Bragðheimar
Bragðheimar
Nautnaseggirnir Eva & Solla fjalla um mat og matargerð í sem víðustum skilningi. Þetta hlaðvarp er fyrir sælkerann, meðaljónin og sjoppuna.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fokkasía í ketosis 24.10.2025 48:28
Bragðheimabínur brugðu á leik og buðu dönnuðustu frú landsins, Rúnu Friðriksdóttur (aka Rúnkenstein) og maddömunni sjálfri með ofvirkasta skjaldkirtilinn, Nadine Guðrúnu Yaghi út að borða. Smakkland var í boði Lólu Reykjavík og voru konur alls ekki sviknar. Svikinn héri var þó ekki á boðstólnum heldur besta fokkasía landsins og gómsætur framandi ítalskur matur. Hlustendur fá frekari lýsingu á uppl...
Gígja Himalayasaltsdóttir 10.10.2025 1:08:24
Bragðheimabínur fengu skemmtilega heimsókn frá enn einu fjöllistafreakinu. Gígja Hilmarsdóttir stundum þekkt sem Gígja klígja skólar lýðinn. Gígja leggur metnað í matreiðslu og framleiðslu, hún er röggsöm í lífi og leik og er talskona þess að skila eigi lötum mökum. Hækkum standardinn, borðum gott og eldum eftir Ottolenghi og fleiri sniðuga kokka með áhöldum frá IKEA.
Gullbrár og fórnarlömbin 7 11.07.2025 48:53
Mættastar, smakkandi og traðkandi yfir lýðinn. Er of falleg hönnun veitingastöðum til falls, þarf Eva að hætta að troða söltuðum sítrónum upp í ******** á sér? Eru múmínálfarnir í útrýmingarhættu? Hvenær fáum við heilsubót í skyndibitaiðnaðinn? Afhverju er ísbíllinn ekki að hringja inn sumarið? Matarfréttir og svo margt fleira í ferskum Bragðheima þætti!
Vínberið 🍇 Arnór Hreiðarsson 10.07.2025 1:25:31
Smakkland fræðslusetur ögrar bragðlaukum og kynnist frábærum vínum með Arnóri Hreiðarssyni.
Endurfæðing og tryggt fæðuöryggi Bragðheima-bína 27.03.2025 59:31
Líkt og saklausir skógarbirnir eru Bragðheima-bínur nýskriðnar úr dvala, með tryggt fæðuöryggi og spennta bragðlauka. Spennandi uppskriftir, ráðleggingar landlæknis, maturinn hans Adda-intro í Berlin, rop-keppni og margt fleira í fyrsta þætti seasons-ins.
Helga Sverrisdóttir - haxmundína heimilishaldsins 29.11.2024 1:34:00
Helga Sverrisdóttir er kona hokin af reynslu. Hún ólst upp á miklu menningarheimili þar sem norrænu áhrifin voru ríkjandi. Hún hefur lagt mikinn metnað í að fæða og klæða sitt fólk og gerir það af stakri prýði. Mikið svakalega var gaman að spjalla við þessa flottu konu og lífskúnstner.
Eva Laufey Kjaran - Orkuver matarheimsins 17.11.2024 1:20:08
Orkuverið og fjöllistadísin Eva Laufey Kjaran gerði sér ferð í höfuðstöðvar Bragðheima þar sem hún jós úr brunni sínum líkt og rósakáls súpunni sem hringir inn jólin á Akranesi. Ferðalagið hennar Evu, klassíkin hennar Evu og jólabakstur með Evu.
Af fingrum fram með múltí og kúltíveruðustu Sigríði Kjaran, ævintýraprinsessunni í Þingholtunum. 04.11.2024 1:23:15
Sigríður Kjaran Magnúsdóttir er ekkert eðlilega sjóuð og skemmtileg manneskja, með mikla reynslu og brennandi áhuga á matargerð. Hún hefur búið út um allan heim og sömuleiðis starfað í eldhúsum víða um heim. Sigríður er mjög nýtin, sniðug og iðin í eldhúsinu og haxmundarnir vella svoleiðis uppúr henni!
Siffi Haralds - maðurinn sem heimsótti 200 veitingastaði á einu ári!! 24.10.2024 1:02:54
Við fáum að kynnast Siffa Haralds sem hefur heimsótt hátt í 600 veitingastaði hér á landi á síðustu 5 árum. Hröð en ítarleg yfirferð um helstu hverfis-laumurnar í Reykjavík og nágrenni, nýir eigendur á Yndisauka, njálgur á Kaffi Laugalæk og fleira sniðugt!
Pattra Sriyanonge - bragðheimur drauma ykkar! 17.10.2024 1:49:52
Bragðheimar eru uppi með sér eftir áhrifamikið spjall við ástríðukokkinn Pöttru Sriyanonge, sem deilir með hlustendum sinni listrænu nálgun á matreiðslu. Pattra elst upp við tælenska matargerð og sækir áhrifin mikið þaðan. Áhrifin sækir hún einnig frá þeim löndum sem hún hefur búið í, en þau eru ansi mörg. Pattra deilir með okkur rosalegum uppskriftum, Haxmundi Axeli og ýmsu fleira sem þú vilt ekk...
Unnur Birna Backman - kássur, smjör og tilþrif! 29.09.2024 1:31:46
Landsmót kássa og hægeldunar, Reykjavík Fusion og öll smjör ástin með flottustu Unni Birnu Backman. Stútfullur þáttur af kennsluefni og elegans!
Árni Randvers - meistari í matarmenningu 15.09.2024 1:00:03
Hvað borðar meistari í matarmenningu í þynnkunni? Stefnir ísbíllinn í gjaldþrot og afhverju er enginn að fá sér kókflot í dag? Fyrir hvað standa samtökin "slow food" og hvernig má það vera að þau standa ekki fyrir hægeldun?
Fanney Dóra - rektorinn í framandi íslenskri matargerð 10.09.2024 1:21:23
Fanney Dóra er kokkur á heimsmælikvarða. Hún segir okkur frá ævintýrum sínum hjá Jamie Oliver og skólar okkur til í ostum, brauðtertum og íslenskum kryddjurtum. Hún segir meðal annars frá þeirri vannýttu auðlind sem grásleppan er, og hvernig hægt er að nýta hana til góðs. Ofboðslega fróðlegt og skemmtilegt spjall við þennan landsliðskokk sem hefur marga fjöruna sopið.
Guðný Ljósbrá - matarleiðsögukona Íslands! 05.09.2024 1:00:19
Snerpa, gæði og matarleiðsögn í boði áhrifavaldsins og framkvæmdastjórans Guðnýjar Ljósbrár.
Sólrún Diego - drottning heimilishaldsins! 26.08.2024 1:30:25
Við fengum loksins að kynnast drottningu heimilishaldsins, Sólrúnu Diego. Hvernig viðhelduru vikumatseðli, signature eftirréttur Sólrúnar, heimilismatur æskunnar, endalaust af Haxmundum og svo margt fleira. Skemmtilegt og einlægt spjall með þessari góðu geit.
Anna Fríða Gísladóttir - sax, sull & stemning! 18.08.2024 1:27:21
Sax, sull og stemning með Haxmundi Tæknitæfudóttur. Anna Fríða Gísladóttir, kom sá og saxaði. Endurmörkun sólþurrkaða tómatsins, framandi mömmumatur og endalaus stemning.
Woltemon völtun í Vesturbæ 07.08.2024 43:51
Loksins er siðferðislega samþykkt að versla við Melabúðina á ný. Smakkland á Laugavegi 55, endurmörkun svínsins og ný gildi Bragðheima á haustönnn 2024.
Season all - leiðin norður 20.06.2024 1:05:55
Bragðheimabínurnar Eva & Solla líta yfir farinn veg og þræða leiðina norður yfir alvöru mauli. Hvar er best að stoppa á leiðinni norður, er gott að dæna á Akureyri og afhverju er enginn veitingastaður búinn að bjóða okkur út að borða? Standard, takk!
Með þráhyggju fyrir Þránni á Sumac & Óx - hvernig viðheldur maður Michelin stjörnu? 05.06.2024 1:00:57
Þráinn Freyr Vigfússon, stjörnukokkur og Michelin stjörnugrís mætti til Bragðheima brussanna og upplýsti um eitt og annað í heimi veitingageirans.
Maul & baul með Bessastaðabeljunum - Oddur Þórðarson & Ólöf Skaftadóttir 28.05.2024 1:19:09
Maul & baul með samfélagsrýnunum Oddi & Lollu sem sitja ekki á skoðunum sínum þegar kemur að matargerð og trendum í veitingageiranum í Reykjavík. Hvað borða forsetaframbjóðendur ársins 2024 og hvern eigum við eiginlega að kjósa?
Gott í gogginn með Hjörvari Hafliða aka Dr. Football 22.05.2024 1:10:35
Slatti af lauk, mikið af cabaret og dass af skinku fyrir doktorinn. Hvert fer hann út að borða, hvað finnst honum best og hvað verður hann að eiga heima hjá sér? Fáránlega skemmtilegt spjall við hlaðvarpskónginn Hjörvar Hafliða.
Vinkonugrill: sætabrauðsdrengurinn Rakel Sif og fjöllistafreakið Lóa Björk 07.05.2024 1:42:53
Afhverju er svona vondur matur í Finnlandi og Noregi og hvar er langbest að dæna í París? Hvers vegna er bekkurinn alltaf betri en sætið á veitingastöðum og hvernig er að vera grænmetisæta á tímum kjötætunnar?
Réttur er settur - stóri djúpsteikingarpotturinn á Ingólfstorgi! 24.04.2024 1:01:03
Særingarmenn dusta rykið af skikkjunum og kíkja í áhrifavaldaboð, kryfja brunch leikinn, hylla tiktok eldamennsku og fara á bólakaf í stóra djúpsteikingarpottinn við Ingólfstorg.
Asíureisa - Addi Intr0beatz 10.04.2024 1:50:56
Matgæðingurinn og átvaglið Ársæll (Addi Intr0Beatz) mætti með kennslugleraugun í stúdíó Bragðheima. Tælensk matargerð, leynimatseðill á Fönix, Haxmundur Axel: þrýstipotturinn og svo margt fleira.
Tæknitæfan sem eyðilagði matarbloggið! 27.03.2024 1:25:00
Er úti um framtíð matarbloggsins? Uppskrift af besta lasagna sem þú munt smakka, hvert er leyndarmál svörtu ólífunnar, Víkingur Heiðar bjórsali og svo margt fleira á vínargalsa Bragðheima!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.