Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.
Íþróttanæring með Nutreleat
Podcast þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.
Author
Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli 06.07.2026 59:54
Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum. Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugar...
18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum? 22.06.2026 54:52
Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi. Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum...
17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype? 08.06.2026 47:50
Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin? Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhen...
16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun 25.05.2026 45:51
Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til a...
15. Gæði rannsókna & pseudoscience 30.06.2025 1:09:04
Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast. Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum: Instag...
14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim 12.05.2025 52:08
Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní...
13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera 03.04.2025 51:15
Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu. Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja...
12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það? 14.01.2025 19:50
Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanær...
11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks 23.12.2024 59:36
Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið. Við viljum vekja athyg...
10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni? 09.12.2024 43:50
Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við þetta viðfangsefni. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekk...
09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku? 25.11.2024 22:20
Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Greinar...
08. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðs- & atvinnukona í knattspyrnu 11.11.2024 55:03
Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til Brøndby. Hún deilir einnig með hlustendum hvernig hún undirbýr sig fyrir leik og fer þar m.a. yfir næringun...
07. Þarf íþróttafólk fæðubótarefni eða er matur nóg? 28.10.2024 43:00
Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið...
06. Örþáttur: Næring ungmenna í íþróttum 07.10.2024 17:44
Viðfangsefnið sem við tökum fyrir í þessum þætti er íþróttanæring ungmenna, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að þessum hópi og hvað foreldrar, þjálfarar og samfélagið í heild sinni getur gert til að styðja sem best við okkar upprennandi íþróttafólk. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná...
05. Orku- & kolvetnainntaka, glýkógenbirgðir, frammistaða & bati frá meiðslum 23.09.2024 47:43
Í þessum þætti förum við um víðan völl en rauði þráðurinn í gegnum þáttinn verður orku- og kolvetnainntaka með áherslu á hvernig það skilar sér í frammistöðu, bæði það sem við sjáum í praktík og það sem við sjáum í rannsóknum. En við munum einmitt fara yfir nokkrar vel valdar rannsóknir sem skoða þessa þætti - slóðina á þær finnurðu hér: https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC7891450/pdf/TJP...
04. Calories in vs. calories out - skiptir það máli í tengslum við fitutap? 09.09.2024 1:05:08
Í þessum þætti fjöllum við um grundvallaratriðin í tengslum við 'calories in vs. calories out' og af hverju þessi jafna er ekki eins einföld og mörg virðast halda. Við förum yfir þá margvíslegu þætti sem hafa áhrif á þetta jafnvægi, á borð við innri homeostatic drivera sem og ytri áhrif. Mörg vanmeta hvernig þessir þættir hafa áhrif á þetta jafnvægi. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbú...
03. Líkamssamsetning íþróttafólks & frammistaða 23.08.2024 43:38
Í viðræðum við íþróttafólk, þjálfara og bara almennt í samfélagslegri umræðu verður maður oft var við þungan sem settur er á líkamssamsetningu og þá sérstaklega fituprósentu íþróttafólks. Í þessum þætti ætlum við að velta upp þeirri spurningu hvort það sé til eitthvað ideal viðmið þegar kemur að likamssamsetningu, fituprósentu eða þyngd íþróttafólks. Eins munum við fara yfir kosti og galla mismuna...
02. Periodized nutrition & þjálfunaraðlögun 22.07.2024 45:56
Aðlögun í kjölfar æfinga eða þjálfunar ákvarðast af blöndu mismunandi þátta, en þar má nefna lengd, ákefð og tegund æfinga ásamt því hversu oft við æfum. En mikilvægur þáttur sem spilar þarna inní jöfnuna er magn og gæði næringar. Með aukinni tilkomu rannsókna á sviði íþróttanæringar er alltaf að koma betur í ljós hversu mikil áhrif næringarinntaka getur haft á þjálfunaraðlögun – og þá annaðhvort...
01. Enski draumurinn & íþróttanæringarfræðingar 10.07.2024 45:30
Í þessum þætti förum við aðeins yfir okkar bakgrunn, reynslu og menntun ásamt því að skyggnast aðeins inní strúktúrinn í kringum íþróttafólk erlendis, og þá kannski sérstaklega í Englandi. Einnig förum við aðeins yfir hlutverk íþróttanæringarfræðinga, hvernig við vinnum, markmið okkar með starfinu og okkar stóra mission hér heima þegar kemur að íþróttanæringu. Ef þú ert einhver sem hefur miki...
Pilot þáttur - Kolvetnahræðsla & íþróttafólk 23.05.2024 18:26
Undanfarin ár hefur borið mikið á kolvetnaumræðu í tengslum við íþróttir og þjálfun. Í okkar starfi sem íþróttanæringarfræðingar höfum við nefnilega orðið vör við hvað þessi umræða hefur haft mikil áhrif á það íþróttafólk sem kemur til okkar og skapað mikla hræðslu í tengslum við kolvetnarík matvæli. Ég nýtti því þennan þátt í að fara aðeins yfir hlutverk og virkni kolvetna í líkamanum – þá s...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.