Útvarp Saga

Við skákborðið

Sports IS ↓ 169 episodes

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

Author

Útvarp Saga

Category

Sports

Podcast website

www.utvarpsaga.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gerir kröfu um breytingar: Arnar Erwin Gunnarsson alþjóðlegur meistari í skák 11.06.2025

Arnar Erwin Gunnarsson alþjóðlegur meistari í skák ræðir feril sinn og hugleiðingar um framtíð skákar á Íslandi. Hann talar um erfiðar krossgötur sem hreyfingin stendur frammi fyrir um þessar mundir. Arnar telur að Ísland sé að tapa sérstöðu sinni sem mikil skákþjóð og hafi dregist langt aftur úr öðrum þjóðum síðastliðin 10 til 15 ár. Hann segir að fjármunum hafi verið mjög illa varið sem hafi bit...

Skákferill og stúderingar: Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari 05.06.2025

Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Sigurbjörn er FIDE meistari og Íslandsmeistari í skák með félagsliði sínu, Skákdeild Fjölnis. Sigurbjörn ræðir skákferil sinn og segir frá hvernig hann stúderar skák og undirbýr sig gegn andstæðingum sínum. Hann nefnir ýmis skákforrit og skákgagnagrunna og lýsir hvernig undirbúningur skákmanna hefur þróas...

Sterkurstu heimsmeistarar sögunnar: Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur 28.05.2025

Björgvin Víglundsson, þrautreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu heimsmeistaraeinvígi Mikhail Botvinnik og David Bronstein árið 1951 og sterkustu heimsmeistarar sögunnar. Björgvin þakkar Útvarpi Sögu og Kristjáni Erni fyrir þeirra framlag til skákhreyfingarinnar með því að halda úti vikulegum útvarpsþætti um skák. Hann ræðir...

Minningarmót Gunna Gunn og Ottó: Helgi Árnason og Tryggvi Leifur Óttarsson 21.05.2025

Kristján Örn ræðir við Helga Árnason, formann Skákdeildar Fjölnis og Tryggva Leif Óskarsson, formann Taflfélags Snæfellsbæjar um stórglæsilegt og fjölmennt minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem haldið var í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um síðustu helgi. Báðir voru þessir frumkvöðlar miklir áhugamenn um skák og merkir menn í sögu Ólafsvíkur.

Skákþjálfaraspjall: Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson 16.05.2025

Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson eru gestir þáttarins að þessu sinni. Báðir eru þeir fyrrum formenn Taflfélags Reykjavíkur og núverandi þjálfarar félagsins. Í þættinum fara þeir yfir hvernig skákumhverfið hefur breyst á undanförnum áratugum og hvernig ný tækni og aukin samkeppni hefur haft áhrif á þjálfun og styrkleika skákmanna. Með tilkomu rafrænna kennslutækja og skákforrita hefur orðið bylt...

Við skákborðið - Gauti Páll Jónsson og Torfi Leósson 14.05.2025
Norðurlandameistarar stúlkna í skák: Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem 07.05.2025

Gestir Kristjáns Arnar eru nýkrýndir Norðurlandameistarar í skák. Þetta eru ungu landsliðskonurnar Iðunn Helgadóttir 17 ára og Guðrún Fanney Briem 15 ára sem báðar urðu Norðurlandameistarar í sínum flokkum eftir sigur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fór í Fredericia í Danmörku um þar síðustu helgi. FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og einn af þjálfurum st...

Iðunn og Guðrún Norðurlandameistarar í skák 07.05.2025
Hvað er að frétta? - Ingvar Þór Jóhannesson annar ritstjóra vefmiðilsins Skák.is 30.04.2025

Ingvar Þór Jóhannesson, skákfréttaritari og annar ritstjóra vefmiðilisins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir félagar ræða nýafstaðið Reykjavíkurskákmót, skipulagningu mótsins, val þátttakenda, gengi íslensku keppendanna og ýmislegt fleira varðandi umgjörð mótsins og annað. Frábær árangur íslensku landsliðsstúlknanna barst í tal en þær Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem ur...

Vignir Vatnar Stefánsson sigrar Magnus Carlsen á skákmótaröðinni Titled Tuesday 23.04.2025

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, stigahæsti skákmaður landsins er mættur í stúdíóið til Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu í þessum skemmtilega þætti. Í gærkvöldi, á hinu ofursterka vikulega Titled Tuesday hraðskákmóti á Chess.com, gerði Vignir sér lítið fyrir og lagði sjálfan Magnus Carlsen að velli - með svörtu! Líklegast hefur enginn Íslendingur unnið Carlse...

Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum 16.04.2025

Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum er gestur Kristjáns Arnar. Geir segir frá hvenær hann fékk fyrst áhuga á skák og skákmótum sem hann hefur tekið þátt í. Hann telur upp góða skákmenn sem sátu á Alþingi með honum og talar um Friðrik Ólafsson og aðra sterka skákmeistara sem hann hefur mætt á skákborðinu. Barnabörn Geirs, Inga Jóna 12 ára og Hafþór...

Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR 09.04.2025

Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR er gestur þáttarins. Oddgeir er með doktorsgráðu í hagfræði og starfar sem framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Í þættinum minnast þeir Kristján Örn Friðriks Ólafssonar, fyrsta, sterkasta og þekktasta stórmeistara Íslendinga í skák, sem andaðist föstudaginn 4. apríl síðastliðinn eftir skammvin veikindi. Oddgeir segir frá barn...

Björn Þorfinnsson ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák 03.04.2025

Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Björn segir frá ferðum sínum á skákmót í Túnis í Afríku og norður í land á 20 ára afmælismót Goðans þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari. Björn stefnir á að bæta sig í skák á gamalsaldri eins og hann orðar það en hann hefur hækkað um tæplega 40 elo-skákstig á nokkrum mánuðum. Kristján Örn fó...

Björn Þorfinnsson 03.04.2025

Kristján Örn ræðir við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan meistara í skák og ritstjóra DV.

Stöðnun og óvirkir afreksmenn: Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og formaður meistararáðs Breiðabliks 27.03.2025

Kristján Örn tekur á móti FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni, formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða tölfræði eða árangur þeirra keppenda sem stóðu sig hvað best á nýafstöðnu Íslandsmóti skákfélaga. Einnig velta þeir vöngum yfir þeirri kyrrstöðu sem ríkir hjá mörgum af bestu afreksmönnum okkar Íslendinga í skák en þessir skákmenn eru þá ýmist óvirkir eða tefla lítið. Þeir Hal...

Út um allar trissur með Gunnari Frey Rúnarssyni og Róberti Lagerman 19.03.2025

Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins og FIDE meistarinn Róbert Lagerman, aðalritari Vinaskákfélagsins og alþjóðlegur skákdómari heimsækja Kristján Örn í stúdíóið á Útvarpi Sögu. Þeir fara út um víðan völl og ræða meðal annars um fyrirkomulag Íslandsmóts skákfélaga, Víkingaskák, bréfskák, landsliðsmál Grænlands, Reykjavíkurskákmótið, skák úti á landsbyggðinni, Æsi skákfélagið og vel he...

Vestfirðingarnir Guðmundur Gíslason og Magnús Pálmi Örnólfsson 12.03.2025

Kristján Örn tekur á móti Vestfirðingunum Guðmundi Gíslasyni, FIDE meistara og verkstjóra hjá hraðfrystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal og Magnúsi Pálma Örnólfssyni, skákmeistara  og hagfræðingi MBA.

Íslandsmót skákfélaga og Boris Spassky: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson 05.03.2025

FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks ræða um Íslandsmót skákfélaga sem lauk um síðustu helgi. Sigurbjörn minnist Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák og eins af fremstu skákmönnum sögunnar, sem lést á fimmtudaginn í síðustu viku áttatíu og átta ára að aldri. Árið 1969 náði Spassky hápunkti ferils síns þegar...

Tímaritið Skák og Íslandsmót skákfélaga: Gauti Páll Jónsson, ritstjóri og Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands 26.02.2025

Í þessum eitthundraðasta frumflutta þætti Við skákborðið tekur Kristján Örn á móti þeim Gauta Páli Jónssyni, ritstjóra tímaritsins Skákar og Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Umræðuefnið er tímaritið Skák sem kemur út lok vikunnar eða við upphaf síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga, Íslandsmótið, Skákskólann, Norðurlandamót ungmenna í Borgarnesi og margt fleira skemmtilegt.

Karl Gauti Hjaltason, alþingismaður og formaður Taflfélags Vestmannaeyja 19.02.2025

Kristján Örn fær til sín Karl Gauta Hjaltason, alþingismann og formann Taflfélags Vestmannaeyja. Þeir ræddu sterka stöðu skákíþróttarinnar á Íslandi, þingsályktunartillögu Karls Gauta frá því árið 2020 um skákkennslu í grunnskólum, öflugt skákstarf í Vestmannaeyjum, Íslandsmót skákfélaga en félagið stefnir á að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli 2026 á 100 ára afmælisári félagsins. Þá talaði...

Skák og sundsmokkar: Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur 12.02.2025

Gestur skákþáttarins í dag er Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir Kristján Örn og Magnús Pálmi fóru um víðan völl í spjalli sínu eins og svo oft áður. Af erlendum vettvangi ræddu þeir Titled Tuesday netskákmótin, Tata Steel ofurmótið  sem haldið er árlega í Wijk aan Zee í Hollandi, Free Style Chess Grand Slam Tour 2025 mótaröðina en fyrsta slembiskákmótið í mótaröðinni...

Afreksstefna Breiðabliks: Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs 29.01.2025

Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks er gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag. Halldór ræðir afreksstefnu skákdeildar Breiðabliks og segir að ýmsum markmiðum deildarinnar hafi þegar verið náð. Máli sínu til stuðnings bendir hann meðal annars á árangur Blika í Skákþingi Reykjavíkur sem nú stendur yfir en 7. umferð þingsins verður tefld í kvöld. Þeir f...

Friðrik Ólafsson 90 ára goðsögn 22.01.2025

Friðrik Ólafsson er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann er þekktasti og sterkasti skákmeistari sem Íslendingar hafa eignast og var á meðal sterkustu skákmanna heims á sínum tíma. Friðrik var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Hann á glæsilegan starfsferil að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Á sun...

Skákspjall: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari 16.01.2025

Gestir þáttarins í dag eru Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák og Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu, segja skemmtilegar sögur, tala um stefnu eða framtíð skákarinnar, hvernig menn takast ólíkt á við mótlæti eins og tap og hvernig og hversu fljótir menn eru að "núllstilla" sig, eins og Helgi orð...

Óvæntar uppákomur á heimsmeistaramótunum í New York: Róbert Lagerman, Magnús Pálmi og Helgi Áss 08.01.2025

Gestir þáttarins í dag eru Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari, Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA og stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák. Umræðuefnið er óvæntu uppákomurnar sem áttu sér stað á heimsmeistaramótunum í atskák og hraðskák sem fram fóru í New York á milli jóla og áramóta. Annars vegar er um að ræða "Stóra galla...

Listen to the Við skákborðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.