Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 299 Folgen

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com

Autor

Podcaststöðin

Kategorie

Leisure

Podcast-Website

podcasters.spotify.com

Neueste Folge

4. Nov 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,7+ iOS bald

Folgen

299. Elder Scrolls mun heita Sentinel, WOW Forever kominn út og smá um GTA VI - fréttir nóvember 04.11.2026

Síðasti þáttur fyrir LIVE SHOW! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Next Level Gaming föstudaginn 6. nóvember! Stútfull dagskrá og fullt af skemmtilegum vinningum frá óteljandi fyrirtækjum. Annars er þáttur vikunnar fréttaþáttur og það er af nægu að taka! Elder Scrolls VI mun heita Sentinel og það eru 2+ ár í hann. EA valdi Battlefront frekar en Mass Effect og þess vegna lokaði Bioware. WOW Forev...

298. Bioware - rosaleg saga um fallið fyrirtæki 29.10.2026

Bioware var eitt sinn topp fyrirtækið þegar kom að RPG leikjum. Svo breyttist það. Af hverju? Arnór Steinn fer yfir sögu Bioware með Gunnari og Sölva. Hvernig byrjaði fyrirtækið, hvaða leikir voru að vekja athygli og hvað varð svo til þess að fyrirtækinu var lokað haustið 2026? Þetta og meira í stútfullum þætti! Minnum á LIVE ÞÁTTINN 6. nóvember í Next Level Gaming! Frítt inn, vinningar, tilboð á...

297. Nýjasta nýtt um GTA VI, Cyberpunk kvikmynd, Galactic Racer og fleiri fréttir + LIVE ÞÁTTUR Á NÆSTUNNI! 16.10.2026

Hvaða útvarpsstöðvar verða í GTA VI? Það er komið í ljós! Full mæting í stúdíóinu í kvöld, Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi ræða fréttir síðustu vikna. GTA VI, Cyberpunk kvikmynd á leiðinni og fleiri stórar fréttir. Einnig tilkynnum við loksins hvernig við munum fagna 300 þættinum okkar - það er með LIVE ÞÆTTI 6. NÓVEMBER NÆSTKOMANDI Á NEXT LEVEL GAMING! Stay tuned fyrir frekari upplýsingar ...

296. Control Resonant - besti leikur ársins kominn út? 07.10.2026

Ekkert helst í skefjum að eilífu ... Framhaldið á hinum stórskemmtilega CONTROL frá 2019 er loksins komið út! Remedy er heldur betur búið að elda góðann mat handa okkur með CONTROL RESONANT og við ætlum að skoða fyrstu hughrif okkar í þætti vikunnar. Arnór Steinn og Sölvi ræða leikinn á alveg spoiler free hátt.. Hvernig er heimurinn, spilunin, hljóðið og svo margt, MARGT fleira. Ef þið eruð ekki b...

295. Wolverine (2026) 30.09.2026

Þrjár klær á hvorri hendi og ótakmarkað magn af bræði ... velkomin í Wolverine ... Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fara í saumana á nýjasta útspili Insomniac. Spilunin, karakterarnir, plottið og margt fleira! Sölvi rifjar einnig aðeins upp eldri þætti af Tölvuleikjaspjallinu, en hann er að taka maraþon á öllum þáttunum. Er eitthvað sem við gerðum í fyrri þáttum sem við gerum ekki lengur?

294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg? 22.09.2026

Stutta svarið er nei. Langa svarið er þessi þáttur. Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fá RES EVIL sérfræðing Tölvuleikjaspjallsins til að ræða nýjustu tölvuleikjakvikmyndina. Strákarnir fengu boð á VIP sýningu Game TíVí og fóru bókstaflega BEINUSTU leið í stúdíó að taka upp þátt. Karakterinn, uppvakningarnir, blóðið og ruglið og MARGT fleira í geðveikum þætti. Spoiler free upp að mínútu 30! FARIÐ Á ÞE...

293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki? 17.09.2026

Glöggir hlustendur hafa tekið eftir því að góðkunningi þáttarins Sölvi Santos hefur dúkkað upp í fleiri þáttum en venjulega upp á síðkastið ... ... það er vegna þess að við ætlum að bæta honum í róteringu þáttastjórnenda Tölvuleikjaspjallsins! Nú erum við þrír! Fleiri þættir, fleiri gestir, fleiri leikir og meiri gleði. Tökum smá strategy leikjaspjall og tölum aðallega um STAR WARS: ZERO COMPANY!

292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september 10.09.2026

Er búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ... Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira!

291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif 28.08.2026

Þó að það sé búið að leka þessu öllu þá samt - LOKSINS erum við komin með official GTA VI gameplay!!! Gunnar og Sölvi horfðu á alla kynninguna og ýttu bókstaflega á REC þegar hún kláraðist. Hughrifin verða ekki ferskari en þetta. Hvað fannst þér um GTA VI kynninguna? VIð munum svo taka fleiri þætti í haust til að hita upp fyrir leikinn sjálfann!

290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam! 28.07.2026

Þú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite. Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn. Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins!

289. Fallout New Vegas endurgerð STAÐFEST! plús fleiri fréttir 20.07.2026

Hættið öllu sem þið eruð að gera, NEW VEGAS FÆR ENDURGERÐ: STAÐFEST Arnór Steinn réð ekki við sig og gerði smá sóló þátt í kjallaranum. Hvað þýðir tilvonandi endurgerð á FNV og hvað er í gangi hjá Bethesda? Smá greining á nýjustu fréttum.

288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí! 08.07.2026

Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí! Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins! Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna? Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár <333

287. GTA: San Andreas 24.06.2026

Ah shit, here we go again ... Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas. VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti!

286. Er Diablo IV ennþá góður? - með Sigga Sören 17.06.2026

Hatur ... volæði ... glundroði ... Diablo IV Þessi þriggja ára gamli leikur er enn að spilast út um allan heim. Tveir stórir aukapakkar, þrír nýir klassar ... nóg að gera! Diablo sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins Siggi Sören mætir og ræðir við Arnór Stein um leikinn. Klassarnir, djöflarnir, breytingarnar og margt fleira í stútfullum þætti vikunnar. Ert þú að spila Diablo IV? Endilega segðu okkur...

285. 007: First Light - fyrstu hughrif 10.06.2026

Nafnið er Spjallið ... Tölvuleikjaspjallið. Nýjasti 007 leikurinn er kominn út og við erum HRIFNIR! Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af þessum eftirvænta leik. Algjörlega spoiler free! Hvað finnst okkur um bardagakerfið, byssurnar, staðsetninginn, Bondarann og fleira! Er Bond kominn í þína tölvu? Segðu okkur hvað þér finnst!

284. State of Play með LIVE COMMENTARY! 02.06.2026

State of Play var að klárast rétt í þessu og við gerðum smá tilraun. Við höfðum sýninguna í gangi og tókum upp þátt á meðan við horfðum! Þannig þetta er live commentary fyrstu viðbrögð Arnórs Steins og Gunnars á öllum kynningunum! Það er smá skrýtið að horfa án samhengis en ekkert ómögulegt ... Ef þið viljið vera á sama stað og við þá skuluð þið horfa á official Sony YT rásar videoið og hafa á pás...

283. Lego Batman: Legacy of the Dark Knight - með Sölva Santos 27.05.2026

Var besti Lego leikur allra tíma að droppa? Mögulega. Arnór Steinn fékk góðvin þáttarins Sölva Santos til að ræða nýja Lego Batman leikinn! Hvað gerir leikurinn rétt? Hvað er öðruvísi? Er þetta geitin? Ef þið eruð búin að prófa nýja Lego Batman megiði endilega senda á okkur og segja hvað ykkur finnst! Þátturinn er í boði Pixelwear.is

282. Saros 20.05.2026

Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar ... ... þið fattið hvað málið er. Roguelike leikur þar sem markmiðið er að deyja og verða betri. Hvað finnst Arnóri Steini og Gunnari um þennan ágæta leik? Arnór er mjög tapsár og Gunnar hatar roguelike. This should be good ... Þátturinn er í boði PixelWear.is

281. Fable seinkað, Elden Ring kvikmynd og Bond lag með Lana Del Rey - fréttir maí 29.04.2026

Verður Fable seinkað? Var Lana Del Rey að droppa top 5 Bond lagi? Þetta og margt fleira í stútfullum fréttaþætti!

280. Crimson Desert 22.04.2026

Strákarnir eru komnir aftur úr páskafríi og leikur vikunnar er CRIMSON DESERT. Leikurinn er stútfullur og fallegur - en er hann góður? Fyrstu hughrif Arnórs Steins og Gunnars í pökkuðum þætti vikunnar. Hvað fannst þér um Crimson Desert?

279. Dispatch með Snorra Frey 01.04.2026

Að vera hetja eða ekki hetja ... Þáttur vikunnar er um DISPATCH - interactive ævintýraleik sem sló í gegn í fyrra. Arnór Steinn og Snorri Freyr ræða Dispatch bak og fyrir í stútfullum þætti. Það er alveg allur pakkinn, enda erfitt að tala um leikinn án þess að tala um söguna ... leikurinn er líka bara ... já ... saga. Hvað fannst þér um Dispatch?

278. GTA: Vice City 18.03.2026

Er þetta mesti vibe leikur allra tíma? GTA VI kemur út í ár og verður án efa einn stærsti leikur áratugarins. Til að hita upp ætlum við að nýta árið og spila gömlu leikina. Byrjum á Vice City! Arnór Steinn og Gunnar t aka gott nostalgíuspjall um þetta goðsagnakennda verk. Bílarnir, tónlistin, karakterarnir, raddleikararnir, umhverfið og svo margt, margt fleira í stórskemmtilegum þætti! Hvar er Vic...

277. Resident Evil Requiem - með Daníel Óla 11.03.2026

Hryllingur - spenna - one linerar ... er Resident Evil komið aftur í rótina? Requiem kom út um daginn og er búinn að fá frábærar móttökur. Arnór Steinn og Gunnar fengu Res Evil sérfræðinginn Daníel Óla (Trivíaleikarnir) í stúdíóið til að ræða leikinn. Tveir karakterar með tvær mismunandi spilanir, ein er fyrstu persónu hryllings og hinn er með gamla góða actionið sem við þekkjum og elskum. Hvað fa...

276. Wolverine fær útgáfudag, Sony lokar enn öðru fyrirtækinu og Xbox við dauðans dyr - fréttir mars 2026 25.02.2026

Hvað er í helstu fréttum? Wolverine er loksins kominn með útgáfudag, nýjasti leikurinn frá Insomniac Games lítur dagsins ljós þann 15. september næstkomandi! Bluepoint Games, fyrirtækið á bak við endurgerðir á borð við Shadow of the Colossus og Demon's Souls, heyrir sögunni til. Hvað þýðir þetta fyrir Sony? Er nýji forstjóri Xbox að fara að bjarga skipinu frá brotlendingu eða er hún þarna til...

275. Control 18.02.2026

Jæja, nú ert þú stjórinn, hvað ætlar þú að gera? Jessie Faden finnur loksins Stjórnunarmálaráðuneytið og fer þangað inn. Það sem tekur við er einn andskoti áhugaverður leikur. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um CONTROL í þætti vikunnar. Leikur frá 2019, smíðaður af Remedy (Max Payne, Alan Wake) af alúð. Undursamlega steikt upplifun sem við mælum HIKLAUST með! Hefur þú spilað Control? Hvað fannst þér...

Höre den Podcast Tölvuleikjaspjallið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet