Kop.is

Gullkastið

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.kop.is

Autor

Kop.is

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

www.kop.is

Cel mai nou episod

29 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Gullkastið - Handbragð Iraola 29.10.2026

Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið! Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield. Stj...

Gullkastið - Pennahittingur 24.10.2026

Það er hittingur hjá  Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni. Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpa...

Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili 19.10.2026

Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni út...

Gullkastið - Leiðinlegur Farsi 12.10.2026

Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst. Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbú...

Gullkastið - Athyglin á Anfield 07.10.2026

Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár. Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá...

Ævintýralegt Svindl 30.09.2026

Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með fr...

Gullkastið - Fyrsti Kafli 23.09.2026

Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember ( Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina...

Gullkastið - Work In Process 16.09.2026

Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool. Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur...

Gullkastið - Framfarir 10.09.2026

Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land. Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með...

Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað 02.09.2026

Liverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá Liverpool sem og hinum toppliðunum í deildinni. Hverjir eru sáttir eftir sumarið og hverjir ekki. Notthingham Forest fór þriðja tímabilið í röð með eitthvað frá Anfield í leik helgarinnar sem er ó...

Gullkastið - Stór vika 26.08.2026

Tímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild. Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans og sjaldan sem Liverpool á svona mikið eftir að gera á leikmannamarkaðnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hópurinn breytist áður en við fáum Nottingham Forest í heimsókn næstu helgi...

Gullkastið – Er Liverpool tilbúið í Tímabilið? 17.08.2026

Æfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar? Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á  heimasí...

Gullkastið – Araujo mættur til æfinga 12.08.2026

Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum. Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var m...

Gullkastið – Lífsmark á Leikmannamarkaðnum? 05.08.2026

Æfingaferðin til Bandaríkjanna er afstaðin og Iraola búinn að endurheimta alla núverandi leikmenn Liverpool til æfinga eftir HM. Spáum í hvað við lærðum af ferðinni til Ameríku. Leikmannamarkaðurinn er farinn að sýna eitthvað smá lífsmark en þó ekkert mikið meira en það eins og er. Vonandi spennandi vika og vikur framundan þar. Létt Power Rank á liðin í deildinni eins og staðan er í dag Bendum ein...

Gullkastið – Barcola og Æfingaleikir 28.07.2026

Liverpool verður ekki sakað um að spila leiðinlega fótbolta í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins þó varhugavert sé að lesa of mikið í slíka leiki. Fjölmargir ungir leikmenn fengu tækifæri inná vellinum að sýna sig fyrir Iraola og verður fróðlegt að sjá hvernig hann metur þær frammistöður. Fréttir þess efnis að barcola sé á leiðinni til Liverpool eru farnar að hitna töluvert í þessari viku o...

Gullkastið – HM búið 21.07.2026

Liverpool er farið með 31 manna leikmannahóp til Bandaríkjanna í æfingaferð og spilar fyrsta æfingaleik í þessari viku. HM er loksins búið og því hægt að snúa sér aftur af alvöru fótbolta sem skiptir máli. Örlítið uppgjör á HM og eins skoðum við auðvitað stöðuna á leikmannamarkaðnum og hópnum hjá Liverpool. Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikin...

Gullkastið – Iraola mættur til starfa 13.07.2026

Leikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool enn sem komið er en öllu meira hjá hinum toppliðunum. Skoðum aðeins helstu breytingar í deildinni og helstu fréttir tengdar Liverpool. Bendum einnig sérstaklega á Ko...

Gullkastið - Hvaða Kaupir Liverpool fyrir Iraola 29.06.2026

Liverpool náði ekki að sannfæra hinn 19 ára Yan Diomande sem var helsta skotmark sumarsins í stöðuna hans Mo Salah á hægri vængnum og því áfram töluverð óvissa hvernig brottför hans verður leyst. Þetta er síður en svo það eina sem Liverpool þarf að gera á leikmannamarkaðnum í sumar. Skoðum aðeins hvað bíður Iraola hjá Liverpool og hvernig leikmannamarkaðurinn er í þeim stöðum sem Liverpool þarf að...

Gullkastið – Arne Slot Rekinn 30.05.2026

Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart. Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hlut...

Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur 26.05.2026

Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að...

Gullkastið – Lokavikan 19.05.2026

Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki. Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrö...

Gullkastið – Erfiður Heimavöllur? 12.05.2026

Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leik...

Gullkastið – Stórleikur um helgina 29.04.2026

Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace. Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar. Stjórnan...

Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton 20.04.2026

Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega  mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina. Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila...

Gullkastið – Er Ennþá Séns? 13.04.2026

Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina. Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinn...

Ascultă podcastul Gullkastið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice