Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
239. Assassin's Creed Shadows - fyrstu hughrif 26.03.2025 1:03:02
Nýjasti AC leikurinn er að fá ágætis móttökur ólíkt því sem anti woke plebbarnir eru búnir að dreifa síðustu misseri. Nýjasti AC leikurinn er ekki að fara að breyta lífinu þínu eins og Forspoken en hann er ansi góður. Arnór Steinn og Gunnar taka gott fyrstu hughrifa spjall um Shadows. Hvernig lúkkar hann, hvernig spilast hann og hvernig hljómar hann. Er Arnór Ubisoft fanboy? Er Gunnar orðinn það l...
238. Gervigreind í tölvuleikjum 19.03.2025 56:56
Hvað þýðir gervigreind í tölvuleikjum í dag? Arnór Steinn og Gunnar ræða gervigreind í þætti vikunnar. Hvað hefur það verið (e. enemy AI) og hvað er að gerast í dag? Ashly Burch sem talaði m.a. fyrir Aloy í Horizon seríunni hefur minnst á myndband sem var lekið á netið um daginn þar sem búið var að gera eins konar AI Aloy (Ailoy? ég rata út ...) og hún var ekki par ánægð. Strákarnir eru ekki alveg...
237. Arnór og Sölvi Santos rífast um Black Myth Wukong og Star Wars Outlaws 12.03.2025 1:25:15
Arnór Steinn rankaði Star Wars Outlaws í þriðja sæti yfir leiki ársins 2024. Þetta fór mjög illa í suma hlustendur - þar á meðal góðvin þáttanna hann Sölva Santos. Þáttur vikunnar er því good old fashioned RIFRILDI um leikina tvo og nokkra aðra hluti. Gunnar er dómari og stjórnandi. Mun allt fara til andskotans? Þáttur vikunnar er í boði Elko Gaming.
236. Fréttir, næstu leikir og meira 04.03.2025 1:01:10
Arnór Steinn og Gunnar eru loksins komnir aftur í stúdíó eftir veikindi og vesen. KCD2, Avowed, CIV og fleiri leikir eru komnir eða á leiðinni og við pælum aðeins í þei,m. Rifjum upp nokkrar fréttir og tökum gott tölvuleikjaspjall! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
235. Mario Con 2025! - spjall við Adam og Þóri hjá Next Level Gaming 22.02.2025 40:33
Bætum upp fyrir þáttaleysið í vikunni með þessum hérna! Arnór Steinn ferðaðist í Next Level Gaming í Egilshöllinni og spjallaði við Þóri og Adam. Mario Con 2025 verður haldið í NLG vikuna 10.-16. mars og er þétt pökkuð dagskrá. Adam segir okkur meira frá því. Spjöllum líka um hvernig gengur í NLG og fleira skemmtilegt! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
234. Kingdom Come Deliverance 2 - GOTY strax kominn? 12.02.2025 1:05:51
Vá. Þetta er STÓR leikur. Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af KCD2 - eftirvæntum leik sem er heldur betur að slá í gegn. Spoiler free þáttur fyrir þau ykkar sem eruð ekki viss. Við mælum HIKLAUST með þessum og munum gera annan dýpri þátt von bráðar! Hvað fannst þér um KCD2? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
233. Bioshock 05.02.2025 55:12
Maðurinn velur - þrællinn hlýðir. Bioshock er einn áhrifamesti leikur okkar tíma. Allavega segir Arnór Steinn það. Hvernig er Bioshock að standast tímans tönn? Gunnar er að spila hann í fyrsta skiptið. Sagan, karakterarnir, lúkkið, pælingarnar, margt meira í stútfullum þætti vikunnar. Hvað fannst þér um Bioshock? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
232. Naughty Dog 29.01.2025 57:21
Það er kominn tími á smá jákvæðni. Tölvuleikjaspjallið hefur fjallað um ansi marga framleiðendur og flestir þeirra eiga skilið nokkuð neikvæða umfjöllun. Nú söðlum við um. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um NAUGHTY DOG - fyrirtæki sem hefur síðustu ár verið á meðal þeirra fremstu í tölvuleikjum. Uncharted og The Last of Us eru fáein dæmi. Við köfum í söguna á Naughty Dog og sjáum hvað okkur finnst....
231. Hitman (2007) er enn glötuð 22.01.2025 58:15
Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir - IT'S BACK Þáttur vikunnar fjallar um eina hrikalega tölvuleikjakvikmynd; Hitman (2007) með Timothy Olyphant. Þessi er með allan pakkann; illa leikin, óskiljanlegt plot, lens flare og margt fleira. Arnór Steinn og Gunnar taka deep dive á þessari hrikalegu kvikmynd. Njótið! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
230. Kingdom Come Deliverance 15.01.2025 57:54
Arnór Steinn og Gunnar eru komnir aftur eftir gott jólafrí. Nú er það KINGDOM COME DELIVERANCE. LOKSINS. Raunveruleg áskorun í formi miðalda RPG veislu. Strákarnir eru bæði hrifnir og ekki. Við tökum svo að SJÁLFSÖGÐU Kingdom Come Deliverance 2 sem kemur út 4. febrúar næstkomandi! Hvað fannst þér um Kingdom Come Deliverance? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
229. Áramótaþáttur 2024 part 3 - hvað er að gerast 2025? 25.12.2024 38:15
Síðasti þátturinn á árinu er upphitun fyrir 2025. Hvaða leikir eru að koma út? Slatti. Verða þeir góðir? Mögulega. Takk fyrir að fylgja okkur út þetta ár elsku hlustendur <3 gætum þetta ekki án ykkar. Sjáumst í janúar! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
228. Áramótaþáttur 2024 PART 2 - nokkrir góðir frá árinu 19.12.2024 59:46
Í VOL.2 af áramótaþættinum tökum við take 2 á nokkra leiki frá árinu. Helldivers 2, Star Wars Outlaws og fleiri ... hvernig standa þeir sig eftir útgáfu? Arnór Steinn og Gunnar velja sinn GOTY ... Arnór Steinn verður mögulega rekinn fyrir sitt val. Hver er þinn GOTY? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is.
227. Áramótaþáttur 2024 PART 1 - árið sem var að líða 13.12.2024 1:02:34
Hvernig var árið 2024? Gott? Slæmt? Bang average? Arnór Steinn og Gunnar fara vel yfir það sem þeir spiluðu í ár. Sumir leikir standa uppúr, aðrir ekki. Sumir komu á óvart, aðrir voru nákvæmlega eins og búist var við. Hvað fannst ykkur? Í næstu viku kemur part 2!! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
226. Balatro - minnsti stærsti leikur ársins 04.12.2024 47:27
Í síðasta þætti ársins áður en við förum í ÞREFALDAN ÁRAMÓTAÞÁTT ætlum við að spjalla um 62 megabæta leik sem heitir BALATRO. Roguelike deckbuilder poker leikur sem er brjálæðislega ávanabindandi. Arnór Steinn og Gunnar eru sammála um að hér er um að ræða einn andskoti góðan leik! Er Balatro í safninu þínu? Þátturinn er í boði Elko Gaming
225. Sengoku Dynasty 27.11.2024 50:58
Fleiri simulation/citybuilder/survival/RPG leikir! Í Sengoku Dynasty byggir þú þorp í miðalda Japan með eigin höndum. Bókstaflega. Frábær leikur sem hægt er að sökkva fleiri klukkutímum í. Er leikurinn í safninu þínu? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
224. Dragon Age Veilguard 20.11.2024 46:44
Klárlega einn af leikjum ársins. Þáttur vikunnar er um DRAGON AGE VEILGUARD! Fjórði leikurinn í ansi stórri seríu. Margt að ræða og Arnór Steinn og Gunnar gera sitt besta. Hvað fannst þér um Veilguard? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Ybba.is
223. Silent Hill 2 Remake með Óla Jóels 06.11.2024 56:38
Þegar 23 ára gamall leikur er endurgerður er það algjör guðsgjöf að hafa einhvern sem spilaði upprunalega leikinn við útgáfu. Okkar eini Óli Jóels mætir í sett og spjallar við Arnór Stein um þessa stórgóðu endurgerð. Hvaða endi fengu þeir í leiknum? Hvað þýða allar þessar óvinatýpur? Meikar sagan einhvern sens? Mikilvægasta spurningin er auðvitað: er leikurinn þess virði? Í stuttu máli: JÁ Takk Ól...
222. Star Citizen - 700 milljónir í fjármögnun en ekki kominn út 30.10.2024 44:23
Það er margt sem gerist á tíu árum. Tré vaxa, leikjatölvukynslóðir hefjast og klárast og leikir - oftast allavega - koma út. Star Citizen var kynntur árið 2012 og átti að koma út 2014. Hann er ekki enn kominn út. Búið er að safna um 700 milljón dollurum fyrir framleiðsluna á Kickstarter. Aftur: Leikurinn Er Ekki Kominn Út. Arnór Steinn og Gunnar ræða þetta áhugaverða verkefni í þætti vikunnar. Eig...
221. Woke leikir - ógn við samfélagið? 25.10.2024 1:05:22
Nei djók. Hlustendur vita alveg að Arnór Steinn og Gunnar eru ekki í þessu asnalega menningarstríði. Þáttur vikunnar fjallar um "woke listann" sem einhverjir gaurar settu saman, yfir 1536 leiki (já, 1536) þar sem þeir eru flokkaðir eftir því hversu woke þeir eru. Við stökkvum aðeins yfir þennan lista og tölum aðeins um hvað "woke" er. Er woke gagnrýni á samfélagið? Eða eru karlmenn pirraðir yfir þ...
220. Until Dawn 16.10.2024 52:26
Spooky season er byrjað og þá þýðir ekkert annað en að setja bleyjur á Arnór Stein og Gunnar og henda þeim í Until Dawn. Interactive drama horror leikur segja þau víst um þennan leik og það er bara nokkuð nákvæm lýsing. Einnig kallaður "Movie: The Game" Hvernig gengur þér að bjarga átta unglingum frá vofeiflegum dauðdaga í fjallakofa útí rassgati? Arnór Steinn og Gunnar segja hvernig þeim gekk í s...
219. EA FC 25 09.10.2024 1:07:58
Ískaldur dagur í helvíti í dag. Arnór Steinn fílar ANNAN fótboltatölvuleik. EA FC 25 er ræddur í þætti vikunnar. Gunnar talar um manager career og Arnór Steinn tekur player career í nösina. Nei, hann spilar ekki sem defensive central midfielder aftur. Hvað finnst ykkur um EA FC 25? Betri en í fyrra? Alveg eins? Látið okkur vita! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
218. Madden 25 02.10.2024 54:26
Þú hefur eitt markmið - komast yfir þessa tíu jarda .. af einhverjum ástæðum. Arnór Steinn og Gunnar leggja í sitt metnaðarfyllsta verk til þessa: MADDEN Arnór veit EKKERT um Amerískan Fótbolta. Gunnar veit eitthvað. Hvað verður úr? Úffff ... snilld! Ætlar þú í Madden 25? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
217. Remakes og remasters 25.09.2024 1:00:09
Hvað er góð endurgerð? Hvað er gott remaster? Arnór Steinn og Gunnar pæla aðeins í þessu í þætti vikunnar. Það er slatti af endurgerðum að koma út og því áhugavert að kafa aðeins ofan í hugtakið. Góðar endurgerðir, slæmar, meh, “fan made” og margt fleira í pökkuðum þætti. Hver er þín uppáhalds endurgerð? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
216. Astro Bot - leikur ársins? 18.09.2024 43:36
Viltu rifja upp sögu PlayStation í formi eins skemmtilegasta platform leiks ársins? Astro Bot SPRINGUR fram á sjónarsviðið með ótrúlega skemmtilegri spilum, fjölbreyttum eiginleikum og frábærri grafík (vökva physics eru FRÁBÆR) Arnór Steinn og Gunnar eru vægast sagt hrifnir. Við erum klárlega að tala um topp 3 stykki á árinu. Astro Bot og hin vinsæla Astro Bot PS5 fjarstýring eru að sjálfsögðu til...
215. Star Wars Outlaws með Sölva Santos (@solvisantos) 11.09.2024 1:20:14
Langar þig að vera skúrkur í Star Wars heiminum? Það er heldur betur hægt í Outlaws. Arnór Steinn og Gunnar ræða fyrstu hughrif af þessari tilraun Ubisoft til að gera nýjan og öðruvísi Star Wars leik. Sölvi Santos er gestur vikunnar en hann streymir Outlaws á GameTíví rásinni alla miðvikudaga kl 20! Þátturinn hans heitir Skúrkur í skýjunum og er SNILLDAR tilvitnun í þýðingar Tölvuleikjaspjallsins!...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.