Útvarp Saga
Við skákborðið
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands 18.12.2024 1:00:10
FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands eru gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun eða hugvekja um nýafstaðið heimsmeistaraeinvígi indverska áskorandans Gukesh Dommaraju og heimsmeistarans Ding Liren frá Kína. Einvíginu lauk með sigri Gukesh 7,5-6,5. Gukesh er þar með nýr heimsme...
Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 3. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák 11.12.2024 57:53
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák, er gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í þriðja skiptið í röð. Umræðuefnið er eins og áður heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. des...
Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 2. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák 04.12.2024 52:15
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í annað skiptið í röð. Umræðuefnið er, eins og í síðasta þætti, heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. desember eða þar til an...
Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 1. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák 27.11.2024 44:44
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Umræðuefnið er heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. desember eða þar til annar hefur náð 7.5 vinningi en tef...
Gamlir skákmeistarar og nýir: Björn Víglundsson skákmeistari og byggingarverkfræðingur 13.11.2024 55:30
Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu gamlir erlendir skákmeistarar og heimsmeistaraeinvígið í skák 2024 sem fara mun fram í Singapúr dagana 25. nóvember til 13. desember nk. Það verða Kínverjinn Ding Liren (32 ára) ríkjandi heimsmeistari og áskorandinn Gukesh Dommaraju (18 ára) frá Indlandi sem ta...
Björn Þorfinnsson ritstjóri DV.is og alþjóðlegur meistari í skák 06.11.2024 1:00:50
Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er Björn Þorfinnsson ritstjóri DV.is. Hann var útnefndur alþjóðlegur meistari í skák árið 2009 og hefur náð tveimur áföngum að stórmeistaratitli. Það er því engu logið þegar fullyrt er að hann sé í hópi sterkustu skákmanna landsins. Þeir félagar, Björn og Kristján, fóru um víðan völl og ræddu meðal annars um atskákkeppni taflfélaga sem lauk í gær, liðsgöngu...
Heimsmeistareinvígið í skák 1972 og 100 ára afmæli FIDE: Guðmundur G. Þórarinsson, Einar S. Einarsson og Hilmar Viggósson 30.10.2024 53:34
Gestir þáttarins að þessu sinnu eru þeir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, Einar S. Einarsson fyrrverandi forstjóri VISA á Íslandi og Hilmar Viggósson fyrrverandi bankaútibússtjóri. Guðmundur og Einar eru báðir fyrrverandi forsetar Skáksambands Íslands og Hilmar er fyrrverandi gjaldkeri sambandsins en þeir Guðmundur og Hilmar voru við stjórnvölinn þegar „Einvígi...
Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdastjóri Isavia ANS 23.10.2024 1:00:53
Kristján Örn tekur á móti Kjartani Briem formanni skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdarstjóra Isavia ANS en félagið er dótturfélag Isavia sem annast flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í upphafi þáttar segir Kjartan aðeins frá starfi eða hlutverki Isavia ANS en svo snúa þeir sér að starfinu hjá Skákdeild Breiðabliks. U-25 hópur Breiðabliks tekur nú í fyrsta skipti þátt í Evrópumóti...
Spilling og svindl í skák: Þorvaldur Logason skákmeistari, heimspekingur og félagsfræðingur 16.10.2024 55:15
Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum að þessu sinni er skákmeistarinn, heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Þorvaldur Logason en hann er höfundur hinnar umdeildu bókar Eimreiðarelítan - Spillingarsaga sem kom út í lok síðasta árs. Megin þema eða inntak þáttarins er spilling og svindl í skák, þ.e. misnotkun valds. Í þættinum skilgreinir Þorvaldur þessi hugtök, hann kemur inn á elítur og...
Stigahæsti skákmaður landsins: Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari 09.10.2024 57:16
Gestur þáttarins er Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari og langstigahæsti skákmaður landsins. Vignir er 21 árs gamall, hann er atvinnumaður í skák og er stofnandi og eigandi vefsíðunar http://www.vignirvatnar.is en þar er að finna mikið og gott kennsluefni í skák fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks kíkti einnig í heimsókn í byrjun þáttarins en h...
Ólympíumótið og Íslandsmót skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri Taflfélags Vestmannaeyja 02.10.2024 53:43
Gestur Kristjáns Arnar er Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs hjá RÚV og núverandi ritstjóri Hagstofu Íslands. Þorsteinn er liðsstjóri Taflfélags Vestmannaeyja; hann er FIDE meistari og einn af betri skákmönnum landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir Ólympíumótið í skák og einstaka árangur hvers liðsmanns íslensku liðanna. Mótinu lauk fyrir nokkrum dögum e...
Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson sagnfræðingur og ritstjóri 25.09.2024 51:53
Gauti Páll Jónsson er gestur Kristjáns í þessum þætti. Tímaritið Skák kemur út í næstu viku eða á sama tíma og fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir félagar fara inn á efnistök nýjasta blaðsins og annað skáktengt efni en ritstjórinn vildi þó ekki greina frá öllu efni tímaritsins og segir að það sé fyrir kaupendur blaðsins að lesa og skoða. Blaðið verður til sölu í Rimaskóla um...
Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur 18.09.2024 58:41
Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, heimsótti Kristján Örn í þáttinn að þessu sinni. Björgvin sagði að árið 1958, þegar hann var 12 ára gamall, hafi hann verið að fylgjast með og skrá niður skák Friðriks Ólafssonar og Inga R. Jóhannssonar í Landsliðsflokki. Þá hafi Bragi Kristjánsson komið að honum og hvatt hann til að taka þátt í Íslandsmótinu í 2. flokki í sk...
Ólympíumótin í skák: Jóhann Hjartarson stórmeistari 04.09.2024 1:02:09
Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er einn af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Hann var á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta er stórmeistarinn Jóhann Hjartarson en hann starfar í dag sem yfirlögfræðingur Íslenskrar Erfðagreiningar. Þeir Kristján og Jóhann gefa sér góðan tíma til að ræða þátttöku Íslendinga á Ólympíumótunum í skák í gegnum tíðina en fyrsta for...
Skákdeild KR: Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen formaður 28.08.2024 55:32
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen var gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um barna- og unglingstarf hjá KR, Íslandsmót skákfélaga í október og vendingar í félagaskiptum en KR-ingar hafa styrkt sig verulega frá því í fyrra. Einnig ræddu þeir EM ungmenna sem nú fer fram í Prag í Tékklandi, komu inn á Ólympíumótið í skák sem fram í Búdapest í Ungverjalandi í næsta mánuði og ýmislegt fl...
Á spjalli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Íslandsmeistara í skák 23.08.2024 1:01:47
Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn. Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp...
Filippseyjar og Íslandsmótið í netskák: Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson 14.08.2024 56:05
Gestir þáttarins eru skákmeistararnir Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson. Þorvarður hefur margoft heimsótt Filippseyjar en eiginkona hans er ættuð frá borginni San Carlos sem er á eyju sem heitir Negros. Hann segir sögu af ferðalagi sínu á fjölmennt helgarskákmót sem haldið var í borginni Bacolod og kynnum sínum af grjóthörðum filippseyskum skákmönnum. Þorvarður segir það algengt...
Vinaskákfélagið: Hörður Jónasson forseti og Róbert Lagerman gjaldkeri 07.08.2024 58:03
Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins en Vinaskákfélagið hlúir að skáklífinu í Vin jafnframt því að efna til viðburða í þágu fólks með geðraskanir í samvinnu við athvörf, búsetukjarna, geðdeildir, félagsamtök og einstaklinga. Í síðari hluta þáttarins spjalla þeir einnig símleiðis við Róbert Lagerman gjaldkera Vinaskákfélagsins og fyrrverandi fors...
Upprennandi stórstjarna: Katrín Ósk Tómasdóttir 9 ára skáksnillingur 31.07.2024 55:34
Það var fjölmennt og góðmennt Við skákborðið í dag. Kristján Örn tók á móti feðginunum Katrínu Ósk Tómasdóttur 9 ára og Tómasi Tandra Jóhannssyni ásamt FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni fv. formanni skákdeildar Breiðabliks og fv. varaforseta Skáksambands Íslands. Síðar í þættinum bættist svo við FIDE meistarinn og skákkennarinn Björn Ívar Karlsson símleiðis frá Vestmannaeyjum en hann va...
Hinar ýmsu hliðar gervigreindar: Dr Yngvi Björnsson prófessor við HR 24.07.2024 55:46
Kristján Örn tekur aftur á móti dr. Yngva Björnssyni prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík aðra vikuna í röð. Í síðustu viku ræddu þeir um gervigreind og skák og heldur umræðan áfram nú þar sem Yngvi upplýsir frekar um hinar ýmsu hliðar gervigreindar. Yngvi segir frá þeim gervigreindarrannsóknum sem hann hefur fengist við í gegnum árin þar sem hann hefur notað skák og aðra svipaða bo...
Gervigreind og skák: Dr. Yngvi Björnsson, prófessor 17.07.2024 54:03
Gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti er Dr. Yngvi Björnsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann var einn fyrsti doktorsmenntaði Íslendingurinn sem lagði áherslu á gervigreind en hann hefur lengi stundað kennslu og rannsóknir á því sviði. Hann er jafnframt áhugamaður um skák og hefur notað tölvuskák sem viðfangsefni í mörgum af sínum rannsóknarverkefnum. Í þættinum ræða þeir...
Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson 10.07.2024 1:00:37
Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar. Sveinbjörn sagði frá skákstarfinu á Súgandafirði og á Vestfjörðum hér á árum áður en Sveinbjörn sá meðal annars um skólaskák á Vestfjörðum um árbil. Hann sagði frá sterkum skákmö...
Skák á Grænlandi: Róbert Lagerman og Veronika Steinunn Magnúsdóttir 03.07.2024 56:38
Grænlandsfararnir Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari og Veronika Steinunn Magnúsdóttir blaðamaður og laganemi eru gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti. Þau ræða um útbreiðslu skákíþróttarinnar á Grænlandi sem skákfélagið Hrókurinn undir forystu Hrafns Jökulssonar heitins kom á í byrjun aldarinnar. Róbert fer til Grænlands núna í júlí og verður það 74 ferðin hans til Grænlands...
Ný lög um skák frá Alþingi: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands 26.06.2024 52:45
Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands er viðmælandi Kristjáns Arnar í þessum þætti og ræddu þeir að mestu um eftirfarandi: Alþingi Íslendinga samþykkti ný lög um skák síðastliðinn laugardag eða á síðasta starfsdegi þingsins fyrir sumarfrí. Lögin fela í sér þá breytingu að núverandi lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990 falla úr gildi frá...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.