Á mannauðsmáli

Á mannauðsmáli

Business IS ↓ 50 episodes

Þættirnir fjalla um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Á mannauðsmáli

Category

Business

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Dec 9, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

25. Ketill Berg Magnússon - Marel 29.04.2021

Góðir gestir, næsti viðmælandi er ekki af verri endanum. Hann heitir Ketill og er mannauðsstjóri hjá Marel. Ég bauð Ketil velkominn í Akademias stúdíóið þar sem við náðum heldur betur góðu spjalli. Ketill er fyrsti viðmælandi minn sem nær að tala í tæpa tvo klukkutíma en ekki örvænta, þetta er svo fróðlegt spjall að það nær bara varla nokkurri átt. Ketill segir okkur frá hverjar áherslurnar eru hj...

24. Elín Kristín Guðmundsdóttir - Hugarheimur 17.03.2021

Við Elín hjá Hugarheimi skelltum okkur í Akademias stúdíóið. Hugarheimur sérhæfir sig meðal annars í að sálfélagslegu þáttunum í vinnuumhverfinu eins og streitu, kulnun, álagi og öðru áreiti sem hefur áhrif á líðan okkar bæði í starfi og einkalífi. Við ræddum einmitt þessa þætti betur og fórum yfir það hvernig er hægt að búa til aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvernig við getum náð betr...

23. Dröfn Guðmundsdóttir - Origo 16.02.2021

Gestur minn að þessu sinni er Dröfn Guðmundsdóttir sem er mannauðsstjóri hjá Origo. Fyrirtækið hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og sérstaklega hvað varðar jafnréttismál og starfsánægju á tímum Covid. Við ræddum það hvernig er hægt að auka þátttöku kvenna í tæknigeiranum, hvaða áhrif fyrirmyndir hafa í þessum efnum og hvaða skref þarf að taka til þess að það beri árangur. Einnig ræddum v...

22. Unnur María Birgisdóttir - Geko 22.12.2020

Gestur þáttarins er hún nafna mín, Unnur, sem leiðir People Experience hjá Geko. Þetta fyrirtæki er heldur betur nýtt á nálinni en það var stofnað í febrúar 2020. Unnur brennur fyrir fjölbreytni á vinnustað, hvernig er hægt að vinna með svokallaðan bias á vinnustöðum þar sem aðal áherslan er að auka víðsýni til að geta verið opnari fyrir ólíku fólki og skoðunum á vinnustaðnum. Einnig ræðum við jaf...

21. Guðmundur Pálmason - Promennt 10.11.2020

Gestur þáttarins er Guðmundur Pálmason sem er eigandi og framkvæmdastjóri Promennt. Fyrirtækið sérhæfir sig í fræðslu í viðskiptagreinum, tölvu- og upplýsingatækni og hefur Guðmundur hefur starfað við upplýsingatækni í mörg ár og þekkir það af eigin reynslu hvernig best er að fræða, kenna og upplýsa svo góður árangur náist. Það mætti segja að Promennt sé langt á undan okkur í tæknilegri þróun en þ...

20. Sigríður Indriðadóttir - Pósturinn 21.10.2020

Gestur minn að þessu sinni heitir Sigga og er framkvæmdastjóri mannauðs hjá Póstinum. Við Sigga hittumst í Nóa Síríus stúdíóinu í Podcaststöðinni og okkar helsta umræðuefni var meðvirkni í stjórnun og á vinnustöðum. Hún hefur mikla reynslu af því að vinna með meðvirkni og hefur meðal annars verið að halda fyrirlestra um málefnið. Hún segir að það skiptir miklu máli að vera hugrökk þegar takast á v...

19. Gunnur Líf Gunnarsdóttir - Samkaup 02.07.2020

Gestur þáttarins kom í heimsókn í Nóa Síríus-stúdíóið í Podcaststöðinni og heitir Gunnur Líf Gunnarssdóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum. Við Gunnur ræddum um öfluga vinnustaðamenningu hjá Samkaup, hvað liðsheildin er sterk og hversu mikilvægt það er að halda vel utan um starfsfólkið sitt. Hún tók við starfinu fyrir um tveimur árum og lagði strax mikla áherslu á að kynnast stö...

18. Ásta Bjarnadóttir - Landspítali 13.05.2020

Gestur minn að þessu sinni heitir Ásta Bjarnadóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála á Landsspítalanum. Svona til þess að gefa ykkur góða mynd af því mannauðsstarfi sem fer fram á spítalanum þá starfa um 60 manns við ráðningar, stjórnendaráðgjöf, laun og önnur mál. Ásta hefur starfað nánast óslitið við mannauðsmál sem mannauðsstjóri, háskólakennari eða ráðgjafi á því sviði frá því að hún lauk d...

17. Helgi Héðinsson - Líf og sál 23.03.2020

Hann heitir Helgi og starfar sem sálfræðingur á Líf og sál sálfræðistofu. Helgi starfar mikið með íþróttafólki í sinni vinnu og við ræddum meðal annars hvernig hóp íþróttir geta endurspeglað teymi á vinnustöðum. Við ræddum einnig Meeto byltinguna og þar komum við inná hvernig hún hefur breytt samfélaginu til hins betra, hvernig tímarnir voru fyrir byltinguna, eftir hana og stöðuna í dag. Hvað það...

16. Guðrún Snorradóttir - Stjórnendamarkþjálfi 03.03.2020

Gestur þáttarins er Guðrún Snorradóttir. Hún starfar sem stjórnendamarkþjálfi og er nýbúin að opna eigin heimasíðu sem heitir gudrunsnorra.com. Spjallið okkar Guðrúnar einkenndist af því hverjir eru styrkleikar stjórnenda, hvernig mannlegi þátturinn er grundvöllur í árangri þeirra og hvernig kynslóðabilið getur haft áhrif á aðferðir stjórnenda til þess að ná árangri með sína starfsmenn. Svo töluðu...

15. Steinar Þór Ólafsson - Skeljungur 12.02.2020

Hann heitir Steinar Þór er markaðsstjóri Skeljungs. Hann er ekki  sérfræðingur í mannauðsmálum en undanfarið hefur hann komið fram með skemmtilegar pælingar sem tengjast vinnustöðum og ástæða þess að ég vildi fá hann í spjall er sú að hann hefur verið að setja fram ýmsar pælingar sem flestir hugsa um en enginn þorir að segja upphátt. Við ræddum vinnustaðamenninguna, gildi, tölvupóstinn, fyrir...

14. Sigurjón Þórðarson - Capacent 21.01.2020

Sigurjón starfar sem ráðgjafi í stjórnun og stefnumótun hjá Capacent. Sigurjón segir okkur skemmtilega sögu frá því hvernig hann byrjaði að sinna hópeflisstarfi og ráðgjöf til fyrirtækja. Hann hefur mikla reynslu á þessu sviði og við ræddum meðal annars hvaða styrkleika stjórnandi þarf að hafa. Stefnumótun er einnig ofarlega í huga Sigurjóns og þar fórum við yfir helstu atriði sem eru mikilvæg ef...

13. Rúna Magnúsdóttir - The Change Makers 13.12.2019

Rúna er rithöfundur, fyrirlesari, umbreytingamarkþjálfi, stofnandi The Change Makers og svo stofnaði hún líka vitundarvakninguna No More Boxes. Hún er ótrúlega orkumikil, algjör DO-er og kemur hugmyndum í framkvæmd. Virkilega skemmtilegt spjall um orkustjórnun, hvernig við getum haft áhrif á umhverfið okkar, konur í viðskiptum og svo afhverju og hvernig við setjum fólk alltaf í ákveðin box, hvort...

12. Ásdís Eir Símonardóttir - Orkuveita Reykjavíkur 26.11.2019

Hún heitir Ásdís og er mannauðsráðgjafi hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ásdís hefur starfað í þessum bransa í nokkur ár og ætlar að miðla með okkur þeirri reynslu sem snýr að því að feta sín fyrstu fótspor í þessum bransa. Ásdís hefur verið dugleg að afla sér reynslu og starfar meðal annars sem varaformaður í Mannauði, sem er félag mannauðsfólks á Íslandi og var einnig kynnir á Mannauðsdeginum 2019.&nb...

11. Sigríður Elín Guðlaugsdóttir - Háskólinn í Reykjavík 11.11.2019

Hún er kölluð Ella Sigga og er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað í þessum bransa í þónokkur ár og þekkir þetta málefni vel. Hún er hreinskilin og talar opinskátt en með mikilli umhyggju. Við ræddum ferilinn hennar, þau verkefni sem hún hefur sinnt og svo auðvitað MeeTo byltinguna sem skiptir hana svo miklu máli. 

10. Hafsteinn Bragason - Íslandsbanki 23.10.2019

Hafsteinn er mannauðsstjóri Íslandsbanka. Hann er ansi kunnugur þessum bransa, hefur starfað við mannauðsmál í um 20 ár. Við spjölluðum um þau verkefni sem hann og fleiri stóðu frammi fyrir í hruninu, hversu mikilvæg tengsl og samvinna er á milli mannauðsdeilda og stjórnenda og svo að auki helstu verkefni í hans daglega starfi.  Þátturinn er í boði Alfreð og Franklin Covey. 

9. Guðrún Högnadóttir - Franklin Covey 10.10.2019

Guðrún er framkvæmdastjóri hjá Franklin Covey og þekkir það vel að ná góðum árangri. Við tölum um ferilinn hennar og þau verkefni og störf sem hún hefur fengist við. Síðan er það hugmyndafræði Franklin Covey sem á hug hennar og hjarta. Í stuttu máli fjallar hugmyndafræðin þeirra um 7 venjur til árangurs þar sem lögð er áhersla á að efla einstaklinginn í að ná árangri bæði persónulega og í starfi -...

8. Víðir Ragnarsson - Orkuveita Reykjavíkur 25.09.2019

Víðir starfar sem sérfræðingur á mannauðssviði hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Víðir er sannkallaður talna- og greiningagúru og er með allt á hreinu þegar kemur að kynjagreiningum, greiningum á launamyndun, veikindagreiningum og síðast en ekki síst greiningu á ástæðum starfsloka. Það getur nefnilega reynst svo gagnlegt að hafa tölur fyrir framan sig sem segja til um stöðuna og vinna síðan út frá því. F...

7. Gestur Pálmason - Complete Coherence 11.09.2019

Gestur starfar hjá bresku fyrirtæki og sinnir þar verkefnum sem snúa að stjórnenda- og teymisþjálfun. Hann þekkir það vel að vera hluti af sterkri liðsheild og hefur getað nýtt þá reynslu sína vel við störf. Við fórum meðal annars yfir það hvaða eiginleika stjórnendur þurfa að hafa til þess að drífa verkefni áfram og hvernig er hægt að nýta kenningar og greiningar til þess að ná betri árangri.&nbs...

6. Maríanna Magnúsdóttir - Manino 28.08.2019

Maríanna Magnúsdóttir starfar sem umbreytingaþjálfari hjá Manino. Í þættinum förum við yfir það hvernig er hægt að ná árangri með teymi, hvernig hamingja á vinnustað hjálpar okkur að vera meiri DO-er og svo auðvitað hvernig Lean aðferðafræðin getur einfaldað okkur vinnulífið. 

5. Kristján Kristjánsson - 50skills 29.07.2019

Kristján Kristjánsson er eigandi og stofnandi 50skills. Kristján segir margt hægt að nýta úr tækninni til þess að betrumbæta ferla í mannauðsmálum og þess vegna varð 50skills að veruleika. Fyrirtækið sérhæfir sig í einföldu og notendavænu ráðningarkerfi sem býður upp á fjölmarga möguleika til þess að nýta tímann betur við ráðningar starfsfólks. Einnig ræðum við frumkvöðla bakteríuna og hvernig þró...

4. Katrín S. Óladóttir - Hagvangur 11.07.2019

Katrín er framkvæmdastjóri Hagvangs. Hún hefur starfað við ráðningar og mannauðsmál í tugi ára. Ástríða hennar fyrir ráðningum skín í gegn og ásamt því að ræða um ráðningar þá fórum við yfir sögu Hagvangs, þjónustuna sem þau bjóða uppá og svo Siðferðisgáttina sem er nýtt verkefni hjá þeim og tengist Metoo byltingunni.  Þátturinn er í boði 50skills. 

3. Árný Elíasdóttir - Attentus 20.06.2019

Árný er einn af ráðgjöfum og eigendum Attentus. Árný hefur lengi starfað við kennslu og segir þá reynslu hafa nýst mjög vel í mannauðsráðgjöfinni. Hún brennur fyrir fræðslumálum og hefur sinnt þeim verkefnum hjá fjölmörgum fyrirtækjum, auk þess að sjá um stefnumótun hjá stofnunum og fyrirtækjum. 

2. Jónína Guðmundsdóttir - WOW air 29.05.2019

Jónína var framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá WOW air. Við fórum stuttlega yfir feril Jónínu sem spannar hátt í 15 ár og ræddum síðan starf hennar hjá WOW air. Þar komum við inná ráðningar, fræðslumál, markaðssetningu félagsins sem var algjör tía og svo auðvitað þessa geggjuðu vinnustaðamenningu sem varla hefur sést áður. 

1. Brynjar Már Brynjólfsson - Mannauður og Origo 29.04.2019

Brynjar Már Brynjólfsson er formaður Mannauðs, sem er félag mannauðsfólks á Íslandi og verkefnastjóri á mannauðssviði hjá Origo. Við spjölluðum aðallega um félagið og vegferð þess ásamt því að fara stuttlega yfir hvað gott tengslanet skiptir miklu máli, hversu mikilvæg upplýsingatæknin er orðin og mátt breytingastjórnunar. 

Listen to the Á mannauðsmáli podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.