Útvarp Saga

Við skákborðið

Sports IS ↓ 169 episodes

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

Author

Útvarp Saga

Category

Sports

Podcast website

www.utvarpsaga.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - fyrri hluti 23.05.2023

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu m.a. um þróun skákarinnar frá 1990 og til dagsins í dag, einvígi Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Korchnoi árið 1988, Skákþing Reykjavíkur og umgjörð þess, skákferðalög Sigurbjörns um Evrópu og...

Bragi Halldórsson fyrrverandi kennari við Mennaskólann í Reykjavík, íslenskufræðingur, þýðandi og skákbókahöfundur 17.05.2023

Kristján Örn Elíasson fær til sín Braga Halldórsson fyrrverandi kennara við Menntaskólann í Reykjavík, íslenskufræðing, þýðanda og skákbókahöfund. Þær félagarnir ræða skákferil Braga, störf hans fyrir skákhreyfinguna, samferðamenn og margt fleira.

Tryggvi Leifur Óttarsson og Ingvar Þór Jóhannesson skákblaðamaður 10.05.2023

Gestir skákþáttarins eru þeir Tryggvi Leifur Óttarsson formaður Taflfélags Snæfellsbæjar (og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskimarkaðar Íslands nú búsettur í Svíþjóð) og Ingvar Þór Jóhannesson og landsliðsþjálfari kvenna í skák. Farið verður yfir fjölmennt og vel skipað minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Einnig verður Íslandsmótinu í skák, sem...

Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfari skákdeildar KR 03.05.2023

Kristján Örn Elíasson fær til sín Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfara skákdeildar KR og ræða þeir m.a. um barna- og unglingastarfið hjá KR, skákhátíðina miklu á Selfossi 2019 þar sem 10 fyrrum heimsmeistarar teflu í lokuðum flokki, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýlokið en því lauk laugardaginn 29. apríl  sl. og fleira áhugavert.

Magnús Pálmi Örnólfsson og Guðmundur Magnús Daðason 26.04.2023

Bolvíkingarnir og skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur MBA og Guðmundur Magnús Daðason sjávarútvegsfræðingur voru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið í dag

Bræðurnir og skákmeistararnir Bragi og Björn Þorfinnssynir koma í heimsókn 19.04.2023

Kristján Örn fær til sín bræðurna Braga og Björn Þorfinnssyni en þeir eru sterkustu skákbræður Íslands. Bragi er stórmeistari og Björn er alþjóðlegur meistari í skák. Þeir ræða um unglingsárin sín í skákinni, koma aðeins inn á Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýhafið í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, fyrirkomulag landsliðsflokks í skák og fl...

Reykjavíkurskákmótið og heimsmeistaraeinvígið - Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák 12.04.2023

Kristján Örn fær til sín Ingvar Þór Jóhannesson aðstoðarmótsstjóra nýlokins Reykjavíkurskákmóts, FIDE meistara og landsliðsþjálfara kvenna í skák. Þeir ræða um Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem nýhafið er í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, kvennaskák á Íslandi og fleira.

Einar S. Einarsson fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands og fyrrverandi forstjóri VISA Íslands 05.04.2023

Kristján Örn fær til sín Einar S. Einarsson fyrrverandi forseta Skáksambands Íslands og fyrrverandi forstjóra VISA Íslands. Þeir ræða m.a. um "gömlu góðu dagana" í skákinni, taflmennsku hjá eldri borgurum, samstarf Einars við Hrafn Jökulsson og frelsun Bobby Fischer fyrrverandi heimsmeistara í skák úr japönsku fangelsi.

Reykjavíkurmótið - Ríkharður Sveinsson og Eiríkur Björnsson 29.03.2023

Kristján Örn fær til sín Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags reykjavíkur og Eirík Björnsson framhaldsskólakennara og stjórnarmann Taflfélags Reykjavíkur. 29. mars 2023

Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Halldór Grétarsson FIDE meistari og stofnandi Skákdeildar Breiðabliks 22.03.2023

Í fyrri hluta þáttarins ræðir Kristján Örn Elíasson við Gunnar Björnsson forseta Skáksambands Íslands um starf Sambandsins, hann sjálfan og Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið 2023. Í síðari hluta þáttarins ræðir Kristján Örn við Halldór Grétar Einarsson FIDE meistara og stofnanda Skákdeildar Breiðabliks um alþjóðlega skákmeistarann Vignir Vatnar Stefánsson en Vignir, sem er félagsmaður í Skákdeild Br...

Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák og Dagur Ragnarsson nýbakaður alþjóðlegur meistari 15.03.2023

Í þessum þætti koma þeir Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák og Dagur Ragnarsson nýbakaður Alþjóðlegur meistari. Rætt verður m.a. um síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fer fram í höfuðstöðvum Fjölnis í Egilshöll um næstu helgi. Einnig verður komið inn á stóra "svindlmálið" sem kom upp í fyrra en ríkjandi heimsmeistari Magnus Carlsen sakaði þá Bandaríkjamann...

Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #2 08.03.2023

Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #2

Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #1 01.03.2023

Helgi er einn sigursælasti skákmaður íslands og hefur orðið Íslandsmeistari sex sinnum í kappskák, fimm sinnum í hraðskák og fjórum sinnum í atskák! Helgi varð alþjóðlegur meistari FIDE 1978 og alþjóðlegur stórmeistari 1985. Árið 2009 var Helgi útnefndur FIDE senior trainer sem er æðsti þjálfaratitill Alþjóðaskáksambandsins. Helgi er skólastjóri Skákskóla Íslands.

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák 22.02.2023

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri aðeins 17 ára gamall árið 1994 er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti.

Gauti Páll Jónsson ritstjóri tímaritsins Skákar 15.02.2023

Viðtal við Gauta Pál Jónsson varaformanns elsta og stærsta skákfélags landsins, Taflfélags Reykjavíkur og ritstjóri tímaritsins Skákar. Gauti Páll sem er annálaður skákáhugamaður segir frá sjálfum sér, starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og ræðir um tímaritið Skák sem hann ritstýrir.

Guðmundur G. Þórarinsson - einvígi aldarinnar 08.02.2023

Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur og fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands segir frá uppvaxtarárum sínum, ræðir um skák og segir frá "einvígi aldarinnar" sem háð var í Laugardalshöll árið 1972 á milli þáverandi heimsmeistara í skák, Boris Spassky og Robert Fischer. 

Næsti stórmeistari - Vignir Vatnar og Halldór Grétar 01.02.2023

Kristján Örn Elíasson fær til sín í stúdíóðið þá Vigni Vatnar Stefánsson alþjóðlegan meistara í skák og Halldór Grétar FIDE meistara en þeir ræða m.a. stefnu Vignis á að verða næsti stórmeistari Íslendinga í skák - strax á þessu ári!

Helgi Árnason fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla 25.01.2023

Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla ræðir við Kristján Örn Elíasson stjórnanda þáttarins Við skákborðið um markvissa þjálfun Rimaskóla og skákdeildar Fjölnis en margar rannsóknir hafa sýnt að skákin er ekki bara skemmtileg heldur hefur margvísleg bætandi áhrif á námsárangur og félagsfærni.

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari 18.01.2023

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari í skák í skemmtilegu viðtali.

Listen to the Við skákborðið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.