Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

114. Star Wars Jedi Knight 3: Jedi Academy 29.06.2022

Sorrí, einn Star Wars þáttur í viðbót og svo smá pása. Já hlustendur kærir, í dag er það költ leikurinn Jedi Academy sem fær útreið frá Tölvuleikjaspjallinu. Þessi er á meðal elstu sem við höfum fjallað um, alla leið frá 2003. Þá var Arnór eitthvað að dandalast í Terra Mitica á Benidorm og Gunnar var að kenna Skaganum hvernig draga skal tölvustól yfir götu. Í þessum þriðja og síðasta leik Jedi Kni...

113. Ghost of Tsushima III: Iki Island DLC 22.06.2022

*VARÚÐ: HÖSKULDARVIÐVÖRUN FYLGIR ÞÆTTINUM* Draugurinn hefur sigrast á mongólunum … en hann á eftir eitt ævintýri í dýragarðinum á Iki Eyju. Það er rétt hlustendur kærir, í þessum þætti ætlum við að taka fyrir aukapakkann Iki Island sem kom út árið 2021. Ghost of Tsushima heldur áfram að fá geggjaðar viðtökur og ef Director’s Cuttið er ekki komið í safnið þitt þá skaltu laga það hið snarasta. Arnór...

112. Leikja Kynningar Sprengja 15.06.2022

Síðasta helgi var smekk full af kynningum frá hinum og þessum tölvuleikjafyrirtækjum! Arnór Steinn og Gunnar segja frá áhugaverðustu punktunum og koma með hugmyndir um hvað er í vændum. Sony var með State of Play, Geoff Keighley var með Summer Games Fest, við fengum indie veislu hjá Future Games Show og Xbox&Bethesda komu með algjöra haglabyssu af efni. Capcom rúnaði þetta af í gær með nettri...

111. Jedi: Survivor, Kenobi þættirnir og meira Star Wars! 08.06.2022

Hvað segiði, vantaði nýjan Star Wars þátt? Ekkert mál, það er af NÆGU að taka. Nýlega var tilkynnt að framhaldið af Fallen Order væri væntanlegt á næsta ári. Ekki nóg með það, heldur mun hann tengjast nýju Obi Wan þáttunum! Okkur fannst upplagt að ræða þetta allt saman í þætti vikunnar. Við rifjum aðeins upp Fallen Order, hvað við fíluðum við hann og hvernig við sjáum fyrir okkur Survivor. The tri...

110. Mjamix - viðtal við Marín Eydal 01.06.2022

Marín Eydal hefur átt ævintýralegan feril sem streymari. Hún byrjaði að streyma úr einangrun í janúar og er nýbúin að klára seríu af þáttum fyrir GameTíví! Geri aðrir betur! Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska streymara, að þetta sinni er það Marín, eða mjamix eins og hún kallar sig á Twitch, sem kemur í Nóa Síríus stúdíóið og segir okkur frá ferlinum. Við fáum að vita um...

109. Trek to Yomi 25.05.2022

Hvað gerir þú þegar draugar fortíðar byrja að berja þig í alvörunni? Indie leikurinn Trek to Yomi hefur verið umdeildur frá útgáfudegi. Hann er með einstakt lúkk sem virðist ekki hafa verið gert áður. Hins vegar eru ekki allir á eitt um hvort það sé góður hlutur eður ei. Arnór Steinn og Gunnar eru allavega ósammála um leikinn í þessum þætti - eitthvað sem gerist ALDREI. Við ræðum söguna, bardagake...

108. Uncharted 3: Drake's Deception - með Sigurði Pétri 18.05.2022

Er fjársjóður sama virði og vinátta? Það kom loksins að því! Lokahlekkurinn í upprunalegu trílógíunni um Nathan Drake og félaga er hér til umfjöllunar. Við fáum til okkar góðann gest, Sigurður Pétur er sérfræðingur okkar um Uncharted en hann er einmitt sá sem platínaði alla þrjá leikina á einni viku á Playstation 3. Geri aðrir betur. Við tökum söguna, karakterana, spilun og margt margt fleira í st...

107. It Takes Two 11.05.2022

Það er fátt, ef eitthvað, sem skiptir meira máli í samböndum en samskipti. Hvernig er best að sýna fram á það? Jú, með tveggja spilara samspilunarleik! Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í It Takes Two, leik ársins samkvæmt Game Awards í fyrra. Þar stjórna spilarar (já, fleirtala) hjónakornunum May og Cody, en vegna slæmra samskipta eru þau á leiðinni að skilja. Einhverjir galdrar verða...

106. Electronic Arts hluti I - Skrýmsli fæðist 04.05.2022

Við þekkjum öll þetta fyrirtæki. Það var kosið versta fyrirtæki Bandaríkjanna tvö ár í röð, reyndi að plokka peninga af spilurum oftar en þrisvar og hefur margt, margt, MARGT á ferilskránni sem gerir það umdeilt og hatað í tölvuleikjaheimum. En ... af hverju? Af hverju er Electronic Arts svona hatað? Hvað gerði þetta fyrirtæki til að verðskulda þessi viðbrögð? Arnór Steinn og Gunnar kafa í konsept...

105. Ömurlegar tölvuleikjakvikmyndir VIII: Sonic the Hedgehog 27.04.2022

Hver bjóst við því að blá ófreskja myndi kenna okkur mikilvæga lexíu um vináttu í formi bíómyndar? Það er nákvæmlega það sem gerist í hinni ágætu Sonic the Hedgehog frá 2020. Í þessum nýjasta þætti geysivinsælu seríunnar Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir taka Arnór Steinn og Gunnar alls ekki ömurlega mynd fyrir. Þar bregður stórleikarinn Ben Schwartz (betur þekktur sem Jean Ralphio úr Parks & Re...

104. NFT, Örgreiðslur og annað peningaplokk 20.04.2022

Tölvuleikjaspjallið kafar dýpra í alls konar peningalega hluti í þætti vikunnar. Eftir að hafa rætt áskriftir í þaula fórum við aðeins að pæla meira í NFT. Einhver fyrirtæki á markaðnum eru farin að fikta með þetta torskilda hugtak og við viljum endilega útskýra hvað það þýðir fyrir spilara. Hvað er NFT? Hvernig er verið að blanda þeim í heim tölvuleikja? Við stoppum þó ekki þar. Arnór Steinn og G...

103. Tiny Tina's Wonderlands 13.04.2022

Ævintýri, sprengingar, bein og meiri sprengingar! Ef Tiny Tina sjálf væri fengin til að lýsa leiknum sínum væri það mögulega einhvern veginn svona. En við ætlum ekki að eyða einni setningu í að lýsa stórverkinu Tiny Tina‘s Wonderlands. Við ætlum frekar að segja ykkur frá leiknum í þætti! Það er heldur betur umfjöllunarefni vikunnar! Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að kafa í Undraheiminn og segja...

102. Playstation Plus Premium og aðrar áskriftir 06.04.2022

Í dag erum við með bestu tölvurnar, bestu tæknina og sjúklega góða leiki. Gallinn við nútímann er sá að við þurfum fyrst að fjárfesta í þessu öllu og SVO bætist við áskriftargjald við þína uppáhalds leikjatölvu. Já, í dag ætlum við að fjalla aðeins um nýjustu fréttir frá Playstation. Sony ætlar loksins að svara frábærri þjónustu Xbox og bjóða upp á þrepaskipt áskriftarmódel þar sem - já maður - þa...

101. Tölvuleikjagerð í Menntaskólanum á Ásbrú - viðtal við Darra Arnarson 30.03.2022

Þegar gömlu kallarnir í Tölvuleikjaspjallinu voru ungir drengir fyrir sirka 150 árum þá dreymdi þá um að læra eitthvað tengt tölvuleikjum í menntaskóla. Nú í dag, kæru hlustendur, er það hægt. Já heldur betur, Menntaskólinn á Ásbrú er í ár að fara að útskrifa sinn fyrsta hóp sem lærði tölvuleikjagerð innan þeirra veggja - þriggja ára stúdentsprófsnám þar sem þú lærir tölvuleikjagerð! Til að læra m...

100. Strákarnir búa til tölvuleik 23.03.2022

TIL HAMINGJU MEÐ HUNDRAÐASTA ÞÁTTINN ELSKU HLUSTENDUR! Við erum svo endalaust, ENDALAUST þakklátir fyrir þennan frábæra áfanga. Í byrjun var þetta eitt af okkar villtustu takmörkum, að ná að framleiða hundrað stykki en það tókst! Á tuttugu mánuðum tókst okkur að gera fjölbreytta þætti um allt sem tengist tölvuleikjamenningu. Það er ekki amalegt ... Hér bjóða strákarnir upp á viðhafnar útgáfu af um...

99. Splitgate 16.03.2022

Það styttist óðfluga í HUNDRAÐASTA þáttinn okkar og því hendum við í einn léttan þátt um áhugaverðan leik! Umfjöllunarefni vikunnar er einhvers konar bræðingur af Halo, Portal og öðrum FPS leikjum.  Útkoman er Splitgate, leikur sem kemur á óvart þrátt fyrir að vera nokkur einsleitur við fyrstu sýn. Spilarar koma saman í alls kyns leikjategundum en algengasta markmiðið er að slátra hinu liðinu...

98. Elden Ring 09.03.2022

Eftir langa, LANGA bið, er þessi risastóri leikur loksins kominn út. Mörg ykkar hafa beðið í ofvæni eftir honum, mörg ykkar hafa lítið pælt í útgáfunni. Hvað sem því skiptir, þá er umfjöllunarefni vikunnar ELDEN RING. Nýjasta útspil From Software er unnið í samstarfi við hinn margrómaða George R.R. Martin. Leikurinn er margslunginn og flókinn og fokk erfiður, honum er held ég ekki betur lýst í ein...

97. Open World Leikir 02.03.2022

Hvað nákvæmlega er opinheimsleikur? Strákarnir hafa oftar en tíu sinnum lýst yfir aðdáun sinni á slíkum leikjum og því var upplagt að gera þátt sem er algjörlega helgaður þeirri umræðu. Við spyrjum nokkurra spurninga, þá helst: Hvað einkennir góðan opinheimsleik? Eru þeir allir eins? Arnór Steinn og Gunnar skoða sögu leikjastefnunnar stuttlega og fara svo í umræður. Nokkrir leikir breyttu forminu...

96. Horizon Forbidden West 23.02.2022

Hann er loksins kominn! Framhaldið á opinheims ævintýrinu Zero Dawn er í tölvum okkar og er umfjöllunarefni vikunnar. Hér eru bara first impressions, við erum ekki búnir með leikinn og komum bara með fyrstu viðbrögðin. Er hann þess virði? Í stuttu máli þá JÁ.  Í löngu máli þá mælum við með að hlusta á þennan þátt. Hann er laus við allar höskuldarviðvaranir þannig að við skemmum ekki neitt fyr...

95. Rockstar Games 16.02.2022

Nú þegar búið er að tilkynna að GTA 6 komi út á næstu 10-15 árum þótti okkur upplagt að rýna aðeins betur í eitt umdeildasta tölvuleikjafyrirtæki okkar tíma. Rockstar Games! Fyrirtækið sem er á bak við GTA, Midnight Club, Max Payne og Red Dead seríurnar. Hvaðan kom það? Hverjir eru á bak við það? Hvert er það að fara? Við svörum eins mörgum spurningum og við getum ásamt því að renna yfir stutt ævi...

94. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir VII: Assassin's Creed 09.02.2022

Fyrsta mynd hins nýja árs er hin hrikalega lélega Assassin's Creed frá 2016. Hvers vegna í ósköpunum þessi mynd var gerð á þennan hátt er óvíst, en víst er að Arnór Steinn og Gunnar horfðu á alla myndina og ræða hana hér. Michael Fassbender fer með aðalhlutverk sem bæði Callum Lynch og forfaðir hans Aguilar de Nerha. Hann fær það verkefni frá Abstergo samsteypunni að andskotast í líkama forföður s...

93. Uncharted 2 - Among Thieves 02.02.2022

Það er komið nýtt ár, Gunnar er búinn að slátra einangrun og allir eru í HVÍNANDI stuði. Hvað þýðir það? Jú, auðvitað að við ætlum að halda áfram með UNCHARTED seríuna! Fyrsti þátturinn okkar um ævintýri Nate, Sully og Elena (og fleiri) sló í gegn og því ekki eftir neinu að bíða.  Uncharted 2 er í fyrsta lagi frábær viðbót við fyrri leik. Hann byrjar ótrúlega vel, flæðir betur og inniheldur m...

92. God of War 2018 26.01.2022

Fyrst Horizon Zero Dawn og næu God of War. Tveir FRÁBÆRIR leikir sem við fá framhald núna í ár. God of War 2018 var einn af fyrstu leikjunum sem áhorfendur báðu okkur um að taka og hér er hann! Sirka einu og hálfu ári síðar ... seint koma sumir en koma þó. God of War er stórkostlegur leikur. Saga Kratos og sonar hans Atreus hefur bergmálað í tölvuleikjaheimum frá útgáfu og tók sér sæti sem einn áh...

91. Bónusþáttur! Microsoft kaupir Activision Blizzard 21.01.2022

Það er allt of langt síðan síðasti bónusþáttur kom út, þannig að hér er hann!  Fréttir vikunnar og mögulega ársins er að Microsoft festi kaup á Activison Blizzard, umdeildasta tölvuleikjafyrirtæki síðasta árs. Það lá alltaf við að tölvuleikjaspjallið myndi gera þátt um málið, en það er smá hængur á ... Gunnar er í einangrun sem þýðir að gestur þarf að sjá um að stýra þætti vikunnar. Hilmar Sm...

90. Ubisoft 19.01.2022

Þau eru óteljandi tölvuleikjafyrirtækin sem fjölmenna markaðinn, en þau eru ekkert svakalega mörg sem hafa endast í jafn langan tíma. Ubisoft er á meðal þeirra elstu starfandi, enda fyrirtæki sem hefur áorkað miklu. Margar af frægustu seríum heims hafa runnið undan rifjum franska risans. Assassin's Creed, Far Cry og Watch Dogs til að nefna örfá dæmi.  Fyrirtækið er þó ekki skandalslaust. Í ge...

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.