Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
164. Diablo IV - fyrstu hughrif 21.06.2023 59:03
Verið velkomin til helvítis. Í þætti vikunnar fjalla Arnór Steinn og Gunnar um sín fyrstu hughrif af DIABLO IV. Hann má flokka sem “hell simulator” eða bara sem “fjandi góður leikur.” Classar, bardagakerfi, útlit, spilun og margt fleira. Hér er á ferðinni einn andskoti skemmtilegur leikur. Ef þú ert eitthvað efins um að þetta sé fyrir þig – horfðu þá og við gerum okkar besta að breyta skoðuninni þ...
163. Summer Games Fest 2023 - Starfield, Assassin's Creed og fleira 14.06.2023 47:51
Þá er kynningar seasonið að klárast og Summer Games Fest nýbúið. Arnór Steinn og Gunnar horfðu á allt klabbið og tóku saman það helsta og stærsta. Við ræðum um spennandi verkefni eins og Assassin's Creed, Spiderman 2, Mortal Kombat 1 og MARGT fleira. Hvað vakti mesta spennu hjá ykkur? Hlökkum til að heyra hvað þið hafið að segja! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
162. Jedi Survivor þáttur 2 - sítt að aftan og motta 07.06.2023 1:14:47
Endure and survive! Nei, sorrí, vitlaus sería ... Í þætti vikunnar tökum við seinni helming af umræðunni okkar um Jedi Survivor, einn af stærstu leikjum ársins enn sem komið er. Við þurftum aðeins að passa okkur á spoilerum í síðasta þætti, en nú er allt uppi á borðinu! Arnór Steinn og Gunnar ræða alla söguna, karaktera, mismunandi spilunarstíla, bardagakerfi, bossa og margt, MARGT fleira! Smekk f...
161. Allt frá Playstation Showcase 2023! 02.06.2023 1:09:01
Hvað eru tveir dagar á milli vina? Í þætti vikunnar fjöllum við um alla leikina sem voru sýndir á Playstation Showcase síðustu viku! Þættinum seinkaði um nokkra daga út af smá skipulagsveseni, en hann er hér nú! Metal Gear Solid, Phantom Blade, Ghostrunner II, Marathon og auðvitað Spiderman 2, ásamt mörgum fleirum! Hvað fannst þér um sýninguna? Ásættanlegt eða vantaði eitthvað upp á? Þátturinn er...
160. Búum til Star Wars leik! 24.05.2023 57:58
Hvernig er þinn drauma Stjörnustríðs leikur? Við spurðum okkur þessarar spurningar og ákváðum að skrifa upp okkar eigin Star Wars tölvuleiki! Þetta er eins og í þætti númer 100 þar sem Arnór Steinn bjó til leik og Gunnar bjó til leik. Hvernig leik haldið þið að strákarnir geri? Open World RPG? Top down RTS? Hvorn væruð þið frekar til í að spila? Látið okkur vita! Þátturinn er í boði Elko Gaming og...
159. Nintendo hluti I - Spilað við Yakuza 17.05.2023 49:17
Vissir þú að á upphafsárum sínum var einn ástsælasti tölvuleikjaframleiðandi heims bendlaður við japönsku mafíuna? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í sögu Nintendo. Fyrirtækið var stofnað í Japan árið 1889 og hefur heldur betur tekið breytingum síðan þá. Þessi fyrsti þáttur okkar um japanska risann fjallar um fyrstu sirka hundrað árin, frá stofnun alveg þangað til áhrifamesta leikjatöl...
158. Star Wars: Jedi Survivor 10.05.2023 1:06:50
Fimm ár eru liðin og Cal Kestis er enn að rogast við að fella veldið. Það gengur ekkert sérstaklega vel. Framhaldið af óvænta smellnum Fallen Order er loksins komið út! Arnór Steinn og Gunnar tala um sín fyrstu hughrif. Við ræðum spilun, geislasverð og karaktera. Nóg að tala um þó við spillum ekki sögunni. Eins og fyrr sagði; fyrstu hughrif. Ekkert talað um söguna, bara hvernig leikurinn er og spi...
157. Horizon Forbidden West: Burning Shores 03.05.2023 1:09:35
Horizon heldur áfram að vera einn sá allra flottasti á markaðnum ... Burning Shores kom út við fínustu móttökur um daginn og er enn önnur rósin í hnappagatið hjá Guerilla Games. Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um aukapakkann. Söguna, karaktera, vopn og auðvitað grafík. Það er nóg að tala um þegar Aloy fer til Hollywood! Einnig eyðum við smá tíma í að ræða alla neikvæðu athyglina sem leikurinn er...
156. Doom Eternal - með Danna Frey 26.04.2023 1:04:50
Hvað gerir Arnór þegar Gunnar er að borða kjötbollur útí Svíþjóð? Jú, hann stelur einum af góðvinum þáttarins og þvingar hann til að tala um Doom Eternal! Arnór Steinn og Daníel Freyr ræða allt sem ræða má um Doom Eternal. Daníel talar af innlifun um DOOM DANSINN og Arnór er bara smáá of lélegur í téðum dansi. Hvað fannst þér um Doom Eternal? Láttu okkur vita! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Se...
155. Endalok E3? 19.04.2023 39:40
Þær sorglegu fréttir bárust til tölvuleikjaáhugafólks um daginn að E3 væri slaufað enn eitt árið - líklegast að eilífu. Arnór Steinn og Gunnar fara í saumana á þessari ágætu hátíð. Á tímabili voru þetta "jólin" fyrir tölvuleikjasamfélagið en síðustu ár hefur mikilvægi hennar dalað. Hvers vegna ætli það sé? Heldur þú að E3 muni snúa aftur? Ef ekki, muntu sakna þess? Tjékkaðu á fréttaskýringunni sem...
154. Resident Evil 4 Endurgerðin - með Daníel Óla 12.04.2023 1:03:46
Einn, yfirgefinn einhvers staðar á Spáni, með byssu og hníf. Leon Kennedy hefur aldrei liðið betur. Í þætti vikunnar tökum við fyrir allt um Resident Evil 4 endurgerðina! RE sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins, hann Daníel Óli, mætti í sett til að hjálpa okkur að fara yfir þennan ágæta leik. Sá kom upprunalega út árið 2005 en kom út um daginn, endurgerður frá toppi til táar. Við ræðum allt um þenna...
153. Atomic Heart - Spark'í þjarka 05.04.2023 55:08
Við höldum áfram umfjöllun okkar um nýja tölvuleiki á árinu. Í þetta sinn er það ATOMIC HEART, umdeildur og áhugaverður leikur sem lenti í hillum fyrir dottlu síðan. Þú stjórnar hermanninum P-3 í gegnum heim sem er innblásinn af Bioshock og Fallout, þar sem vélmennaháð samfélag þarf að takast á við það að vélmennin eru allt í einu ekki lengur með samfélaginu í liði. Arnór Steinn og Gunnar ræða all...
152. Playstation VR 2 test - samstarf með ProGamer.is 29.03.2023 47:20
Hefur þig ekki alltaf langað til að sjá Arnór Stein og Gunnar fíflast um með VR gleraugu? Í þætti vikunnar fengum við nefnilega PS VR 2 í láni frá vinum okkar hjá ProGamer.is og spiluðum slatta síðustu daga. Okkur fannst góð hugmynd að taka græjurnar með uppí stúdíó og taka upp hvað við lítum fáránlega út með gleraugun á smettinu. Við prófuðum leiki eins og Horizon: Call of the Mountain, Pavlov og...
151. The Last of Us á HBO - hvað fannst okkur um seríuna? 22.03.2023 1:05:03
Serían er búin og við sitjum eftir hágrenjandi. Ævintýri Joel og Ellie á litla skjánnum er lokið í bili. Arnór Steinn og Gunnar fara yfir seríuna alla. Við skoðum hvað var ólíkt með leiknum og þáttunum, hvað okkur fannst um leikara og meira spennandi. Höskuldarviðvörun fylgir þættinum, við tölum um allt sem tengist seríunni og höldum ekki neinu eftir. Hvað fannst þér um The Last of Us á HBO? Hvar...
150. Tölvuleikjaspjallið Unplugged 15.03.2023 1:08:27
*ATH KÆRU HLUSTENDUR OG ÁHORFENDUR* Við viljum vekja athygli á því að sökum anna og tímaskorts þá er þáttur vikunnar með MJÖG óhefðbundnu sniði. Hann er tekinn upp í ótilbúnu heimastúdíói Arnórs Steins og gæðin eru ekkert sérstaklega góð. Því miður þá gafst ekki tími í að rýna almennilega í hljóðið og laga alls staðar, þannig þátturinn er mjög hrár, en hann er hlustanlegur. Í tilefni þess að þetta...
149. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir XI: Sonic the Hedgehog 2 08.03.2023 1:01:59
Ellefti þátturinn í frábæru seríunni ÖMURLEGAR TÖLVULEIKJAKVIKMYNDIR er kominn út! Í þetta skiptið tökum við fyrir Sonic The Hedgehog 2. Broddgölturinn knái mætir aftur til leiks og bætir heldur betur við sig liðsauka. Nýir en kunnuglegir karakterar koma á skjáinn, þá helst Tails og Knuckles. Arnór Steinn og Gunnar ræða alla myndina eins og í síðustu þáttum. Karakterarnir, plottið, senur og margt,...
148. Hogwarts Legacy - galdrasnilld eða dropi í haf RPG leikja? 01.03.2023 1:30:17
*HÖSKULDARVIÐVÖRUN FRÁ 00:51:34 TIL 00:57:35* * Áður en þið hlustið á þáttinn viljum við hafa það á hreinu að Tölvuleikjaspjallið er ekki á sömu blaðsíðu og skapari Harry Potter heimsins hvað varðar trans samfélagið. Arnór Steinn kemur með betri yfirlýsingu um þetta áður en við ræðum leikinn. Við virðum skoðun þeirra sem vilja hundsa leikinn og munu þá líklegast hundsa þennan þátt. Það er allt í l...
147. Elden Ring þáttur 2 með Snorra Frey @badgoof 22.02.2023 1:21:26
Til að fagna því að það er ár síðan við gerðum síðast þátt um Elden Ring, þá gerum við annan þátt! Í þetta skiptið fáum við góðann gest í sett, engan annan en Snorra Frey, sem streymir á Twitch undir heitinu @badgoof. Arnór Steinn og Gunnar hafa ekkert verið að fela skoðanir sínar á leiknum - þeir einfaldlega fíla hann ekki. Snorri er hins vegar MIKILL aðdáandi og því nóg til að spjalla um. Við r...
146. Dead Space endurgerðin 15.02.2023 58:28
Kjúklingarnir í Tölvuleikjaspjallinu hentu sér að sjálfsögðu í endurgerðina á einum áhrifamesta hryllingsleik okkar tíma! Dead Space er til umræðu og HVÍLÍK umræða! Arnór Steinn er mega pepp í leikinn en Gunnar er það alls, alls ekki. Við förum yfir söguna, karakterana, spilunina og margt fleira í stútfullum þætti. Við þurfum því miður að spilla fyrir sögunni og öðrum smáatriðu...
145. Væntanlegt árið 2023! 08.02.2023 52:39
Þið spurðuð svo við svörum! Í þætti vikunnar tökum við saman helstu og eftirvæntustu leiki ársins. Nú þegar eru komnir út Forspoken og Dead Space endurgerðin, og mörg ykkar eru komin með Hogwarts Legacy í hendurnar. Árið byrjar heldur betur sterkt og það er NÓG eftir! Atomic Heart, Wo Long, Jedi Survivor, Resident Evil 4 Endurgerðin, Legend of Zelda: Tears of the Kingdom, Spider-Man 2 og Starfield...
144. Forspoken - fyrsti stóri leikur ársins 01.02.2023 1:05:27
Út á hvað gengur Square Enix leikurinn Forspoken? Frey og talandi armbandið hennar Cuff ferðast um ævintýralandið Athia og frelsa heimafólk frá banvænni bölvun og bandbrjáluðum seiðkerlingum. Þetta er ef til vill stysta leiðin til að lýsa fyrsta stórleik ársins 2023. Það eru margir mjög eftirvæntir leikir á leiðinni, mun Forspoken setja tóninn? Arnór Steinn og Gunnar henda í höskuldarlausa umfjöll...
143. Hades 25.01.2023 57:09
Leikur ársins 2020 er loksins til umfjöllunar í tölvuleikjahlaðvarpi Íslands! Roguelike hack-and-slash ævintýrið Hades kom sá og sigraði með einstaklega flottum listastíl og skemmtilegu formi. Zagreus, sonur Hadesar, guðs undirheima grískrar goðafræði, vill ólmur drullast úr vítisvistinni og þarf að ferðast í gegnum fjögur svið helvítis. Hver dauði er tækifæri til að læra hvað fór úrskeiðis...
142. The Last of Us á HBO - fyrstu hughrif 18.01.2023 44:46
Biðin er loksins á enda! Pedro Pascal er Joel og Bella Ramsay er Ellie ... sjónvarpsserían The Last of Us er byrjuð. Arnór Steinn og Gunnar eru snöggir að setjast í stúdíó og fjalla um fyrsta þáttinn. Við tökum fyrir okkar fyrstu hughrif, hvað okkur finnst um leikara, karaktera, framsetningu og margt fleira. Það er erfitt að fjalla um þáttinn án þess að spoila neinu, en við pössum okkur að þylja e...
141. Ekkert nema CS fyrir g00nhunter - viðtal við Rósu Björk 11.01.2023 58:15
Það var löngu kominn tími á annað viðtal við íslenskan streymara! Hún Rósa Björk - g00nhunter - kíkti í stúdíóið og sagði okkur aðeins frá sér! Rósa er búin að vera að streyma núna í meira en ár og hefur vel látið til sín taka. Hún tók sólarhringsstreymi í febrúar til styrktar Píeta samtakanna, hefur spilað ekkert nema CS og er með góðann fylgjendahóp. Hún segir okkur hvernig svekkjandi COVI...
140. Áramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins 2022! 28.12.2022 1:30:29
Þriðja árið okkar í loftinu er liðið og við erum í banastuði! Þetta er búið að vera algjörlega frábært ár í alla staði, fullt af geðveikt skemmtilegum leikjum sem hafa vakið athygli og aðrir sem hafa mögulega flogið undir radar hjá okkur flestum. Arnór Steinn og Gunnar taka saman allt sem gerðist á árinu. Við skoðum hvaða leikir komu út, hvað við vorum að spila, hvað vakti lukku og hvað endaði í k...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.