Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: fotbolti.net
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir 01.11.2026
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum. Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton...
Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum 31.10.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special! Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum. Það er aðalmálið í þættinum í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta og formaður fótboltans í Garðabænum, Halldór Orri Björnsson, kemur í heimsókn.
38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro 27.10.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao...
Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið 27.10.2026
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.
Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick 25.10.2026
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarin...
Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð 24.10.2026
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands 24.10.2026
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.
Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu? 21.10.2026
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.
38 umferðir - Engilbert Aron special 21.10.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð. Einnig...
Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla 19.10.2026
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.
Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð 19.10.2026
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króa...
Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni? 18.10.2026
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur. Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan...
Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið 17.10.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins. Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska...
38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper? 15.10.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.
Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick 13.10.2026
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu. Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli...
Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum? 11.10.2026
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.
Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM 10.10.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnar...
Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn 09.10.2026
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR s...
Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið 08.10.2026
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
38 umferðir - Wildcard og vítamín 07.10.2026
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
Innkastið - Ósáttir en ósigraðir 06.10.2026
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking? 04.10.2026
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þett...
Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur 03.10.2026
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýlu...
Hvað verður um Man City? 01.10.2026
Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin 28.09.2026
Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur líka mögulega fallið. Á hinum enda töflunnar missteig FH sig og Breiðablik er með pálmann í höndunum....
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice