Útvarp Saga
Við skákborðið
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hve þung er þín krúna: Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson FIDE meistarar 19.06.2024 57:29
Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson eru mættir Við skákborðið til Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun um nýja bók eftir Sigurbjörn sem er að koma út í komandi viku. Hve þung er þín krúna er söguleg skáldsaga sem segir frá heimsmeistaraeinvíginu í skák á Íslandi á nýstárlegan hátt. Hún greinir frá því hvernig íslensku skipuleggjendurnir tókust á við margvís...
Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Rúnar Sigurpálsson 12.06.2024 59:01
Gestir skákþáttarins að þessu sinni eru skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson, hagfræðingur MBA og Rúnar Sigurpálsson, FIDE meistari og framkvæmdastjóri orkufyrirtækisins Fallorku á Akureyri. Magnús Pálmi var í stúdíóinu með Kristjáni Erni en Rúnar kom svo inn í síðari hluta þáttarins með símasambandi frá Akureyri. Í fyrri hlutanum sagði Magnús frá áætlun sinni um að setja á stofn skáksetur á H...
Björn Ívar Karlsson FIDE meistari og skákkennari og Helgi Árnason formaður Fjölnis 05.06.2024 1:01:17
Skákkennarinn og FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson var gestur þáttarins að þessu sinni. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn veltu fyrir sér slökum árangri heimsmeistarans Ding Liren í Norway Chess skákmótinu sem lýkur í vikunni. Björn efaðist um að við fengjum að sjá einvígi á milli Ding og áskorandans Gukesh í lok árs eins og stefnt er að, Ding Lir...
Nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur: Ingvar Þór Jóhannesson og Gauti Páll Jónsson 22.05.2024 1:00:50
Nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur, Ingvar Þór Jóhannesson og fráfarandi formaður félagsins, Gauti Páll Jónsson eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum. Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur var haldinn í síðustu viku en þá voru m.a. gerðar þær breytingar á stjórn félagsins að Gauti Páll Jónsson, fráfarandi formaður, vék úr aðalstjórn í varastjórn og Ingvar Þór tók við formennsku. Gauti Páll...
Gunnar Kr. Gunnarsson: Íslandsmeistari í skák og knattspyrnu 08.05.2024 53:52
Gunnar Kristinn Gunnarsson er gestur þáttarins að þessu sinni. Gunnar er fyrrverandi útibússtjóri Útvegsbankans í Hafnarfirði og var hann liðsmaður í sigursælli sveit bankans í hinni vinsælu skákkeppni stofnanna. Hann var forseti Skáksambands Íslands á árunum 1974-1975 og 1982-1984. Gunnar hefur þá sérstöðu meðal íslenskra skákmanna að vera eini Íslandsmeistarinn í skák (1966) sem einnig hefur unn...
Nýkrýndur Íslandsmeistari í skák: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari 30.04.2024 58:08
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Íslandsmótinu í skák lauk á laugardaginn þegar lokaumferðin fór fram í Mosfellsbæ. Fyrir lokaumferðina hafði Helgi Áss Grétarsson þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en þá var hann einum og hálfum vinningi á undan næsta manni, Vigni Vatnari Stefánssyni, fráfarandi Íslandsmeistara....
Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is 24.04.2024 59:44
Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari og ritstjóri DV.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir ræddu aðallega um Skákþing Íslands sem nú stendur yfir, nýafstaðið áskorendamót FIDE sem fram fór í Toronto í Kanada þar sem átta af sterkustu skákmönnum heims kepptu tvöfalda umferð allir við alla um réttinn til að skora á Ding Liren núverandi heimsmeistara í skák síðar á árinu. Einnig ræd...
Róbert Lagerman - þáttur 2 17.04.2024 57:39
Kristján Örn Elíasson og Róbert Lagerman - þáttur 2 - framhald af síðasta þætti
Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari 10.04.2024 54:57
Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari mætti í settið á Útvarpi Sögu en þetta var sextugasti þáttur Kristjáns Arnar Elíassonar Við skákborðið. Róbert lærði skák frekar seint miðað við marga aðra sem náð hafa langt en hann var orðinn 15 ára gamll þegar fósturfaðir hans Hörður Victorsson kenndi honum fyrst að tefla. Skákkennslan stóð stutt þar sem Hörður nennti ekki lengur að tefla...
Landsliðskonurnar Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir 04.04.2024 56:43
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir, landsliðskonur í skák, segjast afar ánægðar með Reykjavíkurskákmótið sem heppnaðist vel þrátt fyrir að þeim finnist að þeim hefði mátt ganga betur eins og gengur. Stemningin á slíkum mótum sé einstök og gaman að sjá hversu margir sæki mótið aftur ár eftir ár. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Við skákborðið en Kristján...
Héðinn Steingrímsson stórmeistari í skák 27.03.2024 56:29
Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson er gestur Kristjáns Arnar í þættinum Við skákborðið á Útvarpi Sögu að þessu sinni. Héðinn varð strax ungur að árum mjög sterkur skákmaður. Hann varð margsinnis Norðurlandameistari barna- og unglinga, hann varð heimsmeistari barna undir 12 ára árið 1987 og var aðeins 15 ára gamall þegar hann varð í fyrsta skipti Íslandsmeistari í skák en það ár náði hann styrklei...
Gríðarleg spenna á Reykjavíkurskákmótinu: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands 20.03.2024 48:37
Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands kom í settið til Kristjáns Arnar á Útvarpi Sögu. Umræðuefnið var Reykjavíkurskákmótið en gríðarleg spenna er hlaupin í mótið þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Áttunda umferð verður tefld í dag og lýkur mótinu á morgun þegar níunda umferð verður tefld kl. 11:00 um morguninn. Stórmeistarinn Alisher Suleymenov frá Kasakstan er einn efstur með sex vinn...
Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson 13.03.2024 59:52
Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru FIDE meistararnir Sigurbjörn Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks. Þeir ræddu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga en lið þeirra urðu sigurvegarar úrvalsdeildar og 1. deildar. Firnasterk skákdeild Fjölnis varð Íslandsmeistari skákfélaga og skákdeild Breiðabliks varð efst í 1. deild og tekur því sæti í úrvalsd...
Tímaritið Skák hættir: Gauti Páll Jónsson ritstjóri 29.02.2024 52:01
Gestur Kristjáns Arnar í dag er Gauti Páll Jónsson ritstjóri tímairtsins Skákar. Ræddu þeir ákvörðun stjórnar Skáksambands Íslands um að leggja niður útgáfu tímaritsins, viðbrögð við því og hvað sé hægt að gera til að snúa þeirri ákvörðun við. Fóru þeir um víðan völl í viðtalinu, ræddu ungmennastarfið, HM ungmenna á Ítalíu, starfið í Taflfélagi Reykjavíkur og spáðu í síðari hluta Íslandsmóts skák...
Metþátttaka á Reykjavíkurskákmótinu 2024: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari 21.02.2024 57:24
Ritstjórar www.skak.is , þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara yfir Reykjavíkurskákmótið sem hefst 15. mars næstkomandi. Uppselt er á mótið en skráðir keppendur eru 429 frá 49 þjóðlöndum. Í ár eru 60 ár liðin frá því að fyr...
Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar og Hilmir Freyr 14.02.2024 58:05
Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák og Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari og núverandi Íslandsmeistari í atskák kíktu aðra vikuna í röð í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir tóku upp þráðinn frá því sem frá var horfið í síðasta þætti og ræddu meðal annars mikl...
Íslandsmeistarar og vinir: Vignir Vatnar og Hilmir Freyr 08.02.2024 1:03:16
Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, nýjasti og yngsti stórmeistari okkar Íslendinga og núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák og Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari og núverandi Íslandsmeistari í atskák kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Vignir fagnar 21 árs afmælisdegi sínum í dag, 7. febrúar en Heimir ve...
Skákað í skjóli myrkurs: Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson 31.01.2024 58:29
CAD-bræðurnir (Chess After Dark) Birkir Karl Sigurðsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Heimkaupum og Leifur Þorsteinsson viðskiptastjóri hjá Creditinfo eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni. Þeir eru báðir skákmenn frá barnsaldri, skákþjálfarar og hafa verið öflugir mótshaldarar undanfarið eitt og hálft ár. Þeir hafa meðal annars skipulagt og stjórnað mótum eins og Bankinn Bistr...
Upphaf og framtíð skákarinnar: Friðrik Ólafsson og Guðmundur G. Þórarinsson á spjalli 27.01.2024 1:26:17
Þátturinn Við skákborðið er að þessu sinni tvöfalt lengri en vanalega. Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar eru báðir fyrir löngu orðnir þjóðþekktir menn. Friðrik Ólafsson er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák og var einn allra sterkasti skákmaður heims á sínum tíma. Hann er fyrrverandi forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE og fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis og því æðsti embættismaður þess. Gu...
Skák, uppþvottavélar og fjallajafntefli: Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA 17.01.2024 54:59
Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í skákþætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þeir félagarnir fóru um víðan völl í spjalli sínu. Nöfn eins og Katrín Jakobsdóttir, Ásgeir Jónsson, Donald Trump, Gunnar Nelson og Mugison koma við sögu og hugtök eins og vísindi, íþróttir og viðskipti. Þeir Magnús og Kristján fóru inn á "hættulegar braut...
Skákárið 2023: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari 10.01.2024 1:01:33
Ritstjórar www.skak.is , þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara lauslega og á léttu nótunum yfir skákárið 2023, bæði hér heim og erlendis, og að reyna að skyggnast aðeins inn í framtíðina, þ.e. skákárið 2024. "Hvar er Ding L...
Í minningu um Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags Reykjavíkur: Endurfluttur þáttur frá því 15. nóvember 2023 03.01.2024 58:00
Í dag var aftur á dagskrá viðtal sem Kristján Örn Elíasson átti við Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags Reykjavíkur 15. nóvember 2023. Ríkharður lést 20. desember s.l. eftir skammvinn veikindi aðeins 56 ára að aldri. Jarðarför hans fór fram frá Grafarvogskirkju í dag að viðstöddu fjölmenni. Til minningar um Rikka, eins og hann var gjarnan kallaður af vinum sínum, var viðtalið aftur flutt í skákþæ...
Skákævintýri Omars Salama alþjóðlegs skákdómara og skákkennara 13.12.2023 56:37
Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag var Omar Salama alþjóðlegur skákdómari, skákkennari og eigandi ferðaskrifstofunnar Kleopatra Tours. Omar er frá Egyptalandi en hann fæddist í borginni Alexandríu árið 1980. Þegar hann var 24 ára gamall fluttist hann til Íslands. Hann var varaforseti Skáksambands Íslands um tíma, kosinn framkvæmdastjóri Skáksambands Norðurlanda árið 2021 og sat í skákdóma...
Slembiskák: Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson 06.12.2023 56:41
Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson voru gestir Kristjáns Arnar í skákþætti hans Við skákborðið. Umræðuefnið var Fischer Random eða chess 960 sem á íslensku hefur hlotið nafnið slembiskák. Opinberu Íslandsmóti í slembiskák lauk um helgina með sigri stórmeistarans og stigahæsta skákmanns Íslands Hjörvars Steins Grétarssonar. Sigurbjörn og Magnús Pálmi voru á meðal keppe...
Fischer: "Keyrðu mig heim til Eugene Torre": Þorvarður Fannar Ólafsson skákmeistari og sölumaður hjá Myllunni 23.11.2023 1:00:26
Kristján Örn Elíasson ræðir við Þorvarð Fannar Ólafsson skákmeistara og sölumann hjá Myllunni. Þorvarður bjó í Grindavík og lærði þar mannganginn ungur að árum eða þegar hann var aðeins 5 ára gamall. Í fyrstu tefldi hann aðallega í heimahúsum við ættingja og vini. Blómlegt skáklíf var í Grunnskóla Grindavíkur á þessum tíma og fljótlega varð Þorvarður meðal sterkustu skákmanna skólans. Hann varð sk...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.