Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 288 episodes

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Author

Podcaststöðin

Category

Leisure

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

13. The Last of Us: Part 2 02.09.2020

Hvað þurfa hin síðustu okkar að hugsa út í? Uppvakningum með ofurheyrn? Ofbeldisfullum villimönnum? Skort á skotfærum? Öllu þessu í einu?  Það er eiginlega staðan í tölvuleiknum The Last of Us: Part II og það sem við ætlum að ræða í þessum samstarfsþætti okkar við Elko og Elko Gaming.   Fimm ár eru liðin frá atburðum fyrri leiks. Ellie er nítján ára gömul og þarf að takast á við nýjar áskoranir í...

12. Draugurinn í Tsushima 26.08.2020

Hefur þig ekki alltaf langað til þess að vera samúræji?  Í þessum fyrsta samstarfsþætti okkar við Elko förum við í saumana á leiknum The Ghost of Tsushima. Hann kom út í sumar við frábærar viðtökur.  Leikurinn gerist árið 1274 þegar Mongólar undir stjórn harðstjórans Khotun Khan réðust á eyjuna Tsushima í Japan. Þú stýrir Jin Sakai, sem er samúræji og síðasti eftirlifandi erfingi Sakai æ...

11. Stelpur í tölvuleikjum - Viðtal við Jönu Sól 19.08.2020

Í þessum fyrsta viðtalsþætti Tölvuleikjaspjallsins ræða Arnór Steinn og Gunnar við Jönu Sól Ísleifsdóttur, streymara og mótshaldara!  Hún hefur látið sig ýmist varða í málefnum stelpna í tölvuleikjum. Hún talar við þá um það áreiti sem hún hefur fengið á sig fyrir að vera stelpa í tölvuleikjum. Vandamálið virðist oft vera að fólk neitar að viðurkenna það að stelpur og konur verða fyrir áreiti...

10. Fallout 4 12.08.2020

Þetta er allt gott og blessað, en önnur nýlenda sárlega þarfnast þinnar hjálpar! Hlustendur báðu um þetta og við hlustuðum! Hér er hinn eini sanni Fallout 4 í allri sinni dýrð. Eftir kjarnorkustyrjöld sem meira og minna grandaði öllum heiminum fóru lítil samfélög að myndast hér og hvar í Bandaríkjunum. Í Fallout 3 fengum við að ferðast um höfuborgarsvæði Bandaríkjanna, í New Vegas fórum við um Moj...

9. Leikurinn hans Gunnars! Giants: Citizen Kabuto 05.08.2020

Bíddu ... bíddu, hvaða leikur? Í þessum fyrsta framhaldsþætti Tölvuleikjaspjallsins köfum við ofan í leikinn sem Gunnar talaði um í fyrsta þætti, Giants: Citizen Kabuto! Nostalgían hans og æska einkennast að miklu leyti af þessum leik.  Arnór tók sig til og keypti hann og spilaði í gegn. Hvernig var fyrir hann að spila e l d gamlan leik sem hann hafði aldrei heyrt um áður? Fannst honum leikur...

8. Bónusþáttur! Tölvuleikir og heimsfaraldur 31.07.2020

Þarftu að hanga heima í sóttkví eða jafnvel einangrun? Eins gott að við höfum tölvuleiki! Í þessum óvænta bónusþætti ræða Arnór og Gunnar um tölvuleiki og ástandið sem skapast hefur á landinu vegna heimsfaraldursins. Við þurftum mörg hver að hanga heima í vor og það virtist henta tölvuleikjaspilurum nokkuð vel. Þeir ræða hvaða leiki þeir spiluðu í samkomubanninu og hvað þeir hyggjast spila núna þe...

7. Stjörnustríðstölvuleikir 29.07.2020

Fyrir langa löngu síðan í leikjatölvu langt langt í burtu …  Þessi þáttur er tileinkaður öllum þeim Star Wars leikjum sem komið hafa út, og fjandinn hafi það þeir eru MARGIR. Hér fjöllum við um handfylli af Stjörnustríðsleikjum, spáum í þeim og spökulerum og veltum fyrir okkur hinni eilífu spurningu … hvernig er góður Star Wars leikur?  Arnór og Gunnar ræða meðal annars um KOTOR, Force U...

6. Gömlu Góðu GTA 22.07.2020

Hver er raunverulega besti GTA leikurinn af þessum gömlu? Þá erum við að tala um Claude, Tommy Vercetti og Carl Johnson. Við stýrðum þessum snarbiluðu geðsjúklingum upp stiga glæpaheims Rockstar í þremur mis góðum leikjum.  GTA III átti sér stað í Liberty City og það þarf ekki að skafa af því - hann gjörbreytti tölvuleikjaspilun þegar hann kom út árið 2001. GTA Vice City kom út aðeins einu ár...

5. Black&White og Hotline Miami 15.07.2020

Hvað hefur Gunnar spilað sem Arnór hefur ekki spilað? Hvað hefur Arnór spilað sem Gunnar hefur ekki spilað?  Spjall vikunnar er einhvernveginn á þessa leið. Gunnar kynnir fyrir Arnóri "guðaleikinn" Black & White , en sá leikur er úr smiðju mannsins á bakvið Fable seríuna. Þar er spilarinn guð sem þarf að redda sér fylgjendum og búa til heim - þú ræður hvort þú ert vondur eða góður guð.&nb...

4. Af hverju spilum við tölvuleiki? 08.07.2020

Svona í alvörunni, hvers vegna gerum við þetta eiginlega? Í þessum þætti taka Arnór og Gunnar (ekkert svakalega) heimspekilega umræðu sem tölvuleikjaaðdáendur hafa ef til vill oft spurt sig: Af hverju spilum við tölvuleiki? Hvað er svona gaman við það að deyja þúsund sinnum á móti einum vondukalli? Skipta afreksverðlaun (e. achievements) einhverju máli? Eru tölvuleikir í rauninni bara hollir og gó...

3. Red Dead Redemption 2 06.07.2020

Hvað er það sem gerir góðann mann?  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar Rockstar leikinn Red Dead Redemption 2. Útlagaöld bandaríska vestursins er að líða undir lok. Kúrekinn Arthur Morgan hefur margt á sinni könnu. Ekki nóg með að halda genginu sínu lifandi í heim sem er búinn að afneita þeim, þá þarf hann einnig að finna sinn stað í heiminum og hvaða tilgangi hann þjónar.  Þeir...

2. Skyrim 03.07.2020

Þú kannt að eitthvað um seyði, nennirðu að brugga handa mér öl? Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar tímamótaleikinn The Elder Scrolls V: Skyrim. Hvar stendur hann í dag - tæpum tíu árum eftir útgáfu? Þeir ræða mismunandi spilunarhætti, um söguna og margt, margt fleira. Er þetta raunverulega góður leikur eða er nostalgíutilfinningin að skemma fyrir okkur? Hvaða einkunn myndir þú gefa Skyrim...

1. Leikjaspjall 01.07.2020

Verið velkomin í glænýtt vikulegt hlaðvarp um tölvuleiki! Í þessum fyrsta þætti kynnumst við stjórnendunum, Arnóri Steini og Gunnari. Þeir ræða  mikilvægasta hlutann í lífi tölvuleikjaspilara: upphafið. Hvað spiluðu þeir fyrst? Hvaða leikir mótuðu spilunina? Voru það leikir úr kornflex pökkum eða var NES tölva á heimilinu? Allt um það og meira í þessum þætti! Lag: Aries Beats

Listen to the Tölvuleikjaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.