Útvarp Saga

Við skákborðið

Sports IS ↓ 169 episodes

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

Author

Útvarp Saga

Category

Sports

Podcast website

www.utvarpsaga.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ríkharður Sveinsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og alþjóðlegur skákdómari 15.11.2023

Ríkharður Sveinsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og alþjóðlegur skákdómari settist Við skákborðið að þessu sinni. Ríkharður sagði frá stofnun taflfélagsins og starfsemi þess en TR er elsta og eitt virkasta skákfélag landsins, stofnað laugardaginn 6. október 1900 og því 123 ára. Af vefsíðu Taflfélags Reykjavíkur: Upphafið að stofnun Taflfélags Reykjavíkur kom frá Danmörku eins og svo margt annað...

Skákdeild Fjölnis: Helgi Árnason formaður og Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari 08.11.2023

Að þessu sinni settist Við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla. Helgi segir að hann hafi fyrst og fremst tengst skákinni í gegnum skólastarf og þá mest eftir að hann tók við starfi skólastjóra við Rimaskóla sem hann gengdi í 26 ár en skólinn var stofnaður árið 1993. Á tíu ára afmæli skólans árið 2003 urðu skáksveit...

5 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari 01.11.2023

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni.  Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu vikurnar sem þeir Helgi og Kristján Örn fóru yfir í þættinum. Má þar nefna að í dag hefði Hrafn Jökulsson rithöfundur, blaðamaður og skákfrömuður orðið...

Áform um lagasetningu: Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands 25.10.2023

Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Aðalumræðuefni þáttarins var áform Mennta- og barnamálaráðuneytisins um lagasetningu en frumvarp um ný heildarlög í skák hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðuneytið telur að gildandi lög hafi valdið vandkvæðum við túlkun í...

Birnukaffi: Ólafur Ásgrímsson alþjóðlegur skákdómari og Birna Halldórsdóttir 18.10.2023

Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum Við skákborðið að þessu sinni voru hjónin Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur skákdómari og fyrrverandi bankastarfsmaður og Birna Halldórsdóttir umsjónarmaður veitinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur og fyrrverandi stuðningsfulltrúi hjá grunnskólum Reykjavíkur. Þau hafa bæði starfað í skákhreyfingunni í tugi ára, eru vinsæl og öllum þykir vænt um þau.

Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson 11.10.2023

Gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni í þættinum Við skákborðið voru þeir Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson. Gauti Páll er ritstjóri tímaritsins Skákar og varaformaður Taflfélags Reykjavíkur. Björn Ívar er skákkennari, fyrrum landsliðsþjálfari kvenna og með þjálfaragráðu frá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Einnig situr Björn í ritnefnd tímaritsins Skákar.    Aðalumræðuefni þáttarins var nýútk...

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari segir frá Garry Kasparov - seinni hluti 04.10.2023

Sigurbjörn J. Björnsson var gestur þáttarins að þessu sinni. Þátturinn er seinni þáttur í umfjöllun um Kasparov með áherslu á einvígin hans við Karpov en þeir tefldu 5 einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák á árunum 1984-1990. Sigurbjörn fór yfir einvígi númer þrjú, fjögur og fimm í þættinum. Einnig var komið inn á vináttu Karpovs og Kasparovs, seinni einvígi Kasparovs gegn þeim Short, Anand og K...

Víkingaklúbburinn - Gunnar Freyr og Björn Þorfinnsson 27.09.2023

Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins, sjúkraliði og ráðgjafi og Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari í skák og ritstjóri DV voru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Gunnar sagði frá aðdraganda að stofnun Víkingaklúbbsins en upphafið var að nokkrir félagar ákváðu að hittust tvisvar á ári í heimahúsi og tefla svokallaða Víkingaskák en þetta var...

Þorsteinn Þorsteinsson FIDE meistari - Sögur úr íslenskri skákhreyfingu fyrri hluti 20.09.2023

Þorsteinn Þorsteinsson, FIDE meistari, ritstjóri Hagstofu Íslands og fyrrverandi markaðsstjóri RÚV var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þessi þáttur er sá fyrri af tveimur fyrirhuguðum en í þáttunum segir Þorsteinn frá sjálfum sér og samferðarmönnum sínum. Hann segir skemmtilegar sögur af Benóný Benediktssyni, sterkum karakter sem fæddist árið 1918, en...

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari segir frá Garry Kasparov - fyrri hluti 13.09.2023

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þessi þáttur er sá fyrri af tveimur fyrirhuguðum en í þáttunum fjallar Sigurbjörn um Garry Kasparov sem varð yngsti heimsmeistari sögunnar aðeins 22 ára gamall árið 1985 með sigri yfir þáverandi heimsmeistara Anatoly Ka...

Á meðal allra sterkustu skákmanna heims - Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson 06.09.2023

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið að þessu sinni eru tveir af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Þeir voru á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Friðrik e...

Hvað er að gerast í skákheiminum? - Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákfréttaritari 30.08.2023

Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákfréttaritari kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um það helsta sem er að gerast í skákheiminum í dag, nýjustu fréttir, bæði hér heima og erlendis. Þeir fjölluðu um nýlokið heimsbikarmót þar sem fyrrverandi heimsmeistari stóð uppi sem sigurvegari, heimsmeistaramót liða í Þýskalandi, sátt í s...

Áskell Örn Kárason formaður Skákfélags Akureyrar og alþjóðlegur meistari í skák 23.08.2023

Áskell Örn Kárason, formaður Skákfélags Akureyrar og alþjóðlegur meistari í skák er á símalínunni og talar frá Akureyri við Kristján Örn Elíasson í þætti hans Við skákborðið. Þetta er virkilega skemmtilegt viðtal þar sem Áskell segir frá starfi Skákfélags Akureyrar, hvernig það gangi að halda uppi skáklífi á landsbyggðinni, kennslu í grunnskólum bæjarins síðustu árin, ferðum á Ólympíumót, hvernig...

Halldór Grétar Einarsson, Bolvíkingur, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks 16.08.2023

Halldór Grétar Einarsson, Bolvíkingur, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um skákuppeldi Halldórs í Bolungarvík, Daða Guðmundsson mentor skákarinnar í Bolungarvík, afmælismót Daða en hann varð áttræður í sumar, helstu þjálfara Íslands í skák að mati Halldórs, formúluna að ala upp un...

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák - Glæsileg mótahrina hjá Helga í sumar 09.08.2023

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Helgi varð heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri aðeins 17 ára gamall árið 1994. Helgi Áss sagði frá magnaðri sigurgöngu sinni á sterku Czech Open skákmótinu í Pardubice sem lauk í lok júlí og einnig frá öðru móti á Leca Chess Open í Po...

Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákblaðamaður 02.08.2023

Ingvar Þór Jóhannesson, FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um skákmál líðandi stundar, s.s. taflmennsku Íslendinga erlendis í sumar, heimsbikarmótið í Bakú þar sem flestir sterkustu skákmenn heims sitja að tafli, nýjan stigalista frá Alþjóða skáksambandinu og margt fleira. Þeir minnt...

Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS ræðir um skákfjölskyldu sína 26.07.2023

Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið". Kjartan á sæti í landsliðsnefnd Skáksambands Íslands og er faðir þriggja efnilegra skákungmenna, þeirra Stepans Briem, Benedikts Briem og Guðrúnar Fanneyjar Briem. Kjartan sagði frá íþróttaferli sínum en hann var Íslandsmeistari í borðtennis og keppti me...

Garðar Sverrisson rithöfundur og nánasti vinur Bobby Fischers - Seinni hluti 19.07.2023

Annan miðvikudaginn í röð ræðir Kristján Örn Elíasson við Garðar Sverrisson, rithöfund og nánasta vin Bobby Fischer á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem Garðar ræðir opinberlega um Bobby og nána vináttu þeirra síðustu þrjú árin sem Bobby lifði. Í þáttunum koma fram nýjar upplýsingar um Bobby, æsku hans í New York, viðkvæm fjölskyldumál, sigra og mótlæti, allt frá njósnum til pólitískrar útlegðar....

Garðar Sverrisson rithöfundur og nánasti vinur Bobby Fischers - Fyrri hluti 12.07.2023

Garðar Sverrisson rithöfundur var nánasti vinur Bobby Fischers síðustu árin sem hann lifði. Í þættinum ræðir Garðar við Kristján Örn um Bobby vin sinn og sýnir Fischer í alveg nýju ljósi: mannlegan, nærgætinn og vinalegan. Órafjarri ímyndinni um sturlaðan snillinginn eða heiftúðuga ofstækismanninn. Frásögn Garðars veitir nýja innsýn í þann flókna perónuleika sem duldist að baki goðsögninni. Garðar...

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra - Afmælishátíð Fischersetursins 05.07.2023

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra kom í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Hann talaði um Bobby Fischer, Friðrik Ólafsson og fyrirhugaða skákhátið á Selfossi um næstu helgi í tengslum við 10 ára afmæli Fischersetursins. Guðni sagði frá hvenær og hvernig áhugi hans á skák hefði kviknað, kynni hans af skáklífinu á Suðurlandi, sterkum skákmönnum í Hr...

Björn Ívar Karlsson FIDE meistari og skákþjálfari í skemmtilegu skákspjalli 28.06.2023

Björn Ívar Karlsson, FIDE-meistari og skákþjálfari, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið". Hann sagði frá ýmsu eftirminnilegu á skákferli sínum og ferðalagi um heiminn, rottugangi í Moskvu, týndum farangri og strangri öryggisgæslu í Bakú, ráni í Búdapest, hnitmiðuðum undirbúningi á heimsmeistaramóti ásamt ýmsu öðru. Hann sagði frá kynnum sínum af þekktum...

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Björn Ívar Karlsson ræða stöðu stúlkna og kvenna í skák og skákþjálfun barna og unglinga 21.06.2023

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, varaforseti Skáksambands Íslands og landsliðskona í skák og Björn Ívar Karlsson FIDE meistari, skákþjálfari og fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna í skák kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þau ræddu stöðu stúlkna og kvenna í íslenskri skákhreyfingu, skákþjálfun barna og unglinga bæði í grunnskólum og hjá skákfélögunum sjál...

Valbjörn Jónsson og Björgvin Víglundsson - krafa um skýrari stefnu um ráðstöfun fjármuna í skákhreyfingunni 14.06.2023

Valbjörn Jónsson, stöðvarstjóri heilsuræktarstöðvarinnar World Class í Árbæ, fyrrverandi bakari og fyrrverandi Íslandsmeistari í vaxtarrækt og Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þeir félagar og frændur töluðu um stórmeistarann Vignir Vatnar og trú þeirra á að hann hafi bæði vilja og getu til að...

VignirVatnar.is - Benedikt Briem og Vignir Vatnar kíktu í skemmtilegt spjall 07.06.2023

Ungu vinirnir Vignir Vatnar Stefánsson, nýjasti stórmeistari okkar Íslendinga og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák, og hinn efnilegi skákmaður og "tæknigúru" Benedikt Briem kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Félagarnir sögðu m.a. frá nýrri vefsíðu sem þeir eru að setja í loftið í næstu viku á léninu www.vignirvatnar.is . Á vefsíðunni verður boðið upp á...

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - síðari hluti 31.05.2023

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þessi þáttur er sá síðari af tveimur þáttum.  Þeir félagarnir ræddu m.a. um  Íslandsmótið í skák sem er nýlokið en sérstaka úrslitakeppni þriggja efstu manna þurfi til að skera úr um sigurvegara, ferðalag Sigurbjörn...

Listen to the Við skákborðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.