nordnordursins

Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins

Leisure IS ↓ 71 episodes

Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.

Author

nordnordursins

Category

Leisure

Podcast website

nordnordursins.podbean.com

Latest episode

Mar 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Leikjavarpið #19 - Leikjaárið 2020 gert upp 04.01.2021

Bjarki, Sveinn og Daníel gera upp leikjaárið 2020. Farið er yfir það helsta frá Sony, Microsoft, Nintendo og öðrum tölvuleikjafyrirtækjum. Nýjar leikjatölvur komu á markað á árinu og fjölmargir flottir tölvuleikir. Í lok þáttar er tekinn saman topp fimm listi Nörd Norðursins fyrir tölvuleikjaárið 2020. Fylgist með - í næsta þætti ætlum við að skoða hvað árið 2021 mun bjóða upp á!   Byrjunarstef: "...

Leikjavarpið #18 - Sæberpönk, grísk goðafræði og Xbox Series X 21.12.2020

Í áttjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox...

Leikjavarpið #17 - Víkingar, köngulær og PS5 18.11.2020

Í 17. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um Hades, Assassin's Creed: Valhalla, Watch Dogs: Legion, og PS5 leikina Spider-Man: Miles Morales og Sackboy: A Big Adventure.  Mynd: Assassin's Creed: Valhalla og Sackboy: A Big Adventure Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #16 - Spiritfarer, Among Us og Star Wars Squadrons 16.10.2020

Í 16. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um tölvuleikinn Spiritfarer, Among Us, Star Wars Squadrons, gamla og (mis)góða leiki á YouTube-rásinni okkar, kaup Microsoft á ZeniMax media, tölvuleiki, leikjafréttir og fleira. Mynd: Spiritfarer og Among Us Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3....

Leikjavarpið #15 - Næsta kynslóð leikjatölva, páfaát og geislasverð 21.09.2020

Fimmtándi þáttur Leikjavarpsins er tileinkaður Xbox Series X/S og PlayStation 5 og ræða þeir Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans um verð, væntingar og útgáfu en leikjatölvurnar eru væntanlegar í verslanir í nóvember á þessu ári. Sveinn segir frá hinum syndsamlega heimi sem er að finna í Crusader Kings 3 og Bjarki tekur upp geislasverð í sýndaheimi og fjallar um Vader Immortal. Þess...

Leikjavarpið #14 - The Avengers, Mortal Shell og Super Mario pakki 08.09.2020

Í þessum fjórtánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel Rósinkrans, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • The Avengers tölvuleikurinn • LEGO Super Mario • Call of Duty Black Ops Cold War • Uppærslur milli leikjatölvukynslóða • Mortal Shell • Super Mario 3D Mynd: LEGO Super Mario Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com)...

Leikjavarpið #13 - Ghost of Tsushima, Paper Mario og Fall Guys 10.08.2020

Í þessum þrettánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Game Show • Paper Mario: The Origami King • PS4 State of Play • Fall Guys • Ghost of Tsushima Mynd: Ghost of Tsushima, Fall Guys og Paper Mario (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.c...

Leikjavarpið #12 - The Last of Us Part II spilliþáttur 10.07.2020

Í þessum sérstaka The Last of Us Part II spoiler-þætti fjalla þeir Sveinn, Bjarki og Daníel um hvernig leikurinn, og þá fyrst og fremst söguþráður leiksins, fór í þá eftir að hafa spilað leikinn til enda. Athugið að þátturinn inniheldur spilla (spoilers) úr The Last of Us Part II. Ef þú hefur ekki klárað leikinn og vilt ekki láta spilla sögu leiksins fyrir þér skaltu stoppa hér, klára leikinn og h...

Leikjavarpið #11 - PlayStation 5 og The Last of Us Part II 06.07.2020

Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • PlayStation 5 (tölvan, leikir, verð o.fl.) • Trivia Royale • Cyberpunk 2077 • E3 dagskráin • The Last of Us Part II (spoiler free umræða) Mynd: The Last of Us II og PlayStation 5 leikjatölvan (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By At...

Leikjavarpið #10 - Summer Game Fest, Unreal Engine V og FFVII Remake samantekt 19.05.2020

Bjarki, Daníel og Sveinn ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Series X kynning, • Summer Game Fest sumarhátíðin, • Unreal Engine V • Tony Hawk Proskater 1&2 endurgerð, • EA framleiðir fleiri Switch leiki, • Summer Game Fest dagskráin, • Paper Mario: The Origami King, • Ghost of Tsushima, • GTA V frír á Epic Store, • Final Fantasy 7 Remake samantekt. Mynd: Tæknidemó Unrea...

Leikjavarpið #9 - Fortnite tónleikar, tölvuþrjótar herja á Nintendo og AC: Valhalla kynntur 07.05.2020

Í níunda þætti Leikjavarpsins ræða Sveinn og Daníel meðal annars um stöðu Stadia frá Google, nýju viðbótina fyrir Fallout 76 og lekann sem herti á The Last of Us Part 2. Að sjálfsögðu spilli-frír þáttur! Efni þáttarins: 🎶 Fortnite tónleikar, 🌀 Stadia Connect viðburður, 🤖 Tölvuþrjótar herja á Nintendo, 🌄 Ný viðbót fyrir Fallout 76, 🎮 Xbox Series X kynning þann 7. maí, ⚔️ Assassin’s Creed: Valh...

Leikjavarpið #8 - FFVII og RES3 Remake, PS5 fjarstýringin og Midgard 2020 aflýst 20.04.2020

Daníel, Bjarki og Sveinn fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Það er einskonar remake-þema þessa dagana í Leikjavarpinu. Strákarnir spiluðu allir Final Fantasy VII Remake sem margir FF aðdáendur hafa beðið lengi eftir og segja sína skoðun á leiknum. Sveinn spilaði zombíleikinn Resident Evil 3 Remake og fjallar um hann. Einnig er fleira til umræðu eins og útlitið á nýju PS5 fjarstýringun...

Leikjavarpið #7 - Doom Eternal, Animal Crossing, PS5 og indíleikir 30.03.2020

Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um það helsta í heimi tölvuleikja. Sveinn baðar sig í blóðpollum Doom Eternal og segir okkur frá sinni upplifun. Daníel skellti sér í Animal Crossing og er orðinn stórskuldugur eftir stutta spilun. Bjarki segir frá indíleikjunum Mosaic og Spirit of the North sem sækir innblástur til Íslands. Efnisyfirlit þáttarins: * Ný íslensk eSports-sjónvarpsstöð kynnt til sögunn...

Leikjavarpið #6 - Heimsfaraldrar, Dreams og Final Fantasy VII 16.03.2020

Bjarki, Daníel og Sveinn fjalla um áhrif COVID 19 á tölvuleikjaviðburði ársins en EVE Fanfest og GDC ráðstefnunum hefur meðal annars verið aflýst vegna veirunnar. Einnig fjalla þeir drengir um það sem vitað er um næstu kynslóð leikjatölva og taka fyrir tölvuleikina Plague Inc, A Plague Tale, Dreams og Final Fantasy VII Remake demóið. Efni þáttarins: • Áhrif COVID-19 á leikjaheiminn • EVE Fanfest o...

Leikjavarpið #5 - Væntanlegir leikir 2020 & bestu leikir síðasta áratugar 14.01.2020

Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á leikjaárinu 2020: Cyperpunk 2077, The Last of Us Part II, Final Fantasy VII Remake og fleira. Einnig velja þeir drengir svo sína topp þrjá tölvuleiki seinasta ártugs, 2010-2019. Sjóðheit tilkynning í lokin: Sony tilkynnir að fyrirtæki mun EKKI taka þátt í E3 á þessu ári! Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (in...

Leikjavarpið #4 - Leikir ársins 2019 17.12.2019

Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn fara yfir leikjaárið sem er að líða með því að rýna í niðurstöður The Game Awards verðlaunanna og lista upp sína uppáhalds leiki fyrir árið 2019. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Leikjavarpið #3 - 1. desember 2019 - Star Wars Jedi: Fallen Order 02.12.2019

ÞRIÐJI ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Star Wars Jedi: Fallen Order, væntanlega Half-Life leik og The Game Awards.

Leikjavarpið #2 - 19. nóvember 2019 - Death Stranding 20.11.2019

ANNAR ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Death Stranding frá Kojima Production. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/

Kind fyrir Korn 2. þáttur - Viðtal við Óskar Árnason, spilafréttir og íslensk spil 09.12.2017

Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í öðrum þætti tek ég viðtal við Óskar Árnason sem skellti sér á Essen spilaráðstefnuna, fer yfir nokkrar spilafréttir og ræði um útgáfu íslenskra spila. Hljóð og tónlist: http://incompetech.com/music/ (Deadly Roullette) og http://www.sherlockology.com/downloads (Sherlock Holmes),...

Kind fyrir Korn 1. þáttur - Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone 23.10.2017

Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í fyrsta þættinum er fjallað um Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone

Leikjavarpið #1 - 25. júní 2017 - E3 2017 25.06.2017

FYRSTI ÞÁTTUR: Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Steinar Logi ásamt Sveini Aðalsteini frá PSX.is ræða um það besta og versta frá E3 tölvuleikjasýningunni þetta árið, en þar kynntu leikjarisarnir það sem framundan er í leikjaheiminum. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum. Við erum búnir að senda Ant Man í hljóðrásirnar til að kanna málið. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.co...

Listen to the Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.