíðina og ekki síst undanfarið. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir hörkulega þjálfunarhætti á stúlkum í körfuknattleik og kallaður m.a. „költ“leiðtogi og ofbeldismaður. Þetta er fyrsta viðtalið sem kona tekur við hann og má segja að við höfum tekið aðeins öðruvísi vinkil á samtalinu en áður hefur verið gert. Fáðu þér áskrift og sj...
Harmageddon | S03E10 | Byrlunar- og símastuldsmáli langt frá því að vera lokið 11.02.2025 6:52
Þrátt fyrir að brot hafi verið fyrnd og lögreglu ekki tekist að sanna hver gerði hvað í höfuðstöðvum RÚV þegar brotist var inn í símtæki Páls Steingrímssonar skipstjóra, er málinu langt frá því að vera lokið. Við ræðum einnig um ófremdarástand í Breiðholtsskóla, ríkisstyrki stjórnmálasamtaka, og stöðu transkvenna í bandarískum íþróttum. Ekki missa af Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.