Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: podcasters.spotify.com
Skapare
Podcaststöðin
Kategori
Poddens webbplats
Senaste avsnittet
7 okt 2026
Var kan du lyssna?
Poddar i appen Replaio Radio Kommer snartPoddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar
Avsnitt
296. Control Resonant - besti leikur ársins kominn út? 07.10.2026 1:11:15
Ekkert helst í skefjum að eilífu ... Framhaldið á hinum stórskemmtilega CONTROL frá 2019 er loksins komið út! Remedy er heldur betur búið að elda góðann mat handa okkur með CONTROL RESONANT og við ætlum að skoða fyrstu hughrif okkar í þætti vikunnar. Arnór Steinn og Sölvi ræða leikinn á alveg spoiler free hátt.. Hvernig er heimurinn, spilunin, hljóðið og svo margt, MARGT fleira. Ef þið eruð ekki b...
295. Wolverine (2026) 30.09.2026 1:16:11
Þrjár klær á hvorri hendi og ótakmarkað magn af bræði ... velkomin í Wolverine ... Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fara í saumana á nýjasta útspili Insomniac. Spilunin, karakterarnir, plottið og margt fleira! Sölvi rifjar einnig aðeins upp eldri þætti af Tölvuleikjaspjallinu, en hann er að taka maraþon á öllum þáttunum. Er eitthvað sem við gerðum í fyrri þáttum sem við gerum ekki lengur?
294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg? 22.09.2026 1:13:44
Stutta svarið er nei. Langa svarið er þessi þáttur. Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fá RES EVIL sérfræðing Tölvuleikjaspjallsins til að ræða nýjustu tölvuleikjakvikmyndina. Strákarnir fengu boð á VIP sýningu Game TíVí og fóru bókstaflega BEINUSTU leið í stúdíó að taka upp þátt. Karakterinn, uppvakningarnir, blóðið og ruglið og MARGT fleira í geðveikum þætti. Spoiler free upp að mínútu 30! FARIÐ Á ÞE...
293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki? 17.09.2026 1:13:51
Glöggir hlustendur hafa tekið eftir því að góðkunningi þáttarins Sölvi Santos hefur dúkkað upp í fleiri þáttum en venjulega upp á síðkastið ... ... það er vegna þess að við ætlum að bæta honum í róteringu þáttastjórnenda Tölvuleikjaspjallsins! Nú erum við þrír! Fleiri þættir, fleiri gestir, fleiri leikir og meiri gleði. Tökum smá strategy leikjaspjall og tölum aðallega um STAR WARS: ZERO COMPANY!
292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september 10.09.2026 1:09:58
Er búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ... Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira!
291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif 28.08.2026 1:07:40
Þó að það sé búið að leka þessu öllu þá samt - LOKSINS erum við komin með official GTA VI gameplay!!! Gunnar og Sölvi horfðu á alla kynninguna og ýttu bókstaflega á REC þegar hún kláraðist. Hughrifin verða ekki ferskari en þetta. Hvað fannst þér um GTA VI kynninguna? VIð munum svo taka fleiri þætti í haust til að hita upp fyrir leikinn sjálfann!
290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam! 28.07.2026 39:59
Þú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite. Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn. Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins!
289. Fallout New Vegas endurgerð STAÐFEST! plús fleiri fréttir 20.07.2026 27:31
Hættið öllu sem þið eruð að gera, NEW VEGAS FÆR ENDURGERÐ: STAÐFEST Arnór Steinn réð ekki við sig og gerði smá sóló þátt í kjallaranum. Hvað þýðir tilvonandi endurgerð á FNV og hvað er í gangi hjá Bethesda? Smá greining á nýjustu fréttum.
288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí! 08.07.2026 1:01:52
Tölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí! Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins! Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna? Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár <333
287. GTA: San Andreas 24.06.2026 1:04:54
Ah shit, here we go again ... Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas. VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti!
286. Er Diablo IV ennþá góður? - með Sigga Sören 17.06.2026 1:05:47
Hatur ... volæði ... glundroði ... Diablo IV Þessi þriggja ára gamli leikur er enn að spilast út um allan heim. Tveir stórir aukapakkar, þrír nýir klassar ... nóg að gera! Diablo sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins Siggi Sören mætir og ræðir við Arnór Stein um leikinn. Klassarnir, djöflarnir, breytingarnar og margt fleira í stútfullum þætti vikunnar. Ert þú að spila Diablo IV? Endilega segðu okkur...
285. 007: First Light - fyrstu hughrif 10.06.2026 47:03
Nafnið er Spjallið ... Tölvuleikjaspjallið. Nýjasti 007 leikurinn er kominn út og við erum HRIFNIR! Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af þessum eftirvænta leik. Algjörlega spoiler free! Hvað finnst okkur um bardagakerfið, byssurnar, staðsetninginn, Bondarann og fleira! Er Bond kominn í þína tölvu? Segðu okkur hvað þér finnst!
284. State of Play með LIVE COMMENTARY! 02.06.2026 1:17:57
State of Play var að klárast rétt í þessu og við gerðum smá tilraun. Við höfðum sýninguna í gangi og tókum upp þátt á meðan við horfðum! Þannig þetta er live commentary fyrstu viðbrögð Arnórs Steins og Gunnars á öllum kynningunum! Það er smá skrýtið að horfa án samhengis en ekkert ómögulegt ... Ef þið viljið vera á sama stað og við þá skuluð þið horfa á official Sony YT rásar videoið og hafa á pás...
283. Lego Batman: Legacy of the Dark Knight - með Sölva Santos 27.05.2026 1:09:52
Var besti Lego leikur allra tíma að droppa? Mögulega. Arnór Steinn fékk góðvin þáttarins Sölva Santos til að ræða nýja Lego Batman leikinn! Hvað gerir leikurinn rétt? Hvað er öðruvísi? Er þetta geitin? Ef þið eruð búin að prófa nýja Lego Batman megiði endilega senda á okkur og segja hvað ykkur finnst! Þátturinn er í boði Pixelwear.is
282. Saros 20.05.2026 54:02
Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar er um Saros. Þáttur vikunnar ... ... þið fattið hvað málið er. Roguelike leikur þar sem markmiðið er að deyja og verða betri. Hvað finnst Arnóri Steini og Gunnari um þennan ágæta leik? Arnór er mjög tapsár og Gunnar hatar roguelike. This should be good ... Þátturinn er í boði PixelWear.is
281. Fable seinkað, Elden Ring kvikmynd og Bond lag með Lana Del Rey - fréttir maí 29.04.2026 50:29
Verður Fable seinkað? Var Lana Del Rey að droppa top 5 Bond lagi? Þetta og margt fleira í stútfullum fréttaþætti!
280. Crimson Desert 22.04.2026 1:09:04
Strákarnir eru komnir aftur úr páskafríi og leikur vikunnar er CRIMSON DESERT. Leikurinn er stútfullur og fallegur - en er hann góður? Fyrstu hughrif Arnórs Steins og Gunnars í pökkuðum þætti vikunnar. Hvað fannst þér um Crimson Desert?
279. Dispatch með Snorra Frey 01.04.2026 1:27:05
Að vera hetja eða ekki hetja ... Þáttur vikunnar er um DISPATCH - interactive ævintýraleik sem sló í gegn í fyrra. Arnór Steinn og Snorri Freyr ræða Dispatch bak og fyrir í stútfullum þætti. Það er alveg allur pakkinn, enda erfitt að tala um leikinn án þess að tala um söguna ... leikurinn er líka bara ... já ... saga. Hvað fannst þér um Dispatch?
278. GTA: Vice City 18.03.2026 1:03:27
Er þetta mesti vibe leikur allra tíma? GTA VI kemur út í ár og verður án efa einn stærsti leikur áratugarins. Til að hita upp ætlum við að nýta árið og spila gömlu leikina. Byrjum á Vice City! Arnór Steinn og Gunnar t aka gott nostalgíuspjall um þetta goðsagnakennda verk. Bílarnir, tónlistin, karakterarnir, raddleikararnir, umhverfið og svo margt, margt fleira í stórskemmtilegum þætti! Hvar er Vic...
277. Resident Evil Requiem - með Daníel Óla 11.03.2026 1:15:59
Hryllingur - spenna - one linerar ... er Resident Evil komið aftur í rótina? Requiem kom út um daginn og er búinn að fá frábærar móttökur. Arnór Steinn og Gunnar fengu Res Evil sérfræðinginn Daníel Óla (Trivíaleikarnir) í stúdíóið til að ræða leikinn. Tveir karakterar með tvær mismunandi spilanir, ein er fyrstu persónu hryllings og hinn er með gamla góða actionið sem við þekkjum og elskum. Hvað fa...
276. Wolverine fær útgáfudag, Sony lokar enn öðru fyrirtækinu og Xbox við dauðans dyr - fréttir mars 2026 25.02.2026 1:03:15
Hvað er í helstu fréttum? Wolverine er loksins kominn með útgáfudag, nýjasti leikurinn frá Insomniac Games lítur dagsins ljós þann 15. september næstkomandi! Bluepoint Games, fyrirtækið á bak við endurgerðir á borð við Shadow of the Colossus og Demon's Souls, heyrir sögunni til. Hvað þýðir þetta fyrir Sony? Er nýji forstjóri Xbox að fara að bjarga skipinu frá brotlendingu eða er hún þarna til...
275. Control 18.02.2026 1:19:20
Jæja, nú ert þú stjórinn, hvað ætlar þú að gera? Jessie Faden finnur loksins Stjórnunarmálaráðuneytið og fer þangað inn. Það sem tekur við er einn andskoti áhugaverður leikur. Arnór Steinn og Gunnar fjalla um CONTROL í þætti vikunnar. Leikur frá 2019, smíðaður af Remedy (Max Payne, Alan Wake) af alúð. Undursamlega steikt upplifun sem við mælum HIKLAUST með! Hefur þú spilað Control? Hvað fannst þér...
273. Fallout sería 2 11.02.2026 1:07:41
Erum við að tala um besta tölvuleikja adaption allra tíma? Sería 2 af Fallout frá Amazon kláraðist í síðustu viku og við erum gjörsamlega kjaftstopp. Hvílíkt og annað eins sjónvarpsefni! Arnór Steinn og Gunnar ræða seríu 2 í þaula (því miður verður spoilað) og það er af nógu að taka. Hver er special stats hjá aðalkarakterunum? Hver voru okkar uppáhalds páskaegg? Gat Arnór Steinn haldið meðvitund ú...
273. Ubisoft part 2 - vont verður verra 28.01.2026 1:09:55
Hvernig gat Ubisoft orðið verra? Reka fólk fyrir að stofna stéttarfélag, kenna starfsfólki um lélegt gengi leikja, slaufa fullt af leikjum og leggja áherslu á live service leiki. Þannig gat það orðið verra. Við gerðum þátt (nr 90) þar sem við fórum yfir sögu Ubisoft og nú þarf að bæta aðeins í. Það er fullt búið að gerast síðan þá og við erum mögulega að horfa upp á stutta framtíð franska risans.
272. The Alters - of margir Janar 21.01.2026 48:26
Hvernig væri að hafa afrit af þér til að aðstoða þig við ýmis verk? The Alters fór því miður fram hjá stórum hluta tölvuleikjasamfélagsins á síðasta ári. Þetta er stórskemmtilegur survival leikur þar sem þú spilar sem Jan Dolski og svo sem margar útgáfur af Jan Dolski. Við viljum ekki segja of mikið ... spilið leikinn. Leikurinn kom út 13.júní 2025 á PS5, Xbox X/S og Windows
Liknande poddar
Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden