Margrét Björk Jónsdóttir

Vörumerki

Business IS ↓ 15 episodes

Hvernig byggir maður upp traust, trúverðugleika og sterkt vörumerki? Margrét Björk Jónsdóttir ræðir við frumkvöðla og sérfræðinga sem hafa unnið fyrir eða byggt upp sterk vörumerki - og deilir sinni eigin vegferð í leiðinni.

Author

Margrét Björk Jónsdóttir

Category

Business

Podcast website

margretb1990.podbean.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið 09.07.2026

Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku á...

S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt? 02.07.2026

Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma.  Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir...

S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki 25.06.2026

Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað...

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár 18.06.2026

Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrs...

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll 11.06.2026

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það he...

S2E1 | Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“ 11.06.2026

Í fyrsta þætti s02 ræðum við miklar breytingar í persónulega lífinu hjá Margréti frá síðustu seríu og sjálfsmyndarkrísu sem Arna hefur staðið frammi fyrir eftir að hún sagði skilið við auglýsingastofuna Sahara.  Á ólíkan hátt fundum við okkur báðar á þeim stað þar sem við þurftum að spyrja okkur: ….Hver er ég þá? Þá segir Arna frá hugmyndinni á bakvið H9 Studio og Margrét fer yfir stöðuna á vörume...

09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu 18.12.2025

Í þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum. En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum. Við ræðum örvæntinguna...

08 | Heiðbjört Ósk - Þegar erfiðar aðstæður kveikja nýjan neista 11.12.2025

Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu. Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá hen...

07 | Aníta Hirlekar - Tískubransinn og valdamiklir viðskiptavinir 27.11.2025

Aníta Hirlekar, margverðlaunaður íslenskur fatahönnuður, ræðir sinn einstaka feril sem hefur leitt hana að því að hanna fyrir risastór erlend merki og klæða áhrifamesta fólk landsins. Við fáum að heyra um það þegar forsetinn okkar, Halla Tómasdóttir, hafði samband við Anítu á 📲Messenger þegar hana langaði í kjól og hvernig það þróaðist í samstarf þeirra á milli.  Við ræðum tískubransann sem er ha...

06 | Guðrún Sørtveit - „Fyrirtæki vilja bara góðar hugmyndir“ 20.11.2025

Guðrún Helga Sørtveit segir frá því hvernig vörumerkið hennar, Fyrsta árið, varð að veruleika eftir nokkurra ára umhugsun. 📖 Við ræðum allt ferlið, frá hugmynd, hönnun og framleiðslu yfir í markaðssetningu og sölustaði. 💬 Hún ræðir áskoranir sem fylgja því að vera áhrifavaldur með tugþúsundir fylgjenda, athugasemdir á djamminu, dónaleg skilaboð og þá tilfinningu að allir hafi skoðun á henni. 💡...

05 | Guðmundur Heiðar - Er ferskleiki ofmetinn? 13.11.2025

Guðmundur Heiðar Helgason er hugmynda- og textasmiður og ráðgjafi í almannatengslum hjá vörumerkjastofunni Tvist. 🚌 Hann starfaði sem upplýsingafulltrúi hjá Strætó í nokkur ár og segir frá nokkrum af þeim flóknu málum sem hann þurfti að takast á við. Þar af ber eitt mál hæst, sem hann segir það erfiðasta sem hann hafi tekist á við á sínum ferli. Þetta er spjall af betri gerðinni sem inniheldur bæ...

04 | Sirrý Arnardóttir - Fjölmiðlar og framkoma 13.11.2025

Sirrý Arnardóttir er ein reyndasta fjölmiðlakona landsins með yfir þrjátíu ára reynslu í faginu. Við ræðum hvernig áfangi hjá henni fyrir nokkrum árum landaði mér draumastarfinu, sem jafnframt markaði upphafið að mínum fjölmiðlaferli. Við förum yfir fjölmiðlastarfið, kosti og galla, breytingar á fjölmiðlaumhverfinu síðustu ár og ráð fyrir þá sem langar að starfa í faginu. Þá bregður Sirrý sér í ke...

03 | Eva Laufey - Að leyfa sér að þróast 30.10.2025

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir þekkir markaðsmál frá sjónarhorni bæði áhrifavalds og markaðsstjóra. Hún hefur skapað sín eigin tækifæri í gegnum árin og staðið af sér fjölmiðlastorma. Við ræðum „stóra kökudeigsmálið,“ hvort Tax Free dagar Hagkaups séu barns síns tíma, hugsanlega hagsmunaárekstra og hvort nokkur munur sé á manneskjunni og vörumerkinu Evu Laufey. 🎙️ Þáttur um að takast á við nýjar...

02 | Vilma Ýr - „Innsæið öskraði á mig“ 14.10.2025

Einlægt spjall við Vilmu Ýr Árnadóttur, sem eftir 19 ár í sama starfi ákvað að stökkva út í djúpu laugina, fylgja innsæinu og byrja upp á nýtt. Í dag rekur hún sitt eigið fyrirtæki, Vilma Home, sem hefur vaxið hratt undanfarið ár. Við ræðum ferlið sem það er að byggja upp vörumerki frá grunni og Vilma segir meðal annars frá mistökum sem kostuðu hana margar milljónir. Þetta er þáttur stútfullur af...

01 | Sesselía Birgisdóttir - Þú sem vörumerki 14.10.2025

Sesselía Birgisdóttir þekkir svo sannarlega sterk vörumerki, hún hefur stýrt markaðsstarfi og stafrænum umbreytingum hjá fyrirtækjum eins og Advania, Högum, Póstinum og Vodafone. Í þessum fyrsta þætti deilir Sesselía því hvernig hún beitti sömu aðferðum til að byggja upp sitt eigið vörumerki og hvernig sú ákvörðun átti eftir að hafa fjölmörg tækifæri í för með sér. 💡 🎙️ Skylduhlustun fyrir þá sem...

Listen to the Vörumerki podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.