Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
189. Árið 2023 vol 4: Nóri og Gunnar velja leik ársins 31.12.2023 1:06:34
Árið er ALVEG að verða búið! Arnór Steinn og Gunnar taka saman þetta frábæra ár í FJÓRÐA áramótasérþætti Tölvuleikjaspjallsins. Hver er leikur ársins samkvæmt Arnóri? Var eitthvað fréttnæmt sem gerðist í ár? Allt þetta og MEIRA í hnausþykkum lokaþætti. Við förum svo í smá jólafrí og komum fíflefldir til baka um miðjan janúar. Takk fyrir að vera þið og gleðilegt nýtt ár!
188. Árið 2023 vol. 3 - Marín og Baldur's Gate 3 31.12.2023 53:28
Einn af leikjum ársins er klárlega Baldur's Gate 3. Við vildum fá algjöra fagmanneskju til að ræða leikinn í þaula í árs yfirferðinni okkar ... og hver önnur en okkar allra besta MARÍN EYDAL kemur í sett til að ræða leikinn! Föruneyti Pingsins er að gera góða hluti á Twitch þar sem Marín spilar leikinn ásamt vel völdum snillingum. Tjékkið á Marín á hennar socials og fylgist með Föruneyti Pings...
187. Árið 2023 vol. 2 - Rósinkrans og Nintendo 20.12.2023 36:05
Aftur, árið 2023 er eitt það besta í manna minnum. Það voru ekki bara Playstation leikir í boði í ár. Onei ... Daníel Rósinkrans, GÓÐUR vinur þáttarins, kom til okkar og talaði um Nintendo árið 2023. Zelda, Mario og MARGT fleira! Stay tuned fyrir næstu þætti um árið 2023! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
186. Árið 2023 vol. 1: Siggi Sören og Diablo IV 13.12.2023 45:00
Áramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins er ÞREFALDUR í þetta skiptið! Í sett koma sérfræðingar um alls kyns tölvuleiki og fjalla um árið með Arnóri og Gunnari. Við byrjum á Sigga Sören (siggividis94 á Playstation) sem talar um sinn uppáhalds leik ársins sem er Diablo IV, ásamt mörgum fleirum. Takk fyrir komuna Siggi og gleðilegt ár! Næsti þáttur kemur svo út í næstu viku og þið þekkið rest! Þátturi...
185. Uppvakningar og kúrekar 04.12.2023 46:19
Árið 2010 kom út eitt stykki aukapakki. Aukapakkinn gerði þér kleift að skjóta meira en bara kúreka. Þú gast skotið UPPVAKNINGA. Já börnin mín góð, í þætti vikunnar ræðum við UNDEAD NIGHTMARE. Frábær aukapakki sem er mögulega sá besti. Hvað finnst þér?
184. ALLT um Spider-Man 2! 27.11.2023 51:13
Eruð þið tilbúin? Einn af leikjum ársins í STÚT fullum þætti. Þið lásuð rétt; ENGAR HÖMLUR! Við tölum um söguna, vondu kallana og margt, MARGT fleira. Þannig: RISASTÓR HÖSKULDARVIÐVÖRUN FYLGIR ÞÆTTINUM! Hvað fannst þér um Spider-Man 2? Ertu sammála Arnóri Steini eða Gunnari? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
183. Journey vs. Untitled Goose Game 20.11.2023 42:23
Hvað er betra en einstakur og áhrifamikill indie leikur? TVEIR einstakir og áhrifamiklir indie leikir. Þið þekkið þetta, Arnór Steinn kynnir hinn draumkennda Journey frá 2012 og Gunnar kynnir Untitled Goose Game, þar sem þú spilar sem gæs sem veldur usla og skelfingu í bresku þorpi. Hefur þú spilað annan hvorn? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
182. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir XII: The Super Mario Bros Movie (2023) 13.11.2023 47:23
"It's a-me!" Segir Chris Pratt sem Super Mario. Þetta er setning sem mörg okkar bjuggust ekki við að lesa. Super Mario Bros kom út í ár, teiknimynd sem er raunverulega ekkert það slæm. Arnór Steinn og Gunnar greina hana samt í tætlur og hafa margt skemmtilegt að segja. Er Super Mario Bros myndin málið? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
181. Phantom Liberty með Daníel Frey 06.11.2023 42:34
Fyrsta og eina DLC sem kemur út fyrir Cyberpunk 2077. Búið er að yfirhala leikinn svo gott sem frá toppi til táar - hann er eiginlega eins og hann átti að vera í byrjun. En er hann góður? Arnór Steinn fær Daníel Frey, hype-málaráðherra Cyberpunk í sett til að ræða aukapakkann. Við förum ekki djúpt í spoilera þannig þátturinn er öruggur til áhorfs! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
180. Spiderman 2!!! 25.10.2023 51:30
“If it ain’t broke, don’t fix it … but still make it slightly more better.” Það er varla hægt að kjarna Spider-Man 2 betur. Þetta er bara heimskulega góður leikur og hananú. Arnór Steinn og Gunnar fengu eintak fyrir nokkrum vikum og eru búnir að spila hann í döðlur. Þátturinn er algjörlega höskuldarviðvörunarlaus - bara fyrstu hughrif okkar og helvítis stemming. Hvað er nýtt, helstu breytingarnar...
179. Ekki Fifa ... samt Fifa ... en samt ekki ... 18.10.2023 48:31
Helvíti er frosið, svín fljúga og upp er núna niður. Arnór Steinn prófaði fótboltatölvuleik og fannst það bara gaman. Í þætti vikunnar ræða drengirnir um EA FC 24. Ferlið á bak við gerð leiksins var EA að copya heimavinnuna hjá sjálfum sér og setja annað nafn á. Þetta er bara Fifa, krakkar. Þátturinn er bráðfyndinn þó hann sé um fótbolta. Þið getið líka horft á hann til að sjá hvað Arnór er brjálæ...
178. Geislavirkt kampavín - Fallout New Vegas 04.10.2023 17:23
Gunnarslaus vika þýðir bara eitt: Arnór Steinn gerir loksins þátt um Fallout New Vegas. Við erum í styttri kantinum í vikunni, Arnór talar bara stuttlega um af hverju honum finnst NV vera besti leikur allra tíma og sýnir gameplay nærri því allan tímann. What's not to like? Værir þú til í að sjá Arnór streyma leiknum? Láttu okkur vita! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
177: Ýttu á V til hrækja á undirmenn þína 27.09.2023 46:00
Arnór Steinn og Gunnar eyða sínum tíma í að drulla yfir aðra leiki. Hvernig er þegar þeir ákveða að búa til sinn eigin? Þið þekkið þetta, hlustendur og áhorfendur kærir. Þemað að þessu sinni er GAME OF THRONES - eða, eins og Arnór væri frekar til í að kalla það - A SONG OF ICE AND FIRE. RPG? RTS? MMO? Hvað velja þeir að búa til? Hlustið og finnið út! Hvernig leik værir þú til í að spila í ASOIAF h...
176. Stripparar, vændiskonur eða blöðrur 20.09.2023 53:48
Red Dead er kominn aftur. Á 50 dollara. Engin breyting, bara port. Gunnar er himinlifandi. Arnór er sáttur, en samt ekki alveg nóg. Við tökum fyrir einn áhrifamesta leik allra tíma – Red Dead Redemption – fyrir í þætti vikunnar. Ævintýri John Marston í mjög einfaldri litapallettu sem Arnór vill meina að sé ekki mikið annað en tech demo fyrir það sem varð svo Red Dead 2. Hvað finnst þér um endurútg...
175. Starfield - fyrstu hughrif 13.09.2023 53:50
Klárlega stærsti leikur ársins er kominn út og nú reynir á PC tölvurnar. Arnór Steinn er búinn að spila slatta og taka upp gameplay. Hann segir hér frá sínum fyrstu hughrifum enda af nægu að taka. Gunnar (VELKOMINN AFTUR GUNNAR MINN) er forvitinn um hvernig svona tölvuleikur virkar og tekur að sér hlutverk spyrils. RPG elementar, combat, skipaflug og margt fleira í stútfullum þætti um einn eftirvæ...
174. Spjall með Marín Eydal 06.09.2023 1:29:31
Það er brjálað að gera hjá Marín þessa dagana. Arnór Steinn spjallar við hana um Skyrim, streymi, Starfield og margt, MARGT fleira. Við fáum líka EXCLUSIVE SKÚBB um ekki bara eitt, heldur TVÖ leyniverkefni sem hún er með í bígerð. Hlustið, horfið og njótið! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
173. Final Fantasy XVI - með Geir Finnsson 30.08.2023 1:15:26
Hádramatík – háfantasía – há … r … já, hár! Final Fantasy XVI er til umræðu í þætti vikunnar. ENN á ný erum við í nýju stúdíói (þó í sama rými, bara aðeins til hægri) og án Gunnars. Í hans stað kemur FF nördinn og altmultigtmaðurinn Geir Finnsson. Hann hefur verið heltekinn af seríunni síðan um aldamótin síðustu og ræðir leikinn í þaula við Arnór Stein. Bardagakerfi, karakterar, vondukallar og tón...
172. Gunnar snýr aftur! 23.08.2023 34:58
Þið lásuð rétt, Gunnar snýr aftur!! Strákarnir fara yfir stöðuna og segja frá spennandi hlutum sem eru að fara að gerast. Þættir Tölvuleikjaspjallsins eru að fara að lenda á nýjum stöðum og við erum aðeins að stokka upp í formattinu. Viltu vita meira? Hlustaðu og/eða horfðu! Þátturinner í boði Elko Gaming og Serrano.
171: System Shock Remake 16.08.2023 38:21
Eru gömlu góðu leikirnir jafn góðir ef færðir yfir í nútímabúning? Það er spurningin sem System Shock endurgerðin reynir að svara. Arnór Steinn sýnir gameplay og ræðir leikinn í þaula. Þetta er góður leikur sem vantar aðeins upp á að verða frábær. Hvað fannst þér um System Shock endurgerðina? Láttu okkur endilega vita! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
170. Baldur's Gate III - fyrsta hurðin sem þú sérð er rassgat 10.08.2023 25:24
… fyrirgefðu, hvað? Leikur vikunnar er Baldur’s Gate, en fyrst ætlar Arnór Steinn aðeins að segja ykkur hvað er í gangi hjá Rockstar og Red Dead Redemption. Annar þáttur í styttri kantinum en það er bara af því að við erum að finna ryþmann. Fyrstu hughrifin LIVE af Baldur’s Gate III og stemmingin er rosaleg! Allt getur gerst, hurðar geta verið rassgöt og Arnór getur klúðrað einföldu combat encount...
169. Sumarfríið búið! Leikir sumarsins og framtíð Tölvuleikjaspjallsins 04.08.2023 24:10
Gleðilegt haust kæra fólk! Í þætti vikunnar er það bara Arnór Steinn sem ræðir við ykkur úr heimastúdíóinu. Gunnar er kominn í gott orlof, en við munum sjá hann síðar. Arnór Steinn fer stuttlega yfir þá leiki sem hann hefur spilað í sumar og sýnir gameplay úr þeim öllum. Svo er það mál málanna: Framtíð Tölvuleikjaspjallsins. Engar áhyggjur, við erum ekki að hætta. En með Gunnar úr myndinni í einhv...
168. Þriggja Ára Afmæli þáttur 3! Hver er besti þátturinn okkar? 19.07.2023 49:01
Þriðji og síðasti afmælisþáttur mánaðarins! Hér fara Arnór Steinn og Gunnar yfir allan katalóginn og reyna að svara spurningunni; Hver er besti þáttur Tölvuleikjaspjallsins? Það er ekkert eitt svar. Við spurðum samt fylgjendur okkar á Instagram, fórum yfir sjálfir og rifjum upp okkar uppáhalds þætti. Ef þú mættir bara velja einn, hver væri þinn uppáhalds þáttur af Tölvuleikjaspjallinu? Við þökkum...
167. Þriggja Ára Afmæli þáttur 2! Yfirferð á 2023 12.07.2023 41:53
Tölvuleikjaspjallið heldur áfram að fagna þriggja ára afmæli! Í þætti vikunnar fara Arnór Steinn og Gunnar yfir þá leiki sem komnir eru út á árinu 2023. Margt gott, sumt slæmt, allt áhugavert! Fagnaðu afmælinu með okkur og taktu þátt í umræðunni! Sendu á okkur á Instagram og við getum rætt um allt tölvuleikjatengt! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano
166. Þriggja ára afmæli - hluti I - Hvernig voru fyrstu þrír þættirnir? 05.07.2023 56:52
Tölvuleikjaspjallið er þriggja ára gamalt!!! Í tilefni þess verður júlímánuður helgaður afmælisþáttum og þetta er sá fyrsti. Arnór Steinn og Gunnar rifja upp fyrstu þrjá þættina, Leikjaspjall, Skyrim og Red Read Redemption 2. Hvernig voru þeir í byrjun? Hvað hefur breyst? Er Red Dead 1 endurgerð á leiðinni? Við þökkum hlustendum og áhorfendum kærlega fyrir meðfylgdina þessi þrjú ár. Við elskum ykk...
165. Melína Kolka - Sega Mega, Star Wars og TÍK 28.06.2023 1:20:16
Melína Kolka er heldur betur mikilvægt nafn í íslensku tölvuleikjasenunni. Hún var á meðal þeirra sem stofnuðu RÍSÍ á sínum tíma og hún stendur á bak við Tölvuleikjasamtök Íslenskra Kvenna - eða TÍK eins og það er skemmtilega stytt. Hvernig var að spila Sonic á Sega Mega sem krakki? Hvernig var upplifunin að stofna RÍSÍ og hvað kom til að hún setti á fót TÍK? Hver er besta röðin til að horfa á Sta...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.