Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Author
Podcaststöðin
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
139. Marvel's Midnight Suns - með Tómasi Árna 21.12.2022 1:19:03
Þegar djöflar og skrambar skríða um jörðina og Hefnararnir ná ekki að stoppa ógnina, þá þarf að kalla í Miðnætursólirnar! Já heldur betur krakkar mínir, í þætti vikunnar tökum við fyrir Marvel‘s Midnight Suns. Leikurinn kom hressilega á óvart, er með skemmtilega turn-based spilun og alls konar gúmmelaði sem við vitum að þið munið fíla. Við fengum góðann gest til að ræða leikinn með okkur, Tómas Ár...
138. This is the Police vs Papers Please 14.12.2022 53:31
Tökum okkur smá pásu frá þessum hefðbundnu AAA leikjum og kíkjum á tvo lítt þekkta! Já börnin mín góð, það er kominn tími á einn góðann VS þátt, þar sem annar talar um leik sem hinn hefur ekki spilað. Við höfum gert nokkra svona þætti sem iðulega lætur fólk rífa upp veskið og festa kaup. Arnór tekur fyrir leikinn Papers Please, þar sem þú tekur að þér verkefni landamæravarðar í...
137. Resident Evil umræða með Daníel Óla frá Trivialeikunum 07.12.2022 1:07:15
"What is this, a crossover?" Heldur betur kæru vinir! Við fengum góðann gest í myndverið fyrir þátt vikunnar, hann Daníel Óla sem er nördi mikill og stjórnandi spurningahlaðvarpsins Trivialeikarnir. Umræðuefnið er RESIDENT EVIL serían í heild sinni! Daníel hefur spilað leikina áratugum saman og er mikill áhugamaður. Þar sem Arnór Steinn og Gunnar eru algjörir kjúklingar og hafa ekki...
136. God of War Ragnarök - annar þáttur 30.11.2022 1:33:39
Nú eru þrjár vikur síðan þessi frábæri leikur kom út og mörg ykkar eru ekki bara búin með hann - heldur búin að PLATÍNA hann. Þá er upp lagt að við gerum annan þátt þar sem við getum rætt ALLA söguna án nokkurra takmarkana! Já í þætti vikunnar fara Arnór Steinn og Gunnar yfir alla sögu leiksins, frá fyrstu sekúndum yfir í "leyni" endann. If you know, you know. Við eyðum ekki f...
135. CD Projekt Red 23.11.2022 1:03:42
Pólski tölvuleikjaframleiðandinn CD Projekt Red hefur farið í gegnum ævintýralegan feril. Þeir byrjuðu að selja krakkaða CD diska af vinsælum bandarískum leikjum árið 1994 og tuttugu árum síðar kom út The Witcher 3. Þetta er ofureinföldun á góðri sögu, en er efni vikunnar! Arnór Steinn og Gunnar kafa í sögu CDPR, allt frá auðmjúkri byrjun yfir í að verða verðmætasta fyrirtæki Pól...
134. God of War Ragnarök - fyrstu hughrif með Daníel Rósinkrans 16.11.2022 1:02:16
*ATH: ENGIN HÖSKULDARVIÐVÖRUN Á ÞÆTTINUM!* Biðin er LOKSINS á enda! Ekki eftir Ragnarökum, heldur eftir þætti Tölvuleikjaspjallsins um hann! Já heldur betur, við erum mörg hver búin að spila nýja God of War leikinn í DÖÐLUR og gátum varla beðið eftir að hlaða í þátt um hann. Til að halda upp á fáum við frábæran gest í sett, engan annan en Daníel Rósinkrans! Tölvuleikjanördar og unnendur ættu að þe...
133. Þáttur 133: Strákarnir velja sín tölvuleikjamemes 09.11.2022 1:21:01
Tölvuleikjaspjallið er aftur komið í myndbandsform!!! Það kom að því að við settumst aftur í myndver Rafíþróttasamtaka Íslands þar sem við ætlum héðan í frá að taka upp okkar þætti! Í tilefni þess ætlum við að fylla út í "Video Game Memes" spjald, þar sem við veljum eftir alls konar flokkum, eins og "Uppáhalds listastíll" "Ég hata en aðrir elska" og "Vanmetinn". Við erum með reglu, það má ek...
132. Witcher 3: The Wild Hunt - þáttur 2 02.11.2022 1:25:57
Heilu ári síðar er loksins komið að því - annar þáttur í tilvonandi seríu strákanna um einn merkasta tölvuleik okkar tíma. Gunnar er kominn aðeins lengra og það er af nægu að taka. Restin af Velen og svo Novigrad söguþræðirnir verða ræddir í þaula í þætti vikunnar. Arnór er búinn að vera að spila líka og er því aðeins meira á nótunum. Ef það er ekki komið nógu mikið á hreint núna þá er alveg...
131. XCOM 2 - "Farðu heim, E.T!" 26.10.2022 1:10:31
"Velkominn aftur, foringi," Þáttur vikunnar er um taktíska leikinn XCOM 2, þar sem þú ferð í stígvél Foringjans og stjórnar bókstaflega ÖLLU í upprisu mannkyns gegn geimveruinnrásaher. Arnór Steinn og Gunnar hafa rætt þennan ágæta leik í öðrum þætti, en þá var rétt stigið yfir helstu atriði í mýflugumynd. Nú er Arnór loksins búinn að spila leikinn eitthvað og hægt er að gera þátt. Við höfum...
130. Electronic Arts hluti III - Skrýmslið sem varð að veldi 19.10.2022 1:02:32
Electronic Arts. Fyrirtækið sem svífist einskis við að plokka peningana af þér. Í þessum lokaþætti þríleiks Tölvuleikjaspjallsins um “The Evil Empire” fara Arnór Steinn og Gunnar yfir sögu EA frá sirka 2010. Star Wars samningurinn, ævintýralegur gróði, skuggalegir viðskiptahættir, Battlefront fíaskóið og margt, MARGT fleira. Eins og ef til vill sést, þá er af nægu að taka. Þessi áratugur var sérst...
129. God of War 2018 - annar þáttur OG upphitun fyrir Ragnarök! 12.10.2022 1:06:53
"Hringrásinni lýkur hér. Við verðum að vera betri en þetta." Heldur betur, Kratos, vel mælt. Þáttur vikunnar er upprifjun á God of War frá 2018. Í fyrri þætti ræddum við einungis söguna, geymdum allt auka stöff fyrir annan þátt. Hann er hér! Við tökum allt fyrir í þessum þætti. Umhverfi, óvini, greiða fyrir dverga, dreka og margt, margt fleira. Ef það er ekki nógu ljóst núna þá er alveg eins gott...
128. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir X: Warcraft (2016) 05.10.2022 1:08:54
Í þessum TÍUNDA þætti okkar af Ömurlegum Tölvuleikjakvikmyndum tökum við fyrir eina nýlega: Warcraft frá 2016. Heimi manna er steypt á hvolf þegar hersingar orka birtast í miðjum skógi og stríð á milli kynþátta gerir öllum lífið leitt. Þetta er tekjuhæsta tölvuleikjakvikmynd allra tíma, sem ætti nú að segja eitthvað. Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um myndina og gagnrýna það sem gagnrýna þarf. Þa...
127. Stærsti leki tölvuleikjasögunnar 28.09.2022 1:05:11
Auðvitað gerum við þátt um einn stærsta leka tölvuleikjasögunnar! Hvað haldiði að við séum? Arnór Steinn og Gunnar kryfja myndefnið sem var lekið um daginn og reyna að sjá hverju má við búast í næstkomandi Grand Theft Auto leik. Rockstar er á fullu að fjarlægja allt sem tengist lekanum af netinu, þannig að það verður erfiðara og erfiðara að finna góð myndbönd til að horfa á. Við tölum um byssur, b...
126. The Last of Us - Part 1 21.09.2022 1:11:30
Tölvuleikjaspjallið var tveggja ára og tveggja mánaða gamalt þegar loksins var fjallað um einn besta leik allra tíma. Réttara sagt, endurgerð á einum besta leik allra tíma. Jú börnin góð, í þætti vikunnar sem er góðfúslegur samstarfsþáttur með Elko Gaming, ætlum við að kafa í nýútkominn The Last of Us Part 1, þar sem grafík, bardagakerfi, hljóð og margt meira hefur fengið andskoti góða yfirhalning...
125. Rollerdrome - rúlluskautaleikurinn sem okkur öllum vantaði 14.09.2022 57:23
Hey, muniði þegar Arnór Steinn og Gunnar töluðu um einhvern rúlluskautaskotleik sem hljómaði ógeðslega vel í Leikjakynningarsprengju þættinum? HANN ER KOMINN ÚT! Playstation og PC spilarar mega ekki láta þennan fara framhjá sér. Hér spilar þú sem rúlluskautandi og skjótandi adrenalínfíkill sem gerir allt til að komast upp á topp. Þetta er virkilega skemmtileg og góð áskorun sem við mælum hik...
124. Saints Row - ný byrjun á seríunni 07.09.2022 1:19:45
Nýr Saints Row þar sem ALLT er nýtt … hvað finnst okkur um það? Arnór Steinn og Gunnar ræða nýjustu tilraun Volition til að lífga við seríuna í þætti vikunnar. Borgin Santo Ileso er leikvöllur ykkar í þetta sinn, þar sem þið getið keyrt um, skotið, sprengt upp og almennt valdið usla á ykkar eigin einstaka hátt. Við ræðum persónur, alla spilun, söguna og margt, margt fleira. Við spillum ekki fyrir...
123. Allt það helsta frá Gamescom 2022! 31.08.2022 1:09:22
Enn önnur leikja kynningar hrina þýðir bara eitt: Enn annar þáttur af Tölvuleikjaspjallinu! Arnór Steinn og Gunnar renna yfir það helsta frá Gamescom sem var haldið í Köln í Þýskalandi (ekki Frakklandi, Arnór, hálfvitinn þinn), enda nóg um að vera. Callisto Protocol, Everywhere, Dead Island 2 bara til að nefna örfá dæmi. Hver var þinn uppáhalds kynning frá hátíðinni? Sendu okkur skiló! Þátturinn e...
122. Úr kokteilum yfir í tölvuleiki - viðtal við RunicDices 24.08.2022 45:46
Hvað gerir Tölvuleikjaspjallið þegar við finnum út að þrír Íslendingar eru að framleiða leik útí Danmörku? Jú, við drögum þá á Discord og fáum þá til að segja okkur frá öllu saman! Þáttur vikunnar er helgaður tölvuleikjaframleiðandanum RunicDices, en við tókum viðtal við Leó, Villa og Axel sem eru búsettir í Danmörku. Fyrsta verkefnið þeirra, leikurinn Nanokings, er enn á framleiðslustigi en um...
121. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir IX: Uncharted 17.08.2022 1:15:31
Þessi erfiða, erfiða spurning vaknar enn á ný: Af hverju er svona erfitt að gera góða tölvuleikjakvikmynd? Við höldum áfram að safna upplýsingum með því að horfa á og gagnrýna Uncharted myndina sem kom út í vor. Tom Holland leikur Nate og Marky Mark Wahlberg leikur Sully. Annar stendur sig vel og hinn stendur sig hrikalega. Arnór Steinn og Gunnar ræða alla myndina eftir bestu getu, karaktera, plot...
120. Kisi á þysi - leikurinn Stray 10.08.2022 1:06:04
Hvað er hægt að segja marga kattabrandara þegar fjalla á um kattaleik? Í stuttu máli; marga. Arnór Steinn og Gunnar dýfa loppunum í frábæra leikinn Stray sem kom út fyrir ekki svo löngu. Um er að ræða stutt og hnitmiðað ævintýri þar sem kisikis, undir þinni stjórn, fer í svaðilför frelsis, safnar nótnablöðum og mjálmar stanslaust. Leikurinn er það stuttur að það hefði ekki verið hægt að fjalla um...
119. Electronic Arts hluti II - Skrýmslið nærist 03.08.2022 57:13
Umfjöllun Tölvuleikjaspjallsins um Veldið Illa heldur ótrauð áfram. Í fyrri þætti (nr 106, mælum með) fórum við yfir upphaf fyrirtækisins og hvað var verið að bralla innan veggja fyrirtækisins fyrstu áratugina. Það var slatti. Í þætti vikunnar fjöllum við um ástandið frá sirka 2000 til 2010. Hvað var EA að gera sem þótti svo skítlegt að innan bransans eru þau þekkt sem Evil Empire? Slatta. Við fjö...
118: Horizon: Forbidden West - Þáttur 2 27.07.2022 1:25:36
Það hlaut að koma að því - strákarnir eru báðir búnir með leikinn og ræða hann í þaula í drekkhlöðnum þætti. Það fylgir því miður höskuldarviðvörun með þættinum, við ræðum alla karaktera og söguþráð sem þýðir að ef þú vilt spila leikinn blint þá mælum við frekar með fyrri þættinum okkar um þennan ágæta leik. Og hvílíkur leikur! Hann startaði árinu með stæl, fínasti opinheimsleikur með sjúklega fló...
117: Ísland og Playstation: Af hverju við fáum ekki Premium pakkann 20.07.2022 50:57
Er Playstation Plus Premium komið í þína tölvu? Tókstu eftir því að við erum ekki með það sem heitir Premium? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í Playstation fréttir síðustu vikna. Premium er vissulega farið af stað og slatti af löndum (þar á meðal Kýpur) geta streymt leikjum eins og Fallout: New Vegas í gegnum netþjón. Skítaskerið Ísland getur það hins vegar ekki. Ásamt því að greina f...
116. The Show Must Go On - viðtal við Mónu og Völlu úr Queens 13.07.2022 1:46:12
Nýr miðvikudagur þýðir nýtt og geggjað viðtal í boði Tölvuleikjaspjallsins! Í þetta skiptið eru það tveir gestir sem skemmta okkur með sögum sínum, Móna Lind og Valla sem eru streymaratvíeykið Queens! Við heyrum hvaðan þær koma tölvuleikjalega séð, hvernig þær kynntust og svo auðvitað hvernig þeim tekst að streyma sirka vikulega þrátt fyrir að allt fari reglulega til fjandans hjá þeim tæknilega sé...
115. Tveggja Ára Afmælisþáttur! 06.07.2022 2:17:09
Vá. Tvö RISA stór ár komin í bankann. Hefðum ekki getað þetta án ykkar hlustenda og ekki án yndislegu styrktaraðilanna. Takk. Takk takk takk TAKK kærlega fyrir áhugann, skilaboðin, peppið og traustið. Við ætlum heldur betur að verðlauna það með frábæru efni héðan í frá. Þessi afmælissérþáttur fjallar um margt. Í fyrsta lagi segjum við frá óreiðuástandi síðustu mánaða. Stúdíóið sem við nefnum ekki...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.