Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Glöm inte att besöka poddens webbplats och stötta skaparen: podcasters.spotify.com

Skapare

Podcaststöðin

Kategori

Leisure

Poddens webbplats

podcasters.spotify.com

Senaste avsnittet

7 okt 2026

Var kan du lyssna?

Poddar i appen Replaio Radio Kommer snart

Poddar kommer snart till appen. Installera nu och bli först med att uppleva ett helt nytt sätt att lyssna på poddar

Ladda ned på Google Play Installera gratis Android nästan 10 mn nedladdningar · betyg 4,8 iOS snart

Avsnitt

21. Xbox X Series X 14.10.2020

Eru “the console wars” búin?  Við reynum að svara þessari erfiðu spurningu í þætti vikunnar þar sem við fjöllum um Xbox í öllu sínu veldi. Aðal efnið eru auðvitað nýju tölvurnar – Series X og Series S. Við ræðum bara um skemmtilegu hlutina og berum tölvuna meðal annars saman við Playstation 5. Við ræðum líka mögulega hvað Microsoft er að pæla með allar þær breytingar sem fylgja nýju tölvunum....

20. Fall Guys 07.10.2020

Á þessum óvissutímum er gott að gera það sem okkur öll dreymir. Vera bollukall og hlaupa niður þrautabraut með 59 öðrum bolluköllum og reyna að vinna kórónu. Allavega er það plottið í meistarastykkinu FALL GUYS! Þessi ótrúlega skemmtilegi partí-MMO-battle royale leikur kom út í ágúst og sló rækilega í gegn. Arnór Steinn og Gunnar fara í saumana á leiknum og ræða allt sem hægt er að ræða. Þrautabra...

19: Bónusþáttur! Tölvuleikir og heimsfaraldur II 05.10.2020

Ertu í sóttkví? Heimavinnandi út af heimsfaraldrinum?  Hentu þá þessum bónusþætti af Tölvuleikjaspjallinu í eyrað og hlustaðu á Arnór Stein og Gunnar bulla! Við gerðum svipað í þætti 8, hér ræðum við leiki sem okkur finnst sniðugt að prófa þegar maður neyðist til að vera heima vikunum saman vegna heimsfaraldursins. Þeir ræða m.a. hvað þeir eru að spila í dag og taka fyrir nokkra leiki sem eru...

18. No Man's Sky vs. Outer Worlds 30.09.2020

Það er aftur komið að því! Arnór Steinn kynnir leik fyrir Gunnari og Gunnar kynnir leik fyrir Arnóri.  Í þetta skiptið er smá þema, báðir leikirnir gerast úti í geimi!  The Outer Worlds kom út í október 2019 og er RPG leikur frá Obsidian. Sögusviðið er stjörnuþokan Halcyon sem er "nýlenda" jarðarinnar í himingeimnum. Skipið Hope, með hundrað þúsund manns frosin um borð, fór frá jörðinni...

17. Besti Tölvuleikjakarakterinn 23.09.2020

Hver er raunverulega besti tölvuleikjakarakter allra tíma?  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir Facebook hópana Tölvuleikjasamfélagið og Tölvuleikir - Spjall fyrir Alla. Þar var einfaldlega spurt: Hver er besti spilanlegi tölvuleikja karakterinn?  Svörin voru mörg og alveg ótrúlega fjölbreytt. Arnór og Gunnar tóku saman niðurstöðurnar úr báð...

16. Playstation 5 17.09.2020

Það má segja að allir hafi fengið eitthvað fyrir sig á Playstation 5 sýningunni í gær!  Sony staðfesti loksins útgáfudag fyrir tölvuna og sýndi efni úr nokkrum leikjum, bæði þeim sem hafa þegar verið kynntir og úr nokkrum óvæntum. Arnór Steinn og Gunnar ræða almennt um tölvuna og um allt það sem er staðfest. Þeir fjalla um alla þá leiki sem kynntir voru til sögunnar á sýningunni, en þar er af...

15. Far Cry 5 16.09.2020

Hefur þú það sem þarf til að sigra þungvopnaðan sértrúarsöfnuð? Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar leikinn Far Cry 5. Hann fylgir svipuðu þema og fyrri leikir, þar sem leikmaðurinn þarf að frelsa stórt svæði frá einhverjum hópi. Þessi leikur, ólíkt hinum, gerist í Bandaríkjunum, á meðan fyrri leikir gerðust á mjög framandi svæðum. Sögusviðið er Hope sýsla í Montana ríki. Þar hefur öfgatrúa...

14. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir: Super Mario Bros og Street Fighter 09.09.2020

Hver er versta tölvuleikjakvikmynd sem þú hefur séð?  Við höfum séð andskoti margar og því ákváðum við að henda í nýja þáttategund sem við ætlum að kalla "Ömurlega Tölvuleikjakvikmyndir"!  Hér horfir Arnór Steinn á eina mynd, Gunnar á aðra og svo kynna þeir myndirnar fyrir hvor öðrum. Við tölum um hvað þær eru ömurlegar, hvort það sé eitthvað gott í þeim og svo í lokin hvort við mælum me...

13. The Last of Us: Part 2 02.09.2020

Hvað þurfa hin síðustu okkar að hugsa út í? Uppvakningum með ofurheyrn? Ofbeldisfullum villimönnum? Skort á skotfærum? Öllu þessu í einu?  Það er eiginlega staðan í tölvuleiknum The Last of Us: Part II og það sem við ætlum að ræða í þessum samstarfsþætti okkar við Elko og Elko Gaming.   Fimm ár eru liðin frá atburðum fyrri leiks. Ellie er nítján ára gömul og þarf að takast á við nýjar áskoranir í...

12. Draugurinn í Tsushima 26.08.2020

Hefur þig ekki alltaf langað til þess að vera samúræji?  Í þessum fyrsta samstarfsþætti okkar við Elko förum við í saumana á leiknum The Ghost of Tsushima. Hann kom út í sumar við frábærar viðtökur.  Leikurinn gerist árið 1274 þegar Mongólar undir stjórn harðstjórans Khotun Khan réðust á eyjuna Tsushima í Japan. Þú stýrir Jin Sakai, sem er samúræji og síðasti eftirlifandi erfingi Sakai æ...

11. Stelpur í tölvuleikjum - Viðtal við Jönu Sól 19.08.2020

Í þessum fyrsta viðtalsþætti Tölvuleikjaspjallsins ræða Arnór Steinn og Gunnar við Jönu Sól Ísleifsdóttur, streymara og mótshaldara!  Hún hefur látið sig ýmist varða í málefnum stelpna í tölvuleikjum. Hún talar við þá um það áreiti sem hún hefur fengið á sig fyrir að vera stelpa í tölvuleikjum. Vandamálið virðist oft vera að fólk neitar að viðurkenna það að stelpur og konur verða fyrir áreiti...

10. Fallout 4 12.08.2020

Þetta er allt gott og blessað, en önnur nýlenda sárlega þarfnast þinnar hjálpar! Hlustendur báðu um þetta og við hlustuðum! Hér er hinn eini sanni Fallout 4 í allri sinni dýrð. Eftir kjarnorkustyrjöld sem meira og minna grandaði öllum heiminum fóru lítil samfélög að myndast hér og hvar í Bandaríkjunum. Í Fallout 3 fengum við að ferðast um höfuborgarsvæði Bandaríkjanna, í New Vegas fórum við um Moj...

9. Leikurinn hans Gunnars! Giants: Citizen Kabuto 05.08.2020

Bíddu ... bíddu, hvaða leikur? Í þessum fyrsta framhaldsþætti Tölvuleikjaspjallsins köfum við ofan í leikinn sem Gunnar talaði um í fyrsta þætti, Giants: Citizen Kabuto! Nostalgían hans og æska einkennast að miklu leyti af þessum leik.  Arnór tók sig til og keypti hann og spilaði í gegn. Hvernig var fyrir hann að spila e l d gamlan leik sem hann hafði aldrei heyrt um áður? Fannst honum leikur...

8. Bónusþáttur! Tölvuleikir og heimsfaraldur 31.07.2020

Þarftu að hanga heima í sóttkví eða jafnvel einangrun? Eins gott að við höfum tölvuleiki! Í þessum óvænta bónusþætti ræða Arnór og Gunnar um tölvuleiki og ástandið sem skapast hefur á landinu vegna heimsfaraldursins. Við þurftum mörg hver að hanga heima í vor og það virtist henta tölvuleikjaspilurum nokkuð vel. Þeir ræða hvaða leiki þeir spiluðu í samkomubanninu og hvað þeir hyggjast spila núna þe...

7. Stjörnustríðstölvuleikir 29.07.2020

Fyrir langa löngu síðan í leikjatölvu langt langt í burtu …  Þessi þáttur er tileinkaður öllum þeim Star Wars leikjum sem komið hafa út, og fjandinn hafi það þeir eru MARGIR. Hér fjöllum við um handfylli af Stjörnustríðsleikjum, spáum í þeim og spökulerum og veltum fyrir okkur hinni eilífu spurningu … hvernig er góður Star Wars leikur?  Arnór og Gunnar ræða meðal annars um KOTOR, Force U...

6. Gömlu Góðu GTA 22.07.2020

Hver er raunverulega besti GTA leikurinn af þessum gömlu? Þá erum við að tala um Claude, Tommy Vercetti og Carl Johnson. Við stýrðum þessum snarbiluðu geðsjúklingum upp stiga glæpaheims Rockstar í þremur mis góðum leikjum.  GTA III átti sér stað í Liberty City og það þarf ekki að skafa af því - hann gjörbreytti tölvuleikjaspilun þegar hann kom út árið 2001. GTA Vice City kom út aðeins einu ár...

5. Black&White og Hotline Miami 15.07.2020

Hvað hefur Gunnar spilað sem Arnór hefur ekki spilað? Hvað hefur Arnór spilað sem Gunnar hefur ekki spilað?  Spjall vikunnar er einhvernveginn á þessa leið. Gunnar kynnir fyrir Arnóri "guðaleikinn" Black & White , en sá leikur er úr smiðju mannsins á bakvið Fable seríuna. Þar er spilarinn guð sem þarf að redda sér fylgjendum og búa til heim - þú ræður hvort þú ert vondur eða góður guð.&nb...

4. Af hverju spilum við tölvuleiki? 08.07.2020

Svona í alvörunni, hvers vegna gerum við þetta eiginlega? Í þessum þætti taka Arnór og Gunnar (ekkert svakalega) heimspekilega umræðu sem tölvuleikjaaðdáendur hafa ef til vill oft spurt sig: Af hverju spilum við tölvuleiki? Hvað er svona gaman við það að deyja þúsund sinnum á móti einum vondukalli? Skipta afreksverðlaun (e. achievements) einhverju máli? Eru tölvuleikir í rauninni bara hollir og gó...

3. Red Dead Redemption 2 06.07.2020

Hvað er það sem gerir góðann mann?  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar Rockstar leikinn Red Dead Redemption 2. Útlagaöld bandaríska vestursins er að líða undir lok. Kúrekinn Arthur Morgan hefur margt á sinni könnu. Ekki nóg með að halda genginu sínu lifandi í heim sem er búinn að afneita þeim, þá þarf hann einnig að finna sinn stað í heiminum og hvaða tilgangi hann þjónar.  Þeir...

2. Skyrim 03.07.2020

Þú kannt að eitthvað um seyði, nennirðu að brugga handa mér öl? Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar tímamótaleikinn The Elder Scrolls V: Skyrim. Hvar stendur hann í dag - tæpum tíu árum eftir útgáfu? Þeir ræða mismunandi spilunarhætti, um söguna og margt, margt fleira. Er þetta raunverulega góður leikur eða er nostalgíutilfinningin að skemma fyrir okkur? Hvaða einkunn myndir þú gefa Skyrim...

1. Leikjaspjall 01.07.2020

Verið velkomin í glænýtt vikulegt hlaðvarp um tölvuleiki! Í þessum fyrsta þætti kynnumst við stjórnendunum, Arnóri Steini og Gunnari. Þeir ræða  mikilvægasta hlutann í lífi tölvuleikjaspilara: upphafið. Hvað spiluðu þeir fyrst? Hvaða leikir mótuðu spilunina? Voru það leikir úr kornflex pökkum eða var NES tölva á heimilinu? Allt um það og meira í þessum þætti! Lag: Aries Beats

Lyssna på podden Tölvuleikjaspjallið i Replaio

Radio och poddar i en och samma app - gratis och utan konto. Installera redan idag och missa inte premiären

Ladda ned på Google Play

Replaio är ingen poddutgivare; programnamn, omslag och ljud tillhör sina upphovspersoner och distribueras via offentliga RSS-flöden