Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Iceland Games Fest 22. nóvember! 06.11.2025

Vegna veikinda er það bara Arnór Steinn (og mjálmandi köttur) með örstutta kynningu. ICELAND GAMES FEST verður á Arena Gaming 22. nóvember næstkomandi. Íslenskir tölvuleikjaframleiðendur verða á staðnum að sýna leikina sína. Geggjað?? ooog ykkur gefst færi á að spila einhverja þeirra. meira geggjað?? Fjöllum meira um þetta í næsta þætti!

263. RISA FRÍTT update fyrir Echoes of the End! viðtal við Halldór frá Myrkur Games 30.10.2025

Echoes of the End hefur verið uppfærður FRÍTT! Bardagakerfið hefur verið tekið í gegn, nýtt customization kerfi með stat bónusum komið í gagnið, búið að laga animations og margt, MARGT fleira! Tölvuleikjaspjallið er fyrst með fréttirnar. Halldór Snær frá Myrkur segir Arnóri Steini og Gunnari frá þessari risa uppfærslu og hvað er í boði. Fyrir þau ykkar sem eigið Echoes of the End þá er þessi uppfæ...

262. Ghost of Yotei 23.10.2025

Hvað ætlar þú að ganga langt til að hefna þín? Enn annar negluleikurinn á þessu frábæra ári GHOST OF YOTEI er búinn að slá í gegn hjá spilurum. Gunnar snýr aftur!!! Hann og Arnór Steinn taka leikinn fyrir í alveg spoiler free þætti sem er samt stútfullur. Sucker Punch stígur ekki feilspor. Þetta er asnalega góður leikur. Hvað fannst ykkur um Yotei? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

261. Vilt þú læra tölvuleikjaþróun? viðtal við Gísla Konráðsson, reynslubolta úr bransanum 15.10.2025

Langar þig að prófa að þróa tölvuleik? Gísli Konráðsson er reynslubolti úr tölvuleikjabransanum. Hann kennir byrjendum fyrstu skrefin í tölvuleikjaþróun með námskeiði. Hvernig er að þróa leiki? Hvernig er að fara frá því að spila yfir í að glugga á bak við tjöldin? Þetta og meira í stórskemmtilegum þætti vikunnar! Takk kærlega fyrir komuna Gísli! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

260. EA verður verra - keypt af Sádi Arabíu, Xbox hríðfellur og fleiri fréttir ! 08.10.2025

Október genginn í garð og NÓG af fréttum til að fara yfir. Helstu fyrirsagnirnar eru: EA verður verra, Skyrim Grandma búin að leggja sverðið á hilluna og Xbox heldur áfram að hríðfalla í áliti og öðru. Snorri Freyr er meðstjórnandi vikunnar og stemmingin er FRÁBÆR. Þátturinn er í boði Elko Gaming.

259. Metal Gear Solid Delta - með Þorra Líndal 01.10.2025

Kept you waiting, huh? MGS 3 hefur verið endurgerður og heitir núna DELTA. Hvers vegna? Enginn veit. Arnór Steinn fær MGS sérfræðinginn Þorra Líndal til að ræða endurgerðina, hvernig hún jafnast á við upprunalega leikinn og hvort hægt sé að fá botn í hvað MGS snýst yfir höfuð um. Þorri mætti með ÚTPRENTAÐ FJÖLSKYLDUTRÉ. Hvað fannst þér um MGS Delta? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

258. Borderlands 4 - með Loka Pálmasyni 24.09.2025

Hvað leynist í þessari hvelfingu ... Borderlands 4 kom út um daginn og er strax HÖFÐINU hærri en nr 3. Arnór Steinn fékk Borderlands sérfræðinginn Loka til að ræða leikinn á alveg spoiler free hátt. Byssurnar, útlitið, karakterarnir og MARGT fleira í stútfullum þætti! Er þetta besti Borderlands leikurinn sem hefur komið út? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

257. Tölvuleikjakvikmyndir - með Bíófíklum! 17.09.2025

Hvað er góð tölvuleikjakvikmynd? Þurfum við þær yfir höfuð? Arnór Steinn fær til sín góða gesti - Tomma Valgeirs og Kjartan sem stýra BÍÓFÍKLUM - frábært podcast um allt sem tengist bíómyndum. Frábært spjall um tölvuleikjakvikmyndir sem mun eiga við hvert einasta mannsbarn. Hver er þín uppáhalds tölvuleikjakvikmynd? Tjékkið endilega á BÍÓFÍKLAR á öllum helstu hlaðvarpsveitum! Þátturinn er í boði E...

256. Gears of War: Reloaded - með Snorra Frey 10.09.2025

Delta Squad is in your house, bitch ! Þáttur vikunnar er um GEARS OF WAR endurgerðina sem við getum spilað á öllum helstu tölvum í dag. Snorri Freyr er meðstjórnandi dagsins! Hann og Arnór Steinn ræða combattið, karakterana, ÞYNGDINA og allt um þennan frábæra leik. Er þetta góð endurgerð eða er of miklu breytt? Hvaða fleiri leiki viljið þið fá endurgerða? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

255. MMO leikir: stemming eða þrot? - með Hilmari Finsen 03.09.2025

Hvað eru MMO leikir? Af hverju eru þeir svona vinsælir? Arnór Steinn fær til sín Hilmar Finsen sem starfar hjá CCP og spjallar við hann um þetta geysivinsæla fyrirbæri. Við erum að hita upp fyrir sérstakan EVE viðburð sem verður 18. september næstkomandi í Arena Gaming. Stay tuned! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

254. Mafia: The Old Country 27.08.2025

Fuhgeddaboutit ... bada bing ... Mafia The Old Country er stysti góði leikur ársins. Hann er samt fínn. Arnór Steinn og Gunnar ræða karakterana, combattið, útlitið og söguna í The Old Country. Biðjumst forláts á öllum ítölskum eftirhermum. Þátturinn er í boði Elko Gaming.

253. Sería 2 af Fallout, styttist í Ghost of Yotei og Lego Batman leikur - fréttir í ágúst 20.08.2025

Það er NÓG að gerast þó árið sé meira en hálfnað. Gamescom er í gangi og fullt af kynningum þar. Helst má nefna stiklu fyrir seríu 2 af Fallout þáttunum, meira gameplay úr Ghost of Yotei, DLC fyrir Kingdom Come Deliverance 2 og innlit í Resident Evil Requiem! Fáið fréttaskot Tölvuleikjaspjallsins beint í æð í þætti vikunnar! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

252. Echoes of the End - stærsti leikur Íslands? 13.08.2025

Myrkur Games voru svo sannarlega cookin' með þennan ... EOTE er loksins kominn út og fyrsti þátturinn okkar eftir gott sumarfrí er um einn eftirvæntasta leik ársins! Echoes of the End með Aldísi Amah Hamilton og Karli Ágústi Úlfarssyni í aðalhlutverkum kom út í GÆR. Tjékkið á þessum spoiler-lausa þætti og gáið hvers vegna Tölvuleikjaspjallið mælir hiklaust með þessum leik. Þátturinn er í boði...

251. Death Stranding 2 - BÚMM ÓVÆNT 11.07.2025

Bjuggust ekki við þessu ... Arnór Steinn og Gunnar hittast í kjallaranum hans Arnórs og taka fyrstu hughrif sín af DEATH STRANDING 2. Þetta stóra tölvuleikjaár tekur enga pásu og sýnir enga miskunn. Annar tímamótaleikur er dottinn í tölvur spilara og allt er á fullt Gátum ekki annað en tekið þátt fyrir ykkur, þannig - GJÖSSOVEL! Hvað fannst þér um Death Stranding 2? Þátturinn er í boði Elko Gaming...

250! Hvernig hefur árið verið og hvað er spennandi að koma út? 20.06.2025

Kæru hlustendur, til hamingju með TVÖ HUNDRAÐ OG FIMMTUGASTA ÞÁTTINN!!!! Þetta er síðasti þátturinn okkkar fyrir gott sumarfrí. Arnór Steinn og Gunnar taka langt og gott spjall um leiki ársins. KCD2, Split Fiction, Clair Obscur, Oblivion og fleiri snilldarleikir á einu sterkasta ári sem við munum eftir. Tökum svo einnig fyrir hvað á eftir að koma út og hverju við erum spenntastir fyrir. Takk fyrir...

249. RISA tilkynning frá Myrkur Games! 08.06.2025

Í gær kom FYRSTI TRAILERINN fyrir næstkomandi leik Myrkur Games - ECHOES OF THE END út! Tölvuleikjaspjallið er að sjálfsögðu fyrst með fréttirnar - hér er viðtalið okkar við Halldór og Daða hjá Myrkur sem fá loksins að tala um best geymda leyndarmál Íslands síðustu ára! Hvernig er að geta loksins talað um leikinn? Hvaðan kemur innblásturinn að leiknum? Er underwater borð? Allt þetta í stútfullum þ...

248. EA drepur annað fyrirtæki, 007 leikur og fleira - fréttir í júní! 04.06.2025

Enn annar fréttaþáttur beinustu leið í eyrun ykkar! Arnór Steinn og Gunnar taka fréttir síðasta mánaðar. Helst í fréttum er að EA hefur myrt annað fyrirtæki undir sér og þar með hætt framleiðslu á Black Panther leiknum. Trailer fyrir nýjan 007 leik frá IO Interactive kemur í vikunni! Nightreign og Doom: Dark Ages eru að fá góða dóma! Þetta og meira í stúffullum fréttaþætti! Þátturinn er í boði Elk...

247. Er Minecraft myndin ömurleg? 30.05.2025

Jack Black og Jason Momoa eru í Minecraft myndinni. Takk, 20. öldin. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um þessa áhugaverðu mynd í þætti vikunnar. Er hún ömurleg? Kannski. Það eru nokkur góð móment en á heildina litið ... ... hlustið bara á þáttinn. Þátturinn er í boði Elko Gaming.

246. Blue Prince - margur er knár ... 22.05.2025

Stærsti litli leikur ársins er kominn út. Þú þarft að rata í gegnum hús sem breytist daglega. What the fuck. Arnór Steinn og Gunnar taka BLUE PRINCE fyrir í þætti vikunnar. Hann er skemmtilegur, þreytandi, áhugaverður, pirrandi og allt þar á milli. Arnór Steinn er með fína þýðingu og Gunnar er með GEÐVEIKA þýðingu. Spilaðir þú Blue Prince? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

245. Clair Obscur - fyrstu hughrif 15.05.2025

Fyrir þau sem koma næst ... Leikur vikunnar er CLAIR OBSCUR - EXPEDITION 33, eða eins og Gunnar kallaði hann: Ég ætla að mála allan heiminn, elsku mamma Tökum combat, tónlist og almennt spjall en pössum að hafa enga spoilera. Þið getið öll hlustað á þáttinn, líka þau sem hafa ekki spilað COE33. Hvað fannst þér um leikinn? Þátturinn er í boði Elko Gaming.

244. Nýr trailer fyrir GTA VI + fleiri fréttir í maí 08.05.2025

GTA VI seinkað þangað til í maí 2026 og enginn er í sjokki. Tökum gott spjall um trailerinn og hvað við viljum helst sjá. Tölum einnig um Oblivion, Clair Obscur og meira í stútfullum fréttaþætti! Takk til hlaðvarpsins 4. vaktin fyrir að leyfa okkur að taka upp á þeirra tíma. RISA love á ykkur!!! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

243. Oblivion remake - með Bríeti Blæ 01.05.2025

Stans glæponahyski! Oblivion er kominn út aftur. Arnór Steinn er í skýjunum. Bríet Blær (Mass Effect 3 þátturinn!) kemur og spjallar við Arnór og Gunnar um Oblivion. Karakterarnir, klassarnir, umhverfið, stemmingin, stemmingin OG STEMMINGIN! Oblivion er frábær, punktur. Þátturinn er í boði Elko Gaming.

242. Atomfall (ásamt Oblivion og TLOU s2!) 24.04.2025

Þú vaknar í geislavirku eyðilandi einhvers staðar á Bretlandseyjum - hvað gerirðu? Þáttur vikunnar fjallar um ATOMFALL - nýja leikinn frá framleiðendum Sniper Elite. Um er að ræða frekar original upplifun, ráðgáta án quest markers sem myndar mjög skemmtilega upplifun. Við fjöllum líka að sjálfsögðu um Oblivion endurgerðina og TLOU seríu 2. Mild höskuldarviðvörun í byrjuninni þar. Hvað fannst þér u...

241. Verður leikjum frestað út af GTA VI? Fréttir apríl og meira! 16.04.2025

Það er nóg að gera í tölvuleikjaheimum. Fullt af leikjum að koma út, Game Informer er kominn aftur, Rise of the Ronin gekk illa á PC og margt fleira. Skv. Ubisoft eigum við ekki tölvuleikina okkar og skv þeim þá eigum við ekki að væla mikið yfir því. Arnór Steinn og Gunnar fara yfir fréttavakt aprílmánaðar og meira. Við erum spenntir fyrir nokkrum leikjum sem við minnumst líka á! Hvað vekur áhuga...

240. Split Fiction 02.04.2025

Hazelight Studios stígur ekki feilspor. Punktur. Nýjasta tveggja spilara ævintýrið er einn af betri leikjum ársins. PUNKTUR. Arnór Steinn og Gunnar ræða upplifun sína af Split Fiction í þætti vikunnar. Fjölbreytt en samt einföld saga pipruð með ótrúlega skemmtilegri spilun, skemmtilegum tilvitnunum í alls kyns leiki sögunnar og auðvitað frábæran húmor. Hvað fannst þér um Split Fiction? Þátturinn e...

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.