Útvarp Saga
Við skákborðið
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák 08.07.2026 54:27
Kristján Örn Elíasson ræðir við Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák, um þróun byggðarmála í Reykjavík og áhrif skipulags, byggingarreglna og húsnæðisstefnu á kostnað og gæði íbúðabyggðar. Í upphafi þáttarins ræða þeir félagar um skák og snúa svo aftur að henni undir lok þáttarins. Þar sem Björgvin er byggingarverkfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri og f...
Mikið framundan í skákinni: Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri Tímaritsins Skákar 01.07.2026 52:07
Þeir Gauti Páll og Kristján Örn ræddu málefni líðandi stundar í skákinni bæði innanlands og utan. Það er margt framundan hér á landi, eins og skákmót í Bolungarvík, og á Akureyri, Raufarhöfn og Egilsstöðum , ásamt reglulegu mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst talið einnig að landsliðum Íslands, rætt var um Íslendinga að tafli erlendis og góðan árangur Gauta Páls undanfarið í hraðskák, en hann...
Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands 24.06.2026 55:28
Gestur Kristjáns Arnar er Helgi Ólafsson, stórmeistari, rithöfundur, fyrrverandi skólastjóri Skákskóla Íslands, nýsæmdur heiðursfélagi Skáksambands Íslands og einn kunnasti skáksagnfræðingur landsins . Helgi hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenskrar skákar og íslensks skáklífs, skrifað um skák í Morgunblaðið, gefið út fjölda bóka og þar á meðal merkar bækur um tvo af áhrifamestu einstak...
Kristján Örn, Jóhann Sigurðarsson & Gauti Sigurðsson 10.06.2026 1:02:02
Kristján Örn fær til sín bræðurna Jóhann Sigurðarsson leikara og skákmann og Gauta Sigurðsson píanóleikara og skákmann. 10. júní 26
Kristján Örn & Björgvin Víglundsson 03.06.2026 54:22
Gestur skákþáttarins í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fv. landsliðsmaður í skák.
Skákstarfið hjá KR, aðalfundur SÍ og fleira: Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR 27.05.2026 58:03
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjararáðs viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur þáttarins. Hann segir frá skákstarfinu í KR, fer yfir nýlega skákatburði, mót og sumarstarf fram undan og margt fleira. Hann ræðir við Kristján Örn um að aðalfund Skáksambands Íslands sem haldinn verður á laugardaginn en þar verða lagðar fram tillögur um lagabreytingar og aði...
Ísland tók bronsið á HM öldungasveita (65+): Þorsteinn Þorsteinsson FIDE-meistari 20.05.2026 56:19
FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og fv. markaðsstjóri RÚV er gestur Kristjáns Arnar. Þeir ræða Heimsmeistaramót öldungasveita sem fram fór í Durres í Albaníu í lok apríl en íslenska sveitin í flokki 65+ tryggði sér bronsið eftir spennandi lokaviðureignir í síðustu umferðunum. Aldeilis frábær árangur hjá íslensku sveitinni! Liðið var skipað þeim Helga Ólafssyni, Ma...
Sjóðheitur á fullri ferð: Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák og stigahæsti skákmaður landsins 13.05.2026 54:47
Kristján Örn tekur á móti Vigni Vatnari Stefánssyni, stórmeistara og stigahæsta skákmanni landsins í stúdíóið. Þeir ræða Íslandsmótið í skák og glæsilegan árangur alþjóðlega meistarans Hilmis Freys Heimissonar sem varð einn efstur á mótinu. Hilmir Freyr er því nýr Íslandsmeistari í skák! Þeir fjalla um íslenska skáklandsliðið og verkefni þess á árinu, frábæran árangur Vignis Vatnars á Evrópumóti e...
Kristján Örn & Helgi Áss Grétarsson 07.05.2026 54:52
Skákin Kristján Örn og Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák.
Björn Ívar Karlsson 15.04.2026 55:48
Gestur skákþáttarins er Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands . Lag í lok þáttar: Don´t stop með Fleetwood Mac (3:13).
Kristján Örn & Magnús Pálmi Örnólfsson & Halldór Grétar Einarsson 08.04.2026 59:49
Skákin. Kristján Örn og Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari 8. apríl 2026
Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar 01.04.2026 55:40
Skákin. Kristján Örn stjórnar skákumræðunni í dag. 1. apríl 2026 Skákþáttur: Gestur Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið haldið í fertugasta skipti: Skákmeistararnir Björgvin Víglundsson og Gauti Páll Jónsson 26.03.2026 51:28
Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák. Þeir ræða alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem hefst í Hörpunni kl. 15:00 í dag og ýmislegt annað fróðlegt. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni en 422 skákmenn munu sitja að tafli í heila viku en þetta er í fertugasta skipti sem mótið er haldið. Þeir félagar slá á þrá...
Alþjóðlega Kópavogsmótið: Halldór Grétar Einarsson, FIDE-meistari og formaður meistaraflokksráðs skákdeildar Breiðabliks 19.03.2026 55:53
Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari, stofnandi skákdeildar Breiðabliks og formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Þeir ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem nú stendur yfir, alþjóðlegt mótahald á Íslandi, Reykjavíkurskákmótið sem hefst á miðvikudaginn í næstu viku, gera upp Íslandsmót skákfélaga sem lauk um þar síðustu helgi og margt fleira.
Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV 11.03.2026 1:00:12
Kristján Örn Elíasson tekur á móti þeim Þorsteini Þorsteinssyni, FIDE-meistara og ritstjóra Hagstofu Íslands og Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara í skák og ritstjóra DV.is. Báðir kepptu þeir með úrvalsdeildarliði Taflfélags Vestmannaeyja sem varð Íslandsmeistari félagsliða í skák um síðustu helgi. Í þættinum ræða þeir "Öskubuskuævintýrið" - eða leiðina að titlinum, undirbúninginn, liðsmenn...
Skák og stjórnmál: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi í Reykjavík 04.03.2026 1:00:45
Kristján Örn Elísson ræðir við Helga Áss Grétarsson, stórmeistara og varaborgarfulltrúa í Reykjavík um skákina og stjórnmálin. Helgi hafði nýlega pólitísk vistaskipti þegar hann gekk úr Sjálfstæðisflokknum og yfir í Miðflokkinn. Helgi talar um borgarmálin, svo sem fyrirhugaða borgarlínu, og leggur áherslu á gott samstarf allra flokka um helstu hagsmunamál Reykjavíkurborgar. Þeir Kristján og Helgi...
Kristján Örn ræðir við Björgvin Víglundsson um ofurstórmeistarann Jan Timman sem lést nýlega 26.02.2026 55:34
Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Þeir fjalla um hollenska stórmeistarann og Íslandsvininn Jan Timman sem lést í síðustu viku eftir erfið veikindi. Timman var einn besta skákmaður Vesturlanda á síðustu öld. Einnig ræða þeir gömlu skákmeistarana, ólíka skákstíla og margt fleira.
Norðlenskt skáklíf: Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar 18.02.2026 59:51
Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Áskell er alþjóðlegur meistari í skák og núverandi Íslandsmeistari öldunga. Þeir ræða skákstarfið fyrir norðan, mikinn vöxt í öldungaskákinni á landinu öllu undanfarin ár, forsetatíð Áskels hjá Skáksambandi Íslands um síðustu aldamót, Heimsmótið í Salnum í Kópavogi árið 2000 þar sem þáverand...
Skákskóli Íslands: Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands 11.02.2026 54:27
Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður va...
Skák er 90% einbeiting: Björgvin Víglundsson verkfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari 21.01.2026 56:19
Gestir skákþáttarins eru Björgvin Víglundsson, verkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Eins og svo oft áður er farið vítt og breitt í umfjöllun um skák en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.
Þorparinn, togarasjómaðurinn og skákmeistarinn: Ólafur Kristjánsson frá Akureyri 14.01.2026 50:32
Kristján Örn ræðir við Ólaf Kristjánsson, 82 ára fyrrverandi togarasjómann frá Akureyri en hann er öflugur skákmaður. Ólafur kallar sig "Þorparann" því hann fæddist í Glerárþorpi en Akureyri er skipt upp í tvo hluta, þ.e. norðan og sunnan Glerár. Í þættinum segir Ólafur frá samferðamönnum sínum, sterkum skákmönnum á Norðurlandi. Hann talar um upphaf taflmennsku sinnar, skákmót á Akureyri, Íslandsm...
Skákárið 2025: Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari 07.01.2026 56:48
Kristján Örn Elíasson tekur á móti Sigurbirni Björnssyni FIDE meistara. Þeir stikla á stóru í umfjöllun sinni um fréttnæma atburði og uppákomur sem þeim þótti athyglisverðar á skákárinu 2025. Þeir ræða árangur Vignis Vatnars Stefánssonar, Magnúsar Carlsen og fleiri sterkra og efnilegra skákmanna á heimsmeistaramótunum í at- og hraðskák en teflt var í höfuðborginni Doha í Katar á milli jóla og nýár...
Heimsmeistaramótin í at- og hraðskák: Vignir Vatnar Stefánsson og Benedikt Briem 25.12.2025 53:18
Vinirnir og samstarfsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og þrefaldur Íslandsmeistari í skák árið 2025 og Benedikt Briem næststigahæsta ungmenni landsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir tala um kennsluvefinn www.vignirvatnar.is , skákmót í Portúgal, fjölbreytt skákmótahald og margt fleira. Vignir ræðir heimsmeistaramótin í atskák og hraðskák, sem fram fara í Doha í Katar á milli jóla...
Jólasveinarnir: Róbert Lagerman FIDE-meistari og Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins 17.12.2025 55:46
Kristján Örn fær til sín skákmennina Róbert Lagerman, FIDE- meistara og alþjóðlegan skákdómara og Gunnar Frey Rúnarsson sagnfræðing og formann Víkingaklúbbsins. Í þættinum ræða þeir jólaskákmót Ása, skákkúbbs eldri borgara, þar sem Róbert sigrði með yfirburðum. Þeir gera kröfu um nýja staðsetningu Íslandsmóts skákfélaga, bæta þurfi fyrirkomulag og skipulagningu mótsins, salernismál séu í miklum ól...
Á Hælinu með Don Everything: Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari 03.12.2025 47:45
Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari er gestur Kristjáns Arnar. Róbert gengur undir ýmsum nöfnum í skákheiminum eins og Mr. Big Time og Don Everything en hann hefur setið fjölda námskeiða og aflað sér ýmissa réttinda og nafnbóta hjá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Því fer það vel að hann kalli sig stundum "Don Everything". Þeir Kristján og Róbert hafa verið góðir félagar í gegnum...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.