nordnordursins

Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

Leisure IS ↓ 71 episodes

Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.

Author

nordnordursins

Category

Leisure

Podcast website

nordnordursins.podbean.com

Latest episode

Mar 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Leikjavarpið #44 - Best of 2022 í tölvuleikjum 18.01.2023

Þeir eru mættir aftur til leiks eftir vetrardvala! Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjarki fara saman yfir það sem stóð upp úr af nýliðnu leikjaári og gefa hlustendum smjörþefinn af leikjaárinu 2023. Strákarnir velja topp 3 bestu leiki ársins 2022 af sínu mati, ræða God of War: Ragnarök og fleira og fleira.    Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Att...

Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum 09.08.2022

Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í geg...

Leikjavarpið #42 - Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum 12.07.2022

Bjarki, Daníel og Sveinn spjalla um sjóðheitar tölvuleikjafréttir ásamt að taka fyrir Grow: Song of the Evertree og stórleikinn Elden Ring. Yfirlit þáttar: Í spilun Ísland í tölvuleikjum Útgáfudagur God of War Skull and Bones kynning og útgáfudagur Forspoken seinkað Ekkert RDR eða GTA 4 Remake Gollum stiklan Grow: Song of the Evertree leikjarýni Eldheitar Elden Ring umræður   Myndir úr Elden Ring...

Leikjavarpið #41 - TMNT: Shredder’s Revenge, Nintendo Direct og Kirby 06.07.2022

Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Farið er yfir hvað kom fram á nýjustu Nintendo Direct Mini kynningunni, spjalla um leikina Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge, Horizon: Forbidden West og Kirby and the Forgotten Land, ræða kosti og galla nýjustu PlayStation áskriftarleiðanna og fleira.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licen...

Leikjavarpið #40 - E3-farinn Bjössi mætir í spjall 24.06.2022

Bjössi úr Gamestöðinni mætir í Leikjavarpið og ræðir E3 ferðina sína árið 2018. Einnig segir Sveinn frá ferðalagi sínu þegar hann heimsótti Gamescom í Köln árið 2012.   Mynd: Myndblanda - Bjössi, Sveinn og Daníel og Wikimedia Commons (Dronepicr) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4....

Leikjavarpið #39 - Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase 14.06.2022

Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans fjalla um Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase leikjakynningarnar sem fóru fram fyrir stuttu. Á kynningunum var sýnt úr og fjallað um væntanlega leiki sem flestir eru væntanlegir á þessu eða næsta ári. Þar á meðal eru leikirnir Redfall, The Callisto Protocol, High on Life og fjöldi annara leikja. Ef þú vilt vita hvað er framundan í leikjaheiminu...

Leikjavarpið #38 - State of Play, Diablo Immortal og Sonic Frontiers 07.06.2022

Tölvuleikjasérfræðingarnir Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn hjá Nörd Norðursins fjalla um það allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Aðalefni þáttarins er State of Play leikjakynningin hjá Sony en einnig er fjallað um ýmislegt fleira eins og Diablo Immortal, Star Wars Jedi: Survivor, Sonic Frontiers og hvað er framundan í sumar.   Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed...

Leikjavarpið #37 - Væntanlegt árið 2022, PSVR 2 og Inscryption 11.01.2022

Daníel Rósinkrans, Bjarki, Sveinn og hinn Daníel ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þrítugasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er jafnframt fyrsti Leikjavarpsþáttur ársins 2022. Stóra umræðuefni þáttarins eru væntanlegir leikir á komandi ári en auk þess er fjallað um PSVR 2, E3 2022 og tölvuleikina Inscryption, Death's Door og Halo Infinite.  Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Daní...

Leikjavarpið #36 - Leikir ársins 2021 13.12.2021

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um það helsta úr heimi tölvuleikja og gera upp tölvuleikjaárið 2021. Farið er yfir hvaða leikir unnu til verðlauna á The Game Award og fjallað um ný sýnishorn úr leikjum sem sýnd voru á hátíðinni. Strákarnir fara yfir þá fimm leiki sem stóðu upp úr á árinu að þeirra mati og svo er Tölvuleikjaklúbburinn á sínum stað. Allt þetta og fleira til...

Leikjavarpið #35 - Viðtal við Ara Þór hjá Epic Games 07.12.2021

Í þrítugasta og fimmta þætti Leikjavarpsins spjalla þeir Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans við Ara Þór sem starfar sem boðberi (evangelist) hjá Epic Games. Í þættinum fer Ari yfir feril sinn í leikjaiðnaðinum en hann hefur meðal annars komið að gerð Angry Birds tölvuleiks og Returnal sem var gefin út fyrir PlayStation 5 leikjatölvuna. Í þættinum er einnig fjallað um Unreal leikjavélina, upphaf HRing...

Leikjavarpið #34 - Cyberpunk 2077, Just Dance 2022 og The Game Awards tilnefningar 29.11.2021

Efni þáttar: Leikir í spilun - Hvað hafa strákarnir verið að spila frá því seinast? The Game Awards tilnefningar - Daníel Rósinkrans leiðir umræðuna og skoðar hvaða leikir eru tilefndir í ár. Cyberpunk 2077 - Ár er liðið frá útgáfu, hefur eitthvað breyst? Steinar Logi segir frá því hvernig leikurinn er að keyra á PS5 í dag. Hvaða leikir voru keyptir á Black Friday? - Eru veskin nokkuð orðin tóm?!...

Leikjavarpið #33 - Staðan á PS5 og Xbox Series X ári eftir útgáfu 15.11.2021

Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað...

Leikjavarpið #32 - Guardians of the Galaxy, State of Play og Nintendo Expansion Pack 01.11.2021

Þrítugasti og annar þátturinn af Leikjavarpinu, hlaðvarpi Nörd Norðursins, er nú kominn á allar helstu hlaðvarpsveitur! Að þessu sinni eru það Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór sem eru mættir til leiks til að ræða allt það helst úr heimi tölvuleikja. Það er úr ýmsu að taka og má þar meðal annars nefna nýjar fréttir varðandi útgáfu Cyberpunk 2077 og The Witcher, ný stikla úr Unchar...

Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5 18.10.2021

Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar haf...

Leikjavarpið #30 - Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta 11.10.2021

Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 en hann hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði vi...

Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22 27.09.2021

Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum...

Leikjavarpið #28 - PlayStation Showcase 2021, Twelve Minutes og Daði Freyr 11.09.2021

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi og Bjarki Þór fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna í nýjasta þætti Leikjvarpsins. Áhersla er lögð á PlayStation Showcase 2021 í þættinum en auk þess gagnrýnir Bjarki Twelve Minutes, fjallað er um Xbox Game Pass tónleikana með Daða Frey og nýjustu fréttirnar.   Efni þáttar: Í spilun Epic Games vs Apple Twelve Minutes Horizon Forbidden...

Leikjavarpið #27 - Gamescom, Baldo og Arena heimsókn 30.08.2021

Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Daníel Páll ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum tuttagasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er sérstaklega tileinkaður Gamescom 2021! Auk Gamescom er fjallað um heimsókn Nörd Norðursins til Arena, þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, Ghost of Tsushima Director's Cut, Baldo, gamla góða Quake og fleira.    Efni þáttar: Leikir...

Leikjavarpið #26 - Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran 13.08.2021

Tölvuleikjasérfræðingarnir Steinar, Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum 26. þætti Leikjavarpsins.    Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Ratchet & Clank: Rift Apart gagnrýni The Witcher: Monster Slayer Valve kynnir Steam Deck Nintendo kynnir Switch OLED Sveinn kláraði Demon's Souls á PS5! The Legend Of Zelda: Skyward Sword HD umfjöllun Activision Blizzar...

Leikjavarpið #25 - Allt það helsta frá E3 2021 28.06.2021

Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir allt það helsta frá E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem haldin var á netinu fyrr í júnímánuði.    Efni þáttar: Resident Evil Village Returnal Ratchet & Clank: Rift Apart Sony skrópar á E3, aftur! Ubisoft E3 kynningin Samstarf Myrkur Games og Prime Matter (Koch Media Group) Nintendo E3 kynningin Microsoft og Bethesda með sameiginlega kynningu   Byrjunar- og endastef: "...

Leikjavarpið #24 - Afmæli, martraðir og pöddusnakk 18.04.2021

Þríeykið, Sveinn, Daníel og Bjarki, halda upp á 10 ára afmæli Nörd Norðursins og spjalla um leikjaárið 2011 og hvernig tölvuleikir og leikjamenningin hefur þróast síðan þá.    Efni þáttar: Sony fréttir (Last of Us og Days Gone 2) Little Nightmares II Outriders Nörd Norðursins 10 ára! Leikjaárið 2011 Bugnax Maquette Oddworld   Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under...

Leikjavarpið #23 - State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2 02.03.2021

Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig...

Leikjavarpið #22 - Hitman 3, Super Mario 3D World og TOHU 15.02.2021

Sveinn, Bjarki og Daníel fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 22. þætti Leikjavarpsins!   EFNI ÞÁTTAR: Resident Evil 8 Xbox Game Pass Vs. Xbox Gold Mass Effect Legendary Edition PS+ áskriftir TOHU Hitman 3 PS5 selst vel Ratchet & Clank: Rift Apart útgáfudagur The Medium Ring Fit Adventure #RingFitFebrúar Super Mario 3D World á Switch The Last of Us HBO leikaraval   Byrjunarstef: "Overw...

Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 ára 13.02.2021

Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira.    Efni þátta...

Leikjavarpið #20 - Væntanlegir tölvuleikir 2021 18.01.2021

Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Má þar nefna titla á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri leiki. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!   Mynd: Halo Infinite,...

Listen to the Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.