Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.

Íþróttanæring með Nutreleat

Podcast þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.nutreleat.is

Autor

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

www.nutreleat.is

Cel mai nou episod

19 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar? 19.10.2026

Í þessum þætti spyrjum við einfaldrar en mikilvægrar spurningar: er kolvetnainntaka við þjálfun komin út í öfgar? Hingað til hafa opinberar ráðleggingar legið á bilinu 30-90 g kolvetni á klukkustund. Í dag heyrum við af íþróttafólki sem tekur inn 120 g og jafnvel 150-200 g á klukkustund. Til að svara spurningunni förum við yfir nýja yfirlitsgrein, „From Metabolism to Medals“ eftir Morton og félaga...

25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón 28.09.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku. Í þættinum ræðir Sigríð...

24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk 14.09.2026

Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga. Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja nærin...

23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi 31.08.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013. Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylg...

22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur 17.08.2026

Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi. Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka be...

21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum 03.08.2026

Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður. Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum...

20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive 20.07.2026

Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu. Og þar leynist ýmislegt sem kemur á óvart. Í þessum þætti förum við á dýpið í rannsókn sem skoðar akkúrat þetta: Beineyðingu og beinmyndun, markera sem tengjast þessum þáttum og hvað þetta...

19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli 06.07.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum. Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugar...

18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum? 22.06.2026

Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi. Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum...

17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype? 08.06.2026

Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin? Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhen...

16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun 25.05.2026

Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til a...

15. Gæði rannsókna & pseudoscience 30.06.2025

Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast. Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum: Instag...

14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim 12.05.2025

Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní...

13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera 03.04.2025

Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu. Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja...

12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það? 14.01.2025

Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanær...

11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks 23.12.2024

Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið. Við viljum vekja athyg...

10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni? 09.12.2024

Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við þetta viðfangsefni. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná   www.nutreleat.is Ekk...

09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku? 25.11.2024

Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Greinar...

08. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðs- & atvinnukona í knattspyrnu 11.11.2024

Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til Brøndby. Hún deilir einnig með hlustendum hvernig hún undirbýr sig fyrir leik og fer þar m.a. yfir næringun...

07. Þarf íþróttafólk fæðubótarefni eða er matur nóg? 28.10.2024

Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið...

06. Örþáttur: Næring ungmenna í íþróttum 07.10.2024

Viðfangsefnið sem við tökum fyrir í þessum þætti er íþróttanæring ungmenna, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að þessum hópi og hvað foreldrar, þjálfarar og samfélagið í heild sinni getur gert til að styðja sem best við okkar upprennandi íþróttafólk. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná...

05. Orku- & kolvetnainntaka, glýkógenbirgðir, frammistaða & bati frá meiðslum 23.09.2024

Í þessum þætti förum við um víðan völl en rauði þráðurinn í gegnum þáttinn verður orku- og kolvetnainntaka með áherslu á hvernig það skilar sér í frammistöðu, bæði það sem við sjáum í praktík og það sem við sjáum í rannsóknum. En við munum einmitt fara yfir nokkrar vel valdar rannsóknir sem skoða þessa þætti - slóðina á þær finnurðu hér: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC7891450/pdf/TJP...

04. Calories in vs. calories out - skiptir það máli í tengslum við fitutap? 09.09.2024

Í þessum þætti fjöllum við um grundvallaratriðin í tengslum við 'calories in vs. calories out' og af hverju þessi jafna er ekki eins einföld og mörg virðast halda. Við förum yfir þá margvíslegu þætti sem hafa áhrif á þetta jafnvægi, á borð við innri homeostatic drivera sem og ytri áhrif. Mörg vanmeta hvernig þessir þættir hafa áhrif á þetta jafnvægi. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbú...

03. Líkamssamsetning íþróttafólks & frammistaða 23.08.2024

Í viðræðum við íþróttafólk, þjálfara og bara almennt í samfélagslegri umræðu verður maður oft var við þungan sem settur er á líkamssamsetningu og þá sérstaklega fituprósentu íþróttafólks. Í þessum þætti ætlum við að velta upp þeirri spurningu hvort það sé til eitthvað ideal viðmið þegar kemur að likamssamsetningu, fituprósentu eða þyngd íþróttafólks. Eins munum við fara yfir kosti og galla mismuna...

02. Periodized nutrition & þjálfunaraðlögun 22.07.2024

Aðlögun í kjölfar æfinga eða þjálfunar ákvarðast af blöndu mismunandi þátta, en þar má nefna lengd, ákefð og tegund æfinga ásamt því hversu oft við æfum. En mikilvægur þáttur sem spilar þarna inní jöfnuna er magn og gæði næringar. Með aukinni tilkomu rannsókna á sviði íþróttanæringar er alltaf að koma betur í ljós hversu mikil áhrif næringarinntaka getur haft á þjálfunaraðlögun – og þá annaðhvort...

Ascultă podcastul Íþróttanæring með Nutreleat în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice