Jón Ólafsson

Jón Ólafs á spjallinu

Leisure IS ↓ 45 avsnitt

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: www.jon.is

Skapare

Jón Ólafsson

Kategori

Leisure

Poddens webbplats

www.jon.is

Senaste avsnittet

30 sep 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

45.þáttur: Karen Kjartansdóttir 30.09.2026

Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru.  Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku.  Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel.  Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarver...

44.þáttur: Eyþór Gunnarsson 18.09.2026

Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar.  Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí.  Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans.  Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun.  Á n...

43.þáttur: Lalli töframaður 14.09.2026

Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim.  Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette.  Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rú...

42.þáttur: Rán Flygenring 02.09.2026

Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu.  Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur.  Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari.  Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og að...

41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir 20.08.2026

Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin.  Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum.  Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina.  Við tóku nokkur ár á ljósva...

40.þáttur: Jónatan Garðarsson 05.08.2026

Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við.  Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska.  Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar.   Í...

39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson 28.07.2026

Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik.  Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki.  Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall.  Þá hóf hann a...

38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir 22.07.2026

Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun.  Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum.  Vi...

37.þáttur: Gói 11.07.2026

Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann.  Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi.   Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur.  Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini.  Hann er þakklátur fyrir...

36.þáttur: Pétur Pétursson 03.07.2026

Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna.  Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd.  Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR.  Pétur starfaði um árabil sem ljó...

35.þáttur: Gunnar Árnason 25.06.2026

Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar  og er margverðlaunaður.  Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann.  Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn h...

34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir 19.06.2026

Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd.  Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina.  Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.  

33.þáttur: Björn Stefánsson 11.06.2026

Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus.  Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009.  Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku.  Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki.  Alkóhólískt heimi...

32.þáttur: Helga Möller 01.06.2026

Helga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands.  Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég.   Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi.  Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf lan...

31.þáttur: Guðmundur Pétursson 20.05.2026

Guðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall.  Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir.  Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu.  

30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir 12.05.2026

Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við.  Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim.  Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins.  Í dag er það "Mannlegi...

29.þáttur: Andrea Jónsdóttir 28.04.2026

Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands.  Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist.  Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli.  Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. ...

28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason 17.04.2026

Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari.  Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn.  Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt  og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður.   Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10...

27.þáttur: Jóhann Hjörleifsson 09.04.2026

Þið hafið heyrt oftar í Jóhanni Hjörleifssyni en ykkur grunar.  Hann hefur trommað marga af helstu smellum undanfarinna ára m.a. með Sálinni hans Jóns míns.  Hann var hálfgert undrabarn á sitt hljóðfæri og var farinn að spila með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gamall.  Jóhann byrjaði í MH en ætlaði að fresta náminu um einn vetur því það var svo mikið að gera í spileríinu.  Stúdentsprófið bíður...

26.þáttur: Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) 27.03.2026

Jóhanna Vigdís Arnardóttir fékk leiklistarbakteríuna tiltölulega seint og kom sjálfri sér á óvart með því að fljúga inn í Leiklistarskólann í fyrstu tilraun.  Að loknu námi fékk hún samning í Borgarleikhúsinu og brilleraði næstu árin í hverju hlutverkinu á fætur öðru.   Frammistaða hennar í söngleikjum eins og Mary Poppins, Kysstu mig Kata og Mamma Mia er eftirminnileg þeim sem sáu . Hansa er með...

25.þáttur: Róbert Marshall 17.03.2026

Flestir tengja Róbert Marshall við fréttir og stjórnmál og réttilega.  Vestmannaeyingurinn víðlesni á þér þó fleiri hliðar og útivist hefur átt hug hans allan síðustu árin og varla er til sá fjallstoppur sem hann hefur ekki rölt upp á.  Einnig sinnir Róbert tónlistarsköpun þegar tími vinnst til og er m.a. forsöngvari og helsti lagahöfundur hljómsveit sem kallast Hvítá.  Einu sinni talaði Leonard C...

24.þáttur: Sveinn Rúnar Sigurðsson 05.03.2026

Enginn Íslendingur hefur átt jafn mörg lög í úrslitum Söngvakeppninnar og músíkalski læknirinn, Sveinn Rúnar Sigurðsson.  Hann byrjaði að forrita aðeins 10 ára gamall og munaði minnstu að hann fengi ekki að útskrifast úr Versló vegna splattermyndar sem sýnd var í skólanum. Sveinn er kvæntur úkraínskri konu og hefur farið yfir 120 sinnum til heimalands hennar;  hinnar stríðshrjáðu Úkraínu sem honum...

23.þáttur: Kristín Þóra Haraldsdóttir 24.02.2026

Kristín Þóra er ein eftirsóttasta og besta leikkona landsins.   Hún segist hafa tekið miklum framförum sem ökumaður á síðustu árum þó hún kunni ekki að bakka í stæði.  Örmögnun í starfi og leik varð uppistaða í leiksýningunni Á rauðu ljósi sem hún ákvað að skrifa og setja upp því hún átti ekki fyrir jólagjöfum.  Þetta vatt upp á sig og sýningarnar eru orðnar á annað hundrað.  Þessa dagana stúderar...

22.þáttur: Mist Rúnarsdóttir 18.02.2026

Mist er goðsögn í heimi íslenskrar kvennaknattspyrnu og hefur verið óþreytandi við að leggja henni lið hvort heldur sem þjálfari eða íþróttafréttakona.  Ferðalög eru hennar líf og yndi og fljótlega eftir stúdentspróf heimsótti hún bæði Kúbu og Kína.  Einnig hefur hún nokkrum sinnum komið til Namibíu og Palestínu sem dæmi.  Mist er mannfræðingur að mennt og hefur dálæti á köttum. 

21.þáttur: Björgvin Páll Gústavsson 11.02.2026

Björgvin Páll hefur verið besti handboltamarkvörður landsins um árabil og slær hvergi slöku við, 40 ára gamall.  Æskan var erfið og áföllin mörg en hann vil meina að íþróttirnar hafi bjargað sér.  Björgvin hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og m.a. gefið út tvær bækur sem vöktu mikla athygli.  Hann er óþreytandi við að hjálpa öðrum og notar eigin lífsreynslu í því skyni.  

Lyssna på podden Jón Ólafs á spjallinu i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden