Útvarp Saga

Við skákborðið

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.utvarpsaga.is

Autor

Útvarp Saga

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

www.utvarpsaga.is

Cel mai nou episod

11 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Kristján Örn Elíasson & Helgi Áss Grétarsson 11.11.2026

Kristján Örn Elíasson ræðir við Helga Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúa Miðflokksins, stórmeistar sem er nýkominn til landsins eftir keppni erlendis. Fjölda skákfrétta og fleira.  -- 11. nóv. 2025

Skáksögur og Birnukaffi – Ólafur S. Ásgrímsson og Jon Olav Fivelstad 28.10.2026

Skemmtilegar skáksögur, dómaralíf og félagsskapurinn í Taflfélagi Reykjavíkur eru í fyrirrúmi þegar Kristján Örn Elíasson tekur á móti Ólafi S. Ásgrímssyni, fyrrverandi bankamanni, og Jon Olav Fivelstad, tölvunarfræðingi. Þeir eru báðir alþjóðlegir skákdómarar og hafa um árabil tekið þátt í íslensku skáklífi. Ólafur rifjar upp eftirminnileg skákmót, kynni af stórmeisturum og tímana þegar skákir fó...

Sveinbjörn Jónsson - skákmaður, hagyrðingur og trillukarl úr Súgandafirði 21.10.2026

Það er fleira á borðinu en taflmenn þegar Sveinbjörn Jónsson sest niður með Kristjáni Erni Elíassyni. Sveinbjörn er Súgfirðingur, skákáhugamaður og hagyrðingur, fyrrverandi kennari og trillukarl sem hefur komið víða við. Í léttu og líflegu spjalli fléttast saman skák og vestfirskt mannlíf, kennsla, sjómennska og sköpunargleði. Rifjaðar eru upp minningar og rætt um áhugamálin sem fylgja manni í geg...

Helgi Áss – TR á toppnum og stórátök fram undan í skákheiminum 14.10.2026

Það er nóg um að vera í skákheiminum þessa dagana! Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sest við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni og fer yfir það helsta sem gerðist á Íslandsmóti skákfélaga um síðustu helgi. TR er á toppnum, en hvernig verður framhaldið? Hvaða skákmenn komu mest á óvart og hverjir eru líklegir til afreka í vor? Síðan er sjónum beint út í heim, þar sem Caruana er í sviðsljósi...

Hverjir fara upp? – Gauti Páll Jónsson og Gunnar Freyr Rúnarsson 07.10.2026

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum eru Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar, sem kemur inn símleiðis, og Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, sem situr með Kristjáni í stúdíóinu. Gauti Páll segir stuttlega frá næsta tölublaði Skákar og spáir síðan fyrir um úrslit í öllum deildum Íslandsmóts skákfélaga. Sérstaklega er rætt um „stóru liðin“ í 1. deild – Víkingaklú...

Björn Þorfinnsson: Ólympíuskák, Asíuveldin og skák á Íslandi 01.10.2026

Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur skákmeistari og fjölmiðlamaður, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum. Þátturinn hefst á léttu spjalli um veru Björns í Bítinu á Sýn, þar sem hann hefur verið að leysti Heimi Karlsson af síðustu dagana. Þaðan liggur leiðin yfir á nýafstaðið Ólympíuskákmót, þar sem rætt er um gengi íslensku liðanna, frammistöðu einstakra skákmanna og meðal annars erfitt mót...

Erum við í raun öll ein skákfjölskylda? - Björn Þorfinnsson, Gunnar Freyr Rúnarsson, Sigurður Þórðarson og Haukur Hauksson 23.09.2026

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum eru Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari í skák og fyrrverandi ritstjóri DV, Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, og Haukur Hauksson, fréttaritari Útvarps Sögu. Björn kemur símleiðis inn í þáttinn og ræðir Ólympíumótið í skák og gengi íslensku liðanna þ...

Botvinnik, Ólympíuskákmótið og framtíð skákarinnar: Björgvin Víglundsson skákmeistari 16.09.2026

Björgvin Víglundsson, skákmeistari og fyrrverandi landsliðsmaður, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Þeir ræða Ólympíuskákmótið sem nú er hafið, skipan íslensku liðanna og fyrstu andstæðinga þeirra. Íslensku sveitirnar eru töluvert stigahærri á öllum borðum í fyrstu umferðinni og standa því frammi fyrir nánast skyldusigri. Björgvin segir jafnframt frá Mikhail Botvinnik, einum áhrifamesta heimsm...

Magnús Pálmi Örnólfsson – Hóll, skákævintýri og U2 í hálfa öld 09.09.2026

Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur með MBA-gráðu, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Magnús lítur yfir viðburðaríkt sumar og segir meðal annars frá ferð að Galtarvita, afmælisskákmóti Halldórs Grétars Einarssonar í Bolungarvík, maraþonhlaupi með dóttur sinni og skemmtilegri skáksögu frá Osló. Hann segir jafnframt frá endurgerð Hóls í Bolungarvík og framtíðaráformum sínum um a...

Íslandsmót og víkingar - Björn Þorfinnsson og Gunnar Freyr 02.09.2026

Gestir í skákþættinum eru Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins en hann er sagnfræðingur að mennt. Við sláum svo á þráðinn til hans Björns Þorfinnssonar, alþjóðlegs skákmeistara og fv. ristjóra DV.

Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen 26.08.2026

Gestur í skákþættinum er Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags Viðskiptafræðinga og hagfræðinga.   Lag: Gerum okkar besta með Valgeiri Guðjónssyni og íslenska landsliðinu í handbolta 

Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi 19.08.2026

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins. Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga Ólafsson, eina af goðsögnum íslenskrar skákar, en hann varð sjötugur 15. ágúst sl. Honum var óskað til hamingju með tímamótin og stuttlega rætt við hann um Ólympíuskákmótið sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í haust. Mikið hefur verið um að ve...

Skákstyrkir, ferðakostnaður og forgangsröðun – Björgvin Víglundsson og Halldór Grétar Einarsson 12.08.2026

Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson, fyrrverandi landsliðsmann í skák, og FIDE-meistarann Halldór Grétar Einarsson, formann meistaraflokksráðs Breiðabliks. Að þessu sinni var sjónum beint að opinberum styrkjum til skákhreyfingarinnar og hvernig þeim er varið. Hvar liggja mörkin milli nauðsynlegs stuðnings og óþarfa kostnaðar?  Sérstaklega var rætt um áætlaðan 15 milljóna króna kos...

Hvað hefur gerst í íslenskri skák? – Björgvin Víglundsson um skákina, stjórnmálin og framtíðina 05.08.2026

Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, fær til sín Björgvin Víglundsson byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák. Þeir ræða stöðu og framtíð íslenskrar skákar, skákpólitík og þær breytingar sem orðið hafa á styrkleika og virkni íslenskra skákmanna. Kristján fer yfir nýjar tölfræðilegar upplýsingar um þróun íslenskra skákstiga, stöðu Íslands í samanburði við hin Norðurlöndin...

Skákin, þorskastríðin, Bobby Fischer og ESB: Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fv. stýrimaður 29.07.2026

Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið er Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður, kaupmaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Sigurður tók þátt í tveimur síðustu þorskastríðunum og rifjar upp reynslu sína af þeim sögulegu átökum. Í um fjóra áratugi hefur Sigurður jafnframt flutt inn náttúruvöruna „Rautt eðalginseng“, sem unnin er úr ginsengi ræktuðu í 800–1.000 met...

Hver er besti skákmaður allra tíma? Sigurbjörn Björnsson ber saman Fischer, Kasparov og Carlsen 22.07.2026

Kristján Örn ræðir við Sigurbjörn Björnsson, FIDE-meistara og gæða- og öryggisstjóra hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar. Sigurbjörn er stjórnmálafræðingur að mennt og með meistaragráðu í viðskiptafræði. Þeir félagar leitast við að svara einni sígildustu spurningu skáksögunnar: Hver er besti skákmaður allra tíma? Að þeirra mati koma einkum þrír fyrrverandi heimsmeistarar til greina: Bobby Fischer, Gar...

Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari sextugur 15.07.2026

Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks en hann er jafnframt formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Halldór Grétar segir frá skákmóti sem haldið var í Golfskálanum í Bolungarvík í byrjun júlí en mótið var haldið í tilefni sextugsafmælis Halldórs fyrr á árinu. Halldór Grétar hefur um áratugaskeið lagt íslenskri skákhreyfingu lið með...

Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák 08.07.2026

Kristján Örn Elíasson ræðir við Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák, um þróun byggðarmála í Reykjavík og áhrif skipulags, byggingarreglna og húsnæðisstefnu á kostnað og gæði íbúðabyggðar. Í upphafi þáttarins ræða þeir félagar um skák og snúa svo aftur að henni undir lok þáttarins. Þar sem Björgvin er byggingarverkfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri og f...

Mikið framundan í skákinni: Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri Tímaritsins Skákar 01.07.2026

Þeir Gauti Páll og Kristján Örn ræddu málefni líðandi stundar í skákinni bæði innanlands og utan. Það er margt framundan hér á landi, eins og skákmót í Bolungarvík, og á Akureyri, Raufarhöfn og Egilsstöðum , ásamt reglulegu mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst talið einnig að landsliðum Íslands, rætt var um Íslendinga að tafli erlendis og góðan árangur Gauta Páls undanfarið í hraðskák, en hann...

Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands 24.06.2026

Gestur Kristjáns Arnar er Helgi Ólafsson, stórmeistari, rithöfundur, fyrrverandi skólastjóri Skákskóla Íslands, nýsæmdur heiðursfélagi Skáksambands Íslands og einn kunnasti skáksagnfræðingur landsins . Helgi hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenskrar skákar og íslensks skáklífs, skrifað um skák í Morgunblaðið, gefið út fjölda bóka og þar á meðal merkar bækur um tvo af áhrifamestu einstak...

Kristján Örn, Jóhann Sigurðarsson & Gauti Sigurðsson 10.06.2026

Kristján Örn fær til sín bræðurna Jóhann Sigurðarsson leikara og skákmann og Gauta Sigurðsson píanóleikara og skákmann. 10. júní 26

Kristján Örn & Björgvin Víglundsson 03.06.2026

Gestur skákþáttarins í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fv. landsliðsmaður í skák.

Skákstarfið hjá KR, aðalfundur SÍ og fleira: Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR 27.05.2026

Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjararáðs viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur þáttarins. Hann segir frá skákstarfinu í KR, fer yfir nýlega skákatburði, mót og sumarstarf fram undan og margt fleira. Hann ræðir við Kristján Örn um að aðalfund Skáksambands Íslands sem haldinn verður á laugardaginn en þar verða lagðar fram tillögur um lagabreytingar og aði...

Ísland tók bronsið á HM öldungasveita (65+): Þorsteinn Þorsteinsson FIDE-meistari 20.05.2026

FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og fv. markaðsstjóri RÚV er gestur Kristjáns Arnar. Þeir ræða Heimsmeistaramót öldungasveita sem fram fór í Durres í Albaníu í lok apríl en íslenska sveitin í flokki 65+ tryggði sér bronsið eftir spennandi lokaviðureignir í síðustu umferðunum. Aldeilis frábær árangur hjá íslensku sveitinni! Liðið var skipað þeim Helga Ólafssyni, Ma...

Sjóðheitur á fullri ferð: Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák og stigahæsti skákmaður landsins 13.05.2026

Kristján Örn tekur á móti Vigni Vatnari Stefánssyni, stórmeistara og stigahæsta skákmanni landsins í stúdíóið. Þeir ræða Íslandsmótið í skák og glæsilegan árangur alþjóðlega meistarans Hilmis Freys Heimissonar sem varð einn efstur á mótinu. Hilmir Freyr er því nýr Íslandsmeistari í skák! Þeir fjalla um íslenska skáklandsliðið og verkefni þess á árinu, frábæran árangur Vignis Vatnars á Evrópumóti e...

Ascultă podcastul Við skákborðið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice