nordnordursins

Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

Leisure IS ↓ 71 episodes

Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.

Author

nordnordursins

Category

Leisure

Podcast website

nordnordursins.podbean.com

Latest episode

Mar 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia 26.03.2026

Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjava...

Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox 02.03.2026

Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fy...

Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3 16.02.2026

Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að loku...

Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War 02.02.2026

Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem...

Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026 19.01.2026

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!

Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025 16.12.2025

Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanl...

Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards 02.12.2025

Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Gold...

Leikjavarpið #62 - Steam Machine og GTA VI seinkað 17.11.2025

Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins.  Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við...

Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33 20.06.2025

Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu. Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er...

Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2 08.04.2025

Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira.    Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution...

Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan 18.03.2025

Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól...

Leikjavarpið #58 - Avowed og State of Play 24.02.2025

Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of Play kynningunni sem haldin var þann 12. febrúar. Þar voru væntanlegir leikir á PlayStation kynntir, þar á meðal er nýr leikur frá Housemarque (þeim sömu og gerðu Returnal) og endurbætt útgá...

Leikjavarpið #57 - Kingdom Come: Deliverance II og PSN aftengist 09.02.2025

Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II, frestun á næsta Football Manager og PSN vesenið mikla sem varð til þess að fjöldi spilara gat ekki spilað netleiki á PlayStation leikjatölvunni sinni. Auk þess er fjallað um endurútgáfu The...

Leikjavarpið #56 - Væntanlegir leikir 2025 28.01.2025

Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu leikjatölvu Nintendo: Switch 2.

Leikjavarpið #55 - Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar 13.01.2025

Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar. CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir...

Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle 16.12.2024

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik!  Sveinn rýnir í  Indiana Jones and t...

Leikjavarpið #53 - The Game Awards og S.T.A.L.K.E.R. 2 02.12.2024

Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Hellblade II og Final Fantasy VII: Rebirth. Sveinn segir okkur frá því hvernig PlayStation Portal virkar eftir nýja uppfærslu sem opnar fyrir þann möguleika að streyma tölvuleikjum be...

Leikjavarpið #52 - PlayStation 5 Pro og umdeild Xbox auglýsing 18.11.2024

Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við þökkum Sony og Senu fyrir aðgang að tölvunni til rýnis. Nördarnir segja sínar skoðanir á tölvunni eftir prófanir og fara yfir helstu kosti og galla. Strákarnir ræða einnig nýja auglýsingu frá X...

Leikjavarpið #51 - Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard 04.11.2024

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um tölvuleikina Landnámu, Horizon Zero Dawn Remastered og minnst á tvær nýjar heimildarmyndir sem tengjast tölvuleikjum.

Leikjavarpið #50 - The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og Xbox Partner Preview 21.10.2024

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst á skoðunum - athugið að umræðan er laus við alla spilla! Einnig er farið yfir valin atriði úr Xbox Partner Preview þar sem Xbox og þeirra samstarfsaðilar kynna væntanlega leiki á Xbox leikja...

Leikjavarpið #49 - The Plucky Squire og State of Play 07.10.2024

Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum. Strákarnir skoða hvað var fjallað um á State of Play þar sem Sony kynnir væntanlega leiki fyrir PlayStation leikjatölvurnar - Þar má meðal annars nefna samúræ-leikinn Ghost of Yōtei.   Tónlist:...

Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro 25.09.2024

Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum.

Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct 19.07.2023

Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum.   Upptaka frá 4. júlí 2023.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under C...

Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom 01.06.2023

Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla).    Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attributio...

Leikjavarpið #45 - Týndi þátturinn 30.05.2023

Ofurdúóið Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn tækla allt það helsta úr heimi tölvuleikja!  Þar á meðal Xbox Developer_Direct, Hi-Fi Rush, FM 2023 fyrir PS5, DualSense Edge, Live Service leikina og síðast en ekki síst Forspoken. Athugið. Þátturinn var tekinn upp snemma í febrúar en upptakan fór á flakk og týndist. Upptakan fannst loks. Afleiðingar fylgdu í kjölfarið. Tæknimaður okkar var rekinn,...

Listen to the Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.