fr

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Catégorie

Sports

Site du podcast

fotbolti.net

Dernier épisode

11 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum? 11.10.2026

Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.

Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM 10.10.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnar...

Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn 09.10.2026

Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR s...

Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið 08.10.2026

Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.

38 umferðir - Wildcard og vítamín 07.10.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.

Innkastið - Ósáttir en ósigraðir 06.10.2026

Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.

Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking? 04.10.2026

Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þett...

Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur 03.10.2026

Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýlu...

Hvað verður um Man City? 01.10.2026

Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.

Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin 28.09.2026

Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur líka mögulega fallið. Á hinum enda töflunnar missteig FH sig og Breiðablik er með pálmann í höndunum....

Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City 26.09.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit á tímabilinu. Í seinni hluta þáttarins ræðir fjármálasérfræðingurinn Sævar Þór Sveinsson, ritstjóri Utan vallar, um brot Manchester City og Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net,...

Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild 24.09.2026

Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður Selfoss og Ólafur Darri Sigurjónsson leikmaður Hauka Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportv...

38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry? 23.09.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu umferð er laugardaginn 10. október kl. 12:30 en þeir félagar munu taka upp annan þátt þegar nær dregur...

Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili? 22.09.2026

Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Leeds er enn taplaust fyrir landsleikjahléið langa og ekki er hægt að útiloka að liðið blandi sér í baráttuna um Evrópukeppni á þessu tímabili. Einnig...

Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir 22.09.2026

Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni. Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin og þetta var toppurinn á henni, allavega hingað til. Nokkrar áhugaverðar fréttir voru til umræðu í þættinum og svo var rætt um bilaða Bestu deild þar sem gríðarlega spenna er á botni...

Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild 22.09.2026

Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson leikmaður KH og Nadir Simon Moukhliss leikmaður Víðis. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvör...

Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi 22.09.2026

Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars.

Innkastið - Skortur á reisn 19.09.2026

Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti. Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur. KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.

Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu 18.09.2026

Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi fyrir Þjóðadeildina. Þróttur og Fylkir mætast í 100 milljóna króna leiknum. Sigurvin Ólafsson þjálfari Þró...

38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy 16.09.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...

Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar 15.09.2026

Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu deildinni á næsta tímabili. Svo er það fyrsta umferð Bestu deildarinnar eftir tvískiptingu. Það stefnir í rosalega helgi þar sem Víkingur getur orðið Íslandsmeistari og KA leikur gegn Þ...

Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík 15.09.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði Serrano, Ab sportvörum og Macron Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims 14.09.2026

Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á þessu tímabili en Arsenal og Manchester City eru með fullt hús stiga. Hvenær kemur fyrsta mark Tottenham á tímabilinu? Hull heldur þá áfram að gera flotta hluti og Leedsarar fara f...

Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil 12.09.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik varð meistari. Rýnt er í umspil Lengjudeildarinnar þar sem allt er á suðupunkti og hitað upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni.

38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk 09.09.2026

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...

Écoute le podcast Fotbolti.net sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics