Útvarp Saga
Við skákborðið
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Gervigreind og sýndareinvígi: Björgvin Víglundsson skákmeistari og verkfræðingur 26.11.2025 59:25
Gestur skákþáttarins að þessu sinni er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari. Þeir Kristján Örn ræða um skák og gervigreind og spái í spilin hvernig skákin muni þróast með tilkomu gervigreindarinnar. Að mati Björgvins hefur varðveisla skákefnis í stafrænu formi náð því umfangi að gervigreind geti ekki einungis hermt eftir leikjum einstakra meistara heldur líka stíl þe...
Íslandsmót skákfélaga og afmælis-skákveisla í Garðabæ: Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari og ritstjóri DV.is 19.11.2025 53:40
Kristján Örn tekur á móti Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara og ritstjóri DV.is í stúdíóið. Mikill kraftur er búinn að vera í íslensku mótahaldi að undanförnu og fara þeir Björn og Kristján yfir það helsta í þættinum. Þeir tala um menn og málefni og segja sína skoðun á hvoru tveggja. Taflfélag Garðabæjar hélt upp á 45 ára afmæli sitt á mánudaginn var í Miðgarði, nýja íþróttahúsi bæjarins, en...
Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson ritstjóri 12.11.2025 55:33
Kristján Örn Elíasson ræðir við Gauta Páll Jónsson sagnfræðing og ritstjóra tímaritsins Skákar. Umfjöllunarefnið er nýjasta tímarit Skákar sem kemur út á morgun eða á sama tíma og úrvalsdeild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir ræða Heimsbikarmótið á Indlandi en margir af sterkustu skákmönnum heims hafa þegar helst úr lestinni. Einng tala þeir um Íslandsmót Símans í netskák,...
Draumar, blóðþrýstingur, ástin og gervigreind: Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur 05.11.2025 56:52
Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur (MBA), er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Magnús er 1. borðsmaður skákdeildar Dímonar frá Hvolsvelli en ný skáksveit félagsins hefur unnið sig úr 4. deild og upp í 2. deild á aðeins tveimur árum eða frá því að skákdeildin var stofnuð og hóf að tefla á Íslandsmóti skákfélaga. Magnús segir frá ferðalagi skáksveitarinnar á Evrópumót taflfélaga...
Skáksviðið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák 29.10.2025 1:00:01
Gestur þáttarins er Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari í skák og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Helgi varð heimsmeistari í skák 20 ára og yngri árið 1994. Hann hefur verið virkur á skáksviðinu og sinnt skrifum og lögfræðilegri ráðgjöf. Helgi hefur einnig kennt við lagadeild Háskóla Íslands og skrifað mikið um stjórn fiskveiða og önnur málefni. Þótt Helgi sé fjölhæfur þá ræða...
Skákskóli Íslands og EM taflfélaga: FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson og Halldór Grétar Einarsson 22.10.2025 55:49
Gestir í skákþættinum eru FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og Halldór Grétar Einarsson, formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða Evrópumót taflfélaga sem nú stendur yfir í Ródos í Grikklandi en tugir Íslendinga taka þátt í mótinu. Björn Ívar segir frá skáklífinu í Skákskóla Íslands, Halldór Grétar ræðir tölfræði og ber saman meðalaldur og meðalskákstig...
Víkingaskák og EM landsliða: Gunnar Freyr Rúnarsson og Halldór Grétar Einarsson 15.10.2025 57:31
Gestir skákþáttarins eru Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Gunnar ræðir sögu Víkingaskákarinnar á Íslandi en það var hugvitsmaðurinn Magnús Ólafsson sem fann upp Víkingaskákina árið 1967. Hugmyndina fékk hann þegar hann sá sexhyrnda ró í skrúfuhrúgu en Magnús hafði áður fengið þá hugmynd að hanna...
Bankar, skák og Litla kaffistofan: Stefán Þormar Guðmundsson fv. banka- og veitingamaður 08.10.2025 49:56
Stefán Þormar Guðmundsson, skákmaður og fyrrverandi banka- og veitingamaður er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Stefán talar um skákmenninguna í íslensku bönkunum hér á árum áður og segir að mikið hafi verið teflt og mörg sterk skákmót hafi verið haldin í bönkunum og á vegum þeirra. Hann segir að mikil samkeppni hafi verið á milli bankanna og þeir keppst við að ná til sín sterkustu skákmönnunum....
Skákin hreinsar hugann: Jón Steinn Elíasson, skákmaður og fv. eigandi Toppfisks 01.10.2025 52:12
Kristján Örn ræðir við Jón Stein Elíasson skákmann og fyrrverandi eiganda Toppfisks. Þeir ræða skákina, fiskvinnsluna, dvölina á Spáni, gjaldþrot Toppfisks eftir 40 ára starfsemi, gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins Play og áhrif þess á Íslendinga með dvalarstað eða búsetu á Spáni og margt fleira. Jón Steinn segir að í erfiðum atvinnurekstri sínum í gegnum tíðina hafi skákin gert honum kleift að gley...
Ungir og efnilegir: Haukur Víðis Leósson og Pétur Úlfar Ernisson 24.09.2025 52:16
Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag eru þeir Haukur Víðis Leósson, 11 ára, og Pétur Úlfar Ernisson, 9 ára, tveir efnilegir og áhugasamir ungir drengir úr Taflfélagi Reykjavíkur. Þeir hafa tekið skákina föstum tökum undanfarin 3 ár og hafa m.a. báðir orðið Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Kristján heimsækir þá á æfingu og ræðir við þá um það hvernig þeir fengu áhuga á skák og hvaða...
Skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, formaður TR og ritstjóri Skák.is 17.09.2025 51:40
Þeir Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og ritstjóri Skák.is og Kristján Örn halda áfram að segja fréttir af erlendum og innlendum skákvettvangi en Ingvar Þór var einnig gestur þáttarins í síðustu viku. Ingvar og Kristján fóru yfir mótasenuna bæði hér heima og erlendis og var af nógu að taka! Í upphafi síðari hluta þáttarins hringja þeir í Björn Ívar Karlsson, skólastjóra Skák...
Íslenskar og erlendar skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, annar ritstjóra Skák.is og formaður TR 10.09.2025 55:18
Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og annar ritstjóra skákfréttavefjarins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar. Þeir segja bæði íslenskar og erlendar skákfréttir og ræða það helsta sem er að gerast í skákinni um þessar mundir.
Framtíðarsýn og stefna: Vignir Vatnar Stefánsson, Íslandsmeistari í skák 04.09.2025 53:16
Kristján Örn fær til sín Vigni Vatnar Stefánsson Íslandsmeistara í skák og stigahæsta skákmann landsins. Vignir segir frá mikilli ævintýraferð sinni til nokkurra landa í Asíu en hann og félagi hans í landsliðinu, Aleksandr Domalchuk-Jonasson, tefldu m.a. á athyglisverðu skákmóti í Kína þar sem þeir mættu grjóthörðum ungum og efnilegum Kínverjunum við í skákborðið. Vignir Vatnar tapaði ekki skák, g...
Vetrarstarf taflfélaganna í landinu að hefjast: Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR 27.08.2025 1:00:45
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir fara yfir mótaáætlun Skáksambands Íslands fyrir starfsárið 2025-26 og segja nýjustu fréttir af skákfréttavefnum skak.is en vetrarstarf talfélaganna í landinu er að hefjast núna í byrjun september. Má þar nefna undanrásir Íslandsmótsins í net...
Skákstarfið hjá TR: Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson skákþjálfarar 20.08.2025 59:26
Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson frá Taflfélagi Reykjavíkur eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara yfir mótaáætlun TR og ræða starfið hjá félaginu í vetur en það byrjar með Borgarskákmótinu í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, 20. ágúst. Árbæjarskákmótið er á dagskrá 31. ágúst og Haustmót TR hefst miðvikudaginn 3. september en stefnt er að teflt verði í tveimur lokuðum flokkum og einum opnum...
ChatGPT-5 metur íslenska skákmenn: Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari 13.08.2025 57:07
Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Þeir félagar ræða sterkustu skákmeistara Íslands frá miðri síðustu öld og til dagsins í dag. Gervigreindarforritið ChatGPT-5 kemur mikið við sögu en til gamans, og með fyrirvara um staðreyndarvillur, ólíkar forsendur og aðgengi að upplýsingum, var það fengið til að meta 30 st...
Skákkennsla fyrir stjórnmálamenn: Sigurður Þórðarson og Gunnar Freyr Rúnarsson 06.08.2025 56:38
Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru þeir Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Sigurður Þórðarson, áhugamaður um skák. Sigurður er fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni í síðustu tveimur Þorskastríðum Íslendinga en í fjóra áratug hefur hann flutt inn náttúrulyfið Rautt-eðalginseng. Rautt-eðalginseng er vinsælt hjá skákmönnum en það er talið skerpa athygli og auka þol. Þ...
Skák og píanóleikur - hugur og hönd: Þorsteinn Gauti Sigurðsson og Gunnar Freyr Rúnarsson 30.07.2025 56:28
Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari og skákmaður og Gunnar Freyr Rúnarsson, sagnfræðingur og formaður Víkingaklúbbsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þema þáttarins snýst að einhverju leyti um New York en Þorsteinn bjó þar í 4 ár þegar hann stundaði nám við einn virtasta tónlistarháskóla heims, Juilliard School of Music. Gunnar Freyr hefur einnig mikið dálæti af borginni en hann hefur margoft h...
Skák á Íslandi og í Austur-Evrópu: FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn J. Björnsson 23.07.2025 52:29
FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn J. Björnsson fara um víðan völl í spjalli sínu við Kristján Örn í þættinum. Rætt er um skák á Íslandi fyrr og nú, nýskipuð keppnislið Íslands sem fara í haust til Batumi í Gerorgíu á Evrópumóti landsliða í skák, heimsbikarmót kvenna sem nú stendur yfir einnig í Batumi í Georgíu, Viðeyjarhraðskákmótið sem haldið var í Viðey um helgina, ferðalög þeir...
"Óli, leggðu á": Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks 16.07.2025 56:15
Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistara og formann meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða afreksskák á Íslandi og styrki til afreksmanna í skák og þróun alþjóðlegra skákstiga síðustu árin. Þeir bera saman aldur og styrkleika sterkustu skákmanna Norðurlandanna og einnig koma þeir inn á hversu skákin er orðin vinsæl á netinu en um það bil þriðjungur íslen...
Íslenskir titilhafar í frjálsu falli á stigalista FIDE: Björn Víglundsson og Halldór Grétar Einarsson 09.07.2025 1:00:31
Skákmeistarinn Björn Víglundsson byggingaverkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og FIDE-meistarinn Halldór Grétar Einarsson, formaður meistararáðs Breiðabliks eru gestir Kristjáns Arnar í þættinum. Björn er í þættinum allan tímann en Halldór Grétar kemur símleiðis inn í síðari hluta þáttarins frá Hveragerði. Björn segir frá sterkum frönskum stórmeisturum sem uppi voru á átjánd...
Skák, Þorskastríð, Rússar, Fischer og Rautt-eðalginseng: Sigurður Þórðar og Gunnar Freyr 02.07.2025 51:14
Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru þeir Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Sigurður Þórðarson, áhugamaður um skák og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni í síðustu tveimur Þorskastríðum Íslendinga við Breta. Sigurður er kaupmaður og hefur síðustu fjóra áratugina flutt inn náttúrulyfið "Rautt-eðalginseng" sem er ræktað í 800-1000 metra hæð í Suður-Kóreu. Þeir félaga...
Yfirsetur á Íslandsmóti í skák og afreksmál: Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar 25.06.2025 55:40
Gestur þáttarins er Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar. Rætt er um nýlokin Íslandsmót í skák á Blönduósi en þar voru krýndir fjórir Íslandsmeistarar. Rætt er um fyrirkomulag mótsins og hvort rétt sé að leyfa yfirsetur á Íslandsmótum í skák. Í síðari hluta þáttarins er rætt um afreksmálin í skákinni og hvað hægt sé að gera til að standa betur við bakið á okkar efnilegasta fólki. Gauti...
Ýmsar hugleiðingar og aðalfundur SÍ: Björgvin Víglundsson skákmeistari 18.06.2025 1:04:06
Björgvin Víglundsson, fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir ræða um Magnus Carlsen og Hikaru Nakamura og gamla meistara skákborðsins. Í síðari hluta þáttarins ræða þeir skákhátíðina á Blönduósi og aðalfund Skáksamband Íslands sem haldinn var á Blönduósi sl. laugardag þrátt fyrir að skoðunarmenn reikninga sambandsins hafi talið tilefni til þess að haf...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.