Á mannauðsmáli

Á mannauðsmáli

Business IS ↓ 50 episodes

Þættirnir fjalla um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Á mannauðsmáli

Category

Business

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Dec 9, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

50. Sigrún Ósk Jakobsdóttir - Advania 09.12.2024

Gestur þáttarins heitir Sigrún og starfar sem mannauðsstjóri hjá Advania. Sigrún segir okkur frá þeirra helstu áherslum í mannauðsmálum og svo þær áskoranir sem upplýsingatæknifyrirtæki standa frammi fyrir varðandi það að efla konur í þessum geira. Styrktaraðilar þáttarins eru Akademias, Hoobla, YAY, Alfreð, Dagar og Giggó.

49. Hildur Hörn Daðadóttir - Lífeyrissjóður verslunarmanna 16.09.2024

Gestur þáttarins er Hildur Hörn sem starfar hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Við ætlum að spjalla um allt sem tengist lífeyrismálum ig það komum við mannauðsfólk sterk inn. Hildur fer yfir lífeyrismál og við ræðum hvernig lífeyrir getur stutt við okkur í allskonar aðstæðum. Styrktaraðilar eru Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.

48. Davíð Tómas Tómasson - Moodup 16.08.2024

Gestur þáttarins heitir Davíð og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri Moodup. Davíð er ótrúlega skemmtilegur og hefur mikinn áhuga á andlegri og líkamlegri heilsu ásamt því að brenna fyrir Moodup. Við förum yfir sögu fyrirtækisins sem er svo sannarlega áhugaverð. Styrktaraðilar eru Akademias, Hoobla, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.

47. Sigríður Inga Svarfdal - YAY 12.06.2024

Jæja gott fólk. Gestur þáttarins er Sigga hjá YAY. Hún starfar sem markaðsstjóri hjá YAY og hefur verið hjá fyrirtækinu frá upphafi. Sagan þeirra er ótrúlega áhugaverð og þau halda bara áfram að stækka. Sigga ætlar að segja okkur frá því hvernig þetta ferðalag hófst og hvaða vörur þau bjóða uppá. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Al...

46. Unnur Ýr Konráðsdóttir - Lucinity 22.04.2024

Unnur hjá Lucinity situr til móts við mig á þessum fallega degi. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.  Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð og GIGGÓ.

45. Jakobína Árnadóttir - Hrafnista 07.02.2024

Gestur þáttarins heitir Jakobína og starfar sem mannauðsstjóri Hrafnistu. Við settumst niður og ræddum stefnumótunarvinnu, fræðslumál, styttingu vinnuvikunnar og allskonar skemmtilegt sem er í gangi hjá þeim. Í raun má segja að undanfarin ár hafi Hrafnista farið í gegnum mikið umbreytingarferli og það kemur skýrt fram miðað við það sem hún segir okkur. Þau vinna meðal annars með það að þau eru þjó...

44. Adriana Pétursdóttir - Formaður Mannauðs 23.11.2023

Í spjallið til mín að þessu sinni kom Adriana Pétursdóttir. Ég þarf varla að kynna hana til leiks en hún starfar sem leiðtogi starfsmannaþjónustu RIO TINTO og í byrjun árs tók hún við sem formaður Mannauðs, okkar allra besta mannauðsfélags. Við vorum svo sem sammála um það að við hefðum getað spjallað í marga klukkutíma en hér á eftir förum við yfir allt þetta helsta – Mannauðsdaginn sjálfan, hvað...

43. Aðalheiður Hreinsdóttir - LearnCove 17.10.2023

Gestur þáttarins heitir Aðalheiður Hreinsdóttir, kölluð Heiða, og starfar sem framkvæmdastjóri LearnCove. Og hvað er nú LearnCove eiginlega? Jú það er auðvitað fræðslukerfi sem Heiða ætlar að segja okkur frá í þessu lauflétta spjalli. Við ræddum um hvað kerfið býður upp á, hverjir eru kostir þess, hversu notendavænt það er og af hverju þetta kerfi er betra en önnur. Til þess að fá að vita allt um...

42. Sverrir Hjálmarsson - Akademias 28.09.2023

Góðan daginn kæru hlustendur. Gestur þáttarins heitir Sverrir Hjálmarsson og starfar sem ráðgjafi hjá Akademias. Við Sverrir eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fræðslumálum og þess vegna er það aðal umræðuefni þáttarins. Sverrir segir okkur frá starfi sínu hjá Akademias og þeirri þróun sem á sér stað hjá þeim. Þar má meðal annars nefna fjölbreyttar námsleiðir, rafræna fræðslusafnið, spr...

41. Inga Þórisdóttir - Via Optima 06.04.2023

Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfu...

40. Guðfinna Ingjaldsdóttir - Reykjavíkurborg 01.03.2023

Í þessum þætti spjöllum við Guðfinna saman en hún starfar sem mannauðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs hjá Reykjavíkurborg. Ótrúlegt en satt þá ræddum við eiginlega bara um vinnustaðamenningu og endurgjöf. Ekki að það sé eitthvað óáhugavert heldur náðum við svo góðri dýpt í þessari umræðu. Guðfinna talar svo sannarlega frá hjartanu og leyfir okkur að heyra hvernig hennar reynsla hefur nýst hjá...

39. Davíð Rafn Kristjánsson - Swapp Agency 26.10.2022

Hann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Co...

38. Ragnhildur Bjarkadóttir - Auðnast 06.10.2022

Ragnhildur er annar eigandi og stofnandi Auðnast. Hún er mjög mikið menntuð og ég ætla bara að leyfa henni að segja ykkur frá því. Við fórum auðvitað yfir það hvað Auðnast stendur fyrir og hver þeirra sýn er. Félagslega umhverfið í heild sinni er þeirra nálgun og þar hefur safnast mikil reynsla og þekking seinustu ár. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.

37. Helga Halldórsdóttir - Arion banki 09.06.2022

Helga Halldórsdóttir er gestur þáttarins en hún starfar sem forstöðumaður mannauðssviðs hjá Arion banka. Við fórum yfir víðan völl í þættinum. Helga segir okkur frá sinni vegferð í mannauðsmálum, hvernig Arion banki hefur notað breytingastjórnun til þess að ná árangri, mánaðarlegar mælingar, mannauðsstefnuna þeirra, húsnæðismál og margt fleira. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, 50skills og Moodu...

36. Ragnheiður Aradóttir - PROevents & PROcoaching 06.04.2022

Í þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki h...

35. Hildur Sigurðardóttir - RÚV 18.03.2022

Í þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar se...

34. Elísabet Helgadóttir - Icelandair 02.03.2022

Gestur þáttarins er Elísabet Helgadóttir en hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Icelandair. Félagið hefur vægast sagt þurft að takast á við ýmsar áskoranir seinustu tvö ár eins og mörg önnur fyrirtæki. Í þættinum spjöllum við Elísabet um þær áskoranir sem félagið hefur þurft að takast á við ásamt því að vera í kjaraviðræðum, huga að fjarvinnu og endurskipulagningu félagsins. Það er eiginlega...

33. Thor Olafsson - Strategic Leadership 10.02.2022

Thor Olafsson er stofnandi Strategic Leadership og hefur unnið sem stjórnendaráðgjafi í meira en 20 ár. Hann er sestur hjá mér og það eina sem við ætlum að ræða eru stjórnendur og aftur stjórnendur. En hvað er það við stjórnendur sem er svona merkilegt? Jú, það er nefnilega frekar margt. Við ræðum um stjórnendaþjálfun, hlutverk stjórnenda, fyrirtækjamenningu, samvinnu stjórenda og starfsfólks og s...

32. Harpa Magnúsdóttir - Hoobla 15.12.2021

Gestur þáttarins er enginn önnur en Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. Drifkrafturinn í Hörpu er ótrúlegur, hún stóð á tímamótum í byrjun árs 2021 eftir 15 ára starf hjá ORF líftækni. Hún fann að það voru tækifæri í gig-umhverfinu og nokkrum mánuðum seinna var hún búin að stofna Hoobla. Harpa segir okkur frá þessu öllu saman ásamt skemmtilegu samstarfi við Siggu Kling.  Styrktarðilar þátta...

31. Kristín Hrefna Halldórsdóttir - Origo 08.10.2021

Við Kristín hittumst í Akademias stúdíóinu og töluðum um hið frábæra jafnlaunakerfi. Origo býður nú upp á þjónustu sem heitir Justly Pay og tengist jafnlaunakerfinu í heild. Justly Pay er í þremur þrepum sem Kristín fer vel yfir og svo ræðum við hvernig er hægt að vinna með það. Jafnlaunakerfið er  ekkert annað en gæðakerfi og þess vegna er þessi snilld frá Origo eflaust að fara að spara fjöl...

30. Björn Björnsson - Moodup 12.08.2021

Í Akademias stúdíóinu situr ungur maður að nafni Björn sem stofnaði nýverið fyrirtækið Moodup en það sérhæfir sig í að mæla starfsánægju hjá fyrirtækjum. Björn er sprenglærður og hefur komið víða við á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars unnið sem aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann stofnaði Moodup í þeim tilgangi að efla starfsánægju starfsfólks með einföldum og þægilegum hætti. Ótrúlega skilvi...

29. Erla María Sigurðardóttir - Krónan 24.06.2021

Við Erla María sem starfar sem mannauðsstjóri Krónunnar hittumst alveg eldhressar í Akademias stúdíóinu. Erla segir okkur frá starfsemi Krónunnar ásamt því að fara yfir málefni sem tengjast ungum stjórnendum, Krónuskólanum, velferðarpakkanum þeirra og hvernig þau tókust á við Covid. Virkilega skemmtileg hlustun! Þátturinn er í boði Akademias, 50skills, Moodup og Mótun. 

28. Ágústa Björg Bjarnadóttir - Sjóvá 03.06.2021

Við Ágústa hittumst í Akademias stúdíóinu en hún starfar sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Sjóvá. Það sem mér hefur þótt einna áhugaverðast við þeirra áherslur eru jafnréttismálin. Þau fá svo sannarlega svigrúm í þessu spjalli en auk þess ræddum við stefnumótunarvinnu sem þau fara í á 2-3 ára fresti þar sem allir starfsmenn taka þátt og leggja sitt af mörkum. Einnig ræddum við um starfsumhverfið...

27. Alþjóðlegi mannauðsdagurinn 2021 20.05.2021

Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er 20. maí 2021. Í samstarfi við Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi er þátturinn því með aðeins öðruvísi sniði en vanalega en hann er sérstaklega tileinkaður þessum degi. Ég fékk til mín alveg frábæra gesti sem allir eiga það sameiginlegt að starfa við mannauðsmál og eru núverandi og fyrrverandi formenn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en það eru Ásdís Eir...

26. Sigríður Harðardóttir - Strætó 17.05.2021

Í Akademias stúdíóinu er Sigríður Harðardóttir sem er sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála hjá Strætó. Við ræddum meðal annars starfsþjálfunarkerfi fyrir vagnstjóra, öflugt fræðslustarf þar sem áhersla er lögð á endurmenntun vagnstjóra og hvernig er hægt að viðhalda þeirra þekkingu og færni í starfi, streita og álag kom til tals þar sem þau fóru í áhugaverða vinnu í tengslum við að draga úr þessum þá...

Listen to the Á mannauðsmáli podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.