Karfan

Karfan

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.karfan.is

Autor

Karfan

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

www.karfan.is

Cel mai nou episod

1 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan 01.11.2026

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið!  Að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum. Farið er ítarlega yfir stöðu liðanna í Bónusdeild karla eftir síðustu umferð og rýnt í hverjir áttu góða viku og hverjir áttu slæma viku. Þá er komin ný uppfærsla á styrkleikalista þáttarins yfir bestu...

Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli 25.10.2026

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku. Farið er ítarlega yfir leiki síðustu umferðar í Bónusdeild karla og heitustu fréttir vikunnar reifaðar. Sérstök rýni er lögð á sóknarleik liðanna á hálfum velli ( half-court offense ) – hvaða lið eru að keyra kerfin sín af best...

The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It) 23.10.2026

Helgi and David are back in Rabbrýmið after the first few rounds on either side. Our power rankings (not predictions) are compared to how the table is right now and we talk about teams looking a little raw and unprepared. Stjarnan and Grindavík on the men's side are talked down as they have been doing poorly and Haukar and Keflavík on the women's side get no love from us to start the sea...

Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð 18.10.2026

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí og Strikerinn Árni Jó í stúdíóið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í boltanum. Farið er ítarlega yfir fréttir vikunnar og leiki nýliðinnar umferðar í Bónusdeild karla. Sérfræðingar þáttarins taka fyrir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar til þessa, stilla upp lista yfir fimm helstu ljósu punktana...

Aukasendingin: Ofsaviðbrögð eftir fyrstu umferð, er Kane ennþá týndur og hrun Stjörnunnar? 12.10.2026

Nýr þáttur af Aukasendingunni er mættur í loftið eftir fjöruga opnunarumferð í Bónusdeild karla. Mummi Jones og Óli Dós mæta að þessu sinni til leiks og rýna í allt það helsta úr fyrstu leikjum tímabilsins ásamt Davíð Eldi. Farið er yfir tíu atriði sem fyrsta umferðin kenndi okkur og velt upp spurningum um stöðu mála í deildinni: hversu slök var Stjarnan á sínum fyrsta leikdegi, geta Keflvíkingar...

Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn 05.10.2026

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg. Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þa...

Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns 29.09.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það helsta. Farið var yfir fréttir vikunnar og boltann sem er þegar byrjaður að rúlla í Bónusdeild kvenna, þar sem sérstaklega var rýnt í sigurleik KR gegn Stjörnunni. Þá beindust sjónirnar að M...

Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir 22.09.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er tekin söguleg yfirferð á gengi nýliða í efstu deild allt aftur til ársins 1996 og rýnt í hvernig nýliðum gengur almennt að fóta sig meðal þeirra bestu. Þá er farið ofan í...

Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára 17.09.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí. Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í þættinum birtir þríeykið uppfærða spá fyrir veturinn í ljósi nýjustu vendinga. Þá er rýnt í félagaskiptamarkaðinn og teknir fyr...

The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion 11.09.2026

Helgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships last season. Then we touch on the two NT men's games that were just played. We do our power rankings for the top divisions, we sometimes agree (sometimes not) and the median is found th...

Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða 08.09.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er litið um öxl og stærstu móment síðasta tímabils gerð upp, áður en sjónum er beint að komandi leiktíð: Hvar er mesta pressan fyrir veturinn...

Aukasendingin: Þungur róður Íslands, ungt blóð í Bónusdeildinni og erfiðasta leikjaplanið 01.09.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi. Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem...

Aukasendingin: Risaleikir hjá landsliðinu, slúður og uppfærð spá fyrir Bónusdeildina 25.08.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir andstæðingar þar sem liðið mætir Serbíu í Belgrad á föstudag og tekur svo á móti Tyrklandi á mánudag, auk þess sem stuttlega er litið yfir nýafstaðinn æfingaleik gegn Finnlandi. Aðaláhersla þá...

Aukasendingin: Snemmbúin spá fyrir Bónus deild karla 2026-27 10.07.2026

Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir...

Sjötti maðurinn: Uppgjör, verðlaunahátíð og rýnt í sumarmarkaðinn 28.05.2026

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld. Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum. Auk þess...

Aukasendingin: Nýjasta orðið á götunni og verðlaunahafar tímabilsins opinberaðir 25.05.2026

Aukasendingin fékk góða gesti í hlaðvarpið þegar Strikerinn og Jónfrí mættu til að ræða málin. Í þættinum var farið yfir allt það helsta og rýnt í nýjasta slúðrið um leikmanna- og þjálfarabreytingar í Bónus og fyrstu deildunum á Íslandi. Auk þess að kryfja félagaskiptamarkaðinn fóru gestir og stjórnendur í árlega verðlaunaafhendingu þáttarins, þar sem meðal annars voru veitt verðlaun fyrir besta f...

Aukasendingin: Grindavík og Njarðvík fagna, Pargo sturlaður og Baldur í Forsetahöllina 19.05.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó. Helstu umræðuefni þáttarins eru nýkrýndir Íslandsmeistaratitlar Njarðvíkur og Grindavíkur, ásamt því að farið er yfir helstu fréttir vikunnar og rýnt í önnur hlaðvörp sem tengjast íþróttinni. Þá...

Aukasendingin: Kane, slúður, vanstilling og Grindavík í þremur 14.05.2026

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar, hlaðvarps Körfunnar, kafa þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó ofan í sviðsmyndina sem gæti blasið við í úrslitakeppni Bónus deildarinnar strax í kvöld og á morgun. Spennan er á suðupunkti þar sem tímabilið gæti hreinlega klárast ef Njarðvík nær að knésetja Hauka og Grindavík fylgir því eftir með sigri á Tindastól á morgun.  Sérstök athygli er vakin á ótrúlegu geng...

Sjötti maðurinn: Oddaleikir, úrslitaeinvígið og góð vika / slæm vika 08.05.2026

Í þessum síðasta þætti af Sjötta manninum er farið yfir oddaleiki í úrslitakeppni Bónus deildar karla. Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum eftir mikla baráttu og Tindastóll fylgdi þeim eftir með sigri á Stjörnunni. Nú er stóra stundin runnin upp og hitað er rækilega upp fyrir sjálft úrslitaeinvígið milli Tindastóls og Grindavíkur sem er að hefja göngu sína, en búast má við mikilli spennu og troð...

Aukasendingin: Oddaleikjaspenna, hið fullkomna úrslitalið og er Baldur á leið úr Garðabænum? 07.05.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn út, en hann er hægt að nálgast hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar. Í þessum þætti Aukasendingarinnar er kafað djúpt í dramatíkina sem fylgdi oddaleikjum undanúrslitanna í Bónus deild karla. Mummi Jones og Jónfrí mæta í stúdíóið og fara yfir magnaðan sigur Tindastóls á Stjörnunni, ásamt því hvernig deildarmeistarar Grinda...

Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni 05.05.2026

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi od...

Aukasendingin: Er Tindastóll á leið í sumarfrí og hvað er í gangi á Bónus-spjallinu? 26.04.2026

Nýjasta Aukasendingin er nú komin út og þar er rætt um margt fleira stiklað er á hér, en brennidepillinn er að sjálfsögðu hin gríðarlega spenna í undanúrslitum Bónus deildar karla.  Gestir þáttarins að þessu sinni eru Strikerinn Árni Jó og Jónfrí, sem fara yfir það hvernig Stjarnan hefur náð 0-2 forystu gegn Tindastóli og jafnræðið í einvígi Vals og Grindavíkur þar sem staðan er 1-1. Rýnt er í við...

Aukasendingin: Eru Stólarnir óstöðvandi, Grindavík í gírnum og snýr Remy Martin aftur? 20.04.2026

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera. Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér storminn gegn firnasterku liði Tindastóls, sérstaklega þar sem þeir verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Á sama tíma er velt upp hvort Valur mæti með aukna orku og sjálfstr...

Aukasendingin: Stórveldið í sumarfrí, yfirburðir á Króknum og spenna á Hlíðarenda 16.04.2026

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula. Sjónum er ein...

Sjötti maðurinn X Hlynur Bæringsson: Hitinn í úrslitakeppninni krufinn til mergjar 15.04.2026

Nýjasti þátturinn af Sjötta manninum er kominn í loftið þar sem enginn annar en Hlynur Bæringsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, mætir í settið. Það er af nógu að taka þegar farið er yfir dramatíkina í úrslitakeppni Bónus deildarinnar. Í þættinum er farið yfir sigur Stjörnunnar gegn KR, vinnusemi Grindvíkinga og þau vonbrigði sem fylgdu falli Þórsara úr deildinni. Þá er rýnt í lætin í Skagafirði og s...

Ascultă podcastul Karfan în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice