Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí! 08.07.2026 1:01:52
Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí! Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins! Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna? Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár <333
287. GTA: San Andreas 24.06.2026 1:04:54
Ah shit, here we go again ... Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas. VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti!
286. Er Diablo IV ennþá góður? - með Sigga Sören 17.06.2026 1:05:47
Hatur ... volæði ... glundroði ... Diablo IV Þessi þriggja ára gamli leikur er enn að spilast út um allan heim. Tveir stórir aukapakkar, þrír nýir klassar ... nóg að gera! Diablo sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins Siggi Sören mætir og ræðir við Arnór Stein um leikinn. Klassarnir, djöflarnir, breytingarnar og margt fleira í stútfullum þætti vikunnar. Ert þú að spila Diablo IV? Endilega segðu okkur...
285. 007: First Light - fyrstu hughrif 10.06.2026 47:03
Nafnið er Spjallið ... Tölvuleikjaspjallið. Nýjasti 007 leikurinn er kominn út og við erum HRIFNIR! Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af þessum eftirvænta leik. Algjörlega spoiler free! Hvað finnst okkur um bardagakerfið, byssurnar, staðsetninginn, Bondarann og fleira! Er Bond kominn í þína tölvu? Segðu okkur hvað þér finnst!
284. State of Play með LIVE COMMENTARY! 02.06.2026 1:17:57
State of Play var að klárast rétt í þessu og við gerðum smá tilraun. Við höfðum sýninguna í gangi og tókum upp þátt á meðan við horfðum! Þannig þetta er live commentary fyrstu viðbrögð Arnórs Steins og Gunnars á öllum kynningunum! Það er smá skrýtið að horfa án samhengis en ekkert ómögulegt ... Ef þið viljið vera á sama stað og við þá skuluð þið horfa á official Sony YT rásar videoið og hafa á pás...
283. Lego Batman: Legacy of the Dark Knight - með Sölva Santos 27.05.2026 1:09:52
Var besti Lego leikur allra tíma að droppa? Mögulega. Arnór Steinn fékk góðvin þáttarins Sölva Santos til að ræða nýja Lego Batman leikinn! Hvað gerir leikurinn rétt? Hvað er öðruvísi? Er þetta geitin? Ef þið eruð búin að prófa nýja Lego Batman megiði endilega senda á okkur og segja hvað ykkur finnst! Þátturinn er í boði Pixelwear.is
282. Saros 20.05.2026 54:02
Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar ... ... þið fattið hvað málið er. Roguelike leikur þar sem markmiðið er að deyja og verða betri. Hvað finnst Arnóri Steini og Gunnari um þennan ágæta leik? Arnór er mjög tapsár og Gunnar hatar roguelike. This should be good ... Þátturinn er í boði PixelWear.is
281. Fable seinkað, Elden Ring kvikmynd og Bond lag með Lana Del Rey - fréttir maí 29.04.2026 50:29
Verður Fable seinkað? Var Lana Del Rey að droppa top 5 Bond lagi? Þetta og margt fleira í stútfullum fréttaþætti!
280. Crimson Desert 22.04.2026 1:09:04
Strákarnir eru komnir aftur úr páskafríi og leikur vikunnar er CRIMSON DESERT. Leikurinn er stútfullur og fallegur - en er hann góður? Fyrstu hughrif Arnórs Steins og Gunnars í pökkuðum þætti vikunnar. Hvað fannst þér um Crimson Desert?
279. Dispatch með Snorra Frey 01.04.2026 1:27:05
Að vera hetja eða ekki hetja ... Þáttur vikunnar er um DISPATCH - interactive ævintýraleik sem sló í gegn í fyrra. Arnór Steinn og Snorri Freyr ræða Dispatch bak og fyrir í stútfullum þætti. Það er alveg allur pakkinn, enda erfitt að tala um leikinn án þess að tala um söguna ... leikurinn er líka bara ... já ... saga. Hvað fannst þér um Dispatch?
278. GTA: Vice City 18.03.2026 1:03:27
Er þetta mesti vibe leikur allra tíma? GTA VI kemur út í ár og verður án efa einn stærsti leikur áratugarins. Til að hita upp ætlum við að nýta árið og spila gömlu leikina. Byrjum á Vice City! Arnór Steinn og Gunnar t aka gott nostalgíuspjall um þetta goðsagnakennda verk. Bílarnir, tónlistin, karakterarnir, raddleikararnir, umhverfið og svo margt, margt fleira í stórskemmtilegum þætti! Hvar er Vic...
277. Resident Evil Requiem - með Daníel Óla 11.03.2026 1:15:59
Hryllingur - spenna - one linerar ... er Resident Evil komið aftur í rótina? Requiem kom út um daginn og er búinn að fá frábærar móttökur. Arnór Steinn og Gunnar fengu Res Evil sérfræðinginn Daníel Óla (Trivíaleikarnir) í stúdíóið til að ræða leikinn. Tveir karakterar með tvær mismunandi spilanir, ein er fyrstu persónu hryllings og hinn er með gamla góða actionið sem við þekkjum og elskum. Hvað fa...
276. Wolverine fær útgáfudag, Sony lokar enn öðru fyrirtækinu og Xbox við dauðans dyr - fréttir mars 2026 25.02.2026 1:03:15
Hvað er í helstu fréttum? Wolverine er loksins kominn með útgáfudag, nýjasti leikurinn frá Insomniac Games lítur dagsins ljós þann 15. september næstkomandi! Bluepoint Games, fyrirtækið á bak við endurgerðir á borð við Shadow of the Colossus og Demon's Souls, heyrir sögunni til. Hvað þýðir þetta fyrir Sony? Er nýji forstjóri Xbox að fara að bjarga skipinu frá brotlendingu eða er hún þarna til...
275. Control 18.02.2026 1:19:20
Jæja, nú ert þú stjórinn, hvað ætlar þú að gera? Jessie Faden finnur loksins Stjórnunarmálaráðuneytið og fer þangað inn. Það sem tekur við er einn andskoti áhugaverður leikur. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um CONTROL í þætti vikunnar. Leikur frá 2019, smíðaður af Remedy (Max Payne, Alan Wake) af alúð. Undursamlega steikt upplifun sem við mælum HIKLAUST með! Hefur þú spilað Control? Hvað fannst þér...
273. Fallout sería 2 11.02.2026 1:07:41
Erum við að tala um besta tölvuleikja adaption allra tíma? Sería 2 af Fallout frá Amazon kláraðist í síðustu viku og við erum gjörsamlega kjaftstopp. Hvílíkt og annað eins sjónvarpsefni! Arnór Steinn og Gunnar ræða seríu 2 í þaula (því miður verður spoilað) og það er af nógu að taka. Hver er special stats hjá aðalkarakterunum? Hver voru okkar uppáhalds páskaegg? Gat Arnór Steinn haldið meðvitund ú...
273. Ubisoft part 2 - vont verður verra 28.01.2026 1:09:55
Hvernig gat Ubisoft orðið verra? Reka fólk fyrir að stofna stéttarfélag, kenna starfsfólki um lélegt gengi leikja, slaufa fullt af leikjum og leggja áherslu á live service leiki. Þannig gat það orðið verra. Við gerðum þátt (nr 90) þar sem við fórum yfir sögu Ubisoft og nú þarf að bæta aðeins í. Það er fullt búið að gerast síðan þá og við erum mögulega að horfa upp á stutta framtíð franska risans.
272. The Alters - of margir Janar 21.01.2026 48:26
Hvernig væri að hafa afrit af þér til að aðstoða þig við ýmis verk? The Alters fór því miður fram hjá stórum hluta tölvuleikjasamfélagsins á síðasta ári. Þetta er stórskemmtilegur survival leikur þar sem þú spilar sem Jan Dolski og svo sem margar útgáfur af Jan Dolski. Við viljum ekki segja of mikið ... spilið leikinn. Leikurinn kom út 13.júní 2025 á PS5, Xbox X/S og Windows
271. Fréttir janúar - Gervigreind veldur usla, EA verður verra og margt fleira! 14.01.2026 38:35
Gleðilegt ár elsku hlustendur <3 Fyrsti þáttur ársins er smá fréttayfirferð. Bæði það sem var ekki fjalla um í árslok og eitthvað nýtt. Er Gunnar búinn að breyta um skoðun með sinn GOTY? Er EA að verða verra? Hlustaðu og það kemur allt í ljós! Ef þú vilt hlusta á meira spjall um tölvuleiki, ekki hika við að smella á FOLLOW og skoða fleiri þætti. Við gefum vikulega út spjall um allt sem tengist...
270. Clair Obscur - besti leikur ársins? með Hilmari Finsen 23.12.2025 59:20
DJÓK fáið einn þátt á þessu ári áður en við förum í jólafrí <3 Hilmar Finsen, góðvinur þáttarins og CCP representative Tölvuleikjaspjallsins tekur smá online spjall við Arnór Stein um COE33. Deep dive á þessum leik sem mörg telja vera þann besta á árinu. Eru Arnór Steinn og Hilmar sammála? Eru þeir báðir ömurlegar manneskjur? Hlustið og finnið út! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
269. Áramótaþáttur 2025 - bestu leikir ársins OG hvernig lítur 2026 út? 17.12.2025 1:29:34
Lokaþáttur ársins er hér! Arnór Steinn og Gunnar fara yfir GAME AWARDS þar sem Clair Obscur sópaði upp titlunum. Eru þeir allir verðskuldaðir? Förum svo yfir hvað er á döfinni 2026. Margt spennandi þar og margt sem var kynnt á Game Awards í síðustu viku. Svo velja strákarnir sína TOP 3 leikir ársins. Mun Arnór velja Ubisoft leik? Verður Gunnar brjálaður? Takk fyrir árið elsku hlustendur, við værum...
268. Áramótaþáttur 2025 - hvaða leikir komu út í ár? 10.12.2025 1:19:57
Desember er hafinn og það þýðir bara eitt - áramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins! Arnór Steinn og Gunnar skoða árið, hvaða leiki við fjölluðum um, hvað vakti lukku og hvað endaði í krukku. Þetta er vitaskuld eitt stærsta tölvuleikjaár okkar tíma, margir leikir sem enda á toppnum. Hvaða leikir voru það fyrir þig? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
267. Frá flash yfir í Epic Games - viðtal við Ara Arnbjörnsson 26.11.2025 1:50:18
Ari Arnbjörnsson er gestur vikunnar í STÚT fullum þætti. Hann hefur verið í 18 ár í tölvuleikjabransanum og hefur ansi mörg stór credit - þá helst lead programmer á stórleiknum Returnal! Í dag starfar Ari hjá Epic Games en hefur marga fjöruna sopið. Arnór Steinn ræðir við hann um svo ógeðslega mikið að það kemst ekki fyrir í lýsingunni. Takk kærlega fyrir að koma í heimsókn! Ef þið viljið sjá fyri...
266. Outer Worlds 2 - kengúra með haglabyssu 19.11.2025 1:08:22
Outer Worlds 2 er loksins kominn út! Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu hughrif. Búið er að breyta og bæta flestu frá fyrri leik. Annars konar leveling kerfi, ákvarðanir skipta meira máli, byssur virka ekki alveg eins OG það er hægt að spila hann í þriðju persónu! Hvað fannst þér um Outer Worlds 2? Þátturinn er í boði Elko Gaming og ybba.is.
265. Skyrim 14 ára! 12.11.2025 56:04
Ég var einu sinni ævintýramaður eins og þú ... Einn merkasti leikur okkar tíma er 14 ára. Arnór Steinn og Gunnar hafa vissulega eytt tíma og púðri í að drulla yfir hann í gegnum árin, en í þetta skiptið ætlum við að reyna að fagna. Hvers vegna er þessi leikur svona mikilvægur? Hvernig stenst hann tímans tönn? Förum yfir innsendar minningar fólks og ræðum aðeins þetta þrekvirki. Þátturinn er í boði...
264. GTA VI seinkað AFTUR ... og nokkrar aðrar fréttir 08.11.2025 45:58
Þessar fréttir komu eflaust einhverjum á óvart .. en ekki endilega öllum, því Rockstar er nýbúið að reka yfir 30 manns fyrir að ganga í stéttarfélag. Arnór Steinn og Gunnar fara vel yfir stöðuna. Af hverju er leiknum að seinka? Verða fleiri seinkanir? Hvað þýðir þetta fyrir Rockstar? Einnig fréttir um PS Portal og aðrar seinkanir! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.