Hljóðkirkjan
Svörtu tungurnar
Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: svortutungurnar.podbean.com
Skapare
Hljóðkirkjan
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
3 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
#0117 Mandela effect og djúp sjöa á Tenerife 03.10.2026 58:16
Þátturinn er í boði Malbygg Lúlli reynir eins og hann getur að segja frá Mandela effect og því fylgir saga um gamla konu frá Grindarvík. Strahd er dauður! Hvað tekur við? við þráum ekkert meira en að komast til sólarlanda þar sem er engin þoka og engin vampíra sem er að kljást við eigin tilfinningar. Silfurskotturnar tala saman um hvað þeir væru helst til að spila eftir 5 ára þrautagöngu í myrkri...
#0116 - Kapitalismi og Crack Cocaine (Týndi þátturinn) 23.09.2026 43:12
Þátturinn er í boði Malbygg Eitt sinn í dimmu hlapvarpsherbergi tóku 4 tungur upp þátt. Stuttu seinna þegar búið var að ganga frá þættinum hvarf hann og enginn vissi hvað hefði orðið af honum. En svo kom í ljós að slæm nafnagift þáttarins gerði það að verkum að hann sogaðist inn í Aðra vídd. Nýji klippi drýsillinn sem er vanur Víddaflakkari fann hann svo, einmana með enga von í brjósti. Og hér er...
#0115 Nútíminn og Núvitund 15.09.2026 48:52
Þátturinn er í boði Malbygg Við erum komnir til baka úr sumarfríi! Eigum við að vera með samviskubit yfir að vilja frekar spila en að vera með fjölskyldum okkar? Er nútíminn verri en fortíðinn? hvað í andskotanum eru Vitkarnir (öll kyn leyfð) að spá með að draga World of warcraft og Star Wars uppá borð? Verður Dark Sun okkar dnd Opus? Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópn...
#0114 Sumarspil eða gervigreind 14.07.2026 50:56
Þátturinn er í boði Malbygg Hvað gera spunaspilarar á sumrin? Er sami fílingur að kíkja í grámygluna í Baroviu á sumrin og á veturnar? Getur gervigreindin bætt spunaspila upplifun eða auðveldlega drepið eitthvað í okkur sem við notum til að skapa sögur og spennu? Svörtu tungurnar fara yfir víðan völl í síðasta þætti fyrir sumarfrí! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum o...
#0113 - Einhleypa í Borgó 09.06.2026 55:28
#0113 Þátturinn er í boði Malbygg. Hvernig er hið fullkomna DnD ævintýri fyrir byrjendur? Bjössi og Tryggvi hafa nokkra daga til að búa það til með dyggri aðstoð Svörtu tungnanna og prufa það svo á nokkrum byrjendum í starfsmannahópi Borgarleikhússins. Hvað gæti farið úrskeiðis? Mættir voru Tryggvi Hlynur Hannes Bjössi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: ww...
#0112 Tveir úr Tungunum: Töfraveröld ímyndunaraflsins 26.05.2026 59:14
Þátturinn er í boði Malbygg Ókei ókei ókei. Eftir harðorð bréf og andstyggilegar athugasemdir höfum við ákveðið að breyta titli þessa innslags yfir í "Tveir úr Tungunum". Þar setjast tvær tungur niður og ræða málin í þaula, almennilegt nörda trúnó. Að þessu sinni eru það Snæbjörn og Hjörtur sem eru mættir. Til stendur að spila hið æsispennandi spunaspil Draw Steel frá MCDM Productions. Bibbi fer...
#0111 Brú milli guðdómsins og veruleikans 19.05.2026 59:27
Þátturinn er í boði Malbygg Athugið að þátturinn inniheldur spilliefni um kvikmyndina Project Hail Mary. Hvað er list? Er listamanneskjan bara tilgerðarlegur aumingji sem á að fá sér alvöru vinnu? Eða það bara enn ein afleiðing brothættrar karlmennsku að geta ekki bara notið listar og sköpunar án þess að þurfa að smætta það? Og hvað í andskotanum hefur þetta með spunaspil að gera? Snæbjörn kaf...
#0110 Beggi Brugg 12.05.2026 53:19
#0110 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þættinum í kvöld fáum við Begga vin okkar í heimsókn. Við ræðum um heima og geima, gervigreindar dómstóll, óvenjugóðir galdrar og galdramunir ofl ofl. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru Lúlli Beggi Bjarni Hilmir Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0109 Fúría, framtíð vitkanna og Daði halldórsson 28.04.2026 57:02
#0109 Þátturinn er í boði Malbygg. Í þessum þætti ræðum við leikarasögu lúlla, módelið sem wizards of the coast eru að fara bjóða uppá? Er þetta að fara verða live service tölvuleikur? Er ekki nóg að eiga bara bækurnar. Spjallið færist svo yfir í frænda Tryggva. Hlustið og þér munið heyra! Mættir voru Lúlli Hannes Tryggvi Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á...
#0108 Hópfjármögnun og ægivald valkostanna 21.04.2026 41:24
Þátturinn er í boði Malbygg Er þetta of mikið? Of stórir tölvuleikir? Of mikið af efni á streymisveitum? Of margir valkostir? Verðum við að geta spilað leik og horft og þátt og verið í símanum á sama tíma? Er þetta ný tegund miðlunar í dag? Hannes Óli segir okkur frá "second-screen theory", við syrgjum þá tölvuleiki sem við höfum ekki náð að klára og köfum ofaní allt dótið sem við höfum keypt ge...
#0107 Hart og mjúkt 14.04.2026 55:28
#0107 Þátturinn er í boði Malbygg. Við byrjum þáttinn á útsláttarkeppni en tökum svo upp sama þema og í síðustu viku. Hver og einn kemur með umræðuefni og svo bara spjall og gaman. Mættir voru Lúlli Hilmir Bjarni Hlynur Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0106 Þroskað malbygg, ríða og deyja fyrir þema 31.03.2026 53:17
#0106 Þátturinn er í boði Malbygg. í þættinum í dag ætlum við að prófa nýtt þema, hver og einn kemur með eitt umræðuefni og við spjöllum um það og við erum ekki frá því að þetta hafi bara heppnast svona líka vel! Mættir voru Hilmir Bjarni Lúlli Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0105 Tjékkinn 18.03.2026 51:51
#0105 Þátturinn er í boði Malbygg. Jæja kæru vinir, afsakið þessa óvæntu pásu, en við erum komnir tvíefldir til baka! Í þessum fyrsta þætti eftir hlé ræðum við um þá yndislegu hefð sem hefur myndast hjá okkur í Silfurskottunum að tjékka okkur inn fyrir spil. Við mælum með, hefur góð áhrif á geðheilsu og vinskap. Njótið vel. Mættir voru Hilmir Tryggvi Bjarni Hlynur Takið þátt í umræð...
#2.4 Fallistarnir - Bjór og rækjur 03.02.2026 49:32
Malbygg, Malbygg! Konungsríki mitt fyrir Malbygg. Við höldum ævintýrinu áfram, ásamt því að finna Shakespeare tengd slagorð fyrir Malbygg. Nú eru tossarnir okkar hinsvegar týndir. En samt ekki svo illilega að þeir hafi ekki tíma fyrir bjór og rækjur. Og hver veit nema þeir hendi í eina sósíalíska spunatónleika á Kristals svölunum. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir Bjarni, Hannes og Lúlli. Tónlist:...
#0104 Tvær Tungur: Og skammastu þín svo! 29.01.2026 1:21:02
Þátturinn er í boði Malbygg Og við höldum áfram með seríuna okkar sem við höfum ákveðið að nefna „Tvær Tungur“ héðanaf, þar sem Bjössi og Hjörtur ræða lífsins lystisemdir og mannskepnunnar misbresti, á misgáfulegan hátt. Stundum tengt spunaspilum… Þeim tókst að taka upp þátt um daginn og stroka hann svo gjörsamlega út og því var tilvalið að ræða um skömmina í þessum þætti. Hver er munurinn á hei...
#2.3 Fallistarnir - Dullarfullir atburðir 22.01.2026 1:00:20
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Þá er komið að þriðja þætti af Fallistunum, heimabrugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú koma allir spilarar saman og sameina krafta sína og reyna að komast að því hvað er eiginlega að gerast innan veggja Taskíu. Þátturinn er í boði Malbygg. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir, Lúlli, Bjarni og Hannes Tónlist: Gust of Wind Flytjandi: S...
#0103 Tvær Tungur: Skoplegur blær 13.01.2026 1:15:02
Þátturinn er í boði Malbygg Bjössi og Hjörtur eru aftur komnir saman tveir til að leysa ráðgátur lífsins og greiða úr flækjum manneskjunnar. En fyrst og fremst ræða þeir um tölvuleiki. Ok. Kannski ekki fyrst og fremst. En það var allavega hugmyndin og þeir svo sannarlega gera það þegar þeir loksins koma sér að efninu. Hvers konar tölvuleik myndu ÞEIR vilja búa til? Er þetta enn einn "open worl...
#2.2 Fallistarnir - Hinir tossarnir 23.12.2025 1:00:24
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að öðrum þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Nú fylgjumvið Tossunum Þórði Nikulási og Vilhjálmi Elíasi eftir á vaktinni í Akademíunni. Þetta er seinni hluti af fyrsta þætti. Þátturinn er í boði Malbygg. Mættir eru: Tryggvi, Hilmir og Lúlli. Tónlist: Silvery Barbs Flytjandi: Scorching Ray...
#2.1 Fallistarnir - Tossarnir í Taskíu 16.12.2025 53:12
Þeir hafa kannski hæfileikana, en þá vantar allt annað. Það er komið að fyrsta þætti af Fallistunum, heimabugguðu ævintýri úr smiðju Svörtu tungnanna. Það er eitthvað stórt í uppsiglingu í undirheimum Taskíu. Á meðan varðsveitir Batterísins reyna að komast að því hvað það er, er verkefni Fallistanna einfalt: Ekki vera fyrir og ekki klúðra þessu (eins og þeir gera alltaf). Þetta er fyrri hluti af...
#0102 Prepp og pepp - partur tvö 09.12.2025 51:02
Seinni þáttur í undirbúningi fyrir upptöku á spili. Nú búum við til tvo fyrstu karakterana, sósíalíska þjóðlagaskáldið Virginíu Fönix og fyrrum undrabarnið Orfeus Killdaar. Svo köstum við uppá tölur og reiknum... ...sem er frábært podcast efni! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Kíkið líka endilega á samfélag...
#0101 Tvær Tungur: Sagan af Kristjáni Kristjánssyni handboltaþjálfa 02.12.2025 1:09:34
Þátturinn er í boði Malbygg Aftur eru tveir spilatossar sestir niður til að mana sig upp í spil. En nú er það á næsta leiti! Það stefnir í ægilega sjóræningjasögu fljótlega. Og þá spyr maður sig. Hvaða þráhyggja er þetta að vera að segja endalausar sögur af hlutunum? Spila spunaspil, leika leikrit, gera hlaðvörp, skrifa ævintýri, handrit, bækur? Er þetta ein af grunnþörfum manneskjunnar? Eða eru...
#0100 Tvær Tungur: Verðlagning tímans eða Hreint eldhús - betra líf 22.11.2025 59:08
Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg Hundraðasti þáttur! Og við vissum ekki einusinni af því þegar við tókum hann upp. Þetta hefur nú verið meira ævintýrið elsku hlustendur og hjartans ástarþakkir til ykkar sem hafið lagt á hlustir! Í þetta skiptið setjast tveir týndir synir niður og ræða málin. Bjössi og Hjörtur hafa verið fjarverandi bæði þáttum og spilum alltof alltof lengi. Afhverju...
#0099 Prepp og pepp 13.11.2025 1:43:20
#0099 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Hér kemur langur og góður þáttur, þetta er fyrsti undirbúnings þátturinn komandi ævintýrinu okkar. Í þessum fyrsta þætti ræðum við um ævintýrið og búum í sameiningu til borgina og samfélagið sem verður sögusvið ævintýrisins. Hér má sjá kortið borginni. https://ibb.co/fz3VN64R Mættir voru Hilmir Tryggvi Bjarni Takið þátt í umræð...
#0098 Ævintýri í vændum 28.10.2025 42:00
#0098 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Í þessari viku settust strákarnir niður og ræddu hvað væri framundan í hlaðvarpinu okkar. Mættir voru Hilmir Hannes Tryggvi Bjarni Takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar
#0097 Gestur | Mike Pohjola 14.10.2025 1:15:18
#0097 Þátturinn er í boði Quest Portal og Malbygg. Það var okkur heiður að fá hinn Finnska meistara Mike Pohjola í heimsókn til okkar. Mike er rithöfundur, handritshöfundur, leikjahönnuður, frumkvöðull, aktívisti og menningarfræðingur, svo eitthvað sé nefnt. En hann er líka mikill spunaspilari, LARP-ari og maðurinn á bakvið The Turku School. https://mikepohjola.fi/ Mættir voru Hlynur Tr...
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden