Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: podcasters.spotify.com

Skapare

Podcaststöðin

Kategori

Leisure

Poddens webbplats

podcasters.spotify.com

Senaste avsnittet

7 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

147. Elden Ring þáttur 2 með Snorra Frey @badgoof 22.02.2023

Til að fagna því að það er ár síðan við gerðum síðast þátt um Elden Ring, þá gerum við annan þátt! Í þetta skiptið fáum við góðann gest í sett, engan annan en Snorra Frey, sem streymir á Twitch undir heitinu @badgoof.  Arnór Steinn og Gunnar hafa ekkert verið að fela skoðanir sínar á leiknum - þeir einfaldlega fíla hann ekki. Snorri er hins vegar MIKILL aðdáandi og því nóg til að spjalla um. Við r...

146. Dead Space endurgerðin 15.02.2023

Kjúklingarnir í Tölvuleikjaspjallinu hentu sér að sjálfsögðu í endurgerðina á einum áhrifamesta hryllingsleik okkar tíma!   Dead Space er til umræðu og HVÍLÍK umræða! Arnór Steinn er mega pepp í leikinn en Gunnar er það alls, alls ekki.    Við förum yfir söguna, karakterana, spilunina og margt fleira í stútfullum þætti. Við þurfum því miður að spilla fyrir sögunni og öðrum smáatriðu...

145. Væntanlegt árið 2023! 08.02.2023

Þið spurðuð svo við svörum! Í þætti vikunnar tökum við saman helstu og eftirvæntustu leiki ársins. Nú þegar eru komnir út Forspoken og Dead Space endurgerðin, og mörg ykkar eru komin með Hogwarts Legacy í hendurnar. Árið byrjar heldur betur sterkt og það er NÓG eftir! Atomic Heart, Wo Long, Jedi Survivor, Resident Evil 4 Endurgerðin, Legend of Zelda: Tears of the Kingdom, Spider-Man 2 og Starfield...

144. Forspoken - fyrsti stóri leikur ársins 01.02.2023

Út á hvað gengur Square Enix leikurinn Forspoken? Frey og talandi armbandið hennar Cuff ferðast um ævintýralandið Athia og frelsa heimafólk frá banvænni bölvun og bandbrjáluðum seiðkerlingum. Þetta er ef til vill stysta leiðin til að lýsa fyrsta stórleik ársins 2023. Það eru margir mjög eftirvæntir leikir á leiðinni, mun Forspoken setja tóninn? Arnór Steinn og Gunnar henda í höskuldarlausa umfjöll...

143. Hades 25.01.2023

Leikur ársins 2020 er loksins til umfjöllunar í tölvuleikjahlaðvarpi Íslands!  Roguelike hack-and-slash ævintýrið Hades kom sá og sigraði með einstaklega flottum listastíl og skemmtilegu formi.   Zagreus, sonur Hadesar, guðs undirheima grískrar goðafræði, vill ólmur drullast úr vítisvistinni og þarf að ferðast í gegnum fjögur svið helvítis.    Hver dauði er tækifæri til að læra hvað fór úrskeiðis...

142. The Last of Us á HBO - fyrstu hughrif 18.01.2023

Biðin er loksins á enda! Pedro Pascal er Joel og Bella Ramsay er Ellie ... sjónvarpsserían The Last of Us er byrjuð. Arnór Steinn og Gunnar eru snöggir að setjast í stúdíó og fjalla um fyrsta þáttinn. Við tökum fyrir okkar fyrstu hughrif, hvað okkur finnst um leikara, karaktera, framsetningu og margt fleira. Það er erfitt að fjalla um þáttinn án þess að spoila neinu, en við pössum okkur að þylja e...

141. Ekkert nema CS fyrir g00nhunter - viðtal við Rósu Björk 11.01.2023

Það var löngu kominn tími á annað viðtal við íslenskan streymara! Hún Rósa Björk - g00nhunter - kíkti í stúdíóið og sagði okkur aðeins frá sér! Rósa er búin að vera að streyma núna í meira en ár og hefur vel látið til sín taka. Hún tók sólarhringsstreymi í febrúar til styrktar Píeta samtakanna, hefur spilað ekkert nema CS og er með góðann fylgjendahóp.  Hún segir okkur hvernig svekkjandi COVI...

140. Áramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins 2022! 28.12.2022

Þriðja árið okkar í loftinu er liðið og við erum í banastuði! Þetta er búið að vera algjörlega frábært ár í alla staði, fullt af geðveikt skemmtilegum leikjum sem hafa vakið athygli og aðrir sem hafa mögulega flogið undir radar hjá okkur flestum. Arnór Steinn og Gunnar taka saman allt sem gerðist á árinu. Við skoðum hvaða leikir komu út, hvað við vorum að spila, hvað vakti lukku og hvað endaði í k...

139. Marvel's Midnight Suns - með Tómasi Árna 21.12.2022

Þegar djöflar og skrambar skríða um jörðina og Hefnararnir ná ekki að stoppa ógnina, þá þarf að kalla í Miðnætursólirnar! Já heldur betur krakkar mínir, í þætti vikunnar tökum við fyrir Marvel‘s Midnight Suns. Leikurinn kom hressilega á óvart, er með skemmtilega turn-based spilun og alls konar gúmmelaði sem við vitum að þið munið fíla. Við fengum góðann gest til að ræða leikinn með okkur, Tómas Ár...

138. This is the Police vs Papers Please 14.12.2022

Tökum okkur smá pásu frá þessum hefðbundnu AAA leikjum og kíkjum á tvo lítt þekkta!   Já börnin mín góð, það er kominn tími á einn góðann VS þátt, þar sem annar talar um leik sem hinn hefur ekki spilað. Við höfum gert nokkra svona þætti sem iðulega lætur fólk rífa upp veskið og festa kaup.    Arnór tekur fyrir leikinn Papers Please, þar sem þú tekur að þér verkefni landamæravarðar í...

137. Resident Evil umræða með Daníel Óla frá Trivialeikunum 07.12.2022

"What is this, a crossover?"   Heldur betur kæru vinir! Við fengum góðann gest í myndverið fyrir þátt vikunnar, hann Daníel Óla sem er nördi mikill og stjórnandi spurningahlaðvarpsins Trivialeikarnir.   Umræðuefnið er RESIDENT EVIL serían í heild sinni! Daníel hefur spilað leikina áratugum saman og er mikill áhugamaður. Þar sem Arnór Steinn og Gunnar eru algjörir kjúklingar og hafa ekki...

136. God of War Ragnarök - annar þáttur 30.11.2022

Nú eru þrjár vikur síðan þessi frábæri leikur kom út og mörg ykkar eru ekki bara búin með hann - heldur búin að PLATÍNA hann.   Þá er upp lagt að við gerum annan þátt þar sem við getum rætt ALLA söguna án nokkurra takmarkana!   Já í þætti vikunnar fara Arnór Steinn og Gunnar yfir alla sögu leiksins, frá fyrstu sekúndum yfir í "leyni" endann. If you know, you know.   Við eyðum ekki f...

135. CD Projekt Red 23.11.2022

Pólski tölvuleikjaframleiðandinn CD Projekt Red hefur farið í gegnum ævintýralegan feril.  Þeir byrjuðu að selja krakkaða CD diska af vinsælum bandarískum leikjum árið 1994 og tuttugu árum síðar kom út The Witcher 3.  Þetta er ofureinföldun á góðri sögu, en er efni vikunnar!  Arnór Steinn og Gunnar kafa í sögu CDPR, allt frá auðmjúkri byrjun yfir í að verða verðmætasta fyrirtæki Pól...

134. God of War Ragnarök - fyrstu hughrif með Daníel Rósinkrans 16.11.2022

*ATH: ENGIN HÖSKULDARVIÐVÖRUN Á ÞÆTTINUM!* Biðin er LOKSINS á enda! Ekki eftir Ragnarökum, heldur eftir þætti Tölvuleikjaspjallsins um hann! Já heldur betur, við erum mörg hver búin að spila nýja God of War leikinn í DÖÐLUR og gátum varla beðið eftir að hlaða í þátt um hann. Til að halda upp á fáum við frábæran gest í sett, engan annan en Daníel Rósinkrans! Tölvuleikjanördar og unnendur ættu að þe...

133. Þáttur 133: Strákarnir velja sín tölvuleikjamemes 09.11.2022

Tölvuleikjaspjallið er aftur komið í myndbandsform!!!   Það kom að því að við settumst aftur í myndver Rafíþróttasamtaka Íslands þar sem við ætlum héðan í frá að taka upp okkar þætti!   Í tilefni þess ætlum við að fylla út í "Video Game Memes" spjald, þar sem við veljum eftir alls konar flokkum, eins og "Uppáhalds listastíll" "Ég hata en aðrir elska" og "Vanmetinn".   Við erum með reglu, það má ek...

132. Witcher 3: The Wild Hunt - þáttur 2 02.11.2022

Heilu ári síðar er loksins komið að því - annar þáttur í tilvonandi seríu strákanna um einn merkasta tölvuleik okkar tíma.  Gunnar er kominn aðeins lengra og það er af nægu að taka. Restin af Velen og svo Novigrad söguþræðirnir verða ræddir í þaula í þætti vikunnar. Arnór er búinn að vera að spila líka og er því aðeins meira á nótunum. Ef það er ekki komið nógu mikið á hreint núna þá er alveg...

131. XCOM 2 - "Farðu heim, E.T!" 26.10.2022

"Velkominn aftur, foringi," Þáttur vikunnar er um taktíska leikinn XCOM 2, þar sem þú ferð í stígvél Foringjans og stjórnar bókstaflega ÖLLU í upprisu mannkyns gegn geimveruinnrásaher.  Arnór Steinn og Gunnar hafa rætt þennan ágæta leik í öðrum þætti, en þá var rétt stigið yfir helstu atriði í mýflugumynd. Nú er Arnór loksins búinn að spila leikinn eitthvað og hægt er að gera þátt. Við höfum...

130. Electronic Arts hluti III - Skrýmslið sem varð að veldi 19.10.2022

Electronic Arts. Fyrirtækið sem svífist einskis við að plokka peningana af þér. Í þessum lokaþætti þríleiks Tölvuleikjaspjallsins um “The Evil Empire” fara Arnór Steinn og Gunnar yfir sögu EA frá sirka 2010. Star Wars samningurinn, ævintýralegur gróði, skuggalegir viðskiptahættir, Battlefront fíaskóið og margt, MARGT fleira. Eins og ef til vill sést, þá er af nægu að taka. Þessi áratugur var sérst...

129. God of War 2018 - annar þáttur OG upphitun fyrir Ragnarök! 12.10.2022

"Hringrásinni lýkur hér. Við verðum að vera betri en þetta." Heldur betur, Kratos, vel mælt. Þáttur vikunnar er upprifjun á God of War frá 2018. Í fyrri þætti ræddum við einungis söguna, geymdum allt auka stöff fyrir annan þátt. Hann er hér! Við tökum allt fyrir í þessum þætti. Umhverfi, óvini, greiða fyrir dverga, dreka og margt, margt fleira. Ef það er ekki nógu ljóst núna þá er alveg eins gott...

128. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir X: Warcraft (2016) 05.10.2022

Í þessum TÍUNDA þætti okkar af Ömurlegum Tölvuleikjakvikmyndum tökum við fyrir eina nýlega: Warcraft frá 2016. Heimi manna er steypt á hvolf þegar hersingar orka birtast í miðjum skógi og stríð á milli kynþátta gerir öllum lífið leitt. Þetta er tekjuhæsta tölvuleikjakvikmynd allra tíma, sem ætti nú að segja eitthvað. Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um myndina og gagnrýna það sem gagnrýna þarf. Þa...

127. Stærsti leki tölvuleikjasögunnar 28.09.2022

Auðvitað gerum við þátt um einn stærsta leka tölvuleikjasögunnar! Hvað haldiði að við séum? Arnór Steinn og Gunnar kryfja myndefnið sem var lekið um daginn og reyna að sjá hverju má við búast í næstkomandi Grand Theft Auto leik. Rockstar er á fullu að fjarlægja allt sem tengist lekanum af netinu, þannig að það verður erfiðara og erfiðara að finna góð myndbönd til að horfa á. Við tölum um byssur, b...

126. The Last of Us - Part 1 21.09.2022

Tölvuleikjaspjallið var tveggja ára og tveggja mánaða gamalt þegar loksins var fjallað um einn besta leik allra tíma. Réttara sagt, endurgerð á einum besta leik allra tíma. Jú börnin góð, í þætti vikunnar sem er góðfúslegur samstarfsþáttur með Elko Gaming, ætlum við að kafa í nýútkominn The Last of Us Part 1, þar sem grafík, bardagakerfi, hljóð og margt meira hefur fengið andskoti góða yfirhalning...

125. Rollerdrome - rúlluskautaleikurinn sem okkur öllum vantaði 14.09.2022

Hey, muniði þegar Arnór Steinn og Gunnar töluðu um einhvern rúlluskautaskotleik sem hljómaði ógeðslega vel í Leikjakynningarsprengju þættinum?  HANN ER KOMINN ÚT! Playstation og PC spilarar mega ekki láta þennan fara framhjá sér. Hér spilar þú sem rúlluskautandi og skjótandi adrenalínfíkill sem gerir allt til að komast upp á topp. Þetta er virkilega skemmtileg og góð áskorun sem við mælum hik...

124. Saints Row - ný byrjun á seríunni 07.09.2022

Nýr Saints Row þar sem ALLT er nýtt … hvað finnst okkur um það? Arnór Steinn og Gunnar ræða nýjustu tilraun Volition til að lífga við seríuna í þætti vikunnar. Borgin Santo Ileso er leikvöllur ykkar í þetta sinn, þar sem þið getið keyrt um, skotið, sprengt upp og almennt valdið usla á ykkar eigin einstaka hátt. Við ræðum persónur, alla spilun, söguna og margt, margt fleira. Við spillum ekki fyrir...

123. Allt það helsta frá Gamescom 2022! 31.08.2022

Enn önnur leikja kynningar hrina þýðir bara eitt: Enn annar þáttur af Tölvuleikjaspjallinu! Arnór Steinn og Gunnar renna yfir það helsta frá Gamescom sem var haldið í Köln í Þýskalandi (ekki Frakklandi, Arnór, hálfvitinn þinn), enda nóg um að vera. Callisto Protocol, Everywhere, Dead Island 2 bara til að nefna örfá dæmi. Hver var þinn uppáhalds kynning frá hátíðinni? Sendu okkur skiló! Þátturinn e...

Lyssna på podden Tölvuleikjaspjallið i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden