Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

38. Spider-Man 27.01.2021

Spider-Man! Hvað þarf meira að segja?  Jæja ókei ... segjum aðeins meira. Hér tekur spilarinn upp þráð Köngulóarmannsins eftir átta ára feril og reynir að halda á lofti einkalífi Peter Parker og ferli hans við að berjast við glæpamenn.  Arnór Steinn og Gunnar ræða alla helstu þætti leiksins í algjörlega SPOILER FREE þætti. Hvað fannst ykkur um Spider-Man? Þátturinn er í boði Elko Gaming...

37. Arkham Knight 20.01.2021

Hvað gerir góði kallinn þegar markmiði hans er náð? Í þessum lokaþætti okkar um Return to Arkham seríuna fjöllum við um Batman: Arkham Knight! Þessi frábæri leikur gerist níu mánuðum eftir atburði Arkham City. Hér þarf Blakan að kljást við hinn ógnarlega Scarecrow sem hefur hrætt líftóruna úr Gotham borg og hyggst gera allt sem hann getur til að sýna umheiminum að Batman er bara lítil og hrædd man...

36. Bónusþáttur! Lucasfilm Games og EA 18.01.2021

Árið 2021 byrjaði á þeirri sprengju að EA væri ekki lengur með einkarétt á Star Wars leikjum.  Geta fréttir almennt verið betri? Nei við segjum svona.  En í þessum bónusþætti ræða Arnór Steinn og Gunnar um hið nýja Lucasfilm Games og hvað ákvörðunin þýðir fyrir framtíð Star Wars leikja. Tölvuleikjaspjallið hefur lengi kallað eftir því að EA missi einkaréttinn og það er mjög greinilegt að...

35. GTA V 13.01.2021

Fyrir rétt rúmum sjö árum síðan kom út GTA V.  Tveimur leikjatölvukynslóðum síðar hefur leikurinn komið út á sjö tölvum og selt fleiri en 130 milljón eintök. Arnór Steinn og Gunnar ræða þennan ágæta leik en þar spilar þú sem þrír karakterar - Michael, Franklin og Trevor - og færir þá upp metorðastigann í undirheimum Los Santos. Við ræðum flestar hliðar leiksins, söguna, lúkkið, bílana og byss...

34. Rafíþróttasamtökin - Viðtal við Aron Ólafsson 06.01.2021

Fyrsti þáttur ársins er ekki af verri gerðinni. V ið fengum til okkar í viðtal framkvæmdastjóra Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ), Aron Ólafsson! Við förum um víðan völl í þessum ótrúlega skemmtilega þætti. Við byrjum á að heyra hvaðan Aron kemur „tölvuleikjalega“ séð og hvernig hans fyrstu kynni við mótahald í tölvuleikjum voru.  Seinni hluti þáttarins er um starf RÍSÍ og þá sérstaklega um ó...

33. Áramótaþáttur Tölvuleikjaspjallsins 30.12.2020

Tölvuleikjaspjallið kveður árið 2020 með stæl!  Rúmlega tveggja klukkustunda þáttur þar sem farið er um VÍÐAN völl og ýmsir hlutir ræddir í þaula! Arnór Steinn og Gunnar ræða hvernig það var að byrja hlaðvarp um tölvuleiki og söguna á bak við „heimastúdíóið“ hans Arnórs.  Við ræðum okkar uppáhalds þætti og alla þá leiki sem við höfum spilað á árinu, bæði nýja og eldri. Við tókum líka smá...

32. Arkham City 23.12.2020

Þorláksmessuþátturinn þetta árið er Batman: Arkham City!  Í þessum frábæra framhaldsleik Arkahm Asylum skellir þú blökuhettunni á þig, mundar blökuverplana og byrjar að berja alla vondu kalla Gotham borgar. Í þetta sinn er það hin fluggáfaði Hugo Strange sem hefur klófest fátækrahverfi borgarinnar og búið til hið alræmda Arkham City ofurfangelsi utan um. Blakan neyðist til að fljúga í gegnum...

31. Cyberpunk 2077 16.12.2020

**ÞETTA ER ALGJÖRLEGA SPOILER FREE ÞÁTTUR**  Hann er loksins kominn! Eftir margra ára bið er þessi risastóri leikur kominn í hendur spilara. Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming fjöllum við um Cyberpunk 2077. Hann gerist í steiktri framtíð þar sem bilið á milli manna og vélmenna hefur minnkað allsvakalega. Það eru meira en sjö ár frá því að hann var kynntur og því fannst okkur upplag...

30. Assassin's Creed: Valhalla 09.12.2020

Ert þú ekki búin/n að leita að spoiler-free þætti um Assassin‘s Creed Valhalla í margar vikur?  Leitaðu ekki lengra, því strákarnir í Tölvuleikjaspjallinu eru búnir að græja hann fyrir þig! Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming förum við yfir víkinga RPG leikinn sem mikil spenna hefur verið fyrir. Þú stýrir víkingnum Eivor í gegnum Noreg og England þar sem þú þarft að mynda vinasambön...

29. Fallen Order 02.12.2020

Ekki skera þig úr, gleymdu fortíðinni og ekki treysta neinum. Þetta eru orðin sem Cal Kestis, padawan á tímum Jedi hreinsunarinnar þurfti að tileinka sér til að lifa af, hundeltur af veiðimönnum Veldisins.  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar leikinn Star Wars: Fallen Order! Hann kom mjög á óvart þegar hann kom út í fyrra og í tilefni af eins árs afmæli leiksins þá rifja þeir hann upp....

28. Myrkur Games - viðtal við Halldór Snæ 25.11.2020

Tölvuleikjaspjallið fjallar loksins um innlenda tölvuleikjaframleiðendur eins og hlustendur hafa beðið okkur um!  Arnór Steinn og Gunnar ræða hér við Halldór Snæ Kristjánsson, framkvæmdastjóra Myrkur Games, en þar vinna metnaðarfullir tölvuleikjaáhugamenn að stórum og spennandi leik. Hann talar um sitt upphaf í tölvuleikjaspilun og hvaða leikir höfðu helst áhrif á hann. Svo talar hann um stof...

27. Watch Dogs: Legion 18.11.2020

Hefur þig alltaf langað til að hakka þig inn í síma fólks og gefa þeim raflost?  Ef svo er þá er mögulega eitthvað smá í ólagi hjá þér, en þú getur gert nákvæmlega þetta og margt meira í leiknum Watch Dogs: Legion! Í þessum SPOILER FREE samstarfsþætti okkar við Elko Gaming ræðum við nýjasta leikinn í WD seríunni. Sögusviðið er London í náinni framtíð þar sem tækni hefur tekið yfir flestar hli...

26. Star Wars: Squadrons 11.11.2020

Hversu mikið langar þig til að fljúga X-Wing eða Tie Fighter og fljúga um geiminn? Núna er það hægt!  Í þessum samstarfsþætti við Elko Gaming ræðum við um Star Wars Squadrons! Hann kom út fyrir stuttu síðan og þar er spilað geimflaugabardaga í fyrstu persónu! Það hljómaði spennandi þegar við töluðum stuttlega um það í síðasta Stjörnustríðsþætti (númer 7) og það hljómar spennandi núna! Le...

25. Arkham Asylum 04.11.2020

Eins og einhver orðaði það, þá er þetta eini hryllingsleikurinn þar sem ÞÚ ert hryllingurinn.  Já heldur betur, í þessum samstarfsþætti við Elko Gaming ætlum við að ræða þrekvirkið Arkham Asylum sem kom út árið 2009. Leikurinn sló algjörlega í gegn en þar fær maður að stýra Batman í þriðju persónu um Arkham eyju og Arkham geðspítalann. Jókerinn hefur náð völdum og þú þarft að nýta öll vopn í...

24. Hrekkjavöku Sérþáttur 31.10.2020

Hver er hryllilegasta tölvuleikjaupplifunin þín?  Þetta er ein af mörgum spurningum sem Arnór Steinn og Gunnar spyrja hvern annan í þessum fyrsta HREKKJAVÖKUSÉRÞÆTTI TÖLVULEIKJASPJALLSINS! Eins og alþjóð veit þá eru þeir báðir algerir aumingjar og kjúklingar og þora ekki að spila neina hryllingsleiki. Samt spjalla þeir um sínar upplifanir af hryllingsleikjum (sem eru furðulega margar miðað vi...

23. Portal 28.10.2020

Nostalgíukast vikunnar er í boði Tölvuleikjaspjallsins!  Hefur þig ekki alltaf langað til þess að fara í gegnum ógeðslega steikta þrautabraut með einhverskonar gátta-byssu á meðan tölvukerfi niðurlægir þig og kallar þig morðingja? Ef svo er, þá er Portal leikurinn fyrir þig!  Fyrsti Portal leikurinn kom út árið 2007 og sló rækilega í gegn. Þar spilar þú sem Chell, en hún prufukeyrir gátt...

22. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir II: Hitman myndirnar 21.10.2020

Hefur þig alltaf langað til að horfa á allar þær ömurlegu tölvuleikjakvikmyndir sem til eru en þorir ekki að taka skrefið? H afðu ekki áhyggjur, því að Arnór Steinn og Gunnar hjá Tölvuleikjaspjallinu horfa á þær fyrir þig og gera svo þátt! Í dag ræða þeir um tvær myndir. Gunnar horfði á Hitman myndina frá 2007 þar sem Timothy Olyphant rakaði hausinn sinn og skaut fullt af fólki sem hinn goðsagnake...

21. Xbox X Series X 14.10.2020

Eru “the console wars” búin?  Við reynum að svara þessari erfiðu spurningu í þætti vikunnar þar sem við fjöllum um Xbox í öllu sínu veldi. Aðal efnið eru auðvitað nýju tölvurnar – Series X og Series S. Við ræðum bara um skemmtilegu hlutina og berum tölvuna meðal annars saman við Playstation 5. Við ræðum líka mögulega hvað Microsoft er að pæla með allar þær breytingar sem fylgja nýju tölvunum....

20. Fall Guys 07.10.2020

Á þessum óvissutímum er gott að gera það sem okkur öll dreymir. Vera bollukall og hlaupa niður þrautabraut með 59 öðrum bolluköllum og reyna að vinna kórónu. Allavega er það plottið í meistarastykkinu FALL GUYS! Þessi ótrúlega skemmtilegi partí-MMO-battle royale leikur kom út í ágúst og sló rækilega í gegn. Arnór Steinn og Gunnar fara í saumana á leiknum og ræða allt sem hægt er að ræða. Þrautabra...

19: Bónusþáttur! Tölvuleikir og heimsfaraldur II 05.10.2020

Ertu í sóttkví? Heimavinnandi út af heimsfaraldrinum?  Hentu þá þessum bónusþætti af Tölvuleikjaspjallinu í eyrað og hlustaðu á Arnór Stein og Gunnar bulla! Við gerðum svipað í þætti 8, hér ræðum við leiki sem okkur finnst sniðugt að prófa þegar maður neyðist til að vera heima vikunum saman vegna heimsfaraldursins. Þeir ræða m.a. hvað þeir eru að spila í dag og taka fyrir nokkra leiki sem eru...

18. No Man's Sky vs. Outer Worlds 30.09.2020

Það er aftur komið að því! Arnór Steinn kynnir leik fyrir Gunnari og Gunnar kynnir leik fyrir Arnóri.  Í þetta skiptið er smá þema, báðir leikirnir gerast úti í geimi!  The Outer Worlds kom út í október 2019 og er RPG leikur frá Obsidian. Sögusviðið er stjörnuþokan Halcyon sem er "nýlenda" jarðarinnar í himingeimnum. Skipið Hope, með hundrað þúsund manns frosin um borð, fór frá jörðinni...

17. Besti Tölvuleikjakarakterinn 23.09.2020

Hver er raunverulega besti tölvuleikjakarakter allra tíma?  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir Facebook hópana Tölvuleikjasamfélagið og Tölvuleikir - Spjall fyrir Alla. Þar var einfaldlega spurt: Hver er besti spilanlegi tölvuleikja karakterinn?  Svörin voru mörg og alveg ótrúlega fjölbreytt. Arnór og Gunnar tóku saman niðurstöðurnar úr báð...

16. Playstation 5 17.09.2020

Það má segja að allir hafi fengið eitthvað fyrir sig á Playstation 5 sýningunni í gær!  Sony staðfesti loksins útgáfudag fyrir tölvuna og sýndi efni úr nokkrum leikjum, bæði þeim sem hafa þegar verið kynntir og úr nokkrum óvæntum. Arnór Steinn og Gunnar ræða almennt um tölvuna og um allt það sem er staðfest. Þeir fjalla um alla þá leiki sem kynntir voru til sögunnar á sýningunni, en þar er af...

15. Far Cry 5 16.09.2020

Hefur þú það sem þarf til að sigra þungvopnaðan sértrúarsöfnuð? Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar leikinn Far Cry 5. Hann fylgir svipuðu þema og fyrri leikir, þar sem leikmaðurinn þarf að frelsa stórt svæði frá einhverjum hópi. Þessi leikur, ólíkt hinum, gerist í Bandaríkjunum, á meðan fyrri leikir gerðust á mjög framandi svæðum. Sögusviðið er Hope sýsla í Montana ríki. Þar hefur öfgatrúa...

14. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir: Super Mario Bros og Street Fighter 09.09.2020

Hver er versta tölvuleikjakvikmynd sem þú hefur séð?  Við höfum séð andskoti margar og því ákváðum við að henda í nýja þáttategund sem við ætlum að kalla "Ömurlega Tölvuleikjakvikmyndir"!  Hér horfir Arnór Steinn á eina mynd, Gunnar á aðra og svo kynna þeir myndirnar fyrir hvor öðrum. Við tölum um hvað þær eru ömurlegar, hvort það sé eitthvað gott í þeim og svo í lokin hvort við mælum me...

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.