Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

64. Firewatch 21.07.2021

**HÖSKULDARVIÐVÖRUN Á EFTIRFARANDI TÍMASTIMPLI: 40:10 TIL 53:45** Við erum öll að flýja eitthvað. Er hægt að flýja allt? Jafnvel þó maður taki sér vinnu úti í ysta rassgati? Það er ein af mörgum spurningum sem meistaraverkið Firewatch reynir að svara. Leikurinn kom út árið 2016 og stimplaði sig strax inn sem einn af allra bestu indí leikjum síns tíma. Þú leikur Henry – mann sem ákveður að fá sér v...

62. Eins Árs Afmæli! 07.07.2021

Við erum eins árs! Arnór Steinn og Gunnar eru uppfullir af þakklæti og gleði yfir þessum áfanga. Það eru ekki öll hlaðvörp sem ná heilu ári, hvað þá að halda útgáfum sínum stöðugum eins og strákarnir hafa gert. Til að fagna þessu ári gerum við smá sérþátt þar sem við ræðum þættina sem komið hafa út, okkar uppáhalds, YKKAR uppáhalds og svo svörum við spurningum ykkar frá Instagram. Ef þið eruð ekki...

61. Draugurinn í Tsushima II 30.06.2021

Í þessum spoiler fyllta þætti kafa Arnór Steinn og Gunnar dýpra ofan í meistaraverkið Ghost of Tsushima. Það er nóg til að ræða enda klóruðu þeir bara rétt á yfirborðið í síðasta þætti. Við viljum ítreka að allar hliðar leiksins eru ræddar í þaula í þessum þætti. Ef hafið ekki spilað Ghost neitt og viljið fara algjörlega blint í hann þá mælum við frekar með því að hlusta á fyrri þátt okkar (nr. 12...

60. Bónusþáttur! Island of Winds playtest - viðtöl við starfsfólk Parity Games 25.06.2021

Ævintýri Tölvuleikjaspjallsins og Parity Creative House heldur áfram! Í síðasta þætti okkar með fyrirtækinu spjölluðum við við Maríu Guðmundsdóttur um vegferð hennar í bransanum og um það að stofna glænýtt tölvuleikjafyrirtæki á Íslandi. Í þessum bónusþætti ræða Arnór Steinn og Gunnar um það að playtesta leikinn sem þau eru að framleiða - Island of Winds! Þeir spjalla um ferlið, hvernig það var að...

59. E3 2021 23.06.2021

E3 gefur tölvuleikjaunnendum árlega það sem þau hafa ekkert við að gera; tóm loforð, ýkta trailera og alls konar óvænt rugl sem er sjaldan eitthvað sem fólk er að bíða eftir. Var árið í ár einhver tilbreyting? Ef til vill að einhverju leyti, því að í þetta skiptið var hægt að horfa á allt heila klabbið á netinu! Hátíðinni var dreift yfir nokkra daga og allt saman sýnt beint á YouTube og öðrum stre...

58. Leikjarinn - viðtal við Birki Fannar 16.06.2021

Í þætti vikunnar forum við um víðan völl með Leikjaranum – Birki Fannari, sem er sannur tölvuleikjaáhugamaður og streymari! Hann á langa sögu að baki í tölvuleikjaheiminum og hefur komið víða við. Safnið í tölvuherberginu segir bara hálfa söguna! Arnór Steinn og Gunnar ræða við hann um streymi, YouTube draumana, Elder Scrolls og margt, margt fleira. Takk kærlega fyrir komuna og við hlökkum til að...

57. Afrek og bikarar í tölvuleikjum 09.06.2021

Hvað fáum við út úr því að safna afrekum og bikurum (e. achievements, trophies) í tölvuleikjum? Er það bara söfnunarárátta? Eða er það leið tölvuleikjaframleiðenda til að veita okkur spilunarefni umfram aukaefni? Þetta eru á meðal þeirra spurninga sem Arnór Steinn og Gunnar reyna að svara í þætti vikunnar. Þeir fara saman yfir sögu afreka í tölvuleikjum, sem nær alla leið aftur til ársins 1977 (!!...

56. Tölvuleikir og foreldrar - viðtal við Alexander Maron 02.06.2021

Hvað breytist tölvuleikjalega séð þegar maður eignast börn? Í stuttu máli … allt. Þetta er samt spurningin sem Arnór vildi spyrja Gunnar og æskuvin hans Alexander Maron (já, sá Alexander sem Gunnar er alltaf að tala um OG sá sem samdi stefið okkar!) í þætti vikunnar. Horfir maður öðruvísi á tölvuleiki þegar maður á afkvæmi? Er það bara tímaleysið sem hefur áhrif eða er það meira? Við ræðum þó marg...

55. Resident Evil Village 26.05.2021

Gátu kjúllarnir í Tölvuleikjaspjallinu klárað Resident Evil Village? Það gátu þeir sko heldur betur, en það þurfti að þvo allar buxur á báðum heimilum eftir á. Í þessum stútfulla samstarfsþætti okkar við Elko Gaming ræðum við allt sem hægt er að ræða um nýjasta Resident Evil leikinn, VILLAGE. Arnór Steinn og Gunnar spiluðu hann í gegn og taka allt saman fyrir. Þeir ræða söguna, persónurnar, spilun...

54. Íslenskir streymarar - viðtal við Snorra Frey (@badgooof) 19.05.2021

(leiðrétting: Síðan þátturinn kom út hefur Snorri breytt nafni sínu á Twitch. Nú er það @badgooof) Tölvuleikjaspjallið styður íslenska streymara!  Við viljum kynna hlustendur fyrir þá flóru af íslenskum streymurum sem eru til. Við byrjum seríuna á að spjalla við Snorra Frey, betur þekktur sem @badgooof á Twitch. Síðan 2015 hefur hann verið streymari og spilað alls kyns leiki.  Við ræðum...

53. Gagnamagnið Leikurinn THINK ABOUT ALIENS - viðtal við Jóhann Sigurð úr Gagnamagninu 12.05.2021

Það styttist í Eurovision og við hjá Tölvuleikjaspjallinu fengum ótrúlega skemmtilega ábendingu um að hljómsveitin Gagnamagnið, sem ætlar að koma með Júróbikarinn heim í ár, gaf nýverið út mobile platforming leik sem heitir THINK ABOUT ALIENS! Þar er öllum sex meðlimum Gagnamagnsins rænt af geimverum. Þú byrjar að spila sem Daði og þarft að hoppa um og drepa geimverur til að bjarga hinum meðlimunu...

52. Outriders 05.05.2021

Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming ætlum við að fjalla um leikinn OUTRIDERS. Um er að ræða nýjan co-op action RPG loot shooter (reyndu að segja það tíu sinnum hratt) frá pólska fyrirtækinu People Can Fly.  Hér stjórnar leikmaður einum svokölluðum Outrider, sér þjálfuðum hermanni sem  fer ásamt 500.000 eftirlifandi jarðarbúum til plánetunnar Enoch. Eins og má svo sem reikna með...

51. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir IV: Mortal Kombat: Annihilation 28.04.2021

Það er algjört fatality hvað þessi mynd er ömurleg ... Við erum búnir að taka fyrri MK myndina þannig að við eiginlega urðum að taka númer tvö líka, áður en við kíkjum í bíó á nýju myndina! Mortal Kombat: Annihilation gerist strax eftir að fyrri myndin klárast.  Það sem gerir þetta strax frekar glatað er að það er búið að skipta út 90% leikaranna, enginn Christopher Lambert að hlæja vafasamt...

50. Fimmtugasti þáttur! Topp tíu nostalgíuleikir 21.04.2021

Þann fyrsta júlí árið 2020 gáfu tveir ungir drengir, með ekkert nema hljóðnema og draum, út þátt um tölvuleiki.  Nú í dag, fjörutíu og níu þáttum síðar, eru þeir búnir að halda sig við öll markmið sem þeir settu sér og gera meira en það! Vikulegir þættir, góð samskipti við hlustendur, spons, fjölbreytt efni svo fátt eitt sé nefnt.  Í þessum fimmtugasta (!!!) þætti Tölvuleikjaspjallsins r...

49. Overwatch League 14.04.2021

Það styttist í að ein skemmtilegasta rafíþróttadeild heims - Overwatch League - fari í gang og því ákváðum við að henda í smá upphitunarþátt!  Þetta verður fjórða tímabil deildarinnar og spennan magnast. Eins og er með allar rafíþróttir þá eru liðin fjölbreytt og með sín einkenni. Þó þau séu mis góð eða léleg þá er um að ræða bestu spilara heims í téðri íþrótt og það getur ALLT gerst!  V...

48. Cyberpunk II 07.04.2021

Í þætti vikunnar, sem er samstarfsþáttur við Elko og Elko Gaming, ræðum við aftur um Cyberpunk 2077!  Við tókum góða umræðu um hann rétt eftir að hann kom út en núna hefur margt vatn runnið til sjávar. Búið er að laga ýmist (alls ekki allt) með nýju uppfærslunni og umræðan hefur batnað – allavega aðeins. Góður vinur Tölvuleikjaspjallsins, Daníel Freyr Swenson, betur þekktur sem Hype-málaráðhe...

47. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir III: Mortal Kombat 31.03.2021

Það styttist óðfluga í nýju Mortal Kombat myndina og Tölvuleikjaspjallið ykkar allra ætlar að hita upp með að gera tveggja parta ÖMURLEGAR TÖLVULEIKJAKVIKMYNDIR þátt um báðar Mortal Kombat myndirnar!  Í þætti vikunnar spjalla Arnór Steinn og Gunnar um fyrri MK myndina. Leikstýrð af Paul W.S. Anderson (frægur fyrir Resident Evil myndirnar) og stútfull af nokkuð óþekktum leikurum, þá er hún bar...

46. Overwatch 24.03.2021

Loksins loksins!  Eftir margra mánaða bið þá er Gunnar byrjaður að spila Overwatch! Við ræddum leikinn aðeins fyrst í viðtalinu okkar við streymarann Jönu Sól, en nú gerum við sér þátt. Hér ræðum við aðeins hvernig Gunnari hefur gengið að byrja og Arnór Steinn kemur með nokkur góð ráð. Þeir fara yfir hetjurnar, game modes og alls kyns gúmmelaði.  Við hlökkum til að fjalla frekar um Overw...

45. Skyrim II 17.03.2021

Hvaða leikur hefur haft mest áhrif á þessa kynslóð tölvuleikjaspilara?  Það er erfitt að negla það niður nákvæmlega, en við getum flest verið sammála um að Skyrim sé andskoti ofarlega á lista. Leikurinn kom út í nóvember 2011 og enn þann dag í dag er verið að rýna í allt sem hann hefur gert fyrir tölvuleikjalandslagið. Við erum ennþá að spila hann (að sjálfsögðu einungis sem stealth archer) o...

44. Hitman 3 10.03.2021

Viltu ferðast um heiminn? Skoða fallega og framandi staði? Kynnast menningunni? Drepa mjög mikilvægt fólk á téðum stöðum og fá borgað fyrir? Þá er Hitman 3 leikurinn fyrir þig! Í þessum samstarfsþætti okkar og Elko fjalla Arnór Steinn og Gunnar um lokaleikinn í trílógíunni World of Assassination. Hitman 3 er fyrsti stóri leikur ársins og því um margt að tala. Við tökum fyrir borðin, spilunina og o...

43. Parity Games - viðtal við Maríu Guðmundsdóttur 03.03.2021

Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska tölvuleikjaframleiðslu.  Í þetta sinn spjalla Arnór Steinn og Gunnar við Maríu Guðmundsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Parity Creative House. María hefur mikla reynslu úr bransanum og var lengi vel hjá CCP, var meðal annars í Kína að vinna að Eve titli!  Hún stofnaði Parity árið 2017 og fyrirtækið vinnur nú að spennandi l...

42. Blizzcon Online 2021 24.02.2021

Misstir þú af Blizzcon?  Ekki örvænta! Vinir þínir hjá Tölvuleikjaspjallinu horfðu á það fyrir þig og koma með samantekt í þætti vikunnar! Við ræðum helstu tilkynningar Blizzard og komum með okkar skoðun á málum.  Diablo IV, Diablo II Resurrected, WOW Classic og Overwatch 2. Er hægt að biðja um meira? Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!

41. Mafia Definitive Edition 17.02.2021

"Remember that money, jobs, even best pals will come and go. But family? Family is forever." Í þessum samstarfsþætti við Elko ræða Arnór Steinn og Gunnar endurgerðina á Mafia sem kom út árið 2002. Þessi leikur hefur verið gerður frá toppi til táar upp á nýtt og það sést heldur betur á öllum hliðum leiksins. Við ræðum söguþráðinn að einhverju leyti en við spillum ekki fyrir endinum né neinum mikilv...

40. Gælunöfn (e. nicknames) Íslendinga í Tölvuleikjum 10.02.2021

Eitt af markmiðum Tölvuleikjaspjallsins er að rannsaka tölvuleikjamenningu Íslendinga.  Í þessum þætti uppfyllum við hluta af því markmiði OG gerum eitthvað sem er einstakt áhugamál þáttastjórnenda; Rannsökum gælunöfn (e. nicknames/nicks) Íslendinga í tölvuleikjum. Þau geta komið hvaðan sem er.  Arnór Steinn (keisaritunglsins) og Gunnar (Bismark) ræða meðal annars sín eigin gælunöfn og h...

39. GameTíví - Viðtal við Ólaf Þór Jóelsson 03.02.2021

Tölvuleikjaspjallið er að miklu leyti starfandi í dag vegna þess að GameTíví lagði grunninn að íslenskri tölvuleikjaumfjöllun á sínum tíma.  Í þætti vikunnar fáum við Ólaf Þór Jóelsson, framkvæmdastjóra Senu og upphafsmann GameTíví í viðtal! Arnór Steinn og Gunnar ræða við hann um sögu GameTíví og hvernig þættinum gengur í dag, um VR aðstöðuna hjá Smárabíó, Playstation 5, Sinclair Spectrum tö...

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.