Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
214. Spennandi leikir á leiðinni! 04.09.2024 43:08
Hvað er eftir að koma út í ár? Star Wars Outlaws er nýkominn og við bíðum spennt eftir nýjum Zelda leik (þar sem við spilum sem Zelda!!!), Indiana Jones, Warhammer 40k, Silent Hill 2 og mörgum fleirum! Arnór Steinn og Gunnar ræða hvað þeim finnst spennandi á leiðinni. Tjékkið endilega á greininni okkar um næstkomandi leiki á https://blogg.elko.is/leikjahaustid-2024/ Hvað vekur mesta spennu hjá þér...
213. Black Myth Wukong 28.08.2024 1:02:57
Einn af þessum stóru er kominn út og við gerum að sjálfsögðu þátt. Return to monke er þema leiksins, soulslike unninn upp úr kínverskri goðafræði, með fluid bardagakerfi, stórfurðulegum óvinum og mikilvægast (fyrir Arnór Steinn og Gunnar allavega) þá er engin alvöru refsing fyrir það að deyja. Leikurinn hefur fengið gagnrýni fyrir skort á fjölbreytileika og strákarnir ræða það í þaula. Hvað fannst...
212. Óli Jóels returns! 14.08.2024 1:23:55
Þetta var langt og gott frí, en strákarnir eru komnir aftur. Við fengum Óla fokking Jóels í stúdíó til að taka stöðuna á næstu leikjum ársins, stöðunni hjá GameTíví og MARGT fleira. Þurfa online framleiðendur ekki að huga að pissupásum hjá spilurum sínum? Pælum aðeins í essu ... Þátturinn er í boði Elko Gaming.
211: Tölvuleikjaspjallið er 4 ÁRA GAMALT 27.06.2024 1:10:41
Tölvuleikjaspjallið er FJÖGURRA ára gamalt, krakkar! Börn hafa mörg verið til í 4 ár! Það er klikkað! Arnór Steinn og Gunnar taka spjall um hvers vegna þeir eru ennþá að þessu. Ræðum þá leiki ársins sem eru komnir út og aðeins um tattú. Hvernig tölvuleikjatattú myndir þú fá þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
210. Next Level Gaming - ný tölvuleikjamiðstöð - með Þóri Viðars og Adam Scanlon 19.06.2024 1:04:59
Á næstu vikum opnar glæný og glæsileg tölvuleikjamiðstöð í Egilshöll - NEXT LEVEL GAMING! Við fengum Þóri Viðarsson og Adam Scanlon í heimsókn og þeir segja okkur frá öllu sem verður í boði. VR herbergi, arcade vélar, console herbergi og auðvitað tugir af PC tölvum til að spila með vinum þínum. Ætlar þú að kíkja við þegar það opnar? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
209. Hellblade 2 - gerist á Íslandi með TVEIMUR íslenskum aðalleikurum! 12.06.2024 42:12
Annar þáttur af tveimur sem kemur út í dag! Hellblade 2 kom út í maí og við ætlum að sjálfsögðu að fjalla um hann. Saga baráttukonunnar frá Orkneyjum heldur áfram og hér er ekkert gefið eftir. Hún heldur til Íslands til að granda þrælasölum þar. Ekkert glens hér á ferð. Arnór Steinn og Gunnar taka leikinn fyrir og ræða allar hliðar. Sagan, combat kerfið, útlitið og margt fleira! Er þessi leikur þe...
208. Star Wars Outlaws, Dragon Age Veil Guard, Indiana Jones og aðrar leikjakynningar júní 2024! 12.06.2024 40:36
Helgin síðasta var STÚT full af kynningum fyrir spennandi leiki ársins. Star Wars Outlaws, Lego Horizon, munkabruggleikur og margir fleiri. Arnór Steinn og Gunnar taka best of og það kemur á óvart hvað hver er spenntur fyrir hverju. Er Arnór raunverulega að peppa Assassin´s Creed leik? Er Gunnar að fara að kaupa gæludýra-farming leik á degi eitt? Hlustið og tékkið á því! Þessi og næsti þáttur (209...
207. Aldís Amah í Hellblade II og MARGT fleira 05.06.2024 1:25:30
Leikkonan Aldís Amah Hamilton snýr aftur í stúdíó til strákanna og það er ekkert annað en VEISLA eins og í síðasta þætti. Eins og kunnugt er leikur hún aðalhlutverkið í íslensk-framleidda leiknum Echoes of the End , sem kemur ekki alveg strax út, EN! hún leikur í nýja Hellblade leiknum, Senua's Saga ! Hún segir Arnóri Steini og Gunnari allt um hvernig það er að leika í þeim leik, tölum enn mei...
206. Mad Max leikurinn 29.05.2024 58:17
Í tilefni þess að FURIOSA er komin í bíó taka Arnór Steinn og Gunnar fyrir Mad Max leikinn, falinn demant frá 2015. Leikurinn var svo óheppinn að koma út sama DAG og annar frekar legendary leikur .. munið þið hver það er? Strákarnir minnast líka á tilraun þeirra til að komast í samband við forsetaframbjóðendur varðandi tölvuleikjaspilun þeirra. Gekk ekki vel en fengum amk tvö svör! Hvernig fannst...
205. Manor Lords - early access meistaraverk 22.05.2024 50:07
Hvern langar ekki í city builder með hagfræðilegu ívafi? Án alls gríns þá er Manor Lords (sem er að mestu úr smiðju eins manns) andskoti áhugavert verkefni sem er nú í boði á Steam. Þý byggir þorp og breytir því í stórbæ ásamt því að taka yfir svæði í kringum þig. Arnór Steinn og Gunnar ræða það sem komið er út í þaula. Leikurinn er ekki tilbúinn en við erum með vísbendingar um hvað verður í boði...
204. Fallout New Vegas - fyrsti þáttur 15.05.2024 1:21:45
Við þurftum 200 þætti til að hita upp fyrir þetta meistaraverk. Arnór Steinn suðaði og puðaði og það virkaði! Gunnar er kominn í New Vegas og búinn að spila nóg til að ræða fyrsta helminginn. Deep dive á einum helvíti áhugaverðum leik. Það fylgir stór höskuldarviðvörun þessum þætti; drengirnir ræða ALLT. Companions, sagan, factions, playstyles og margt, MARGT fleira í stút fullum þætti um New Vega...
203. Hvað gerir Fallout að Fallout? 08.05.2024 1:24:53
Þáttur vikunnar er eitt stykki rifrildi. Gunnar vill ólmur vita af hverju Arnóri Steini er svona illa við Fallout 4. Arnór Steinn vill bara rífast. Pick a side. Civil War. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
202. Dragon's Dogma 2 01.05.2024 56:25
DD2 er einn af stóru leikjum ársins. Opinheims hack n slash leikur með brjálæðislega pirrandi fylgjendum. Er eitthvað meira? Arnór Steinn og Gunnar taka gott deep dive á leiknum. Þetta er spoiler free þáttur þannig þið getið hlustað án þess að hafa spilað leikinn. Ert DD2 í safninu þínu? Hvað fannst þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
201. Fallout þættirnir! 24.04.2024 1:14:38
Okey dokey! Þáttur vikunnar erum Fallout þættina. Arnór Steinn og Gunnar eru MJÖG hrifnir og taka gott deep dive í karakterana, söguna, tenginguna við leikina og fleira. Þetta er spoiler fullur þáttur, horfðu fyrst á Fallout seríuna áður en þú hlustar! Þú munt ekki sjá eftir því, þetta er SNILLD. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
200. TVÖ. HUNDRAÐASTI. ÞÁTTURINN. 10.04.2024 1:14:37
Til hamingju hlustendur, það eru komnir 200 þættir! Arnór Steinn og Gunnar fagna almennilega. Við förum yfir farinn veg og veljum okkar uppáhalds þætti. Komnir eru SLATTI af Spotify playlistum þar sem þættirnir okkar eru flokkaðir niður. Langar þig að hlusta á öll viðtöl Tölvuleikjaspjallsins? Kíktu þá á playlistann! Langar þig bara að hlusta á leikjagagnrýni? Sá playlisti er til líka! Við erum æv...
199. Allaspjall, enginn Arnór og spurningakeppni 03.04.2024 1:28:56
Hvað á að gera þegar Arnór er í fríi? Þá hendum við góðvini þáttarins Alexander Maron (allimaron93), sem hefur áður hlaupið í skarðið og bjó einnig til þemalagið okkar, í stólinn með Gunnari. Þeir taka gott Allaspjall um Hogwarts Legacy, World of Warcraft og svo testar Gunnar hann í tölvuleikjatrivia. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
198. Rise of the Ronin 27.03.2024 1:12:17
Árið 2024 heldur áfram að gefa. Rise of the Ronin kom út um daginn og hefur reynst ... bara frekar vel? Fær góða dóma og umsagnir. Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila leikinn í döðlur og hafa margt að segja. Þátturinn er spoiler free og inniheldur okkar helstu hughrif. Er Rise of the Ronin í þínu safni? Hvað finnst þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
197. Street Fighter myndin er enn glötuð 20.03.2024 1:10:57
Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir SNÚA AFTUR! Í þetta skiptið rifja Arnór Steinn og Gunnar upp hina frábæru Street Fighter frá 1994. Hún var ein fyrsta ömurlega tölvuleikjakvikmyndin sem Tölvuleikjaspjallið fjallaði um í september 2020 (!!!). Nú horfðu þeir báðir á myndina og ræða hana í þaula. Spurningin er: Er hún orðin eitthvað betri? Hvað finnst ykkur? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
196. Fallout þættirnir, Rise of the Ronin og FLEIRA 13.03.2024 57:01
Back to basics, kæru hlustendur! Tölvuleikjaspjallið er einungis í hljóði á ný. Í þætti vikunnar hita Arnór Steinn og Gunnar upp fyrir væntanlega Fallout sjónvarpsþætti, tala ENN meira um Helldivers II og aðeins um leik sem þeir mega bókstaflega ekki segja neitt um. Hver er þín skoðun á Fallout sjónvarpsþáttunum? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
195. Aron Ólafsson fær drottningarviðtal 06.03.2024 1:45:08
Aron Ólafsson var framkvæmdastjóri RÍSÍ í rúm fimm ár. Nú er hann farinn á ótroðnar slóðir hjá Solid Clouds og kemur því til Arnórs Steins og Gunnars og gerir upp RÍSÍ tímann. Rafíþróttir urðu í stuttu máli risastór hluti af íslensku samfélagi á mjög stuttum tíma. Við ræðum stöðuna í dag, hvernig þetta er búið að vera og hversu geggjað það er að krökkum er ekki lengur strítt fyrir að spila tölvule...
194. Playstation Portal 28.02.2024 41:28
Playstation Portal kom út fyrir nokkrum dögum síðan og ... hvað? Hvernig er tölvan? Hvernig hefur hún reynst? Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila slatta og ræða þennan áhugaverða PS5 aukahlut í þætti vikunnar. Gunnar hefur spilað Helldivers II hjá tengdó og Arnór Steinn er mögulega búinn að fara með sína í bað. Ræðum tækni, útlit, þægindi og margt fleira. Er Portal á þínu heimili? Hvernig he...
193. Helvítis djúpa laugin - Helldivers 2 21.02.2024 49:29
Settu á þig sundhettuna, farðu í sundfötin og dýfðu þér með andlitið fyrst oní geðveikina sem er HELLDIVERS 2. Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu hughrif af þessum frábæra leik. Byssur, vondukallar, geðveiki, bilun og helvítis dýfan. Oní með ykkur og ekkert múður! Ef þið eruð ekki búin að prófa divers þá gerið þið það á sekúndunni eftir að hafa hlustað á þennan þátt! Þátturinn er í boði El...
192. GTS mótaröðin með Guffa 14.02.2024 56:29
Það eru allnokkrir hlustendur búin að biðja okkur um að taka viðtal við Guffa úr GTS þannig hér kemur það! GTS mótaröðin er að verða vinsælli og vinsælli og því snilldar hugmynd að fá einn af frumkvöðlunum hér á landi í viðtal til að útskýra fyrir Arnóri Steini um hvað þetta allt saman snýst. Hvað getur þú gert til að taka þátt? Þú getur byrjað á að tjékka á Facebook hópnum hjá GTS samfélaginu og...
191. Kratos í Valhalla 05.02.2024 37:29
Cory Barlog spilaði Hades og ákvað að gera sinn eigin ... og hann er geggjaður. Spoiler filled þáttur um GOD OF WAR RAGNARÖK dlc pakkann VALHALLA. Spilið hann og horfið svo á þennan þátt. Myndir þú vilja spila God of War: Betlehem þar sem jésúbarnið er loka boss? Hvernig fannst þér Valhalla? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
190. Verður 2024 ömurlegt? 28.01.2024 45:01
Það er stóra spurningin ... eftir svakalega gott 2023, verður 2024 gott eða slæmt? Arnór Steinn og Gunnar rýna í komandi leiki ársins. Sumir eru áhugaverðir, aðrir munu fljúga undir radarinn. Þeim tekst einnig einhvern veginn að nýta tækifærið til að drulla yfir Assassin's Creed. Hvaða leikur vekur mesta spennu hjá þér? Segðu okkur frá! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.