Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

89. Horizon Zero Dawn 12.01.2022

Frumstætt samfélag lifir í eilífri ógn við fornar maskínur sem enginn skilur. Allt í einu fær útskúfuð stelpa tól til að skilja ekki bara tilgang vélanna, heldur forsögu alls mannkyns. Bæði fyrri tortímingu og annarri yfirvofandi. Plottið á Horizon Zero Dawn er drulluflókið þannig að við eyðum frekar tíma í að ræða það í þættinum.  Já, í þætti vikunnar tökum við Zero Dawn í nefið! Stutt er í...

88. Spyro: Reignited Trilogy 05.01.2022

Gleðilegt ár hlustendur kærir! Tölvuleikjaspjallið hefur þetta herrans ár á stórum þætti um Spyro: Reignited trílógíuna!  Arnór Steinn og Gunnar kryfja leikina þrjá og finna hvað er gott og hvað er ekki svo gott. Leikirnir eru mjög ólíkir og því af mörgu að taka.  Við tökum fyrir karakterana, mismunandi objectives í leikjunum þremur, ómöguleg borð og leiðinlegir vondukallar. Það er nokku...

87. Áramótasérþáttur 2021 29.12.2021

Gleðilegt ár kæru hlustendur nær og fjær! Síðasta ár var ekki upp á marga fiska, veður- eða covidlega séð þannig að við ætlum að rífa upp stemminguna með heljarinnar áramótasérþætti! Við förum yfir helstu fréttir og leiki ársins og segjum hvað okkur finnst. Við teljum líka upp margt sem okkur hlakkar til á nýju ári. Það væri engin áramótasérþáttur án ykkar - hlustenda. Við erum svo endalaust þakkl...

86. Uncharted: Drake's Fortune 22.12.2021

Óvenjuleg ævintýri einkenna hinn afar áhugaverða karakter Nathan Drake. Það er einmitt það sem spilarinn fær í andlitið þegar fyrsti leikurinn í Uncharted fjórleiknum er settur í gang. Taumlaust ævintýri með endalausum möguleikum. Já góðir hlustendur, þið spurðuð og við svöruðum. Hér kemur fyrsti þátturinn okkar af (að minnsta kosti) fjórum um Uncharted leikina! Í þætti vikunnar fara Arnór Steinn...

85. Mass Effect 3 - ásamt Bríeti Blæ 15.12.2021

Góðir hlutir koma í þrennum, sagði einhver, ábyggilega, einhvern tímann. Það er einmitt hægt að segja um Mass Effect trílógíuna. Þrír FRÁBÆRIR leikir sem strákarnir eru loksins búnir með! Hvernig fagnar maður því að einhverju þrennu er lokið? Jú, með því að fá þriðju manneskjuna í sett! Við bjóðum hjartanlega velkomna hana Bríeti Blæ, en hún er einn mesti Mass Effect sérfræðingur landsins. Arnór S...

84. Red Dead Redemption 2 - annar þáttur 08.12.2021

Það er aftur byrjað að snjóa sem þýðir að það er upplagt að rifja upp tímann í Red Dead 2 þar sem maður þarf að vaða í gegnum mjaðmadjúpan snjó og flýja risastór bjarndýr. Ójá hlustendur kærir, við erum sko heldur betur að fara að fjalla um tölvuleikinn Red Dead Redemption 2. Aftur! Glöggir aðdáendur muna að einn af okkar allra fyrstu þáttum var um þetta ótvíræða meistaraverk og okkur fannst uppla...

83. XCOM 2 vs Age of Empires 2 01.12.2021

Jólamánuðurinn er hafinn og því er glórulaust að gera annað en að eyða heilum þætti í að tala um tvo herkænskuleiki. Já krakkar mínir nú skulum við sko demba okkur í langdregna, flókna og erfiða leiki þar sem maður þarf að hugsa áður en maður gerir. Horfnir á braut eru dagarnir þar sem maður skýtur fyrst og hugsar svo. Hér skal pælt og sigrað. Gunnar kynnir fyrir Arnóri Steini leik sem hann hefur...

82. Prison Architect 24.11.2021

Er það ekki draumur okkar allra að reka fangelsi í gróðraskyni? Ef svo er þá er Prison Architect leikurinn fyrir þig! Ef ekki þá þarftu ekki að líta í eigin barm. Samt sem áður er Prison Architect leikurinn fyrir þig! Grínlaust þá er um að ræða einn upprunalegasta leik okkar tíma. Arnór Steinn og Gunnar kafa í allt sem tengist leiknum. Það er flókið mál að byggja fangelsi og því nóg að rabba um. E...

81. Nostalgíuspjall Gunnars og Alla 17.11.2021

Þáttur vikunnar er með breyttu sniði. Í þetta skiptið er það Arnór Steinn sem ekki gat komið í stúdíóið. Þáttastjórn fellur því alfarið í hendurnar á Gunnari sem bauð æskuvini sínum, Alexander Maron, til að verma sætið í fjarveru Grjótsins. Alexander hefur áður komið til okkar að ræða tölvuleiki og foreldrahlutverkið, þannig að hann er vel kunnugur staðháttum og hæfur til að halda uppi samræðum. Í...

80. Marvel's Guardians of the Galaxy 10.11.2021

Þú hefur litla sem enga stjórnunarhæfileika og þarft að fara í gegnum vetrarbrautina með fjóra siðlausa morðingja sem liðsfélaga ... hvað gerir þú? Skrýtnar aðstæður? Já heldur betur. En svona er stemmingin í tölvuleiknum Marvel‘s Guardians of the Galaxy kynnt fyrir þér. Þú ert Star-Lord, eða Peter Quill, og þarft að leiða teymið þitt í gegnum alls kyns rugl og vitleysu. Söguþráðurinn er á þann ve...

79. Witcher 3: The Wild Hunt - Hluti I 03.11.2021

Hvernig treður maður einum stærsta leik allra tíma í einn þátt? Stutta svarið er: það er ekki hægt. Tölvuleikjaspjallið ákvað því að gera marga. Já börnin góð, þáttur vikunnar er tileinkaður meistaraverkinu WITCHER 3. Þar sem Gunnar er nýbyrjaður að spila leikinn og við höfum ekki beint tíma til að eyða öllum okkar tíma í einn leik (við erum að spila svona þúsund) þá verður formattið svona: Gunnar...

78. Tölvuleikja-leikari - Viðtal við Aldísi Amah 27.10.2021

Hvernig er það að leika í tölvuleik? Fara í búninginn og láta hreyfifanga (e. motion capture) allt sem þú gerir? Til að finna það út þá fengum við leikkonuna Aldísi Amah Hamilton í heimsókn, en hún leikur aðalhlutverkið í leiknum Echoes of the End frá Myrkur Games. Leikurinn er al-íslenskur og hefur verið ræddur hér áður, þegar við tókum viðtal við Halldór Snæ, framkvæmdastjóra Myrkur. Arnór Stein...

77. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir VI: Free Guy 20.10.2021

Í sjötta þættinum okkar af hinni víðfrægu seríu Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir tökum við fyrir mynd sem er ekki beint tölvuleikjamynd, en er það bara samt. Jú, í dag ætlum við að ræða Free Guy! Ryan Reynolds leikur Guy, en hann er NPC í leiknum Free City . Hann gerir sama hlutinn dag eftir dag og hefur ekkert annað val en að njóta þess. Eitthvað verður til þess að hann verður eitthvað meira - eit...

76. Mass Effect 2 13.10.2021

Ef fyrri Mass Effect leikurinn gerist á umrótstímum, þá gerist þessi í ótömdum glundroða. Hér ræða drengirnir einhvern besta leik sem komið hefur út – Mass Effect 2. ALLT bættist við gerð þessa leiks. Sagan varð dýpri, auka missions urðu fjölbreyttari og skemmtilegri, fleiri karakterar, skemmtilegra díalóg, bíl helvítið farið til andskotans, Garrus á sínum stað og allt í hvínandi botni. Arnór Stei...

75. Deathloop 06.10.2021

Það er alltaf gaman þegar tölvuleikir leika sér með formið. Leikur vikunnar gerir það mjög frjálslega. Hann leikur sér að dauðanum. Deathloop gerist á eyjunni Blackreef þar sem alls ekkert er með felldu. Sami dagurinn virðist ganga aftur og aftur og launmorðinginn Colt Vahn virðist vera sá eini sem veit hvað er í gangi. Hann þarf að gera ógeðslega mikið aftur og aftur til að stoppa geðveikina. Ég...

74. Bíóblaður - viðtal við Hafstein Sæmundsson 29.09.2021

Hvað er þetta, blöndungs þáttur? Heldur betur, í þætti vikunnar fá strákarnir til sín góðan gest, Hafsteinn Sæmundsson stjórnanda Bíóblaðurs! Glöggir hlustendur muna þegar við kíktum til hans í heimsókn og skemmtum okkur konunglega. Núna snúast borðin heldur betur. Arnór Steinn og Gunnar ræða margt og mikið við Haffa. Við förum yfir hvernig það var að byrja með hlaðvarp (hann byrjaði í sömu viku o...

73. Toonstruck - viðtal við Tómas Valgeirsson 22.09.2021

Tíundi áratugur síðustu aldar gaf af sér marga snilldina. Hann gaf líka af sér snilld sem ekki allir þekkja til. Fjölmiðlamaðurinn og atvinnu nördinn Tómas Valgeirsson mætir í stúdíóið til að segja frá einni slíkri snilld. Í þætti vikunnar spjalla Arnór Steinn og Gunnar við Tomma um nokkra áhugaverða leiki frá þessum goðsagnakennda áratug – þá helst point-and-click leiki. Aðalatriðið er falda gers...

72. Playstation Showcase 2021 15.09.2021

Hvílíkt. Og. Annað. Eins. Fyrir utan þessi fjögur orð þá er maður eiginlega nokkuð orðlaus með Sony sýninguna þetta árið. Við fengum fjölbreytta og sjúklega áhugaverða kynningu og ofboðslega spennandi titla sem við hlökkum til að kjamsa á! Arnór Steinn og Gunnar ræða góðu og geggjuðu hlutina við kynninguna en einnig það sem betur mátti fara. Síðast en ekki síst þá ræða þeir það sem nákvæmlega engi...

71. The Outer Worlds 08.09.2021

Fyrir sirka fimmtíu þáttum síðan ræddu Arnór Steinn og Gunnar stuttlega um leikinn The Outer Worlds . Í þætti vikunnar gera þeir það aftur. Bara betur. Ójá. The Outer Worlds er einn af bestu leikjum síðustu ára að mati vina ykkar hjá Tölvuleikjaspjallinu. Hér ræðum við hann í þaula. Allt saman. ALLT! Plottið, baksöguna, vopnin, spilunina, krúið, skipið, pláneturnar, fagurfræðina og hvaðeina. Hvaða...

70. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir V: Mortal Kombat 2021 01.09.2021

Jæja þá. Þeim tókst loksins að gefa út þriðju Mortal Kombat myndina. En er hún eitthvað góð? Það kemur í ljós í þætti vikunnar af Ömurlegum Tölvuleikjakvikmyndum ! Arnór Steinn og Gunnar ræða allt saman, það góða og það slæma (merkilegt nokk, það er NÓG af hvoru) við myndina og reyna að koma með gott svar við þeirri spurningu. Við höfum séð þessa karaktera áður, plottið er fjandi svipað en hér er...

69. Íslenskir streymarar - viðtal við Eggert Unnar Snæþórsson (eggertunnar) 25.08.2021

Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska streymara! Í þetta sinn er það Eggert Unnar Snæþórsson, streymara og efnissmið, en hann er að fagna þriggja ára streymisferli um þessar mundir. Við ræðum við hann um allt á milli himins og jarðar. Um upphaf streymisins, um fyrstu leikina í æsku, hæðir og lægðir á ferlinum og margt fleira. Helst ber að nefna að hann streymdi í sólarhring...

68. Mass Effect 1 18.08.2021

Heimurinn er búinn að stækka. Mannkynið er ekki lengur eitt og sér í alheiminum. Nú eru þúsundir geimverutegunda út um allt og við að stíga okkar fyrstu skref í að kanna óendanlegan heiminn. Plottið í Mass Effect hefst á þessum umrótstímum. Þú ert Commander Shepard og þú þarft heldur betur að redda frekar skítlegum málum. Þegar einn af færustu hermönnum vetrarbrautanna fer að haga sér á mjög sviku...

67. Ratchet & Clank: Rift Apart 11.08.2021

Goðsagnirnar eru komnar aftur! Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming köfum við ofan í nýjasta Ratchet & Clank leikinn, en hann heitir Rift Apart! Félagarnir eru í miðjum hátíðarhöldum þegar erkióvinurinn Dr. Nefarious ræðst AFTUR á þá og stelur byssunni Dimensionator – byssa sem Clank lagaði fyrir vin sinn svo hann gæti mögulega fundið aðra af sinni tegund. Allt fer stórkostlega til an...

66. Spider Man: Miles Morales 04.08.2021

Hvað þýðir það að vera köngulóarmaður? Tölvuleikurinn Spider Man: Miles Morales reynir að svara þessari spurninu eins best og hægt er. Í leiknum stýrir maður samnefndum karakter sem er búinn að vera að læra fagið frá Peter Parker í að verða ár. Aðstæður verða til þess að Miles er einn í New York og þarf að takast á við Underground gengið, leitt af hinum dularfulla Tinkerer. Arnór Steinn og Gunnar...

65. Activision Blizzard og eitruð vinnustaðamenning 28.07.2021

Sumarfríið er að ná hámarki hjá Tölvuleikjaspjallinu og Gunnar er ekki í bænum! Arnór Steinn sjanghæjaði til sín þekkta gesti spjallsins, Daníel Freyr Swenson, hypemálaráðherra Cyberpunk og Jón Pálsson, sérfræðing okkar í Overwatch málum, til að ræða Activision Blizzard. Fyrr í vikunni kom út skýrsla ráðuneytis atvinnu- og húsnæðismála í Kaliforníu um „frat boy“ menningu á vinnustað fyrirtækisins....

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.